Morgunblaðið - 18.03.1987, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 18.03.1987, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. MARZ 1987 39 Viltu skrifast á? Bamasíðan fékk bréf frá stelpu á Djúpavogi. Hún vill gjaman eignast pennavini og skrifast á við bæði stráka og stelpur af öllu landinu. Stelpan heitir Rán Freys- aóttir og er 11 ára og verður 12 ára á árinu. Ahugamál hennar em handbolti, fótbolti, dans, límmiðar og Madonna. Heimilisfangið er: Rán Freysdóttir, Hvoli, 765 Djúpivogur. Og nú er bara að drifa sig og senda Rán bréf um leið og þið skrifíð Bamasíðunni. Hvert fór Guðjón? Á síðustu Barnasíðu var stafaþraut þar sem þið áttuð að finna út hvert Guðjón var að fara. Stafirnir sem vantaði í stafrófið voru: E, G, í, M, R, S, Y. Þegar þeim hefur verið raðað rétt kemur út heiti stað- arins og ef þið hafið gert þetta rétt hafið þið fengið út GRÍMSEY. Kókoskúlur Það er alltaf gaman að búa til eitthvað gott. Hvemig væri að búa til kókoskúlur á næsta „nammi- degi"? Bamasíðunni áskotnaðist þessi uppskrift um daginn og hefur hún reynst vel. Þið þurfið: 100 gr smjör 150 gr flórsykur 1 matsk. kaffiduft 2 matsk. heitt vatn 2 matsk. kakó 1 tsk. vanilludropar 100 gr hnetur 100 gr kókosmjöl Hrærið smjörinu og sykrinum saman. Kaffiduftinu (neskaffí) og vatninu blandað saman og iátið kólna (ef ekki er til kaffiduft má nota 2 matsk. af sterku löguðu kaffí, sem hefur verið kælt). Hnetumar em hakkaðar. Öllu nema kókosmjölinu blandað saman og búnar til kúlur. Kúlunum er að endingu velt upp úr kókosmjölinu. Þá er ekkert eftir nema bragða á góðgætinu. Verði ykkur að góðu. Brosum Enn á ný gefst okkur tækifæri til að brosa með henni Eyrúnu. Þetta em ljómandi skemmtilegar myndir. Eyrún er 11 ára og er í Austurbæjarskólanum. Á næstu Barnasíðu er ætlunin að spjalla við Eyrúnu. Fimm villur Hér em tvær ljósmyndir. Við fyrstu sýn virðast þær vera eins, en ef betur er að gáð kemur í ljós að svo er ekki. A mynd 2 vantar fímm atriði sem em á mynd eitt. Getui þú fundið þau? SNJOKORN Myndagátan 24 Eitthvað ætlar myndagátan að vefjast fyrir ykkur. Nú birtun við tvo hluta myndarinnar í viðbót. Til að hjálpa ykkur ögn get ég sagt að á fyrstu myndinni, þ.e. fyrsta hluta myndarinnar sem við birtum, em hendur að vinna. Við hvað vinna þær? Það ætti að sjást á öðmm myndum. Horfðu aftur á myndina og þér dettur ömgglega fljótt í hug af hveiju hún er. Sendið svörin sem fýrst til: Barnasíðan, Morgunblaðinu, Aðalstræti 6, 101 Reykjavík. Hvemig væri að hafa samband og láta mig vita hvað þið viljið hafa á síðunni? Ég bíð eftir bréfum frá ykkur. í vetur hefur snjóað frekar lítið, a.m.k. sunnanlands. Nú hefur hins vegar snjóað öðru hvoru. Ekki er auðvelt að sjá með berum augum hvernig snjókomið er, en með stækkun sést að þar em kristallar, sem geta verið í laginu eitthvað í líkingu við myndina hér. Hvemig væri að þú reyndir að klippa út snjókorn? Til þess þarf helst þunnan pappfr og góð skæri. Notið ferkantað blað og reynið að bijóta það eins og sést á myndinni. Svo getið þið klippt út annað hvort fríhendis eða teiknað laust á áður en þið klippið. Snjókomin ykkar getið þið síðan notað sem litla dúka eða sett í glugga. Þegar við vinnum með pappír og skæri er gott að hafa ruslafötu við hendina og henda afklippunum jafnóðum. Gangi ykkur vel. ðrjti-tiíS ' -ícrto+' 0 í Ctrtb lÍMumar íucpp il <3
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.