Morgunblaðið - 18.03.1987, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. MARZ 1987
5
Radarinn bilaður og skekkja í Loran-tæki
Kcflavík.
BRÚIN á Barðanum GK 475' sem
strandaði við Dritvík á Snæfells-
nesi á laugardagsmorgun var
mannlaus þegar óhappið varð.
Eðvald Eðvaldsson skipstjóri
skýrði frá þessu við sjópróf hjá
bæjarfógetanum í Keflavík í
gær. Hann sagðist hafa talið sig
lengra frá landi en raun bar
vitni. Því væri ljóst að röng stað-
arákvörðun hefði verið orsök
þess að bátinn rak í strand. Eð-
vald sagði að radar skipsins hefði
verið bilaður og skekkja í Loran-
tæki.
Eðvald sagðist hafa brugðið sér
niður í matsal til að borða morgun-
verð og látið reka á meðan. Þegar
hann hefði komið upp í brú 10-15
mínútum síðar hefði komið högg á
bátinn ,og síðan ólag sem bar bátinn
í einni svipan inn í skorninginn þar
sem hann strandaði.
Aðspurður í réttinum kvaðst Eð-
vald ekki hafa staðsett skipið á
sjókorti þennan umrædda morgun.
Hann sagðist hafa verið ræstur kl.
5.00 af vaktmanni. Hefði hann séð
vitann á Malarrifi og því getað átt-
að sig á staðsetningu skipsins.
Hann skýrði jafnframt frá því að
radarinn hefði átt það til að „detta
út“ og svo hefði verið þennan morg-
un. Þá hefði Loran-tækið átt það
til að sýna skekkju, sérstaklega
nærri landi. Ekki kvaðst hann hafa
séð tii lands vegna dimmviðris og
éljagangs.
Eðvald sagðist hafa beðið vakt-
mann að ræsa kokkinn um hálfsex
og um kl. 6.15 hefði hann stöðvað
ferð skipsins. Taldi hann sig þá sig
vera, samkvæmt Loran-tölu, við
ytri enda netatrossunnar sem ætl-
unin hefði verið að draga. Dýpið
hefði verið 33-34 faðmar og fjar-
lægð frá landi um eða innan við
tvær sjómílur. Þá hefði hann skot-
ist niður í borðssal þar sem skip-
verjar hefðu verið að borða
morgunverð.
Þegar hann kom upp úr matsaln-
um kom skellurinn á bátinn. Sagðist
Eðvald hafa haldið að um annan
bát hefði verið að ræða og sett á
fulla ferð til að forða sér. Þá hefði
brot komið á skipið bakborðsmegin
og borið það í einni svipan inn í
skorninginn þar sem það hefði stað-
næmst.
Skipstjórinn kvaðst hafa notað
VHF örbylgjustöðina til þess að
kalla á hjálp og hefði hann náð strax
sambandi við Höfrung II. I sama
mund hefði önnur hurðin brotnað
inn og brúin fyllst af sjó. Öll áhöfn-
in hefði safnast saman í skipstjórn-
arklefanum og kortaklefanum og
hefðu þeir orðið að taka á öllu sínu
til þess að halda sér.
Bergþór Ingi Bergsson stýrimað-
ur kom einnig fyrir réttinn. Hann
kvaðst hafa verið í borðsal ásamt
hinum úr áhöfninni þegar óhappið
átti sér stað. Hann hefði í fyrstu
haldið að þeir hefðu lent í árekstri
við annan bát þegar skellurinn kom.
Þá hefði hann hraðað sér upp í brú
og skipstjórinn verið að kalla að
þeir væru strandaðir. Ekki kvaðst
JÓN Óttar Ragnarsson, sjón-
varpssljóri Stöðvar 2, hefur sent
biskupi Islands, herra Pétri Sig-
urgeirssyni, bréf þar sem hann
óskar eftir viðræðum við Þjóð-
kirkjuna um samstarf og fram-
Starf smannaf élag
Reykjavíkurborgar;
Sjúkraliðar
óánægðir
ÓÁNÆGJA er hjá sjúkraliðum,
sem starfa hjá Reykjavíkurborg,
með nýgerða kjarasamninga
Starfsmannafélags Reykjavíkur-
borgar, en atkvæði verða greidd
um samninginn á fimmtudag og á
föstudag. Öánægju er víðar að
finna og er talið tvísýnt að samn-
ingurinn verði samþykktur. Vegna
röðunar fengu sjúkraliðar, fóstrur,
strætisvagnastjórar og gæslukon-
ur 6% launahækkun fyrir utan
aðrar hækkanir, en röðun annarra
starfa á að vera lokið fyrir miðjan
júlí í sumar.
