Morgunblaðið - 18.03.1987, Side 56
_/^uglýsinga-
síminn er 2 24 80
■+JAW
MIÐVIKUDAGUR 18. MARZ 1987
VEM) í LAUSASÖLU 50 KR.
Skógarhöggsmenn kynda með lurkum
Háskólamenntaðir hjúkrunarfræð-
ingar og sjúkraþjálfarar:
Verkfall á mið-
nætti semjist ekki
VERKFALL háskólamenntaðra hjúkrunarfræðinga og sjúkraþjálf-
ara kemur til framkvæmda á miðnætti i nótt, hafi samningar ekki
tekist fyrir þann tíma. Fundur samninganefnda hjúkrunarfræðinga
og ríkisvaldsins hófst seinnipartinn í gær og stóð enn er Morgun-
blaðið fór i prentun. Óljóst var hvort miðað hafði i samkomulagsátt.
Fundur með sjúkraþjálfurum var fyrr um daginn og miðaði ekkert.
Lauk fundinum án þess að til nýs fundar væri boðað.
3TÉTT skógarhöggsmanna er
ekki fjölmenn hér á landi.
Blaðamaður hitti þó tvo skógar-
höggsmenn að störfum í
Vaðlareit í vikunni. Þar voru á
ferð bændurnir á Halllandi á
Svalbarðsströnd, en þeir afla
sér aukatekna með því að grisja
Vaðlareit.
HAGNAÐUR Eimskipafélags ís-
lands hf. á iiðnu ári reyndist
vera 239 milljónir króna, sam-
kvæmt upplýsingum Harðar
Sigurgestssonar, forstjóra Eim-
skips. Velta siðastliðins árs var
3,7 milljarðar króna, þannig að
hagnaðurinn nemur 6,5% af tekj-
um félagsins. Eimskip hefur
aldrei flutt meira en á siðastliðnu
ári og jókst flutningur um 13%
frá því árið 1985.
Á árunum 1984 og 1985 var um
taprekstur að ræða hjá Eimskip og
framreiknað til verðlags dagsins í
dag telst tap þessara tveggja ára
hafa numið 154 milljónum króna.
Hörður Sigurgestsson var spurð-
ur hveiju hann þakkaði þessa góðu
afkomu Eimskipafélagsins á liðnu
ári: „Við þökkum hana auknum
flutningum á árinu 1986, góðri
nýtingu skipanna, bæði í inn- og
útflutningi á flestum okkar sigl-
ingaleiðum og lækkun oiíuverðs,
sem hafði í for með sér allverulega
útgjaldalækkun á árinu. Svo þökk-
um við hana líka því jafnvægi sem
verið hefur hér á verðlagi og stöð-
ugu gengi og hagstæðari fjár-
magnskjörum en oft hafa verið
áður,“ sagði Hörður.
Hörður sagði að afkoma félags-
ins í Norður-Atlantshafsflutningun-
um á liðnu ári hefði verið betri en
stjórr'endur félagsins hefðu gert sér
vonir um.
Máni og Guðmundur Guð-
mundssynir búa félagsbúi með
föður sínum á Halllandi. Þegar
lítið er að gera á búinu fara þeir
með sagimar niður í Vaðlareit,
sem að hluta til er í landi þeirra,
og grisja skóginn fyrir Skógrækt-
arfélag Eyfírðinga. Þeir sögðu
það vera margra ára verk að
Hörður var spurður um hveijar
horfumar væru hjá félaginu á þessu
ári: „Það er ennþá nokkur óvissa
með það,“ sagði Hörður, „en þó er
ljóst að áfram verða miklir flutning-
ar á þessu ári.“ Bráðabirgðaniður-
staða fyrir janúarmánuð á þessu
ári gefur til kynna að tapið í þeim
mánuði sé um 50 milljónir, en þá
ber að hafa í huga að þann mánuð
grisja allan reitinn. Tijábolimir
em hirtir og brenndir í lurka-
brennslukatli. „Það er töluverð
vinna við að hirða trén og saga í
hæfílega lurka, en á móti sparast
einhver upphitunarkostnaður svo
þetta borgar sig,“ sögðu bræðum-
ir.
vom farmenn í verkfalli."
Aðalfundur Eimskips verður
haldinn næstkomandi miðvikudag,
25. mars, og leggur stjómin til að
greiddur verði út 10% arður og að
gefín verði út jöfnunarhlutabréf,
sem auki hlutafé félagsins um 50%,
eða úr 180 milljónum króna í 270
milljónir króna.
