Morgunblaðið - 14.03.1987, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. MARZ 1987
41
Stjörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
í síðasta þætti beindist at-
hygli okkar að keisurum
Rómaveldis, en í dag skulum
við skoða þann mann fomald-
ar sem mest áhrif hafði á
stjömuspeki, Claudius Ptol-
emy.
Ptolemy
Claudius Ptolemy lifði á
fyrstu og annarri öld eftir
Krist og er talinn hafa náð
78 ára aldri. Hann starfði
mestan hluta ævi sinnar í
Alexandríu í Egyptalandi
sem þá var nýlenda Róm-
verja. Alexandría var merki-
leg fyrir þær sakir að hún
hafði þá að geyma stærsta
bókasafn veraldar og var því
merkasta lærdómssetur fom-
aldar. Þar voru samankomnir
allir helstu textar Austur- og
Vesturlanda.
Samantekt
Framlag Ptolemys er merki-
legt fyrir þær sakir að hann
dró saman í tvö rit alla þekk-
ingu manna á stjömuspeki
og stjömufræði. Þessi rit
hans áttu sfðan eftir að móta
hugsun komandi kynslóða í
• hvorki meira né minna en
eittþúsund og fimmhundruð
ár, eða fram á daga Kóp-
emíkusar. Rit þessi voru
Tetrabiblos og Almagest. Hið
fyrmefnda var stjömuspeki-
rit en hið síðameftida fjallaði
um stjömufræði.
Tetrabiblos
Tetrabiblos þýðir í raun bæk-
umar fjórar, en saman
mynda þær heilsteypta úttekt
á stjömuspeki fomaldar.
Hverri bók er skipt í nokkra
kafla. Við skulum lítillega
skoða uppsetningu þeirra og
innihald.
Bók eitt
í lauslegri þýðingu eru heiti
kaflanna eitthvað á þessa
leið: Að hægt sé að öðlast
þekkingu í gegnum stjömu-
speki og hversu mikla; Hvers
konar þekkingu við getum
öðlast; Um gagnsemi slíkrar
þekkingar; Um plánetumar;
Um mikilvægi afstaðna við
Sól; Um gildi fastastjam-
anna; Um áhrif árstíðanna;
Um stjömumerkin; Um hús;
Um virðingarstöðu pláneta;
Um Kaldlea o.fl.
Bók tvö
Bók tvö er skipti í 13 kafla.
Hún fjallar um einkenni fólks
eftir því hvaða loftslagsbelti
það býr. Um skyldleika milli
landa. Um mismunandi spá-
dómsaðferðir. Um þjóðir. Um
það hvemig tímasetja og
flokka eigi spádóma. Um sól-
myrkva og halastjömur. Um
ný tungl ársins. Um eðli
merkjanna og áhrif þeirra á
veður. Um veðurspár.
Bókþrjú ogfjögur
Síðari bækumar fjalla um
foreldra. Um bræður og syst-
ur. Um karl og konu. Um
tvíbura. Um vanskapninga.
Um böm sem fá ekkert upp-
eldi. Um lengd lífsins. Um
gerð líkamans og skapferli.
Um slys og sjúkdóma. Um
sálina. Um sjúkdóma sálar-
innar. Um ríkidæmi. Um
virðuleika. Um eðli athafna.
Um hjónabönd. Um böm. Um
vini og óvini. Um ferðalög.
Um dauðann og um eðli
tímans og aldursskeiða.
Útgáfa
Upp úr 100 e.Kr. er því búið
að setja fram fullmótað kerfí
sem er tilraun til að spá í og
skilja alla helstu þætti
mannlifsins. Ifyrir þá sem
vilja kynna sér verk Ptolemys
nánar má geta þess að
Tetrabiblos hefur verið gefin
út á bókaflokknum Loeb
Classical Library of Harvard
University Press og William
Heineman í London.
