Morgunblaðið - 18.03.1987, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. MARZ 1987
Snörp orðaskipti á Alþingi um höfundarrétt á tillögum og góða siði þingmanna:
Tvær sams konar tillögnr
um lífeyrismál á þingi
Seinni tillagan flutt af formanni nefndar þar sem fyrri
tillagan hefur ekki fengist afgreidd mánuðum saman
TIL SNARPRA orðaskipta kom
í sameinuðu þingi í gær eftir að
dreift hafði verið þingsályktun-
artillögu frá Gunnari G. Schram
og þremur öðrum þingmönnum
Sjálfstæðisflokksins um lífeyris-
réttindi þeirra sem sinna heimil-
is- og umönnunarstörfum.
Tillaga sama efnis frá Jóhönnu
Sigurðardóttur (A.-Rvk.) og Kol-
brúnu Jónsdóttur (A.-Nv.) sem
iögð var fram í þingbyijun hefur
ekki fengist afgreidd í félags-
málanefnd sameinaðs þings, þar
sem Gunnar G. Schram er form-
aður.
Það var Eiður Guðnason (A,-
VI.) sem kvaddi sér hljóðs um
þingsköp til að vekja athygli á þessu
atriði. Hann benti á, að tillaga
þeirra Jóhönnu og Kolbrúnar hefði
komið fram 15. október s.l. og ve-
rið tekin til fyrri umræðu en síðan
vísað til félagsmálanefndar samein-
aðs þings. Reynt hefði verið að fá
hana afgreidda úr nefndinni, en því
hefði verið borið við að málið væri
í athugun hjá þingflokki sjálfstæð-
ismanna. Nú hefði formaður
nefndarinnar hins vegar lagt fram
MMnd
Morgunblaðið/Einar Falur Ingólfsson
Skreipur,
háll ’ann
er sem áll
Páll Pétursson, formaður
þingflokks framsóknar-
manna, varð fimmtugur í
gær. Hann sinnti þingstörfum
með sama hætti og venjulega,
enda hafði hann gert sér
dagamun á heimaslóðum fyr-
ir norðan um helgina Páli
bárust margar kveðjur og
árnaðaróskir í tilefni dagsins
og meðal annars eftirfarandi
frá skólabróður sínum i
Menntaskólanum á Akureyri,
Halldóri Blöndal, þingmanni
Sjálfstæðisflokksins:
Skreipur, háll 'ann er sem áll.
Oft er gáli á Húnvetningi.
Er aðsjáll en síður þjáll.
Situr Páil hér fast á þingi.
tillögu sem væri nánast samhljóða.
Hér væri sérkennilega að verki
staðið og ástæða til að benda á
það. Þingmaðurinn spurði, hvort
ekki væri skynsamlegra að afgreiða
hina fyrri tillögu úr því að samstaða
væri um efnisatriði, heldur en að
taka hina síðari fyrir, enda ynnist
vart tími til þess.
Guðrún Helgadóttir (Abl.-
Rvk.) kvaðst sitja í félagsmála-
nefnd sameinaðs þings ásamt
Jóhönnu Sigurðardóttur og Gunnari
G. Schram. Margsinnis hefði verið
reynt að fá tillögu Jóhönnu af-
greidda úr nefndinni; síðast hefði
verið spurt um það á mánudaginn
og þá verið sagt að það væri í at-
hugun. Guðrún sagði, að það kæmi
stundum fyrir að mál stjómarand-
flutt á þessu þingi og fyrri þingum
um umboðsmann Alþingis, sem nú
hefði verið samþykkt sem stjómar-
fmmvarp efnislega lítt frábmgðið
sínu fmmvarpi.
Gunnar G. Schram kvað sjálfsagt
að félagsmálanefnd sameinaðs
þings fjallaði um báðar tillögumar
um lífeyrisréttindin í einu lagi og
að kannað yrði hvort flutningsmenn
kysu að sameina þær í eina tillögu
eða legðu til annan hátt á af-
greiðslu málsins. Kvaðst hann
mundu beita sér fyrir þessu sem
formaður nefndarinnar.
