Morgunblaðið - 10.03.1987, Qupperneq 65
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. MARZ 1987
65
• VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
,691100 KL. 13-14
, FRÁ MÁNUDEGI
-jTIL FÖSTUDAGS
n/r UJrW'U IT
Ekta stafaparkett
Fjöldi viðartegunda.
FAEKETgólf sf.
Suðurlandsbraut 20, sími 31717.
''HHNN $ SÉR pEmm DRRUM’ W ARN! dOHNSEN PURFl
ElNHVERNTlMR RÐ KOMR TIL OKKRR MEO LVF&EÐlL“
Látum þá ekki komast
upp með þessa valdníðslu
Kæri Velvakandi, nemendur og
annað heilbrigt fólk.
Við nemendur erum að verða
fómarlömb verkfallssjúkra kenn-
arablóka sem eru nú að fara í annað
verkfallið sitt á tveimur árum. Eig-
um við nú að hrúga okkur á bakvið
þá og sleikja _á þeim rassinn og
segja: „Þið þurfið hærra kaup, okk-
ur skal blæða." Nei og aftur nei!
Ég kæri mig ekki um að heita nemi
ef önnur fábjánaferð með skóla-
tösku verður farin niður á Austur-
völl.
Finnst ykkur ekki fáránlegt að
standa með þeim sem viljandi eru
að troða á okkur og eyðileggja fyr-
ir okkur námið? Er heil brú í því?
Auðvitað þurfa kennarar hærra
kaup, ég er alveg sammála því. En
hafið þið séð viðurstyggilegri aðferð
í kjarabaráttu? Þeir hreinlega sturta
þremur mánuðum niður í klósettið
fyrir okkur og við segjum já og
amen.
Ef svo fer sem horfír ínunum við
búa okkur til líkneski af kennara
og brenna það fyrir sjónum almenn-
ings.
Það eru margir angar þessu
máli. Hundruð ungmenna hættu
námi í síðasta verkfalli og fóru að
vinna og komu ekki aftur í skól-
ann. Allt ykkur að þakka, kæru
kennarar. Hvernig verður þetta nú?
Svo eru sæludagar (vinnudagar þar
sem nemendur starfa að sínum
áhugamálum fyrir utan námið). Þar
sem þeir eru ekki yfírstaðnir eru
þeir unnir fyrir gíg. Undirbúnings-
vinna sem staðið hefur yfir allan
veturinn fuðrar upp í loftið.
Nú duga engin vettlingatök á
þessum óforskömmuðu egóistum.
Látum þá ekki komast upp með
þessa valdníðslu og mótmælum
kröftuglega. Við erum ekki fávitar
sem hægt er að fara með eins og
hunda.
Það er kannski undarleg tilviljun
að uppistaðan í kennarastéttinni á
Islandi er vinstrisinnuð (sósíalísk).
Þá vitum við hverjir vilja okkar hag
bestan. Af aðgerðunum skulum við
þekkja þá.
Nemar! Við sem erum svo heimsk
og látum bjóða okkur allt að þeirra
áliti, vitum hvar ekki á að setja X
í kosningunum í vor.
Sem betur fer eru ekki allir kenn-
arar úr sama sauðakofa, en takið
það til ykkar sem eigið.
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
BAÐSONGVARAR!
BLÖNDUNARTÆKIN SEM
FULLKOMNA ÁNÆGJUNA!
Danfoss baöblöndunartækin eru hitastillt.
Þú ákveður hitastigið og skrúfar frá - Dan-
foss heldur hitanum stöðugum. Danfoss
blöndunartækin eru stílhrein og þau er
auðvelt að þrífa.
= HÉÐINN =
SEUAVEGI 2,SlMI 24260
LAGER-SÉRPANTANIR-WÓNUSTA
Holur og sprungur ekki
nagladekkjum að kenna
Mig langar til þess að gera at-
hugasemd við fréttaflutning Stöðv-
ar 2. Þeir fara bókstaflega með
rangt mál þegar þeir sýna myndir
af holum og sprungum í götum
borgarinnar og kenna þar um
nagladekkjum.
Ekki veit ég hvemig þeim getur
dottið í hug að bera svona fram
fyrir okkur og sýna skömmina í
sjónvarpi.
Holur og sprungur em ekki
nagladekkjum að kenna heldur
slæmum frágangi við lagningu slit-
lags. Annaðhvort og litlu eða illa
blönduðu biki eða þá er kólnuðu
malbiki rutt í holur. Sömuleiðis eru
sprungur vegna þess að of lítið bik
er borið á samskeyti, vatn kemst á
milli og frost sprengir svo upp á
vetrum.
Nagladekk er^nauðsyn á ísingu
og svellu. Vetrardekk, grófmyns-
truð, koma þar ekki að gagni.
Vissulega þarf aðgát i akstri þó á
nagladekkjum sé, eins og í öllum
akstri á bílum. Alltof mikið er gert
Þorleifur telur holur og sprungur í götum borgarinnar ekki vera
nagladekkjum að kenna heldur slæmum frágangi við lagningu slit-
lags.
úr skemmdum sem nagladekk
valda, það er margt annað sem
veldur malbikssliti, jafnvel pressast
það undan miklum umferðarþunga
í hita að sumarlagi.
Þorleifur Kr. Guðlaugsson
úr furu
með færanlegum rimhim
HURÐIR HF
Skeifan 13 •108 Reykjavík-Sími 681655
4®
HUSASMIÐJAN HF.
SÚÐARVOGI 3-5, REYKJAVÍK, SlMI: 687700