Morgunblaðið - 18.03.1987, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. MARZ 1987
55
Eins og létt æfing
er Fram vann Ármann
Það var engu líkara en að Fram
væri á léttri æfingu í gærkvöldi
er liðið gjörsigraði Armann í
ójafnasta leik vetursins. Strax á
fyrstu mínútunum hafði Fram náð
góðri forystu og lið Ármenninga
gaf árar í bát. Leikmenn liðsins
gerðu meira af því í fyrri hálfleikn-
um að rífast um að fá að sitja á
bekknum en að veita Fram ein-
hverja mótspyrnu. Enda voru
yfirburðir Fram ótrúlegir og liðið
hafði sextán marka forskot í leik-
hléj.
Ármenningar voru ákveðnir í að
taka sig á í andlitinu í siðari hálf-
leik og tókst að bjarga ærunni fyrir
horn, liðið tapaði síðari hálfleiknum
með aðeins þremur mörkum.
Það er ekki hægt að dæma um
leik neins af leikmönnum Fram, til
þess voru mótherjarnir allt of slak-
ir. Birgir var drjúgur að skora úr
hraðaupphlaupum og um tíma leit
út fyrir að hann stefndi á marka-
met, það tókst honum ekki en í
viðleitni sinni gleymdi hann oft
nærveru samherja sinna. Per Ska-
arup átti nokkrar gullfallegar
sendingar sem yljuðu fjórtán
áhorfendum er voru á leiknum.
Bikarkeppni HSÍ:
Víkingur hefur
ekki tapað
undanfarin
fimm ár
- leikur gegn KR í kvöld
MEISTARAR Vikings í handknatt-
leik, sem hafa ekki tapað leik f
bikarkeppninni síðan f aprfl 1982
eða í tæp fimm ár, leika gegn KR
í 16-liða úrslitum bikarkeppni
karla í kvöld og hefst leikurinn í
Laugardalshöll klukkan 20.15.
Sigurganga Víkings hefur verið
með ólíkindum, félagið var bikar-
meistari 1978, 1979, 1983, 1984,
1985 og 1986 og íslandsmeistari
1975, 1980, 1981, 1982, 1983,
1986 og 1987 eða tólf titlar en
ekki tíu eins og sagt var í blaðinu
i gær á undanförnum tíu árum auk
fjögurra Reykjavíkurmeistaratitla á
sama tíma.
Vikingur vann báða leikina gegn
KR í 1. deild í vetur, fyrri leikinn
23:17 og þann seinni 22:18, en
KR-ingar hafa fullan hug á að
stöðva sigurgöngu Víkings og má
því gera ráð fyrir spennandi leik í
kvöld.
HK og ÍBV leika einnig í bikarn-
Morgunblaöið/Einar Falur
• Úr leik Vfkings og KR í vetur
um í kvöld. Sá leikur hefst klukkan
19.30 í Digranesi. Á morgun verð-
ur síðasti leikurinn í 16-liða úrslit-
um og leika þá Ármann-b og UBK
í Höllinni klukkan 20, en dregið
verður um leiki í 8-liða úrslitum í
beinni útsendingu í Sjónvarpinu á
laugardaginn.
Knattspyrna:
Guðbjörn og Jón
áfram með ÍA
GUÐBJÖRN Tryggvason og Jón
Áskelsson hafa endanlega gert
upp hug sinn og hvað sem öllum
vangaveltum líður verða þeir
áfram með Skagaliðinu.
Guðbjörn hafði hugsað sér að
hætta í knattspyrnunni í haust, en
snerist hugur og íhugaði að skipta
um félag. Fyrir skömmu fór hann
til Akureyrar og ákvað að leika með
1. deild kvenna:
Einstefna
FRAMSTÚLKUR áttu ekki í erfið-
leikum með Ármann í 1. deild
kvenna í handbolta í gærkvöldi. í
hálfleik var staðan 24:3 og úrslit
urðu 45:10.