Páll Pétursson (F.-Nv.) sagðist
hafa flutt efnislega sams konar til-
lögu á fyrri þingum og kvaðst hafa
hætt við endurflytja hana þegar
hann sá tillögu Jóhönnu og Kol-
Sþ. 49. Tillaga til þingsályktunar
um lífeyrisréttindi heimavinnandi fólks.
Flm.: Jóhanna Siguröardóttir, Kolbrún Jónsdóttir.
[49. mál]
Alþingi ályktar aö fela fjármálaráöherra að beita sér fyrir því aö þeim, sem eingöngu
sinna hcimilisstörfum, veröi tryggö lífcyrisrcttindi eigi síðar en 1. júní 1987.
Sérstaklega skal athuga aöild þcirra aö Söfnunarsjóöi lífeyrisréttinda.
Tillaga Jóhönnu Sigurðardóttur og Kolbrúnar Jónsdóttur um lífeyris-
réttindi heimavinnandi fólks. Tillagan kom fram fram 15. október
í fyrra.
Sþ. 959. Tiilaga til þingsályktunar
um undirbúning lífeyrissjóösréttinda þeirra sem sinna heimilis- og umönnunarstörfum.
Flm.: Gunnar G. Schram, Pétur Sigurösson,
Salome Þorkelsdóttir, Kristín S. Kvaran.
Alþingi ályktar aö fela ríkisstjórninni aö láta kanna meö hvaöa hætti sé unnt aö koma á
lífeyrisréttindum þeirra sem sinna heimilis- og umönnunarstörfum og leggja tillögur um þaö
efni fyrir Alþingi fyrir 1. febrúar 1988.
Tillaga Gunnars G. Schram o.fl. um lífeyrissjóðsréttindi þeirra sem
sinna heimilis- og umönnunarstörfum. Tillagan kom fram á Alþingi
í gær.
stöðuþingmanna væru tekin upp af
stjómarliðinu án þess að hinir fyrr-
nefndu fengju heiðurinn af þeim.
Vissulega væri ástæða til að fagna
því þegar góð mál kæmust í höfn,
en spumingin væri sú, hvort stjóm-
arandstöðuþingmenn ,væru rétt-
lausir í þessu efni. Hún átaldi það
harðlega, að þess væri ekki getið í
greinargerð Gunnars G. Schram
o.fl. að sams konar mál lægi fyrir
þinginu og beindi þeirri spumingu
til forseta sameinaðs þings, hvort
forsetar þingsins hefðu ekki vald
til að koma í veg fyrir að þingmenn
tækju upp og gerðu að sínum ná-
kvæmlega sömu mál og þegar lægju
fyrir þinginu.
Gunnar G. Schram (S.-Rn.)
kvaðst skilja vel að Guðrúnu
Helgadóttur og fleiri þingmönnum
þætti miður að öll sem þeir flyttu
fengju ekki endanlega afgreiðslu í
þingnefndum. En þetta væri al-
gengt og af því hefðu flestir
þingmenn reynslu, þ.á m. hann
sjálfur. Gunnar kvað það rétt að
tillaga sín um lífeyrisréttindi heima-
vinnandi fólks væri ekki nýmæli í
þingsölum heldur hefði því verið
hrejrft fyrr á þessu þingi og hinu
síðasta, enda væri hér á ferð hið
þarfasta mál. Auk sinnar tiilögu
lægi fyrir tillaga Jóhönnu Sigurð-
ardóttur og frumvarp frá þing-
mönnum Kvennalistans sem væri
eldra en tillaga Jóhönnu. Það væri
ekkert einstakt að þingmenn bæru
fram tillögur um áþekk mál eða
sama málið. Hann nefndi í því sam-
bandi frumvarp, sem hann hefði
þetta frumvarp nú og gera það að
lögum. Hún sagðist samsinna því,
sem sagt hefði verið, að ekki virtist
sama hvaðan gott kæmi. Það undr-
aði sig líka hvað þingmenn virtust
lítt kynna sér hvaða mál hefðu þeg-
ar komið fram. Það virtist viðtekin
venja að hundsa mál er kæmu frá
stjómarandstöðunni.
