Morgunblaðið - 10.03.1987, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. MARZ 1987
Nýr samning-
ur við presta
STJÓRN- og fulltrúaráð Presta-
félags íslands samþykkti í gær
nýjan kjarasamning við ríkisvald-
ið, sem gildir frá 1. mars í ár til
áramóta 1988/89. Samningurinn
er á svipuðum nótum og nýgerður
samningur við sjúkrahúslækna og
felur í sér um 5% meðaltals-
hækkun launa við gildistöku, en
um 18-20% hækkun á samnings-
tímanum. Áfangahækkanir á
þessu ári eru þær sömu og í samn-
ingi ASÍ ogVSÍfrá því i desember
og byrjunarlaun hækka sérstak-
lega umfram önnur laun vegna
flokkatilfærslna.
Geir Waage, formaður Prestafé-
lagsins, sagði að byijunarlaun presta
hækkuðu við samninginn úr 42.827
í 48.690 krónur á mánuði. Þá eru í
samningnum ákvæði vegna sérstöðu
presta hvað varðar óreglulegan
vinnutíma og vegna sérþjónustu-
embætta, sem eru nokkur. Endur-
skoðunarákvæði eru í samningnum
verði launahækkanir á almennum
vinnumarkaði á næsta ári. Prestar
fá áfram greitt sérstaklega fyrir
embættisverk og hækkar gjaldskrá-
in nú um 5,24%.
Í Prestafélaginu eru um 120 fé-
lagar og hefur félagið ekki verk-
fallsrétt.
Níu kókaín-
neytendur hand-
teknir í Keflavík
Alls 20 manns flæktir í málið
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Umbúðir utan af kókaíni, sprautur, vasahnífar og önnur tæki, sem
fundust við húsleit í Keflavík um helgina.
Óleyfileg aukaefni í mat
heyra til undantekninga
- segir forstjóri Hollustuverndar ríkisins
ÞAÐ HEYRIR til undantekninga að fyrirtæki séu kærð fyrir að
nota óleyfileg efni I matvæli og matvælaiðnaður hér á landi upp-
fyllir yfirleitt sett skilyrði, að sögn Arnar Bjarnarsonar forsljóra
Hollustuverndar ríkisins, enda hafi menntun stóraukist innan þeirr-
ar starfsgreinar.
Morgunblaðið sagði frá því
síðastliðinn sunnudag að Hollustu-
vemd ríkisins hefði kært tvö fyrir-
tæki, Sláturfélag Suðurlands og
Fiskiðjuna Arctic hf. til ríkissak-
sóknara fyrir að nota óleyfileg efni
í matvæli. í samtali við Morgun-
blaðið sagði Öm Bjamason forstjóri
Hollustuvemdarinnar að þessar
kærur, og kæra á hendur K. Jóns-
son á Siglufírði síðastliðið haust,
væru þær fyrstu vegna óleyfilegra
aukaefna í langan tíma og heyrðu
því til undantekninga. Þau efni sem
kært var yfir, súlfíð í hamborgurum
frá SS og rotvamarefnið hexameth-
ylentetramin í vömm Arctic og K.
Jónsson, væm síðan ekki bráð-
hættuleg en gætu valdið kvillum
þegar fram í sækti og raunar væm
mörg rotvamarefni varasöm.
Örn sagði að reynt væri að setja
reglur um notkun slíkra efna sem
hægt væri að fara eftir með góðu
móti og ekki væri tekið strangt á
brotum sem verða vegna mistaka
og leiðrétt strax. Ef hinsvegar væri
um alvarleg og ítrekuð brot að
ræða væri tekið harðar á málunum.
Sem dæmi um farsæla lausn á
slíku máli tók Öm nitrit sem notað
var í óleyfílegu magni í saltkjöt um
tíma. Nokkrar leiðir vom reyndar
til að stemma stigu við því með því
meðal annars að uppfræða fram-
leiðendur um áhrif efnisins. Síðan
var fundin einföld lausn til að hafa
stjóm á nitritmagni í lqotinu, sú
að nota salt blandað nitriti í hættu-
lausum hlutföllum svo ef of mikið
salt var notað, og þar með of mikið
nitrit, var kjötið óætt.
Sláturfélag Suðurlands hefur
sent frá sér athugasemd vegna
frettar Morgunblaðsins um kæm
vegna súlfíðs í hamborgurum. Þar
kemur fram að Sláturfélagið hafi
um árabil keypt tilbúna krydd-
blöndu frá Englandi og sé sú
kryddblanda í samræmi við reglu-
gerðir enskra yfirvalda um mat-
vælavinnslu. Notkun þeirrar
kryddblöndu hafí hinsvegar verið
hætt fyrir 4 mánuðum. Einnig er
tekið fram að súlfíðið gufí upp við
steikingu og hverfi því að mestu
leyti úr hamborgurunum. Að auki
sé súlfíð í ýmsum neysluvömm sem
hér em seldar, svo sem rauðvíni,
þurrkuðum ávöxtum og ýmsum
ávaxtasöfum.
