Morgunblaðið - 18.03.1987, Page 1

Morgunblaðið - 18.03.1987, Page 1
56 SIÐUR STOFNAÐ 1913 64. tbl. 75. árg. MIÐVIKUDAGUR 18. MARZ 1987 Prentsmiðja Morgunblaðsins Reuter REIÐUBUNIR TIL BARDAGA Drengir þessir eru liðsmenn í samtökum, sem nefnast Tadtad og berjast gegn skæruliðum kommúnista á Filippseyjum. Myndin var tekin í gær í afskekktu þorpi í Davao del Sur-héraði. Corazon Aquino, forseti Filippseyja, hvatti til þess á mánudag að samtök borgara, sem barist hafa við hlið hersins gegn skæruliðum, yrðu þegar í stað leyst upp. Fidel Ramos, yfirmaður herafla Filippseyja, ráðlagði forsetanum að heimila hersveitum þessum að starfa þar til skæruliðar legðu niður vopn. í gær tilkynnti Aquino að sérstök áætlun yrði gerð um að leggja borgaralegar hersveitir niður. Fjárlagafrumvarp bresku ríkisstj órnarinnar: Verkföll í Júgóslavíu: Valdhafar harð- lega gagnrýndir Beigrad, AP, Reuter. EMBÆTTISMENN í kommúnistaflokki Króatíu hafa gagnrýnt júgó- slavneska ráðamenn, einkum forsætisráðherra landsins, fyrir að hafa gripið til „frystingar“ launa. Janko að stjórnvöld hygðust ekki hverfa Rúmlega 11.000 júgóslavneskir verkamenn hafa tekið þátt í skyndi- verkföllum frá því stöðvun launa- hækkana var leidd í lög þann 27. fyrra mánaðar. Launastöðvunin er liður í baráttu stjórnvalda gegn verðbólgu, sem er tæp 100 prósent. Laun verða „fryst“ og miðuð við framleiðni fyrirtækja. Talsmenn verkamanna í Króatíu segja að aðgerðir þessar þýði í raun helmingslækkun launa. I gær birti júgóslavneskt dagblað viðtal við verkalýðsleiðtoga einn, sem sagði að svo virtist sem fáeinir embættis- menn hefðu tekið ákvörðun þessa Obocki atvinnumálaráðherra sagði frá þessari ákvörðun. án þess að leiða hugann að hvetjar afleiðingarnar yrðu. Tanjug, hin opinbera fréttastofa Júgóslavíu, skýrði frá ályktun mið- nefndar kommúnistaflokksins í Króatíu, þar sem stjórnvöld eru gerð ábyrg fyrir verkföllunum. Sagði einnig í tilkynningu fréttastofunnar að verkamenn hefðu lagt niður störf í velflestum landshlutum í síðustu viku. Þá skýrðu fjölmiðlar frá því að búast megi við frekari skæruverk- föllum um næstu mánaðamót þegar áhrifa aðgerðanna tekur að gæta í lýðveldinu Serbíu. Níu sovéskir and- ófsmenn látnir laus- ir úr vinnubúðum Lækkun skatta bend- ir til sumarkosninga Vextir lækka síðar í vikunni London, Reuter, AP. NIGEL Lawson fjármálaráðherra lagði í gær fram fjárlagafrum- varp bresku ríkisstjórnarinnar fyrir næsta ár. Talið er að frum- varpið muni mælast vel fyrír þar eð tekjuskattur verður lækkaður um tvö prósent og vextir munu lækka. Breskir stjórnmálaskýr- endur kváðust í gær telja að Margaret Thatcher forsætisráð- herra myndi boða til kosninga á þessu árí, jafnvel í júnímánuði. Samkvæmt frumvarpinu verður tekjuskattur í lægsta þrepi lækkaður um tvö prósentustig og verður fram- vegis 27 prósent. í umræðum á þingi benti Lawson á að tekjuskattur hefði verið lækkaður um átta prósent frá því Thatcher komst til valda árið 1979. Thatcher hefur heitið að lækka tekjuskatt enn frekar tryggi kjósend- ur henni brautargengi í næstu þingkosningum, sem almennt er