Verkfall hjúkmnarfræðinga
kemur til með að hafa mest áhrif
á hand- og lyflækningadeild Lands-
spítalans og verður að losa 80-90
sjúkrarúm þar. Aðeins var byijað á
því í gær, en verkinu verður lokið
í dag, ef ekki semst áður. Vegna
verkfallsboðunarinnar, hafa sjúkl-
ingar ekki verið teknar inn af
biðlista undanfarið, nema þeir sem
búast mátti við að hægt yrði að
senda heim fyrir verkfall. Þá þarf
að útskrifa sjúklinga fyrr en annars
hefði verið gert, að sögn Onnu Stef-
ánsdóttur, hjúkmnarframkvæmda-
stjóra á handlækningadeild
Landsspítalans. Hún sagði að
tveimur deildum yrði að loka vegna
verkfallsins, annari með 22 sjúkra-
rúmum og hinni með 18, og einnig
öðmm deildum að hluta til. Þannig
yrði ekki hægt að nota 57% af rúm-
um á handlæknisdeild, en verkfallið
kæmi verr við handlækningadeild-
ina en lyflækningadeildina.
Það em 89 félagar í FHH, sem
hjúkrunarfræðinga, sem starfa
hjá ríkinu, skellur á í kvöld, ef
ekki verður búið að semja áður,
og verður að losa 80-90 sjúkra-
rúm á Landsspítalnum vegna
þessa. Á myndinni eru taldar frá
vinstri Anna Lilja Reimarsdóttir,
Rósa Karlsdóttir og Guðrún Arn-
arsdóttir, sem allar fara í
verkfall, semjist ekki.
leggja niður vinnu, ef til verkfalls-
ins kemur og 22 sjúkraþjálfarar.
Verkfall sjúkraþjálfara hefur mest
áhrif á endurhæfíngu bæklunar- og
slysasjúklinga og þeirra sem þjást
af taugasjúkdómum, að sögn Guð-
rúnar Siguijónsdóttur, sem er í
forsvari fyrir sjúkraþjálfara. Tveir
sjúkraþjálfarar verða á bakvakt í
verkfalli, en listar um þá hjúkmnar-
fræðinga, sem ekki geta farið í
verkfall, liggja ekki fyrir fyrr en í
dag, en í samningsréttarlögum op-
inberra starfsmanna em ákvæði um
að halda verði uppi vissri starfsemi
í verkfalli.
Enginn í
brúnni og
bilun í
tækjum
ENGINN var í brúnni á Barðan-
um GK þegar skipið sigldi í
strand við Dritvík á Snæfells-
nesi á laugardaginn. í framburði
skipstjóra bátsins við sjópróf í
Keflavík í gær kom ennfremur
fram að radar skipsins var í
ólagi og ioran-tækið sýndi
skekkju. Þegar skipið rakst í
klettana gafst skipstjóranum
tími til að senda út neyðarkall
á örbylgju en stuttu síðar reið
sjór yfír skipið sem eyðilagði öll
tæki í brúnni.
Sjá bls. 5
Viðbúnaður
vegna Flug-
leiðaþotu
VIÐBÚNAÐUR var hafður á
Keflavíkurflugvelli í gær vegna
Fiugleiðaþotu af gerðinni DC-8
sem var að koma inn til lending-
ar. Flugstjórar töldu að eitthvað
væri úr lagi gengið í hjólabún-
aði hennar. Lendingin tókst
með ágætum.
Að sögn lögreglunnar í
Reykjavík vom Almannavamir á
fyrsta stigi viðbragðstöðu vegna
þessa. Tilkynning um slysið barst
tíu mínútum fyrir fimm, og stund-
arfjórðungi síðar lenti vélin. Hún
var að koma frá Luxemborg og
hélt áfram til Bandaríkjanna eftir
að flugvirkjar höfðu yfirfarið
hjólabúnaðinn.
Keflavíkurradíó:
Farsímamir gera loft-
skeytastöðina óþarfa
LÍKUR benda til þess að
rekstri Keflavíkurradíós verði
hætt með vorinu. Þjónusta
þess hefur verið lítið notuð
u.idanfarna mánuði. Rekja
menn það til þess að nú er
farsími kominn um borð í
flesta báta. Keflavíkurradíó
er einkafyrirtæki í eigu Út-
vegsmannafélags Suðurnesja,
en hefur fengið lítilsháttar
styrk frá sveitarfélögunum á
svæðinu.
Halldór Ibsen, framkvæmda-
stjóri útvegsmannafélagsins,
sagði að þessi mál væm nú til
umfjöllunar. Sér þætti líklegt að
rekstrinum yrði hætt í vor og
málin síðan skoðuð aftur í haust
í ljósi reynslunnar.
„Það er engin spurning að um
leið og farsímarnir komu til dróst
eftirspum eftir þessari þjónustu
stórlega sarnan," sagði Halldór.
„Loftskeytastöðin hefur verið
rekin sem þjónusta við bátana
og verstöðvarnar á Suðurnesjum.
Menn hafa notað hana til þess
að koma skilaboðum um afla,
hvenær bátamir koma að landi
eða ef eitthvað hefur komið upp
á. Nú er hægt að hringja beint
af miðunum og þá er ekki þörf
fyrir millilið."
Tveir menn hafa starfað við
loftskeytastöðina.
Eimskip sneri miklu tapi í hagnað:
Hagnaður líðíns árs
'239 milljónir króna