Morgunblaðið - 18.03.1987, Blaðsíða 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. MARZ 1987
Handbolti:
Lengi lifir í
gömlum glæðum
VALSMENN hittast á veitinga-
húsinu Torfunni í hádeginu, leysa
landsmálin, skjóta á hvern annan
á milli bita. Þetta er upphitunin
fyrir leik kvöldsins, sem reyndar
er ekkert minnst á, en þess meira
talað um aðra leiki. Leikmenn 1.
flokks Vals í handbolta taka sig
hæfilega alvarlega. Þeir hafa skil-
að si'nu dagsverki fyrir félagið og
landsliðið, en handboltinn er
þeirra li'f og yndi og i' keppni kem-
ur greinilega í Ijós, að lengi lifir
í gömlum glæðum. Þegar einum
leik er ólokið í íslandsmótinu, eru
þeir þegar orðnir meistarar, hafa
unnið alla sína leiki, eru með 24
stig og á annað hundrað mörk í
plús.
íslandsmelstararnir eiga að baki
448 landsleiki og hafa gert í þeim
734 mörk. Með meistaraflokki Vals
haf þeir leikið tæplega þrjú þúsund
leiki og skorað um tíu þúsund
mörk. Fimm þeirra hafa verið fyrir-
liðar landsliðsins og nokkrir leikið
með erlendum liðum. Þeir spila
fótbolta innanhúss einu sinni í
viku, en handþolta snerta þeir að-
eins í leikjum.
Evrópukeppni í veði
í síðustu viku lék liðið gegn 1.
deildarliði FH í bikarkeppninni. í
hádeginu var sagt að sjö fyrstu
myndu hefja leikinn, en tuttugu
mínútum fyrir leik voru aðeins tveir
mættir. Guðni Bergsson kom fyrst-
ur, en „bara af því að hann átti
leið framhjá" eins og einhver sagði
og fékk því ekki að byrja. Skot-
hríðin frá því í hádeginu hélt áfram
í þúningsklefanum, en fimm mínút-
um fyrir leik tilkynnti Pétur liðs-
stjóri byrjunarliðið og ráölagði
mönnum að spila langar sóknir.
„Er ekki hægt að fá buxur, sem
ekki er búið að pissa í,“ spurði Jón
Pétur. „Þessi leikur á greinilega
ekki að vinnast, því ég fæ engar
buxur,“ sagði Stebbi Gunn.
í hálfleik höfðu Valsmenn
þriggja marka forystu og sigurg-
lampi var í augum þeirra. „Eigum
við ekki að halda þessu áfram og
ná í pening fyir félagið," sagði
Hemmi. „Það er Evrópukeppni í
veði.“ Aðrir vildu keyra upp hrað-
Morgunblaðið/Bjarni
• „Gleymum þessum leik. Það þýðir ekkert að svekkja sig á þessu,
við tökum þá bara næst.“ Gunnsteinn Skúlason ráðleggur strákunum
að æfa betur fyrir næsta leik. Af svip Ólafs H. Jónssonar að dæma
veitir ekki af því hann virðist aiveg búinn.
ann, en Pétur bað menn um að
slappa af.
Leikurinn tapaðist með tólf
mörkum og var dauft yfir mönnum,
þegar þeir komu inn í búnings-
herbergið. „Við erum ekki í formi
til að hugsa," sagði Jón Karls.
Aðrir sögðu að til að sigra topplið
í 1. deild þyrfti að æfa. „Við vorum
taplausir, en ég var ekki með og
því fór sem fór,“ sagði Ágúst Ög-
munds. Leikurinn gleymdist fljótt
og hádegisskothríðin hófst.
Islandsmeistarar
Á laugardaginn var leikið gegn
Aftureldingu í deiidinni. Leikurinn
var jafn, en Valsmenn höfðu ávallt
undirtökin og unnu 25:20. Þar með
voru þeir orðnir íslandsmeistarar
enn einu <-inni.
Strákarnir í Valsliðinu hafa leikið
saman meira eða minna á þriðja
áratug. Snerpan er heldur minni
nú en áður, en leikgleðin leynir sér
ekki. Menn komast upp með að
reyna ýmislegt í leikjum, sem þeim
hefði aldrei dottið í hug að gera,
þegar alvaran réð ferðinni. Sprellið
og kátínan sitja í fyrirrúmi, þeir
hafa gaman af því sem þeir eru
að gera, hugarfarið er rétt.
Morgunblaöiö/Bjami
• Gamlir og glæsilegir taktar! Gunnsteinn Skúlason svífur hér inn
úr horninu og skorar glæsilega. Það er greinilegt á þessari mynd að
„gömlu" mennirnir i' Val hafa ekki gleymt neinu í sambandi við hand-
boltann. Alla vega kann Gunnsteinn enn að koma sér f góða stöðu
fyrir Ijósmyndarann.
• „Púff! Eins gott að það er ekki vikt hér í hús-
inu. Hvað ætli ég sé orðinn þungur,“ gæti Jón
Karlsson verið að hugsa á þessari mynd sem var
tekin af honum í hvíldarstöðu fyrir leikinn.
• Hér hefur Jón uppgötvað að fylgst var með
honum og þá er auðvitað ekki hægt að vera í
hvíldarstöðu. Kassinn fram og þá er maður svipað-
ur og í gamla daga.
1. flokkur:
íslands-
meistarar Vals
• Aftari röð frá vinstri: Bergur
Guðnason aðstoðarliðsstjóri,
Stefán Gunnarsson, Jón Pétur
Jónsson, Bjarni Jónsson, Ólafur
H. Jónsson, Guðni Bergsson,
Guðjón Magnússon, Ágúst Ög-
mundsson og Pétur Guðmunds-
son, liðsstjóri. Fremri röð frá
vinstri: Sigrún Stefánsdóttir,
Linda Björk Bjarnadóttir, Gunn-
steinn Skúlason, Jón Breiðfjörð,
Jón Karlsson, Páll Guðnason,
Hermann Gunnarsson og Ing-
var Guðmundsson. Á myndina
vantar Gísla Blöndal, Ólaf Ben-
ediktsson og Inga Björn Al-
bertsson.
Morgunblaöið/RAX