Jóhanna Sigurðardóttir (A.-
Rvk.) kvað það rétt hjá Eiði
Guðnasyni að hún hefði ítrekað
reynt að fá tillögu sína afgreidda
frá félagsmálanefnd. Hún sagðist
hafa haft um það góð orð frá Gunn-
ari G. Schram að málið fengi
afgreiðslu, en hann hefði talað um
að það þyrfti að athuga það betur
hjá Sjálfstæðisflokknum. Síðan
hefði hann sjálfur lagt fram tillögu
sem væri efnislega samhljóða til-
lögu sinni og Kolbrúnar Jónsdóttur.
Þetta væru einkennileg vinnubrögð.
Og vegna orða Páls Péturssonar
minnti hún á að þetta væri ekki í
fyrsta sinn sem hún hreyfði lífeyris-
málum heimavinnandi fólks á
Alþingi. Það hefði hún gert alla tíð
síðan hún tók þar sæti. Það væri
gleðilegt að samstaða virtist um
málið, en í ljósi þess að tillaga
Gunnars G. Schram væri ekki einu
sinni komin á dagskrá og eftir
væri að vísa henni til nefndar lægi
beinast við að afgreiða tillögu sína
eina og það fyrir þingslit.
Eiður Guðnason (A.-Vl.) kvaðst
ekki geta orða bundist eftir ræðu
Gunnars G. Schram. Sér hefði of-
boðið gersamlega málfutningur
hans. Það væri ekki sama, hvort
tvö þingmál um sama efnið kæmu
fram sömu dagana eða hvort mál
kæmi fram í þingbyijun og formað-
ur viðkomandi þingnefndar gerði
það að sínu í lok þingsins eins og
hér hefði gerst. Slík vinnubrögð
hefðu ekki tíðkast á Alþingi áður.
Sigríður Dúna Kristmunds-
dóttir (Kl.-Rvk.) sagði að hér hefði
ekki verið farið eftir mannasiðum.
Menn ættu ekki að nýta sér verk
og hugmyndir annarra nema láta
þess getið, en það hefði Gunnar
G. Schram ekki gert. Hún hvatti
til þess að lífeyrisréttindi heima-
vinnandi fólks yrðu tekið fyrir áður
en þingi yrði slitið og málið afgreitt.
Þorvaldur Garðar Kristjáns-
son, forseti sameinaðs þings,
hafði síðasta orðið í umræðunum.
Hann minnti á, að í þingsköpum
væri talað um að þingmenn gætu
tekið til baka þingmál sín ef þeir
kysu, en þá mættu aðrir taka þau
UPP og gera að sínum. Álykta
mætti að í þessu fælist að þing-
mönnum væri ekki heimilt að flytja
sams konar tillögu og þegar væri
komin fram. I raun og framkvæmd
orkaði það hins vegar oft tvímælis
hvað væri sams konar tillaga og
enginn þingmaður hefði einkarétt á
neinu máli. Engin ákvæði væru um
það í þingsköpum að forseti hefði
beinlínis rétt til að hindra flutning
mála sem þegar væru fram komin
nema þegar um fyrirspumir væri
að ræða. Gera yrði þó ráð fyrir því
að ef augljóslega væri ekki farið
eftir eðlilegum reglum í þessu efni
gæti forse'i tekið í taumana, þótt
ekki væri nema með því að benda
viðkomandi þingmanni á álitaefnið
áður en þingmálinu væri útbýtt.
En þá þyrfti forseti að hafa upplýs-
ingar fyrirfram frá skrifstofu
þingsins og í því tilviki sem hér
væri rætt hefði ekki verið um slíkt
að ræða. Ekki væri ástæða til að
áfellast starfsmenn þingsins fyrir
það, enda væri ýmislegt ólíkt í orða-
lagi tillagnanna. í annarri væri
talað um rikisstjóm, í hinni um fjár-
málaráðherra; í annari væri talað
um að „beita sér fyrir“ en í hinni
„að kanna" og loks væri í annarri
talað um þá sem „sinna heimilis-
og umönnunarstörfum“ en í hinni
um „heimavinnandi fólk."
