Morgunblaðið - 18.03.1987, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 18.03.1987, Qupperneq 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. MARZ 1987 Alþjóðleg samtök lögfræðinga: Börn eru pyntuð í Suður-Afríku Genf, Reuter. BÖRN eru pyntuð í Suður-Afríku af öryggislögreglu landsins, að því er fjórir lögfræðingar sem dvöldu þar þijár vikur í síðsta mánuði, á vegum alþjóðlegra samtaka lögfræðinga um mann- réttindamál (The International Commission of Jurists-ICJ), segja í skýrslu er kom út í Genf á mánudag. í skýrslunni segir að fram til 5. febrúar 1987 hafi a.m.k. 885 börn undir 18 ára aldri setið í varðhaldi frá því neyðarlög hafi verið sett í S-Afríku í júní á síðasta ári. Bömin eru pyntuð og virðast rafmagnslost og táragas, sem hvorugt skilur eft- ir varanleg merki, vera mikið notuð. Einnig hafa börn slasast alvarlega og jafnvel látist vegna pyntinga. Lögfræðingarnir, sem eru frá Bretlandi, Sviss, írlandi og Þýska- landi sögðu að ástandið væri jafnvel enn verra í svokölluðum heimalönd- um svartra, þar sem neyðarlögin gilda ekki. Þeir sögðu að yngsta barnið sem þeir sáu og bar merki pyntinga hafi verið 14 ára og eitt barn var svo illa farið eftir slíka meðferð að það hafði misst sjónina. I skýrslunni sagði að Rolf Mey- er, aðstoðarráðherra, hefði fullviss- að þá um að lögreglumönnum, er misbeittu valdi sínu, væri strang- lega refsað, en ekki sögðust lög- fræðingarnir hafa séð merki þess. Þeir sögðust einnig álít.a að dómar- ar í Suður-Afríku, sem stjórnvöld útnefna, væru ekki fullkomlega sjálfstæðir í sínum störfum. ICJ, er hlaut mannréttindaverð- laun Evrópuráðsins árið 1980, hefur ekki sent rannsóknarnefnd til S- Afríku síðan um miðjan sjöunda áratuginn. Bretland: Israelar f ölsuðu bresk vegabréf Fundust í símaklefa í Vestur-Þýskalandi ísrael: Nýja testa- mentið bannað í skólum Tel Aviv, Reuter. ISRAELSKA menningarmála- ráðuneytið hefur bannað að notast verði við biblíur, þar sem bæði gamla og nýja testamentið er skráð, í gyðingaskólum, að því er sagði í dagblaðinu Jerusalem Post á mánudag. í blaðinu var haft eftir talsmanni ráðuneytisins að bannið hefði verið sett á eftir að kristnir trúboðar gáfu biblíur með bæði gamla og nýja testamentinu í skóla í sam- yrkjubúum í Israel. Mati Dagan, yfirmaður þeirrar deildar menntamálaráðuneytisins, sem fer með trúfræðslu, sagði við Jerusalem Post að gamla testa- mentið kæmi frá guði, en maðurinn hefði skrifað nýja testamentið, þeg- ar hann skýrði þessa ákvörðun. Nýja testamentið er ekki kennt í biblíutímum í gyðingaskólum í Ísra- el, þótt bókmenntakennarar vísi oft og tíðum til þess er þeir útskýra vestrænar bókmenntir. „Gyðingar hafa verið myrtir og ofsóttir öldum saman vegna nýja testamentisins," Moshe Edelstein, skólastjóri barnaskóla, í viðtali við blaðið. „Gamla testamentið verður að vera okkur heilagt, jafnvel þeim okkar, sem ekki lúta gyðingatrú, vegna þess að það felur í sér allt það, sem gerir okkur að gyðingum.“ London. AP. BRESK stjórnvöld hafa sakað ísraela um að hafa falsað bresk vegabréf en breska blaðið The Sunday Times skýrði frá því á sunnudag, að þau hefðu fundist í símaklefa í Vestur-Þýskalandi og verið ætluð útsendurum Mossads, israelsku leyniþjón- ustunnar. Talsmaður utanríkisráðuneytis- ins sagði, að Yehuda Avner, sendi- herra Ísraelaí London, hefði verið boðaður í ráðuneytið í október sl. og honum afhent harðorð mótmæli vegna fölsuðu vegabréfanna. Var þess jafnframt krafist, að þetta kæmi ekki fyrir aftur. „ísraelsk yfirvöld báðu okkur afsökunar og fullvissuðu okkur um, að séð hefði verið til, að þetta endurtæki sig ekki. Þar með töldum við, að málið væri úr sögunni," sagði talsmaður- inn, sem ekki vildi láta nafns síns getið eins og venja er á Bretlandi. í fréttinni í The Sunday Times sagði, að fölsuðu vegabréfin hefðu fundist sl. sumar í poka í símaklefa í Vestur-Þýskalandi og verið fyrir „launmorðingja ísraelsku leyniþjón- ustunnar erlendis“. Sagði blaðið, að á síðasta áratug hefði Mossad tvisvar sinnum notað „fölsk, bresk vegabréf þegar verið var að eltast við palestínska hryðjuverkamenn". Var ennfremur fullyrt, að ísraelar hefðu í fyrstu neitað að biðjast af- sökunar og hefðu ekki gert það fyrr en Sir Geoffrey Howe, utanrík- isráðherra, kvartaði við Shimon Peres, starfsbróður sinn ísraelskan. Pólland: Falið atvinnuleysi ekki minna en 5-10% - segir rektor háskólans í Wroclaw Varsjá, AP. I Póllandi er „falið atvinnuleysi“ ekki minna en 5-10%, sem hefur í för með sér mikið tjón fyrir efnahag landsins. Kemur þetta fram í blaðaviðtali við hagfræð- inginn Jozef Kaleta, rektor Oskar Lange-háskólans i Wroclaw. Þar vefengir hann þá skoðun, sem yfirleitt er haldið fram í kommúnistalöndunum, að atvinnuleysi sé aðeins landlægt í þeim löngum, sem búa við fijálst markaðskerfi. „Enda þótt við höfum að forminu Weinberger á Spáni: Segir Spánverja skilja þörf- ina fyrir vestrænt samstarf Madrid, AP. CASPAR Weinberger, varnar- málaráðherra Bandaríkjanna, kvaðst í gær fullviss um að Spán- veijar gerðu sér grein fyrir þörfum vestrænna ríkja í örygg- ismálum og myndu semja í samræmi við það, þótt þeir vildu fækka bandarískum hermönnum á Spáni. „Ég komst að því að bæði ríki vilja af einhug viðhalda styrku vest- rænu samstarfi," sagði Weinberger við blaðamenn þegar eins og hálfs sólarhrings heimsókn hans til Madrid lauk í gær. Weinberger ræddi í heimsókn sinni við Juan Carlos Spánarkonung, Felipe Gonz- alez forsætisráðherra og Narcis Serra varnarmálaráðherra í hart- nær sex klukkustundir. Weinberger kemur í dag til Tyrk- lands til viðræðna við þarlenda ráðamenn. Þar náðist á mánudag samkomulag milli George Shultz, utanríkisráðherra Bandaríkjanna og Vahit Halefoglu, utanríkisráð- herra Tyrklands um herstöðvar Bandaríkjamanna þar í landi til ársloka 1990. Ummæli Weinbergers við brott- forina stangast á við umfjöllun í spænskum fjölmiðlum. Þar sagði að samningaviðræður um að fækka þeim tíu þúsund bandarísku her- mönnum, sem nú eru á Spáni, væru í sjálfheldu. Bandaríkjamenn vildu ekki fallast á að spönsk stjómvöld þyrftu að uppfylla viss skilyrði í innanríkismálum og fækka banda- rískum hermönnum talsvert. Serra sagði við blaðamenn eftir að hann kvaddi hinn bandaríska starfsbróður sinn að „aðila greindi enn jafn mikið á“. Reuter Caspar Weinberger, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, ræðir við Juan Carlos Spánarkonung. til fulla atvinnu, þá höfum við í reynd atvinnuleysi, en það er falið,“ segir Kaleta í viðtalinu, sem birtist upphaflega í stúdentablaði, en vakti enn meiri athygli fyrir það á mánu- dag, að PAP, hin opinbera frétta- stofa Póllands, birti viðtalið í heild. „Ég tel, að atvinnuleysið sé ekki minna en í helztu löndum markaðs- hyggjunnar og sé að minnsta kosti 5 til 10 prósent,“ er ennfremur haft eftir Kaleta. Hann bendir á, að „falda atvinnuleysið“ komi fram í hinum mikla fjölda, sem ekki mæti til vinnu, lélegum vinnuaf- köstum og „þeim mikla fjölda manna, sem vinni gagnslaus störf í stjórnsýslunni." Alls vinna um 12 millj. Pólverja við störf hjá ríkinu. Þá sé það áberandi, að fjöldi manns vinni við störf, sem séu fyr- ir neðan starfskunnáttu þeirra. „Við eigum flesta verkfræðinga í heimi miðað við hveija 1.000 íbúa, en kunnátta þeirra er ekki hag- nýtt.“ „Fjölmennir hópar starfsmanna eru ráðnir í vinnu af duglausum framleiðendum, sem leiðir til taps fyrir efnahag landsins. Þetta fólk eyðir hráefnum og fær jafnvel borg- að fyrir það til þess eins að reglunni um fulla atvinnu sé fullnægt." Kaleta heldur því fram, að um helmingur þeirra skatta, sem greiddur er af fyrirtækjum, er rekin eru af ríkinu, sé notaður í styrki handa framleiðendum, þar sem tap er á starfseminni. „Fýrr eða síðar hlýtur það að leiða til kreppu, þeg- ar pólitísk markmið eru sett ofar almennum efnahagslegum mark- miðum,“ segir Kaleta ennfremur. Hvetur hann stjórnvöld til að endur- vekja markaðshyggju og samkeppni og koma á nánari samvinnu við þau lönd, þar sem iðnaður sé kominn lengra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.