Morgunblaðið - 06.03.1987, Qupperneq 56

Morgunblaðið - 06.03.1987, Qupperneq 56
FOSTUDAGUR 6. MARZ 1987 VERÐ 1 LAUSASOLU 50 KR. Hreyf ing á viðræðum HÍKog ríkisins Nýjar tillögur vænt- anlega lagðar fram á fundi á morgun „Það er hreyfing á viðræð- unum. Við erum að tala um raunverulegar breytingar á samningnum. Launatölur hafa ekki verið teknar til umfjöllun- ar ennþá, enda þarf fyrst að átta sig á því hvaða afleiðingar þessar breytingar á samningn- um hafa,“ sagði Kristján Thorlacius, formaður Hins íslenska kennarafélags, í sam- tali við Morgunblaðið um gang samningaviðræðna félagsins við ríkisvaldið, en HÍK hefur boðað verkfall frá og með mánudeginum 16. mars hafi samningar ekki tekist fyrir þann tíma, fyrst aðildarfélaga BHMR. Næsti fundur með fulltrúum ármálaráðherra hefur verið ákveðinn á morgun, laugardag, en tveir fundir hafa verið í þess- ari viku. Sagði Kristján að ætlunin væri að leggja fram áþreifanlegar tillögur um breyt- ingar a samningnum á fundinum á laugardaginn og tíminn þangað til yrði notaður til þess að móta þær. Morgunblaðið/Árni Sæberg. Laugardalshöll var þéttsetin við upphaf Landsfundar Sjálfstæðisflokksins í gær. Alls sitja fundinn um 1200 fulltrúar. Þorsteinn Pálsson er í ræðustól. 27. Landsfundur Sjálfstæðisflokksins settur í gær: „Höfum málefna- lega sterka vígstöðu“ -sagði Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins LANDSFUNDUR Sjálfstæðis- flokksins, sá 27. í röðinni, var Morgunblaðið/Þorkell Páll Guðmundsson hjá Snælaxi hf. vitjaði eldiskvianna á Grund- arfirði í gær. Fiskurinn virtist vel haldinn þótt .enn vottaði fyrir oliubrák á sjónum. Fiskeldi Snælax virðist úr hættu Þriðji olíulekinn á skömmum tíma ÓHAPPIÐ á Grundarfirði, þar sem 80.000 lítrar af gasolíu láku i sjóinn og menguðu eldis- kvíar Snælax, er þriðja slysið af þessu tagi á einu og hálfu ári. Að sögn Þorvaldar Ólafs- sonar starfsmanns Siglinga- málastofnunar er frágangi mannvirkja sem notuð eru til oliudreifingar úti á landi viða ábótavant. Geymir Oliuverslun- ar íslands á Grundarfirði sem menguninni olli er einn þeirra sem ekki standast núgildandi reglur. íslenskt vetrarveður kom Grundfírðingum til bjargar í gær og flýtti fyrir dreifingu og niður- broti olíunnar. Eldi Snælax virðist ekki hafa orðið fyrir skaða, en staðfesting á því hvort fískurinn sé ósýktur fæst ekki fyrr en að nokkrum tíma liðnum. Stefnt er að því að 100.000 laxar og regn- bogasilungar sem í kvíunum eru nái sláturstærð næsta haust og er söluverðmæti þeirra áætlað 45 milljónir króna. Sjá ennfremur frétt á bls. 2. settur við hátíðlega athöfn í Laugardagshöll kl. 17.30 í gær, að viðstöddu miklu fjölmenni, en alls hafa um 1200 fulltrúar rétt til setu á landsfundinum. Lúðra- sveit Reykjavíkur lék nokkur lög á meðan gestir komu sér fyrir og því næst lék Léttsveit Ríkisút- varpsins nokkur lög. Þá söng Kristinn Sigmundsson óperu- söngvari nokkur lög, við mikinn fögnuð fulltrúa. Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði m.a. í ræðu sinni við upphaf fundarins: „Kosningar til Alþingis standa fyrir dyrum. Við komum hér saman til þess að hefla lokasókn kosninga- baráttunnar: - Til þess að þétta raðimar, - til þess að efla samstöðuna, - til þess að skerpa brand málstað- arins og hugsjónarinnar." Þorsteinn sendi Geir Hall- grímssyni, fyrrverandi formanni Sjálfstæðisflokksins, kveðjur sínar og landsfundarins, þar sem Geir er nú til stuttrar dvalar á sjúkrahúsi og situr að þessu sinni ekki lands- fund, í fyrsta sinn frá 1943. Þorsteinn gerði grein fyrir þróun landsmála síðastliðin fjögur ár, eða frá því að núverandi ríkisstjóm tók við völdum. Hann sagði meðal ann- ars: „Engum blöðum er um það að fletta, að það stjórnarsamstarf sem stofnað var til við framsóknarmenn í maímánuði 1983, hefur í öllum meginatriðum verið árangursríkt." Hann sagði að óðaverðbólgan hefði auðvitað verið höfuðviðfangsefni ríkisstjómarinnar, og þó að ekkert annað hefði gerst undanfarin fjögur ár, væri árangurinn í baráttunni við verðbólguna nægjanlegur, einn út af fyrir sig, til þess að sjálfstæðis- menn gætu gengið til kosninga með málefnalega sterka vígstöðu. Hann benti á að andstæðingar Sjálfstæð- isflokksins segðu að baráttan við verðbólguna hefði verið auðveld í því góðæri sem verið hefði, en um þessa athugasemd væri tvennt að segja: Árangurinn hefði náðst í upphafi kjörtímabils, „þegar þjóðin gekk í gegnum einhveija dýpstu efnahagslægð í þijá áratugi ... í öðm lagi er rétt að hafa í huga, að upp úr góðæriskaflanum í kring- um 1980, spratt mesta óðaverð- bólga sögunnar, mesta erlenda skuldasöfnun sögunnar og mesti viðskiptahalli sem við höfum glímt við,“ sagði Þorsteinn Pálsson. Landsfundarfulltrúar fögnuðu máli formanns síns ákaft að ræðu lokinni. Ungir landsfundarfulltrúar hitt- ust í gærkveldi á fundi, svo og konur á landsfundi. Fundi verður haldið áfram kl. 9 árdegis í dag. Sjá ennfremur ræðu Þorsteins Pálssonar á miðopnu og frétt og myndir á bls. 5. Fyrsta Holiday-Inn hótelið opnar í júní FRAMKVÆMDIR við byggingu fyrsta Holiday Inn-hótelsins hér á landi eru nú að komast á loka- stig og að öllu forfallalausu er gert ráð fyrir að hótelið opni 17. júní næstkomandi. Að sögn Guð- björns Guðjónssonar, eiganda hótelsins, hefur orðið vart mikils áhuga fyrir hótelinu og eru bók- anir þegar farnar að berast. Hótelið, sem er í Sigtúni 38 í Reykjavík, verður rekið í tengslum við Holiday Inn-hótelkeðjuna, sem þó á ekki hlut í því, heldur fær hótelið að nota nafn keðjunnar að uppfylltum ákveðnum skilyrðum og gæðakröfum varðandi húsnæði, búnað og þjónustu. Má þar nefna að gerðar eru ákveðnar kröfur um stærð herbergja, stærð rúma, sér- stakan húsbúnað, gerð gluggatjalda og þykkt gólfteppa svo nokkuð sé nefnt. Hótelið verður yfir 7.000 fer- metrar að grunnfleti og þar verða 100 vel búin gistiherbergi, sem rúma rúmlega 200 manns í gist- ingu. Þá verða þar nokkrir ráð- stefnu- og veislusalir, tveir veitingasalir, tveir barir, minja- gripaverslun, ferðaskrifstofa, hárgreiðslustofa og heilsurækt. Teiknistofa Gunnars Hanssonar teiknaði hið nýja hótel. Sjá viðtal og myndir á bls. 22. BRunnBór -AfÖRYGGISASTÆÐUM Nýjungar í 70 ár V^terkurog k-/ hagkvæmur auglýsingamiðill! jllgtgiittiftlaftift

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.