Mörk FRAM: Guöriöur Guöjónsdóttir 10,
Arna Steinsen 8, Ingunn Bernódusdóttir
6, Jóhanna Halldórsdóttir 5, Margrét
Blöndal 5, Hafdis Guðjónsdóttir 4, Ósk
Víöisdóttir 2, Oddný Sigsteinsdóttir 2,
Súsanna Gunnarsdóttir 1, Helga Gunnars-
dóttir 1, Kolbrún Jóhannesdóttir 1.
Mörk ÁRMANNS: Margrét Hafsteins-
dóttir 7, Ellen Einarsdóttir 1, Bryndis
Haröardóttir 1, Elísabet Albertsdóttir 1.
ÁS/KF
Daninn slapp við brottvísun í leikn-
um og það er afrek út af fyrir sig.
Það voru aðeins tveir eða þrír
leikmenn Ármanns sem höfðu
hugann við leikinn allan tímann og
slíkt gengi ekki upp hjá toppliði
-hvað þá hjá botnliði.
Kjartan Steinbach og Einar
Sveinsson áttu léttan dag við dóm-
gæsluna. Leikurinn tafðist um
fimmtán mínútur vegna seinkunn-
ar hins síðarnefnda.
Leikurinn
ítölum
Laugardalshöll 17. mars. 1.
deild í handbolta
Fram-Ármann 37:18 (21-5)
5:0, 10:3, 19:3, 21:5, 24:9,
28:14, 37:18.
Mörk FRAM: Birgir Sigurðsson
15, Agnar Sigurðsson 5/1, Per
Skaarup 5, Ragnar Hilmarsson
4, Júlíus Gunnarsson 4, Tryggvi
Tryggvason 2, Hermann
Björnsson 1, Ólafur Vilhjálms-
son 1.
Mörk ÁRMANNS: Einar
Naabye 4, Haukur Halldórsson
4/2, Bragi Sigurðsson 3, Jón
Ástvaldsson 3/1, Svanur Krist-
vinsson 1.
Morgunblaöið/Árni Sæberg
• Torfi Magnússon skorar hér gegn ÍR án þess Þresti Helgasyni
takist að stöðva hann.
Körfubolti:
Valsmenn í úrslit
Tókst þó ekki að ná 100 stigunum
VALSMENN áttu ekki í miklum
erfiðleikum með að tryggja sér
sæti í úrslitaleik bikarkeppninnar
í köfrubolta. Þeir unnu ÍR í síðari
leik liðanna í undanúrslitum í
gærkvöldi og fyrri leikinn unnu
þeir einnig nokkuð stórt.
ÍR-ingar hófu leikinn vel og
hefðu með smá heppni getað kom-
ist nokkrum stigum yfir en þeir
hittu illa þegar þeir höfðu tækifæri
til að auka forystu sína þannig að
KA, en Hörður Helgason, fyrrum
þjálfari ÍA, þjálfar nú Akureyring-
ana. Af því verður ekki og Guðbjörn
verður um kyrrt á Skaganum.
Jón Áskelsson fórtil Vopnafjarð-
ar á dögunum, en Einherji vildi fá
hann sem þjálfara og leikmann.
Jón tók ekki boðinu og leikur áfram
með Skagamönnum. Þá hafa Sig-
urður Halldórsson og Jón Leó
Ríkharðsson bæst í hópinn á ný.
Leikurinn
ítölum
íþróttahús Seljaskóla 17.
mars 1987. Undanúrslit f bik-
arnum, síðari leikur.
Valur - ÍR 99:81 (48:43
4:0,10:10,12:16,21:21,25:25,
29:25, 37:31, 46:35, 46:43,
51:49, 61:51, 67:54, 73:67,
81:67, 84:70, 93:73, 99:81
Stig VALS: Tómas Holton 20,
Sturla Örlygsson 19, Leifur
Gústafsson 18, Páll Arnar 11,
Torfi Magnússon 9, Einar Ól-
afsson 8, Björn Zoega 8,
Bárður Eyþórsson 4, Svali
Björgvinsson 2.