talið að boðað verði til á þessu ári. Dregið verður verulega úr lántök- um hins opinbera og munu þær alls nema fjórum milljörðum punda (um 240 millj. ísl. kr.) á Ijárlagaárinu. Á síðasta ári tók ríkissjóður sjö millj- arða punda að láni. Forsenda þessar- ar lækkunar er óvenju góð staða ríkissjóðs. Tekjur hafa farið verulega fram úr áætlun vegna aukinnar neyslu almennings, oliuverðslækkun- ar og sölu á ríkisfyrirtækjum. Dregið verður úr skattlagningu fyrirtækja, skattleysismörk erfðaskatts hækkuð og bresk olíufyrirtæki munu fá frá- drátt vegna kostnaðar við rannsókn- ir. Búist er við að grunnvextir verði lækkaðir um eitt prósentustig strax í þessari viku svo og vextir á lánum til húsnæðiskaupa. Neil Kinnock, leiðtogi Verkamannaflokksins, sagði í gær að tilgangur frumvarpsins væri eingöngu sá að auka vinsældir stjórnarinnar en ekki að taka á stærsta vanda þjóðarinnar, sem væri misskipting auðs og atvinnuleysi. Moskvu, AP. NIU andófsmenn hafa verið látn- ir lausir úr vinnubúðum og leyft að snúa aftur til Moskvu, að sögn Yelenu Bonner, eiginkonu Andr- eis Sakharov. Bonner sagði vestrænum frétta- mönnum á mánudagskvöld, að fimm andófsmönnum hefði verið sleppt í síðustu viku og þremur til viðbótar á mánudagsmorgun. í gær sagði hún að hinum níunda, Sergei Khodorovich að nafni, hefði verið sleppt og myndi hann snúa til Moskvu í dag, miðvikudag. Meðal þeirra, sem sleppt var í síðustu viku, voru Ivan Kovalyou og Tanya Osipov, en þau hjónin voru dæmd fyrir undirróðursstarf- semi. Að sögn Yelenu Bonner var þeim tjáð, að þau mættu flytjast úr landi. Bonner sagði, að Galinu Barats, Alexei Smirnov og Mikhail Rifkin, sem einnig afplánuðu dóma fyrir undin-óðursstarfsemi, hefði verið slegpt á mánudag. Á áttunda áratugnum var Rifkin ákærður fyrir leynilega útgáfu- starfsemi og Smirnov fyrir að gefa út fréttabréf um málefni andófs- manna. Yelena Bonner og Andrei Sakh- arov halda skrá yfir andófsmenn, sem sleppt hefur verið frá því þau sneru til Moskvu úr útlegðinni í Gorkí í desember. Bonner sagði, að alls hefði 86 andófsmönnum verið sleppt á þessum tíma. Líbanon: Aftöku gísls- ins frestað Beirút, Reuter. Mannræningjar sem halda Frakkanum Jean-Louis Norm- andin í gíslingu í Beirút kváðust í gær hafa frestað aftöku hans um viku. Samtök, sem nefnast „Bylting- arsinnuðu réttlætissamtökin", höfðu tilkynnt að Normandin yrði tekinn af lífi á mánudag ef franska ríkisstjórnin yrði ekki við kröfum þeirra. I gær komu samtökin þeim skilaboðum á framfæri við dagblað, sem gefið er út í Beirút, að aftök- unni hefði verið frestað vegna tilmæla leiðtoga múhameðstrúar- manna í Líbanon og leynilegra loforða frönsku ríkisstjórnarinnar. Bjargað ásíðustu stundu Norsk stúlka, Hilda 01- stad að nafni, var hætt komin í gær er hún var við köfun í Oslóarfirði í nístingskulda. Vökin lokaðist yfir höfði henn- ar og var súrefniskútur hennar nærri tómur er henni tókst að íjúfa gat á ísinn og gera vart við sig. Slökkviliðsmenn komu á vettvang og beittu þeir haka til að losa stúlkuna úr ísnum. Reuter

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.