GARPUR
GRETTIR
^\^N/VA/g/
TOMMI OG JENNI
VAHADU þ/G.'éG HBFÆFTMIG t
MPÓ 0(3 ÉG hef N/EGA KFAFFA j
íFINGFONUVI T/L AÐ '/F/FBU64^
ÓOlNI SEA1 EFO
Margfalf srÆee/
rQ5S, ÞÚ E&TAD6ABBA AIIG.f)
UOSKA
ALLTOF FF?AAAO»eOip
(alltof FRAM-
T OlSDlÐ?
FERDINAND
'MOUi EL5E COULP
THEV TELL YOU WHEN
THEY'RE HAPPY ?
Verða flugdrekar að hafa Auðvitað.
skott?
Annars gætu þeir ekki lát-
ið mann vita þegar þeir
eiu ánægðir ...
BRIDS
Fyrsta lota landsliðskeppn-
innar var spiluð sl. sunnudag í
húsakynnum Bridssambandsins
í Sigtúni. Tömin var stíf, pörin
sex í æfíngahópnum hófu spila-
mennsku klukkan 10 um
morguninn og settu síðasta spil-
ið, númer 80, í bakkann um
miðnætti. Spilin vom villt á köfl-
um og þung viðureignar. Þá
voru slemmur í tígli býsna al-
gengar. Hér er ein þar sem
punktarnir eru ekki margir, en
13 slagir þó nánast öruggir:
Suður gefur; AV á hættu.
Norður
♦ Á97653
VÁ3
♦ Á1093
♦ 5
Vestur
♦ G1042
V G862
♦ 8
+ D864
Austur
♦ KD
VD10754
♦ G6
♦ KG72
Suður
♦ 8
V k'Q
♦ KD7542
♦ Á1093
Það eru einungis 24 háspila-
punktar milli handa NS, en þeir
eru allir bullandi virkir. Og sjö
tíglar eru léttunnir með því að
stinga þijú lauf í blindum. Einn-
ig kemur til greina að fría
spaðann.
Urspilið er sem sagt ekkert
vandamál, en hins vegar er ekki,
hlaupið að því að ná alslemm-
unni. Það verður jafnvel að
teljast gott að ná sex tíglum.
Guðmundur Hermannsson og
Bjöm Eysteinsson komust í hálf-
slemmuna eftir þessar sagnir:
Vestur Norður Austur Suður
— — — 1 tígull
Pass 1 spaði Pass 2 lauf
2 h|jörtu Pass 3 tíglar
6 tíglar Pass Pass
Pass
Pass
Pass
Kannski var það óþarfa flýtir
hjá Guðmundi að stökkva beint
í sex tígla, en hann hefur talið
alslemmuna fjarlægan draum.
Jón Baldursson og Sigurður
Sverrisson voru á öðm máli.
Þeir sögðu þannig á spilin:
Vestur Norður Austur Suður
- — — 1 tígull
Pass 1 spaði Pass 2 tíglar
Pass 4 lauf Pass 4 grönd
Pass 5 lauf Pass 7 tíglar
Pass Pass Pass
Það einfaldar framhaldið að
suður skuli tvísegja tígulinn.
Fjögur lauf sýna stutt lauf og
tígulsamþykkt, og fjögur grönd
spyija um ása. Svarið fimm lauf
gefur upp engan eða þijá. <
SKAK
Á alþjóðlega mótinu í Lugano
um mánaðamótin kom þessi
staða upp í skák stórmeistar-
anna Yehuda GrUnfeld, ísrael,
sem hafði hvítt og átti leik, og
Predrag Nikolic, Júgóslavíu.
43. Hxe6! - fxe6, 44. Hf7+ -
Kg8, 45. Hxc7 og svartur gafst
upp, því hvíta peðið kemur til
með að kosta hann heilan hrók.
Röð efstu manna t Lugano varð
þessi: 1. Seirawan (Bandaríkjun-
um) 7>/2 v. af 9 mögulegum. ■
2.-6. Van der Wiel (Hollandi,
Curt Hansen (Danmörku), Piket
(Hollandi), Simic og V. Sokolov
(báðir Júgóslavíu) 7 v. Mótið var
ekki sérlega vel skipað að þessu
sinni og var ástæðan sú að
margir öflugir skákmenn vom
uppteknir við þátttöku á IBM-
mótinu hér í Reykjavík.