Stig ÍR: Ragnar Torfason 19,
Bragi Reynisson 17, Karl Guð-
laugsson 15, Jón Örn Guð-
mundsson 13, Árni S.
Gunnarsson 6, Kristinn Jör-
undsson 5, Björn Leósson 4,
Þröstur Helgason 2.
munurinn varð aldrei mikill. Vals-
menn náðu síðan að komast yfir
og juku torskotið það sem éftir var.
Einkennandi var hversu illa leik-
mönnum gekk að koma boltanum
í körfuna úr vítaskotum.
Um miðjan siðari hálfleik virtust
ÍR ætla að ná Val en þá komu
máttarstólpar Valsara inná aftur
og breyttu stöðunni á stuttum tíma
úr 73:67 í 93:73.
Bestir hjá Val voru Leifur
Gústafsson, sem tók mikið af frá-
köstum í vörn og sókn, Sturla
Örlygsson, sem var sérlega sterk-
ur í sóknarfráköstunum og Tómas
Holton sem nýtti sér vel hraða sinn
og tækni í gær.
Hjá ÍR voru Bragi Reynisson og
Ragnar Torfason bestir. Tóku mik-
ið af fráköstum og skoruðu
grimmt. Karl Guðlaugsson lék
einnig vel á köflum.
Valsmenn stefndu greinilega í
lokin að því að skora 100 stig en
tókst ekki þrátt fyrir gott tækifæri.
Svali Björgvinsson fékk bónusskot
er 17 sekúndur voru eftir en
mistókst skotið.
-sus
Hópa, firma
og félagakeppni
Innanhússknattspyma
verður haldin á vegum knattspyrnudeildar U.B.K.
18.-28. mars í íþróttahúsinu v/Digranes.
Þátttökutilkynningar alla virka daga
í síma 43699 frá kl. 16.00-18.00
Þátttökugjald er kr. 4.500.
getrguna-
VINNINGAR!
30. leikvika - 14. mars
1987
Vinningsröð: 1 1 1-22 1-11 1-XXI
1. vinningur: 12 réttir, kr. 27.370,-
4253+ 50579(4/11) 126095(6/11)217721 (8/11)+ 221858(8/1.1)
7221(1/11) 52146(4/11) 129060(6/11) 219697(10/11) 221868(8/11)
40429(4/11) 53990(4/11) 202734(10/11) 221445 (9/11) 639673
44102(4/11) 98625(6/11) 212185(7/11) 221844(12/11)
45058(4/11) 101601(6/11) 215753(8/11) 221848(11/11)
2. vinningur: 11 réttir, kr. 604,-
Alls komu fram 446 raðir. Vinningur fyrir ellefu rétta verður sendur vinnings-
höfum nú í vikunni. Þeir vinningshafa sem ekki hafa fengiö vinninga sina innan
viku frá birtingu þessarar auglýsingar, vinsamlegast hafið samband við aöal-
skrifstofu íslenskra getrauna. Nafnlausir seðlar verða auglýstir með vinninga-
skrá 31. leikviku,
Kærufrestur er tll mánudagsins 6. aprfl 1987 kl. 12.00 á hádegi.
Kærur skulu vora skriflegar. Kænjeyðublöð fást hjá umboðsmönnum og á skrifstofunni í
Reykjavik. VinningsupphaBðir geta lækkað, ef kærur verða teknar til greina.
Handhafar nafnlausra seðla (+) verða að framvísa stofni eða senda stotninn og tullar
upplýsingar um nafn og heimilisfang til Islenskra Getrauna fyrir lok kærufrests.
íslenskar Getraunir, íþróttamiðstödinni v/Sigtún, Reykjavík