Morgunblaðið - 10.03.1987, Síða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. MARZ 1987
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. MARZ 1987
35
pii0r0iwilrtóil>
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aöstoðarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
Árvakur, Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033.
Áskriftargjald 500 kr. á mánuöi innanlands. I lausasölu 50 kr. eintakiö
Sj álf stæðismenn
á réttri leið
27. landsfundur Sjálfstæðis-
flokksins var haldinn undir
kjörorðinu Á RÉTTRI LEIÐ. Með
því er í senn vísað til hins liðna
og fram á veginn. Niðurstaða
landsfundarins og sú eindrægni
sem þar ríkti bendir til þess, að
þessi eitt þúsund manna forystu-
sveit flokksins sé sömu skoðunar
og höfundar kjörorðsins. Þor-
steinn Pálsson hlaut óskorað
traust í formannskjörinu og Frið-
rik Sophusson nýtur einnig mjög
mikils stuðnings sem varaformað-
ur. Við val á fólki í miðstjórn
hefur viðleitni til þess að dreifa
atkvæðunum á milli fulltrúa ein-
stakra kjördæma ráðið miklu um
úrslitin. Hlutur kvenna er til að
mynda ekki jafn mikill og þær
stefndu að og æskilegt hefði ver-
ið.
Að sjálfsögðu setti það svip
sinn á þennan landsfund, að kosn-
ingar eru í nánd. Meira bar á því
en á landsfundinum 1985, að leit-
ast var við að höggva á hnúta í
viðkvæmum málum í málefna-
nefndum, sem störfuðu fyrir
fundinn, og í starfshópum á fund-
inum sjálfum en við afgreiðslu
einstakra ályktana í fundarsaln-
um í Laugardalshöll. í sumum
tilvikum var stuðst við málamiðl-
un, sem náðist fyrir tveimur
árum. I öðrum eru menn greini-
lega að fíkra sig eftir mjórri
málamiðlunarlínu. Við þetta er
ekkert að athuga. Stjómmála-
flokkar eru ekki öflug Ijöldasam-
tök nema þeir, sem starfa innan
vébanda þeirra, séu reiðubúnir til
að sýna flokksbræðrum umburð-
arlyndi í stað þess að reka ofan
í þá skoðanir með meirihluta-
valdi. Á lokafundinum lá við að
upp úr syði vegna ágreinings um
vægi atkvæða. Þorsteinn Pálsson
tók þar af skarið með eftirminni-
legum hætti og við það sat á
fundinum. Hitt er ljóst, að sá hiti,
sem hljóp í menn vegna þessa
máls, endurspeglar þunga undir-
öldu í byggðamálum. Lands-
byggðarfólk telur sinn hlut eftir
liggja-
Þegar stjómmálaályktun
landsfundarins er lesin, eða kosn-
ingayfírlýsing Sjálfstæðisflokks-
ins, eins og ályktunin heitir,
kemur glöggt í ljós, að það er
auðvelt fyrir sjálfstæðismenn að
færa rök fyrir því, að þeir og
íslenska þjóðfélagið undir stjóm
með þátttöku þeirra séu á réttri
leið. Og málið er lagt skýrt fyrir
eins og þessar setningar sýna:
„Við komandi kosningar stendur
valið um það, hvort halda eigi
áfram á sömu braut eða ekki.
Kosið er um, hvort sótt skuli fram
til bættra kjara og betri framtíðar
fyrir landsmenn alla á gmndvelli
aukins frelsis og svigrúms ein-
staklinganna, eða hvort þeim
árangri sem náðst hefur verði
ógnað með stefnu ofstjómar og
valdboðs."
Kosningayfírlýsingin mótast af
viðleitni til að setja hlutverki
„hins opinbera" ákveðin mörk.