Þorvaldur Garðar Kristjánsson
kvaðst vilja leggja áherslu á, að
þingmenn virtu eignarrétt hvers
annars í þessum efnum. Það hlyti
að heyra til góðra siða. Hann kvað
umræðumar gagnlegar, þar sem
fjallað væri um gmndvallaratriði í
góðum starfsháttum Alþingis.
Hann sagðist treysta því að félags-
málanefnd sameinaðs þings yrði
kölluð sgiman til að ræða málið.
brúnar. Hann sagðist vera ánægður
með að þær hefðu uppgötvað að
þama væri gott mál á ferð. Ekki
væri framtak Gunnars G. Schram
síður ánægjulegt því hann hefði nú
endurendurflutt málið. Þingmaður-
inn væri mjög hrifnæmur, því
stundum léti hann prenta upp tillög-
ur annarra og flytja sem sínar
eigin. Páll lagði til, að þingmenn
sameinuðust um málið og fluttu til-
lögu um það á næsta þingi.
Guðrún Helgadóttir (Abl,-
Rvk.) kom aftur í ræðustól og gerði
athugasemdir við málflutning
Gunnars G. Schram. Hún sagði, að
það væri út í hött að flytja nýja
samhljóða tillögu um mál sem þeg-
ar lægi fyrir þinginu. Samanburður
Gunnars á þessum vinnubrögðum
og frumvarpinu um umboðsmann
Alþingis væri að því leyti rangur að
í greinargerð stjómarfrumvarpsins
væri saga málsins á Alþingi ýtar-
lega rakin. Gunnar G. Schram hefði
hins vegar ekki minnst einu orði á
tillögu Jóhönnu og Kolbrúnar í
greinargerð með tillögu sinni.
Kristín Halldórsdóttir (Kl.-
Rn.) sagðist taka eindregið undir
gagnrýni á vinnubrögð í þinginu.
Hún kvaðst fagna áhuga þing-
manna á réttindamálum heimavinn-
andi húsmæðra, en tillaga Gunnars
G. Schram o.fl. væri ekki aðeins
áþekkt þingmáli Jóhönnu Sigurð-
ardóttur heldur einnig frumvarpi
Kvennalistans um lífeyrisréttindi
heimavinnandi húsmæðra, sem ekki
hefði fengist afgreitt úr nefnd. Það
væri þinginu til sóma að afgreiða
Framtíð Þjóðhagsstofnunar:
Stefán Benediktsson
stendur með tillögu
sjálfstæðismanna
ALLSHERJARNEFND samein-
aðs þings hefur sameinast um,
að breyta litillega orðalagi á
þingsályktunartillögu nokkurra
þingmanna Sjálfstæðisflokksins
um Þjóðhagsstofnun, en efnis-
lega er hún óbreytt.
I hinni nýju gerð tillögunnar er
ríkisstjórninni falið að endurskoða
starfsemi Þjóðhagsstofnunar og
meta hvort ekki sé hagkvæmt að
fela öðrum verkefni hennar. At-
hygli vekur, að meðal þeirra sem
standa að þessari tillögu er Stefán
Benediktsson, þingmaður Al-
þýðuflokksins í Reykjavík.
Þingmenn Alþýðuflokksins snerust
mjög öndverðir hinni upphaflegu
tillögu sjálfstæðismanna og sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins
gætir óánægju í þingflokki þeirra
með afstöðu Stefáns Benediktsson-
Skammstafanir í stjórnmálafréttum
í stjórnmálafréttum Morgunblaðsins eru
þessar skammstafanir notaðar.
Fyrir ílokka: Fyrir kjördæmi:
A.: Alþýðuflokkur Rvk.: Reykjavík
Abl.: Alþýðubandalag VI.: Vesturland
Bj.: Bandalag jafnaðarmanna Vf.: Vestfirðir
F.: Framsóknarflokkur Nv.: Norðurland vestra
Kl.: Kvennalisti Ne.: Norðurland eystra
Kf.: Kvennaframboð Al.: Austurland
S.: Sjálfstæðisflokkur Sl.: Suðurland
Rn.: Reykjanes