Morgunblaðið - 10.03.1987, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. MARZ 1987
17
Árlegnr fundur prófasta í Reykjavík
Phillip R. Berry, heimsforseti
J C-hreyf ingarinnar.
PRÓFASTAR landsins, 15 að tölu
koma saman til árlegs fundar,
að þessu sinni í Reykjavík dagana
10.-16. mars. Prófastafundurinn
hefst með athöfn i Dómkirkjunni
kl, 10.30 í dag þar sem biskup
íslands setur fjóra nýja prófasta
inn f embætti, þá sr. Birgi Snæ-
björnsson á Akureyri prófast
Eyfirðinga, sr. Tómas Guð-
mundsson í Hveragerði prófast
Árnesinga, sr. Þorleif Kjartan
Kristmundsson á Kolfreyjustað
prófast Austfirðinga, og sr. örn
Friðriksson á Skútustöðum próf-
ast Þingeyinga.
Síðdegis í dag verður fjallað um
drög að erindisbréfum sóknar-
nefnda, safnaðarfulltrúa, meðhjálp-
ara, hringjara og kirkjuvarða. Um
kvöldið bjóða biskupshjónin til
kvöldverðar í Biskupsgarði.
Á miðvikudag verða þeir sr. Sig-
urður Ámi Þórðarson rektor í
Skálholti og sr. Bragi Friðriksson
prófastur í Garðabæ ffamsögu-
menn um efnið Námsbraut í
safnaðarþjónustu (diakonia) og
þörfín á þeirri þjónustu í kirkjum.
Síðdegis sama dag verður greint'
frá undirbúningi kristnitökuhátíðar
árið 2000 og þætti prófastanna í
þeim undirbúningi. Borgarstjóra-
hjónin bjóða próföstum til hádegis-
verðar í Höfða.
Á fímmtudag verður rætt um
sóknargjöld og hugsanlegar breyt-
ingar á gjöldum til kirkju og kirkju-
garða vegna nýrra skattalaga.
Þann dag heldur Prófastafélagið
aðalfund sinn en núverandi formað-
ur þess er sr. Ólafur Skúlason
dómprófastur. Prófastafundinum
lýkur með altarisgöngu í Dómkirkj-
unni á fimmtudag kl. 18.00.
Fundur prófastanna verða í fund-
arsal Kirkjuhússins, Suðurgötu 22
í Reykjavík.
Auk hinna fjögurra prófasta,
biskups og biskupsritara, sitja eftir-
farandi prófasta fundinn: sr.
Sigmar Torfason, Skeggjastöðum,
prófastur í Múlaprófastsdæmi, sr.
Fjalar Siguijónsson, Kálfafellstað,
prófastur Skaftfellinga, sr. Sváfnir
Sveinbjamason, Breiðabólstað, pró-
fastur Rangæina, sr. Bragi Frið-
riksson, Garðabæ, prófastur
Kjalnesinga, sr. Jón Einarsson,
Saurbæ, prófastur Borgfírðinga, sr.
Ingiberg J. Hannesson, Hvoli, pró-
fastur Snæfellinga og Dalamanna,
sr. Ólafur Skúlason, Reykjavík, pró-
fastur Reykvíkinga, sr. Þórarinn
Þór, Patreksfírði, prófastur Barð-
strendinga, sr. Lárus Þ. Guðmunds-
son, Holti, prófastur í ísafjarðar-
prófastsdæmi, sr. Robert Jack,
Tjöm, prófastur Húnvetninga og
sr. Hjálmar Jónsson, Sauðárkróki,
prófastur Skagfirðinga.
(Fréttatilkynning)
Heimsforseti
JC hreyfing-
arinnar til
Islands
HEIMSFORSETI JC-hreyfingar-
innar, Phillip R. Berry, kemur í
heimsókn til íslands á morgun,
miðvikudaginn 11. mars, og mun
hann dvelja hér í tvo daga. Af
því tilefni halda JC-félögin í
Reykjavík sérstakan fund með
heimsforsetanum í Átthagasal
Hótel sögu annað kvöld.