„Sköpunargáfa listamanna nýtur
sín best þar sem ekki eru lagðir
á hana fjötrar og sama er að segja
um efnahagsstarfsemina,“ segir
á einum stað. Skömmu síðar er
komist þannig að orði: „Það er
hins vegar einnig sjálfsögð skylda
og í fyllsta samræmi við mannúð-
arsjónarmið Sjálfstæðisflokksins,
að tryggja og treysta hag þeirra
sem lakast em settir eða eiga af
einhveijum ástæðum undir högg
að sækja í lífínu." Yfírlýsingin
einkennist af vilja til að skilgreina
sjálfstæðisstefnuna í samræmi
við þær kröfur samtímans, að
umsvifum hins opinbera sé stillt
í hóf án þess að öryggisnet vel-
ferðarþjóðfélagsins sé tekið á
brott. Er ekki vafí á, að með þess-
um hætti er höfðað til þeirra
skoðana, sem eiga mestan hljóm-
gmnn meðal flestra kjósenda.
Þegar kemur að loforðakafla
kosningayfirlýsingarinnar má
segja, að sjálfstæðismenn séu
ekki að reisa sér hurðarás um
öxl. í mörgu tilliti er kveðið mun
fastar að orði í ályktunum lands-
fundarins um einstök málefni en
í kosningayfirlýsingunni sjálfri.
Af einstökum atriðum, sem í yfír-
lýsingunni em nefnd, má benda
á, að þar er því heitið að laga
stjómkerfíð að breyttum tímum
svo sem með samræmi í stjóm
umhverfísmála og á sviði ut-
anríkisviðskipta. Þýðir þetta að
stofna á umhverfísmálaráðuneyti
og sameina viðskipta- og utanrík-
isráðuneytin? íslenskir aðilar eiga
að geta fjárfest í erlendum fyrir-
tækjum; viðskiptabönkum í eigu
ríkisins á að breyta í hlutafélög
og selja smám saman og bjóða á
önnur ríkisfyrirtæki almenningi
til kaups, þar sem því verður við
komið. Verðmyndunar- og sölu-
kerfí landbúnaðarins á að endur-
skoða frá gmnni. Orðalag um
stjóm fískveiða er loðið, þar sem
hún er talin nauðsynleg og jafn
nauðsynlegt að auka fijálsræði
eftir því sem aðstæður leyfa.
Þegar litið er á landsfundinn í
heild og hvað hann skilur helst
eftir í huganum, má í stuttu máli
nefna: mikinn einhug sjálfstæðis-
manna um menn og málefni;
hógværa stefnu, er miðar að því
að setja hinu opinbera kerfí skorð-
ur; gmndvallaratriði sjálfstæðis-
stefhunnar em ítrekuð; skýrar
línur dregnar í utanríkis- og ör-
yggismálum og síðast en ekki síst:
Þorsteinn Pálsson dró víglínur
gagnvart öðmm flokkum í kosn-
ingabaráttunni og hét því að
veijast ásókn alþýðuflokksmanna
á sömu atkvæðamiðum og sjálf-
stæðismenn sækja.
Ferjuslysið í Zeebrugge
Skemmtiferðin
breyttist í martröð
Zeebrugge, AP.
„Ég held að við séum velta,“ gantaðist Lawson Fisher,
þegar ölflöskurnar, sem Ian Wood, vinur hans, hafði rað-
að á borðið tóku að renna til. Og þá urðu endaskipti á
umhverfi þeirra. Fólk veltist um, glös brotnuðu, hjólastól-
niður ganga og veitingasalurinn fylltist af
ar runnu
öskrum.
Feijan Herald of Free Enterprise
valt á hliðina og skemmtiferðin, sem
hinir ungu Englendingar og nærri
550 farþegar og áhöfn vom í,
breyttist í martröð. Feijuslysið á
föstudag er mesta slys, sem orðið
hefur á Ermasundi á vomm dögum.