Þegar þetta var borið undir Örn
Bjamason sagði hann að kæran
vegna súlfíðsins hefði verið byggð
á mælingum sem framkvæmdar
vom af öðmm en Hollustuvemdinni
og þaðan hefði verið staðfest að
súlfíð fyndist í hamborgurunum.
Það væri engin afsökun að efnið
kæmi frá öðmm löndum því þar
gæti ýmislegt verið leyft sem ekki
er leyft hér.
Öm sagði síðan að öll efni sem
sett em í matvæli brotni niður í
önnur efni við meðferð eða meltingu
en það væri ekki að ástæðulausu
að einstök efni væm bönnuð.
Morgunblaðið hafði einnig sam-
band við Þorstein Jónsson fram-
kvæmdastjóra Arctic hf. Hann
sagði að hann hefði ekki vitað um
neina kæm fyrr en hann sá fréttina
í Morgunblaðinu og hún hefði því
komið sér mjög á óvart. Þorsteinn
sagðist að vísu hafa notað hexa-
methylentetramin í kavíar sem
ætlaður var til útflutnings á mark-
aði þar sem efnið er leyfílegt, og
umframframleiðsla hefði verið seld
í búðir hérlendis sem hefðu verið
mistök. Notkun efnisins hefði síðan
verið hætt í ágúst síðastliðið sumar.
Þorsteinn sagði að Hollustu-
vemdin hefði gert athugasemdir við
kavíarinn í október en hefði þá að
hans mati fengið fullnægjandi skýr-
ingar og síðan hefði hann ekkert
af málinu frétt fyrr en hann las um
kæmna í Morgunblaðinu.
Keflavfk.
FÍKNIEFNALÖGREGLAN í
Keflavík réðst aðfaranótt
laugardagsins inn í hús við
Hafnargötu með kúbein að
vopni. Grunur lék á að íbúar
hússins hefðu óhreint mjöl í
pokahorninu. Inni í húsinu
voru 9 manns, sem flestir
voru meira og minna undir
áhrifum fíkniefna. Þegar
fólkið varð vart við umgang
lögreglumannanna reyndi
það að losa sig við fíkniefn-
in, en lögreglumennirnir
voru snarari í snúningum og
tókst að koma í veg fyrir
það. Fólkið var allt hand-
tekið, sett í járn og fært í
fangageymslur lögreglunn-
ar.
Rannsókn leiddi í ljós, að fólkið
hafði verið að neyta kókaíns og
bámst böndin að 27 ára Njarðvík-
ingi, sem við yfirheyrslu viður-
kenndi að hafa flutt efnið inn frá
Bandaríkjunum. Lögreglan fór
síðar um nóttina í húsið til frekari
rannsóknar og þegar að var komið,
hafði verið brotizt inn í það. Þar
inni fundu lögreglumennimir tvær
stúlkur úr Reykjavík, 18 og 21 árs,
sem vom rænulitlar eftir fíkniefna-
neyzlu. Einnig fundust sprautur og
talsvert magn af amfetamíni í fór-
um þeirra. Þær höfðu ætlað að
heimsækja íbúa hússins og em ekki
taldar tengjast kókaínmálinu.
Alls var fíkniefnalögreglan með
20 manns í haldi um helgina, sem
flæktust í mál þetta. Leita varð á
náðir lögreglunnar á Keflavíkur-
flugvelli um fangelsispláss. Óskar
Þórmundsson, lögreglufulltrúi
ávana- og fíkniefnamála í Keflavík,
sagði í samtali við Morgunblaðið,
að sjaldgæft væri að kókaín væri
tekið af fólki hér á landi. Efnið
væri dýrt og kostaði grammið
10.000 krónur. Maðurinn, sem flutti
efnið inn, hefði ekki komizt í kast
við fíkniefnalögregluna fyrr. Hann
hefði sagt við yfirheyrslu, að með
því að flytja efnið til landsins og
selja það, hefði hann ætlað að
drýgja tekjumar.
BB
Léstaf
slysförum
PILTURINN, sem varð fyrir bif-
reið á Reykjanesbraut í síðustu
viku, lést á Borgarspítalanum á
föstudag. Hann hét Sigurbergur
Jóhannsson, til heimilis að Grund
í Höfnum.