Phillip R. Berry er frá Banda-
ríkjunum, og er hann nú á ferðalagi
um þau 74 aðildarlönd hreyfíngar-
innar víðs vegar um heiminn, sem
saman telja um 450 þúsund aðildar-
meðlimi. Á fundinum á Hótel Sögu
á miðvikudagskvöld mun almennum
félögum úr íslensku hreyfíngunni
gefast kostur á að ræða við heims-
forsetann og spyija hann um
starfsemi alþjóðahreyfíngarinnar á
þessu ári.
Meðan á dvöl heimsforsetans
stendur mun hann heimsækja ýmis
fyrirtæki og stofnanir. Þá mun
hann heimsækja forseta íslands,
Vigdísi Finnbogadóttur og borgar-
stjórann í Reykjavík, Davíð Odds-
son.
(Fréttatilkynning)
TÍMABUNDIN VERÐLÆKKUN UM TUGI
PRÓSENTA
(á meðan birgðir endast)
OG LÁTTU IBM-DRAUMINN RÆTAST
STRAX í DAG!
(samvinnu við IBM á (slandi höfum við lækkað verð á IBM PC tölvum um ótrúlegar upphæðir. Þetta er tímabundið
tilboð, sem einungis gildir á meðan takmarkaðar birgðir endast. Gríptu því tækifærið strax, láttu drauminn um
alvöru einkatölvu frá IBM rætast - og þú gengur að fullkominni þjónustu vísri um langa framtíð.
Við afgreiðum tölvurnar þannig að þær komist í gang á borðinu þínu samdægurs.
Hafðu samband; í dag til öryggis!
Ferðamála-
ráðstefnan
í lok mars
Ferðamálaráðstefnan 1987
verður haldin á Hótel Sögu I
Reykjavík dagana 26.-27. mars
nk. Ráðstefnan verður sett kl.
10.00 þann 26. mars. Þess er
vænst að fuiltrúar þingflokk-
anna muni flytja stutt ávörp og
greina frá stefnu og afstöðu við-
komandi stjómmálaflokks til
uppbyggingar ferðaþjónustu
sem atvinnugreinar á íslandi.
Meginviðfangsefni ráðstefnunn-
ar verða landkynningarmál og
umhverfis- og náttúruvemdarmál.
Að loknum framsöguerindum um
þessa tvo þýðingarmiklu mála-
flokka er gert ráð fyrir að ráð-
stefnugestir skipi sér í tvo
vinnuhópa, sem skili síðan tillögum
og verða þær til nánari umfjöllunar
síðari hluta föstudagsins 27. mars.
Ferðamálaráðstefnan er opin öll-
um áhugamönnum um ferðamál.
Þátttöku skal tilkynna til skrifstofu
Ferðamálaráðs íslands, Laugavegi
3 í Reykjavík.
(FréttatUkynning.)
VJterkurog
hagkvæmur \
auglýsingamiðill!
PC
256 K innra minni, 1 x 360 Kb diskettudrif, lyklaborð, einlitur skjár,
tengibúnaður fyrir skjá og prentara, MS - DOS 3.2 stjórnkerfi.
59.900
PC XT/SDD 99?9Q5 ££ 900
640 K innra minni, 2 x 360 Kb þunn diskettudrif, nýtt lyklaborð, einlitur
skjár, tengibúnaður fyrir skjá og prentara, MS - DOS 3.2 stjórnkerfi.
PC XT/SFD 9QQ
640 K innra minni, 1 x 360 Kb þunn diskettudrif, 1 x 20 Mb seguldisk-
ur, nýtt lyklaborð, ein'itur skjár, tengibúnaður fyrir skjá og prentara,
RS 232 tengi, MS - DOS 3.2 stjórnkerfi.
ÍBM stoðforrit, IBM prentarar, IBM aukabúnaður og IBM þjónusta eins og hún gerist allra best.
Það skiptir líka máli!
Ókeypis stjórnkerfisnámskeið fylgir hverri IBM tölvu frá Skrifstofuvélum hf.
= Á BETRA VERÐI EN EFTIRLIKINGAR
v V.
SKRIFSTOFUVÉLAR H.F.
Hverfisgötu 33, sími: 20560
Akureyri: Tölvutæki - Bókval
Kaupvangsstræti 4, simi: 26100
Viðurkenndur
söluaðili