„Við vomm ekki dmkknir, en við
vomm dálítið hýrir. Við höfðum
setið við drykkju í þrettán tíma,"
sagði hinn sextán ára gamli Fisher
síðar. „Aldrei áður hef ég orðið als-
gáður á svo stuttum tíma ... “
Alsgáðir á örskots-
stundu
Fisher, Wood og vinir þeirra vom
meðal lesenda bresks dagblaðs, sem
unnið höfðu ferð fram og til baka
með feiju yfír Ermasundi. Þeir
lögðu af stað frá Dover klukkan
hálf sex á föstudagsmorgni 137 km
leið til Zeebmgge í Belgíu. Sjórinn
var lygn og himinninn léttskýjaður.
Byggingaverkamennimir frá
Birmingham og nágrenni ætluðu
að eiga glaðan dag, gantast, daðra,
drekka bjórinn, sem dagblaðið veitti
að kostanðarlausu, og kaupa bjór
til viðbótar í fríhöfninni um borð.
Þeir eyddu deginum í að vafra um
Zeebmgge og fannst vistin þar
fremur tíðindalítil. Um kvöldið
stóðu þeir niðri við höfnina til að
ganga um borð í hina risavöxnu
feiju og halda heimleiðis. Flestir
farþeganna um borð vom breskir.
Margir ætluðu fara fram og til-
baka, aðrir vom hermenn á leið
heim í frí.
Klukkan sex lagði feijan úr höfn
með 36 vöruflutningabfla og 86 bif-
reiðir um borð auk farþega.
Stundarfjórðungi síðar var feijan
komin einn kflómetra frá höfninni
og sigldi á fímmtán sjómflna hraða
á klukkstund. Þá sá Woods ölflösk-
umar renna af stað.
Hvorki Wood, né Fisher fundu
fyrir árekstri. „Við hefðum fundið
skipið hristast, en það vom enginn
merki um titring. Skipið valt á hlið-
ina á tuttugu til þijátíu sekúndum,"
sagði Fisher.
Sjónarvottar á landi horfðu á
með undmn, sem breyttist í skelf-
ingu, þegar feijan valt yfír á hliðina.
David Lewry skipstjóri sagði við
lækni á slysavarðdeild eftir slysið
að feijan hefði oltið á mínútu og
hann hefði engan tíma haft til að
senda neyðarkall.
Björgunaraðgferðir
Patrick Pape á belgíska dráttar-
bátnum Sæhrossið kvaðst hafa
fengið neyðarkall klukkan hálf sjö.
„Okkur tókst að bjarga fyrsta
manninum 6:47,“ sagði hann.
Áhöfnin á Sæhrossinu átti eftir að
bjarga 120 manns áður en allt var
af staðið.
Belgar, Þjóðveijar, Bretar og
Hollendingar sendu þyrlur á vett-
vang, og tugir skipa, sem stödd
vom nálægt slysstað, sigldu þangað
eins hratt og vélar leyfðu. Fyrsta
þyrlan var komin sex mínútum eft-
ir neyðarkallið og klukkan sjö var
allt til reiðu á slysavarðstofum til
að taka á móti slösuðum, sem flutt-
ir vom í strætisvögnum og sjú-
krabflum. Þeir vom vafðir inn í
teppi og grétu ýmist, eða störðu
fram fyrir sig eins og í leiðslu.
Um borð í feijunni, þar sem nú
var framandlegt um að Iitast, lárétt-
ir stigar og borð skrúfuð í gólf stóðu
lóðrétt út í loft, ríkti ringulreið.
Nokkrir þeirra, sem björguðust,
greindu frá því að farþegar hefðu
slegist þegar þeir reyndu að bjarga
sér. Rosina Summerfíeld frá Eng-
landi var spurð hvort konur og böm
hefðu gengið fyrir þegar slysið varð:
„Konur og böm gengið fyrir? Þetta
var bijálæðislegt kapphlaup. Þetta
var ekki Titanic, skaltu vita,“ svar-
aði hún.
„Eg lá fastur undir glerplötu eitt
andartak og vatnsborðið hækkaði,"
sagði Wood. „Mér tókst að komast
upp að bamum með þvíað klifra
eftir sætaröðum. Þá kastaði stúlka
til mín reipi til að ég kæmist síðasta
spölinn. Hún hlýtur að hafa verið
hjúkmnarkona, hún var svo róleg.