Félagsfundur í Sjúkraliðafélagi ís-
lands samþykkti ályktun í fyrrakvöld,
þar sem fram kemur að ekki hafi
náðst viðunandi árangur í samningi
Starfsmannafélagsins við Reykjavík-
urborg miðað við þá kröfugerð sem
Sjúkraliðafélagið lagði fram. Samn-
ingurinn hljóði upp á 31.775 í
lágmarkslaun fyrir sjúkraliða, en þeir
hafi farið fram á 35.000, auk þess
sem ýmis önnur kjaraatrði, sem
sjúkraliðar telja mikilvæg, hafi ekki
náðst fram. Á sjötta hundrað sjúkra-
liðar, sem starfa bæði hjá ríki og
borg, hafa sagt upp störfum sínum
frá og með næstu mánaðarmótum.
Þetta er um 90% sjúkraliða.
Kynningarfundir um samning
Starfsmannafélagsins voru í gær-
kveldi bæði hjá fóstum og strætis-
vagnastjórum og almennur félags-
fundur um samninginn verður í kvöld.
hann hafa orði var við neina breyt-
ingu á sjólagi. Bergþór sagði að
þeir hefðu skotið út tveimur gúm-
bátum en þeir farið í tætlur í
briminu.
Hann sagði að lítið hefði verið
hægt að gera annað en að halda
sér. Þeir hefðu reynt að kveikja á
neyðarblysum en þau öll verið blaut
og það ekki tekist. Bergþór taldi
að björgun úr landi hefði verið úti-
lokuð, eins og ástandið var eftir
strandið.
Ekki komu fleiri skipverjar fyrir
sjóréttinn. Þar kom fram að neyðar-
talstöð var í brúnni, en hún var
ekki notuð.
B.B.
Morgunbladið/RAX
Barðinn GK skorðaður milli kletta austan við Hólahóla við Dritvík
á Snæfellsnesi.
Stöð 2 vill samstarf
við Þjóðkirkjuna
leiðslu á trúarlegu efni,
sérstaklega fyrir börn. Fyrsti
fundur er fyrirhugaður í lok vik-
unnar.
„Við erum opnir fyrir öllu,“ sagði
Jón Óttar í samtali við Morgun-
blaðið. „Það er auðvitað margt sem
til greina kemur. Við gætum farið
út í þáttagerð saman, heimsótt
kirkjurnar eða haft samráð um
kaup á trúarlegu efni erlendis frá.
Það er gífurlegt framboð á trúar-
legu efni erlendis, en það væri
auðvitað skemmtilegast að geta
framleitt sameiginlega íslenst efni,“
sagði Jón Óttar.
Bernharður Guðmundsson,
fréttafulltrúi Þjóðkirkjunnar, sagði
í samtali við Morgunblaðið að kirkj-
unnar menn hefðu vissulega áhuga
á samstarfi. Útsendingartími þess
efnis mætti hinsvegar ekki rekast
á við þann tíma er barnastarf fer
fram í kirkjunni, sem er kl. 11.00
á sunnudagsmorgnum.
PARDCIS
Þessir glæsilegu
ullarfraKKareru Komnir
Frönsk og þýzk klassaefni. ^
Teg. 5186 Verð 9.000,-
Teg. 5486 Verð 9.700.
Vönduð efni -
Vönduð vinna.
KAPCISALAN
BORQARTUMl 22
SÍMl 23509 Mæg bflastæði
Póstsendum um allt Iand.
AKUREYRI
HAFMARSTRÆTI 88 SÍMI 96-25250
SftWttgSssmí
í atvinnueldhúsið
Eigum til afgreiðslu af lager 10 bakka
gufusuðu, bökunar- og steikarofna frá
Senking-Juno í Vestur-Þýskalandi.
Tugir slíkra ofna eru í notkun hér á landi.
Leitið nánari upplýsinga á skrifstofu okkar.
jonco
JÓN JÓHANNESSON & CO. S.F.
UMBOÐS OG HEILDVERSLUN
Hafnarhúsinu v/Tryggagötu,
sími 15821.
Sjópróf í Keflavík:
Enginn í brúnni mínúturn-
ar áður en Barðinn strandaði