Sigurbergur heitinn var fæddur
8. febrúar 1973 og var því nýorðinn
14 ára. Hann var að fara í skíðaferða-
lag með skólasystkinum sínum um
hádegi á miðvikudag þegar slysið
varð. Rútan sem unglingamir voru í
stansaði á Reykjanesbraut til móts
við Hnoðraholt í Garðabæ. Pilturinn
hljóp út á veginn og varð fyrir bif-
reið sem ók norður brautina.
Sigurbergur Jóhannsson
Verkfallsboðunum fjölgar
NOKKUR félög háskólamenntaðra ríkisstarfsmanna hafa boðað verk-
fall síðar i þessum mánuði og atkvæðagreiðsla er í gangi í nokkrum
félaganna, þar sem leitað er heimildar félagsmanna til verkfalls-
boðunar.
Félagar í Sálfræðingafélaginu
greiddu atkvæði um helgina. 37
manns höfðu atkvæðisrétt og 34
greiddu atkvæði. 27 sögðu já við
verkfalli, en sjö nei. „Við vonum það
heitt að það þurfi ekki að koma til
verkfalls, því auðvitað er þetta al-
gjört örþrifaráð hjá svona félagi. Við
gerum okkur fulla grein fyrir því að
þetta verkfall kemur verst niður á
skjólstæðingum okkar,“ sagði Júllus
Bjömsson, sem er fyrir samninga-
nefnd Sálfræðingafélagsins.
Félag íslenskra fræða hefur einnig
boðað verkfall frá og með 23. mars.
Félagið Útgarður, en að því eiga
aðild þeir sem ekki hafa rétt til aðild-
ar að öðmm félögum innan BHMR,
felldu hins vegar að boða til verk-
falls með 21 atkvæði gegn 20. 4
seðlar vom auðir, en 61 hafði atkvæð-
isrétt.
Atkvæðagreiðslu um verkfall lýkur
í kvöld hjá Félagi náttúmfræðinga
og Félagi bókasafnsfræðinga. Þá
hefur HÍK boðað verkfall ffá og með
16. mars og Félag háskólamenntaðra
hjúkmnarfræðinga og sjúkraþjálfar-
ar frá og með 19. mars.
Landsfundur Sjálf stæðisf lokksins:
Formaðurinn endurkjörinn
með 97,8% gildra atkvæða
ÞORSTEINN Pálsson formaður Sjálfstæðisflokksins var endur-
kjörinn formaður flokksins á Iandsfundi á sunnudag, með 946
atkvæðum, sem er 97,8% gildra atkvæða. Friðrik Sophusson vara-
formaður flokksins var einnig endurkjörinn, með 851 atkvæði,
sem er 89,7% gildra atkvæða. Fögnuðu landsfundarfulltrúar þess-
ari niðurstöðu með langvinnu lófataki.
Miðstjómarkjör fór einnig fram
síðdegis á sunnudag og vom úr-
slit þess kynnt í lokahófí fundarins
um miðnætti í fyrrakvöld. Geir
Hallgrímsson, Jónas Haralz og
Björg Einarsdóttir vom í mið-
stjóm, en þau gáfu ekki kost á
sér til endurkjörs. Davíð Oddsson
borgarstjóri hlaut flest atkvæði í
miðstjómarkjörinu. Þeir sem náðu
kosningu í mistjóm em:
1. Davíð Oddsson, 853 atkvæði.
2. Bjöm Þórhallsson, 842 at-
kvæði.
3. Einar K. Guðfínnsson, 833
atkvæði.
4. Davíð Scheving Thorsteins-
son, 714 atkvæði.
5. Gunnar Ragnars, 678 at-
kvæði.
6. Theódór Blöndal, 641 at-
kvæði.
7. Sigríður A. Þórðau-dóttir, 638
atkvæði.
8. Katrín Fjeldsted, 637 at-
kvæði.
9. Erlendur Eysteinsson, 635
atkvæði.
10. Sigurður M. Magnússon,
617 atkvæði.
11. Sigurður Einarsson, 577
atkvæði.
Pétur Sigurðsson alþingismað-
ur sat í miðstjóm, en hann náði
ekki kjöri að þessu sinni, kom
næstur að atkvæðamagni á eftir
Sigurði Einarssyni, með 518 at-
kvæði. María E. Ingvadóttir hlaut
483 atkvæði. Fjórir nýir mið-
stjómarmenn vora þvf kjömir nú:
Theódór Blöndal, Sigríður A.
Þórðardóttir, Erlendur Eysteins-
son og Sigurður M. Magnússon.