Eg vildi hitta þessa stúlku, hún
bjargaði lífí mínu.“
Hún bjargaði lífi mínu
„Eg sá hvemig vatnið streymdi
inn og ég klifraði upp eftir sætunum
og að glugganum. Fólk datt fram-
hjá okkur og rakst í okkur þegar
við reyndum að bijótast áfram.
Fólk i hjólastólum og böm ... “
Farþegar, sem komist höfðu að
upp að veggnum í þessari veröld á
hvolfí, bmtu upp kýraugun. Alan
Cartwright, vinur Fishers, hóf sig
upp eftir rennunni fyrir matarbakka
á afgreiðsluborðinu í veitingasaln-
um: „Vatnið var sjóðheitt í fyrstu,
vegna þess að tekönnumar tæmd-
ust og ofnamir vom heitir, en varð
á augabragði ískalt." Englending-
amir klifmðu út á skipshliðina, sem
vissi upp úr sjónum, og tóku til við
að hjálpa öðram út.
„Það var niðamykur og engin
neyðarljós um ' borð. Nokkrir
kveiktu á sígarettukveikjumm til
að sjá frá sér og ég öskraði til
þeirra að slökkva á þeim því að ég
vissi að gas læki út í eldhúsinu.
Ég beið bara eftir sprengingu,"
sagði Cartwright. Nick, bróðir Wo-
ods, brotnaði á mjöðm og báðum
ökklum, einn hafði nefbrotnað og
annar var ökklabrotinn. En þeir
héldu áfram björgunaraðgerðum í
klukkutíma og hjálpuð farþegum
að komast út úr feijunni og síga
niður í dráttarbát eftir tíu metra
löngu reipi.
Richard Murtland vömbflstjóri
var í veitingasalnum þegar slysið
varð. Hann sagði frá ensku krökk-
unum uppi á skipshliðinni þegar
honum hafði verið bjargað í land:
„Þessir krakkar klifmðu upp eftir
stólunum, sem vom festir við gólf-
ið, eins og apar og mynduðu eins
konar stiga," sagði hann. „Þeir
hentu niður reipum með lykkjum.
Einhver ýtti mér áfram og sagði
mér að fara á undan vegna þess
að ég væri stór og gæti hjálpað
þeim að draga fólk upp. Síðan kom-
um við konum og bömum út. Við
náðum í þá krakka, sem við fund-
um, og sumir klifmðu upp kaðalinn
með böm í fanginu."
Kafarar stungu sér í sjóinn til
að leita að fólki, sem verið gæti á
lífi þar sem loftrými leyndist. Þeir
fundu ónotuð björgunarvesti á víð
og dreif um skipið. I dögun á laug-
ardag flæddi að og neyddust þeir
til að hætta. Þeir héldu áfram þeg-
ar fíaraði út en þá var aðeins veik
von um að fleiri fyndust á lífi.
Reuter
Ferjan Herald of Free Enterprise frá Townsend Thoresen skipafélag-
inu liggur á hliðinni skammt frá höfninni í Zeebrugge. Bátarnir
tveir halda við skipið til þess að björgunarmenn eigi auðveldara
með að leita að farþegum.
Skaðabótakr öfur
verða hinar hæstu
í sögu Bretlands
London; Reuter, AP.
AÐ SOGN sérfræðinga munu
skaðabótakröfur á hendur
Townsend Thoresen skipafélag-
inu vegna feijuslyssins við
Zeebrugge líkast til verða þær
hæstu í sögu Bretlands. Forráða-
menn fyrirtækisins hafa neitað
að ræða þessa hlið málsins opin-
berlega.
