Morgunblaðið - 18.03.1987, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 18.03.1987, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. MARZ 1987 17 HÁSKÓLAKÓRINN Tónlist Jón Ásgeirsson Tónleikar Háskólakórsins, sem haldnir voru í kirkju Langholts- safnaðar sl. sunnudag, hófust samkvæmt venju á Gaudeamus. Þá strax mátti heyra að kórinn er fallega hljómandi og vel sam- stilltur. Fyrst á efnisskránni voru madrigalar, tveir enskir eftir Mor- ley og Wilbye og þrír ítalskir eftir Gastoldi, Arcadelt og Lasso. í heild var flutningur madrigalanna eilítið við hægferðugri mörkin, sem naut sín vel í mikilli hljóman Langholtskirkju og auk þess í sumum tilfellum eins og vantaði eilítið upp á samæfinguna. Allur síðari hluti tónleikanna var helg- aður íslenskri tónlist. Fyrst voru §órar raddsetningar á fslenskum þjóðlögum. Utanlands í einum bý, eftir Jónas Tómasson eldri, er sérlega falleg útsetning og ber í sér heillandi og nokkuð fornlegan blæ. Vinaspegill eftir Róbert A. ’Ottósson er hressileg raddsetning, er ber sterk einkenni evrópskra hefða. Móðir mín í kví, kví, eftir Jakob Hallgrímsson, er nokkuð krómatískt unnin og síðasta radd- setningin, Stóðum tvö í túni, eftir Hjálmar H. Ragnarsson var nýtískulegust. Þetta sýnir listrænt afl þjóðlaganna að þar er rými fyrir svo margvíslega hugsun og útfærsluleiðir að engan enda er þar á að finna. Öll voru þessi lög vel flutt, bæði með fallegri hljóm- an og æskugleði. Þijú lög eftir undirritaðan, úr Húsi skáldsins, voru næst á eftiis- skránni. Þessi „alþýðulög“ voru ágætlega flutt, einkum Maístjam- an. Eftir hlé var slegið á nýrri strengi og flutt verk eftir stjóm- andann, frumfluttar nýjar tónsmíðar eftir John Speight og Hauk Tómasson og síðast gamall kunningi, Fenja Úhra, eftir fyrr- verandi stjómanda kórsins, Hjálmar H. Ragnarsson, við texta Karls Einarssonar Dunganon. Spjótalög eftir Árna Harðarson, við texta eftir Þorstein frá Hamri, hafa áður verið flutt af Háskóla- kómum. Þetta er vel gerð kórtón- list. Þó má fínna að því, að textinn sé einum of höggvinn í sundur, með stuttum tónhendingum. A Shepherd’s Carol, við texta eftir W.H. Auden, var fyrri frumflutn- ingurinn og er þetta lag sérlega falleg vögguvísa, með alls konar kárínum inn á milli. Tónverkið fellur einstaklega vel að textanum og vögguvísan sjálf er einkar fal- leg. Haustljóð við sjó, við texta eftir Hannes Pétursson, var seinni frumflutningurinn og eftir Hauk Tómasson. Tónmálið er fallegt en greinir sig oft frá textanum. í fyrra ljóðinu er nær ekkert dvalið við stemmningar textans en í því seinna er þá fyrst farið að vinna úr stemmningunni, þegar kemur að „Á jörðu: borgarljós og byggða í sveig" og aðeins við síðustu textahendingamar. Viðvist stemmninga í tónlist má þenja yflr lengri tíma en í tpluðu orði og minnir aðferðin sem beitt er í fyrra ljóðinu á þá venju sem tíðkast í „lagsmíði", þar sem sögð er saga, en ekki gerð tónverks, þar sem unnið er úr stemmning- um. Síðasta lagið var svo Fenja Úhra eftir Hjálmar H. Ragnars- son, skemmtilegt lag og vel sungið._ Háskólakórinn, undir stjóm Árna Harðarsonar, er góður kór. Auk þess að vera fallega hljómandi, er söngurinn frísklegur og leikandi, svo sem ungu og söngglöðu fólki er eiginlegt. Mánudagsmynd Regnbogans: Tartuffe eftir Moliére MÁNUDAGSMYND Regnbogans að þessu sinni er gerð eftir leik- riti Moliéres; Tartuffe. Franski leikarinn Gerard Depardieu fer með aðalhlutverkið og leikstýrir myndinni jafnframt. Eiginkona Gerards fer með hlutverk eigin- konu Orgons og Francois Perier leikur Orgon. Myndin fjallar um góðborgarann Orgon sem býður skálkinum Tartuffe að búa í húsi sínu og ger- ir hann að sínum trúnaðarvin. Fjölskylda Orgons reynir að koma honum í skilning um að Tartuffe sé aðeins loddari sem ætli sér að notfæra sér góðvild Orgons. Það gerist margt áður en augu Orgons opnast og hann sér hið rétta inn- ræti Tartuffes, segir í frétt kvik- myndahússins. Reyklaus dagur 27. mars ÁKVEÐIÐ hefur verið að einn dagur í marsmánuði, föstudagur- inn 27. mars, verði „reyklaus dagur“ hér á landi. Ráðgert er að framkvæmd hans verði með svipuðum hætti og var á reyk- lausum degi í febrúar 1982. Sá dagur þótti takast vel. Fjölmarg- ir reykingamenn tóku að fullu þátt í deginum, eins og til stóð, og vitað er að margir þeirra notuðu tækifærið til að hætta að reykja fyrir fullt og allt. Löggjöf um tóbaksvamir hefur verið í gildi um tveggja ára skeið og haft ómetanlega þýðingu fyrir það starf sem unnið hefur verið. Því er nú lag til að nýta meðbyrinn og hefja öfluga sókn að markmiðinu um Reyklaust ísland árið 2000. Það er von tóbaksvamamefndar og Rís 2000 að sem allra flestir reykinga- menn gangi í „Reyklausa liðið“ þó ekki væri nema þennan eina dag. Markmiðið með reyklausum degi er fyrst og fremst: 1. Að fá sem flesta til að reykja ekki þann 27. mars. 2. Að fram komi fjölbreyttar upp- lýsingar og fróðleikur um afleiðing- ar tóbaksreykinga og að umræða skapist um óbeinar reykingar og skaðsemi þeirra og um reyklausa staði. 3. Að sem flestir hætti að reykja þennan dag og að skipulögðum leið- beiningum verði dreift til þeirra sem þess óska. 4. Að styrkja þann vilja sem fyrir er hjá reykingamönnum að hætta reykingum. Kannanir hafa leitt í ljós að mikill meirihluti þeirra hefur hug á að hætta, en vantar tilefnið. Eins og áður segir verður reyk- laus dagur þann 27. mars_ og óska tóbaksvamamefnd og RÍS 2000 eftir því að sem flestir láti þetta mikilvæga málefni til sín taka. „Þessir strákar halda boltanum gangandi Þeir verða að geta treyst á reglulegar tekjur liðsins.” Sigurður Svavarsson Umsjónarmaður getraunamála Knattspyrnudcildar FRAM „íslenskar getraunir eru félag sem stofnað er til að afla fjár til stuðnings íþróttaiðkunar á vegum áhugamanna um íþróttir á Islandi í félögum innan Ung- mcnnafélags íslandsog íþrótta- sambands Islands.“ Úr rcglugerð fyrir Islenskar getraunir ÍSLENSKAR GETRAUNIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.