Morgunblaðið - 06.03.1987, Síða 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. MARZ 1987
©1966 Unlv«fMl Press Syndlcate
PIZZA
I HBlSEDlUú/
O'KBVPIS HElSEDiNiSAC'-
þJÓNOSTA
P!T______
nþr
, Wann Spyr hi/ort viíS sendum
til Afnku."
Ast er...
... að 6era ^awa
upp himnastiga
hamingjunnar.
TM Reg. 'J.S. Pat. Ott — all rights reserved
©1983 Los Angetes Tímes Syndicate
<2?
Maður fyrir borð!
HÖGNI HREKKVÍSI
Þesslr hringdu . . .
Endursýnið
þáttinn um
Kristján fjalla-
skáld
Gömul kona í Hafnarfirði hringdi:
Ég vil beina því til forráðamanna
sjónvarpsins að þeir endursýni þátt-
inn um Kristján fjallaskáld. Ég varð
fyrir þeirri óheppni að missa af
þessum þætti og veit að svo er um
margt annað gamalt fólk.
Leikfimi í sjón-
varpið
Svanlaug hringdi:
Ég vil taka undir með konunni
sem biður um að leikfímiþáttur
verði sýndur í sjónvarpinu. Ég er
með börn heima sem ég þarf að
passa og kemst því lítið frá. Þetta
myndi henta manni mjög vel.
Nöldrari vinni
fyrir sér sjálfur
Valgerður Ólafsdóttir hringdi:
Ég get ekki orða bundist vegna
greinar „Nöldrara" í Velvakanda
fyrr í vikunni um það að hann verði
líklega að hætta við að vinna næsta
sumar þar sem það myndi skerða
námslánin hans. Hann á að mínu
mati að vinna fyrir sér sjálfur og
taka minna lán. Það þótti mann-
dómur hér áður fyrr að vinna fyrir
sér sjálfur. Ég er kominn á áttræð-
isaldur og hef unnið fyrir mér síðan
ég var sextán ára.
Fann tösku
Beggi hringdi:
Eg fann iitla tösku með smá
peningum í rétt hjá Glæsibæ sl.
laugardagsmorgun. Eigandi getur
hringt í síma 38954 eftir kl 17.
Amman stór-
kostleg
Nokkar á Akueyri hringdu:
Við viljum koma á framfæri
þakklæti fyrir Brúðubílinn i sjón-
varpinu. Nú hafa verið tveir þættir
í röð með ömmunni og Lilla en þau
höfða mjög vel til litlu krakkanna.
Amman er stórkostleg fyrir litlu
bömin.
■ VELVAKANDI
SVARAR f SfMA
691100 KL. 13-1«
FRÁ MÁNUDEGI
■TIL FÖSTUDAGS
MUHáa MHII
Slj órnmálamenn og þunglyndi
Kæri Vdvakandi,
Ég er að byija í háskólanámi og
mun héreflir sem hingað til vinna
i sumarleyfum. En nú stend ég
frammi fyrir einkennilegu vanda-
máli sem ég sé ekki fram á að geta
leyst. Felst það í því að ég verð
eiginlega að liggja í leti næsta sum-
ar til þess að geta lifað af næsta
vetur. Ótrúlecd <»- -
til verðandi þingmanna: Beitið ykk-
ur fyrir breytingum á þessu rugli.
Ég held að ég sé ekki að tala fyrir
hönd minnihlutahóps, allavega hafa
mér ekki borist til eyma þær radd-
ir sem halda því fram að letin göfgi
manninn. .
Nöldn
Tl
Víkverji skrifar
Yfirleitt hefur það verið skoðun
manna, sem Víkvetji hefurtal-
að við, að landsfundur Sjálfstæðis-
flokksins, sem hófst í gær, verði
rólegur fundur og átakalaus.
Reynslan sýnir þó, að ekkert er
hægt að fullyrða um slíkt fyrirfram.
Þessir fundir eru orðnir svo viða-
miklir, að nánast ómögulegt er fyrir
forystulið Sjálfstæðisflokksins, að
hafa einhveija stjórn á þeim eða
ráða atburðarásinni. Þess vegna
getur allt gerzt á landsfundum.
Kosning formanns og varafor-
manns t.d. fer fram án tilnefningar.
Atkvæðaseðlum er dreift á meðal
landsfundarfulltrúa og þeir rita á
seðlana nafn þess manns, sem þeir
vilja kjósa sem formann og síðan í
annarri kosningu sem varaformann.
Þetta þýðir, að ef einhver óánægja
er á ferðinni meðal landsfundarfull-
trúa með þá, sem gegna þessum
störfum hveiju sinni, getur hún
komið fram í atkvæðagreiðslu, ekki
endilega á þann hátt, að viðkom-
andi falli í kosningu, heldur með
þeim hætti, að áberandi mörg at-
kvæði falli á aðra. Þetta hefur gerzt
á landsfundum.
Kosningar til miðstjórnar eru
jafnan býsna harðar og fast sóttar
af þeim, sem hug hafa á að komast
í miðstjóm Sjálfstæðisflokksins.
Sennilega er hún ekki jafn valda-
mikil stofnun innan Sjálfstæðis-
flokksins og hún var áður fyrr,
þegar hún var tiltölulega fámenn.
En skipan hennar nú og fjöldi mið-
stjórnarmanna endurspeglar óneit-
anlega þá breytingu, sem orðið
hefur á Sjálfstæðisflokknum. Af
þessu má sjá, að þótt engin stór-
átök séu í flokknum um þessar
mundir getur engu að síður orðið
tíðindasamt í kosningum.
XXX
að var skemmtilegt að hlusta
á franska bankastjórann, sem
talaði á viðskiptaþingi Verzlunar-
ráðsins á dögunum. Hann kemur
úr dálítið öðru umhverfí en við eig-
um að venjast. Yflrleitt eru slíkir
fyrirlesarar sóttir til Norðurlanda
eða hins enskumælandi heims, en
það var vel til fundið hjá Verzlunar-
ráðinu að leita til Frakklands í þetta
sinn. Efnahagslíf Frakka er mjög
öflugt og hið sama má segja um
mörg atvinnufyrirtæki þar í landi
og þess vegna fróðlegt fyrir okkur
að heyra sjónarmið þaðan. Það er
orðin föst venja hjá Verzlunarráð-
inu að fá hingað erlenda fyrirlesara,
sem hafa gegnt eða gegna ábyrgð-
arstöðum í sínu heimalandi. Þessir
menn hafa miðlað miklu af reynslu
sinni til okkar, þótt sjálfsagt verði
Svíamir Curt Nicolin og Per Gyllen-
hammar eftirminnilegastir af þeim
mönnum, sem hingað hafa komið.
Hvemig væri að reyna að fá
Iaccoca?
xxx
Bandaríkjamenn deila nú hart
um afskipti eiginkonu Reag-
ans, Bandaríkjaforseta af málum í
Hvíta húsinu. Em þeir búnir að
gleyma frú Carter eða Eleanor
Roosevelt, en báðar þessar konur
þóttu mjög umsvifamiklar í banda-
rískum stjómmálum, þegar eigin-
menn þeirra gegndu forsetaemb-
ætti?