Samkvæmt alþjóðlegum trygg-
ingasáttmála frá árinu 1974 er
gert ráð fyrir að greiðslur vegna
dauðsfalls séu á bilinu 30.000 til
50.000 sterlingspund (1.8 til 3 millj-
ónir ísl. kr.). Hins vegar er unnt
að gera mun hærri kröfu ef í ljós
kemur að rekja megi dauðsfall til
vanrækslu starfsmanna eða ófull-
nægjandi öryggisbúnaðar. Sérfræð-
ingar era sammála um að
skaðabótamálið á hendur Townsend
Thoresen muni verða gífurlega flók-
ið. Móðurfyrirtæki Townsend
Thoresen, sem nefíiist Peninsular
and Orient Steam navigation co,
er hluthafi í tryggingarfyrirtækinu
The Standard Steamship Protection
and Indemnity Association, sem er
eitt sjö stærstu fyrirtækja sem
starfa á þessu sviði í heiminum.
Stjóm þess mun taka afstöðu til
skaðabótakrafna á hendur Tow-
nsend Thoresen.
Ættingjar hinna látnu og þeir
sem komust lífs af munu í fyrstu
krefjast skaðabóta af móðurfyrir-
tækinu. Ef í ljós kemur að rekja
má orsakir slyssins til starfsmanna
skipafélagsins, hafnarstarfsmanna
í Zeebmgge eða smíðagalla í skip-
inu verður allur málarekstur mun
flóknari.
50 manns létust þegar eldur kom
upp á knattspymuvellinum í Brad-
ford árið 1985. Skaðabótakröfur
ættingja þeirra sem létust nema
alls um 20 milljónum sterlings-
punda (1,2 milljarðar ísl.kr.) og em
þær hinar hæstu sem settar hafa
verið fram til þessa.
Gríðarstórum flotkrana var siglt upp að hlið feijunnar í gær er björgunaraðgerðir hófust.
Reuter
„Ég hélt að ég
myndi drukkna“
Zeebrugge, AP.
MARGIR farþeganna um borð í feijunni Herald of Free Enterprise
gengu vasklega fram þegar skipið valt á hliðina. Sjónarvottar hafa
greint frá gamalli konu, sem fórnaði lífi sínu til að bjarga manni i
hjólastól, og manni, sem hélt komabami með tönnunum. Einnig lögðu
kafarar lif sitt að veði þegar menn vom orðnir úrkula vonar um
að nokkur væri enn á lífi um borð.
Þegar Herald of Free Enterprise
valt á hliðina með rúmlega fímm
hundmð manns um borð á föstu-
dagskvöld komu bátar og þyrlur frá
sex löndum til bjargar á auga-
bragði. Og björgunarmennimir eiga
heiður skilinn fyrir að bjarga fjölda
manns.
En á þeim skelfilegu augnablik-
um, sem farþegamir um borð gerðu
sér grein fyrir því að feijan var að
velta og fyllast af vatni, gátu þeir
aðeins treyst á sjálfa sig.
„Vatnsborðið hækkaði stöðugt
og ég hélt að ég myndi drakkna,"
sagði William Cardwell vömbísltjóri
frá Norður-írlandi, sem sat fastur
á efra þilfari ferjunnar. „En allt í
einu hætti vatnsborðið að hækka
og ég heyrði einhvem segja að skip-
ið væri komið niður á botn. Þá sá
ég mann koma klifrandi yfír borð
og stóla með fjögurra mánaða gam-
alt bam milli tannanna. Þetta var
ótrúlegt," sagði Cardwell.
Fólki fíölgaði umhverfís Card-
well og því tókst að hjálpa tveimur
bjargarlausum stúlkum úr vatninu.
„En ein stúlka flaut drakknuð í
sjónum. Við gátum ekkert gert,“
sagði vömbflstjórinn. Hópurinn bar
bömin út um kýrauga og þar var
beðið eftir þyrlu. „Það sá ekki út
úr augum og kuldinn var nístandi.
Við skiptumst á um að halda hita
á baminu," sagði hann.
mmi
'
m
Reuter
Starfsmenn Rauða krossins bera á brott jarðneskar leifar eins fórnar-
lamba feijuslyssins.
Menntaskólaneminn Rebecca
Carbley sagði að skyndilega hefði
feijan oltið. „Hjólastóll þeyttist
fram hjá og einhver sat í honum.
Amma mín rak út höndina eins og
af eðlisávísun til að stöðva stólinn.
En hjólastóllinn tók hana með sér
og við höfum ekki séð hana síðan.
Við vitum ekki hvort hún er á lífí,“
sagði hún.
Kafarar frá Belgíu, Hoilandi og
Bretlandi köfuðu inn í feijuna til
að bjarga fólki. Nokkrir kafaranna
grétu af örvæntingu, þreytu og
áfalli. Þeir höfðu kafað um fetjuna
í ísköldum sjónum og leitað fólks á
lífi innan um líkin. Fólksbflar og
vörabflar höfðu losnað og flutu um
í risastóm bflaþilfarinu. Bensín
hafði lekið úr geymum þeirra og jók
það á hættuna. Þótt bjart væri af
degi úti fyrir var niðamyrkur inni
í feijunni.
Þjóðin harmi slegin
vegna ferjuslyssins
St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunbiaðsins.
SJÓSLYSIÐ við Zeebrugge á föstudag er versta sjóslys, sem hent
hefur breskt skip á friðartímum, frá þvi að Titanic fórst árið 1912.
Þjóðin öll er harmi slegin. Yfirvöld hafa ákveðið að láta fara fram
opinbera rannsókn á málinu.
Síðastliðið föstudagskvöld hvolfdi
Townsend Thoresen-feijunni Herald
of. Free Enterprise um það bil eina
mílu utan við hafnargarðinn í Zee-
bmgge í sæmilegu veðri, litlum sjó
og án minnsta fyrirvara. Slysið gerð-
ist á innan við einni mínútu og ekki
gafst tækifæri til að senda út neyð-
arkall. Á feijunni vom rúmlega 600
manns. Þar af björguðust 408, 53
em látnir og 81 er talinn af.
Björgunaraðgerðir hófust um 15
mínútum, eftir að slysið átti sér stað,
og allt var gert til að ná farþegunum
á lífí út úr skipinu. Þeir, sem síðast-
ir náðust á lífi út úr flakinu, komust
þaðan á laugardagsmorgun.
Öll breska þjóðin er harmi slegin
vegna þessa atburðar. Fréttir af ör-
lögum farþeganna hafa stöðugt
komið í sjónvarpi og útvarpi og frétt-
atímar hafa verið lengdir alla helgina
til að lýsa atvikum. Á sunnudaginn
var beðið fyrir farþegum og ættingj-
um þeirra í flestum kirlq'um landsins.
Elizabeth Englandsdrottning sendi
samúðarkveðjur á laugardaginn og
var sögð fylgjast gjörla með því sem
gerðist. Hertoginn og hertogaynjan
af Jórvík héldu til Belgíu á laugar-
dag, og sömuleiðis forsætisráðherr-
ann, Margaret Thatcher, og
flutningamálaráðherrann, John
Moore. Ákveðið hefur verið, að opin-
ber rannsókn fari fram á orsökum
slyssins. John Mooore gaf neðri deild
breska þingsins ítarlega skýrslu um
slysið og tilkynnti formlega um opin-
bera rannsókn.
Staðreyndir málsins liggja ekki
enn ljósar fyrir, en af frásögnum
fjölmiðla má telja líklegt, að mikill
sjór hafi komist inn um stefnisdyr
skipsins og valdið því, að veltingur
komst á skipið, bílar Iosnuðu og
skipið lagðist á hliðina. Vitað er, að
feijumar sigla iðulega af stað með
opið stefnið, ef gott er í sjó.
Erfíðlega hefur gengið að komast
að raun um, hveijir vom um borð í
skipinu, vegna þess að ekki em
haldnar farþegaskrár á Ermarsunds-
feijunum. Margir hafa því orðið að
bíða lengi fregna af örlögum ástvina
sinna. Það verður ekki ljóst fyrr en
eftir nokkra daga, hveijir vom um
borð.
Farþegar hafa sagt sögur af átök-
um við að komast úr skipinu, þegar
því hafði hvolft, en einnig af þvi að
menn hafí fómað lífí sínu til að
bjarga öðmm.
Öryggismál verða í
brennidepli eftir slysið
London, AP. JL t/
MILLJÓNIR manna hafa nýtt sér feijusamgöngur yfir Ermasund og Þannig getur vatnið fyllt þilfarið og
er algengt að fólk skreppi i dags- og helgarferðir til meginlandsins.
Fullyrða má að yfirvöld og almenningur muni í vaxandi mæli leiða
hugann að öryggisþáttum slíkra samgangna eftir feijuslysið við Zee-
hrugge í Belgiu.
Margaret Thatcher, forsætisráð-
herra Bretlands, sagði á laugardag
að opinber rannsókn á orsökum slyss-
ins myndi fara fram. Embættismenn
úr samgöngumálaráðuneytinu héldu
þegar á slysstað. Skipafélagið
Townsend Thoresen hyggst einnig
hrinda af stað rannsókn svo og yfir-
völd í Belgíu.
Tryggar feijusamgöngur yfír til
meginlandssins em Bretum ákaflega
mikilvægar. Frá lokum seinni heims-
styijaldarinnar hafa samgöngur til
meginlandsins aldrei lagst niður þó
svo að verkföll hafí stöðvað siglingar
á ákveðnum leiðum. Alls reka fyrir-
tækin 114 feijur, sem flytja bæði
vaming og ökutæki, frá Bretlandseyj-
um allan sólarhringinn. Um 250
ferðir em famar á degi hveijum milli
Dover og Calais í Frakklandi og tek-
ur hver þeirra 135 mínútur. Feijumar
sigla frá 11 höfnum á Bretlandseyjum
til 16 áfangastaða á meginlandinu.
Townsend Thoresen sem gerði út
feijuna „Herald of Free Enterprise"
hefur mest umsvif allra fyrirtælqa
sem starfa á þessu sviði. Höfuðstöðv-
ar fyrirtækisins em í Dover. Fyrir-
tækið áætlar að taka í notkun nýjar
feijur sem munu geta flutt 2.000
farþega, næstum helmingi fleiri en
feijur þeirrar gerðar sem fórst.
„Herald of Free Enterprise" var
elquskip og hafa menn almennt góða
reynslu af slfkum skipum. Þau em
talin ömgg en vitað er að þau sökkva
mjög hratt ef sjór kemst inn á bflaþil-
farið. Ólíkt farþegaskipum em bfla-
þilför slíkra skipa ekki vatnsþétt.
lagt skipið á hliðina á mjög skömmum
tíma. Heyrst hafa raddir um að skip
þessi séu í raun ekki jafíi örugg sam-
göngutæki og af er látið.Onafn-
greindur breskur skipasérfræðingur
sagði í viðtali við breskt dagblað að
elquskip væm „fljótandi dauðagildr-
ur“. Anathony Preston, sem skrifar
um flotamál fyrir herfræðitímaritið
Jane’s Defenee Weekly sagði í við-
tali við breska sjónvarpið að sérfræð-
ingar breska vamarmálaráðuneytis-
ins hefðu lagst gegn því að breskir
hermenn yrðu fluttir til Falklandsejja
með ekjuskipum þegar átök blossuðu
upp þar árið 1981.
Townsend Thoresen rekur tvö syst-
urskip „Herald of Free Enterprise".
Peter Ford, forstjóri Townsend
Thoresen sagði í gær að skipin myndu
halda áfram siglingum samkvæmt
áætlun. Ford sagði á fréttamanna-
fundi að forráðamenn fyrirtækisins
hefðu enga ástæðu til að efast um
sjóhæfni skipanna.,