Morgunblaðið - 21.03.1987, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. MARZ 1987
„ÞETTA var hálfóhugnanlegt.
Norðaustan bræla og vélin bil-
uð um eina og hálfa milu frá
briminu við vamargarðinn á
Rifi. Okkur leizt engan veginn
á blikuna, en það bjargaði okk-
ur að við vorum djúpt fyrir.
Við kölluðum strax á aðstoð og
settum legufærið út og það
hjálpaði mikið. Síðan komu
tveir bátar að okkur og annar
þeirra dró okkur inn til Rifs.
Þetta fór því allt vel, þökk sé
lagni skipstjóranna á Jóa i Nesi
og Ólafi Bjarnasyni,“ sagði Jó-
hannes Jóhannesson, skipstjóri
á GuUtoppi frá Ólafsvík, í sam-
tali við Morgunblaðið.
Gulltoppur var að koma inn til
Ólafsvíkur úr róðri um miðjan dag
í gær í mjög slæmu veðri er vélin
bilaði utan við Rif. Skipstjórinn
kallaði strax á aðstoð og bátamir
„Leizt ekki á blikuna“
Gulltoppur SH 174 Morgunblaðið/Snorri Snorrason
Gulltoppur SH dreginn til hafnar með bilaða vél
Jói í Nesi og Ólafur Bjamason
komu þegar að Gulltoppi. Jói var
inni í Rifshöfn, en Ólafur að koma
úr róðri. Vegna þess hve veðrið
var slæmt var skipstjórinn á Jóa
í sambandi við Gulltoppinn til að
fylgjast með því hvemig honum
reiddi af í brælunni og var þvi
tilbúinn, þegar kallið kom. Þokka-
legt sjóveður var í gærmorgun við
Breiðafjörðinn, en bátamir voru
að veiðum sunnan við Öndverðar-
nes, þar sem betra var í sjóinn.
Um klukkan 10 byrjaði að bæta
í veðrið með ísingu.
Jóhannes sagði, að þegar Jói í
Nesi hefði komið að þeim hefðu
þeir verið um eina mílu frá landi.
Skipstjórinn á Jóa, Pétur F. Karls-
son, og áhöfn hans hefðu komið
spotta um borð og byijað að toga
í Gulltoppinn. Á sama tíma hefði
Erlingur Jónsson og hans menn á
Ólafi komið sleftóginu jrfir líka.
Tógið hjá Jóa hefði slitnað, en
hitt haldið og því öllu verið borg-
ið. „Það var fyrst og fremst fyrir
snarræði þessara manna, sem við
björguðumst. Annars hefði getað
farið illa, því við voram í tals-
verðri hættu,“ sagði Jóhannes.
Gulltoppur er eikarbátur, 21
lest að stærð og 6 era í áhöfn.
Þess má geta að báturinn Jói í
Nesi heitir eftir föður Jóhannesar
á Gulltoppi.
Búvörusaimiingar
til fjögurra ára
NÝIR búvörusamningar um
sauðfjár- og uyólkurafurðir voru
undirritaðir i gær. Þeir gilda tii
fjögurra ára og er i þeim gert
ráð fyrir sömu sauðfjárfram-
leiðslu og nú er, 11.000 tonnum
á ári, sem svarar til 7 milljarða
króna. Mjólkurframleiðsla verð-
ur aukin um 2%, úr 102 millj.
lítra á ári i 104 millj. litra.
Samningurinn tekur gildi 1. sept-
ember 1988 og gildir til 31. ágúst
1992. Jón Helgason, landbúnaðar-
ráðherra, sagði er hann kynnti
blaðamönnum samninginn í gær að
með samningnum vonuðust menn
að hægt yrði að koma á jafnvægi
í framleiðslu, eftirspum og birgða-
söfnun í lok samningstímabilsins.
Nýju búvörasamningamir vora
gerðir á grandvelli búvöralaganna
frá 1985, en síðan þá hafa verið
gerðir tveir búvörasamningar, hvor
til tveggja ára.
Sjá nánar á bls. 36
Arekstrar í Kömbum
vegna dimmviðris
ROK OG skafrenningnr ollu talsverðum umferðarvandræð-
um víða um land í gær. Verst var ástandið á Hellisheiði og
í Kömbum á Suðurlandi þar sem talsvert margir árekstrar
urðu vegna þess að snjókófið var svo blint að bílstjórar
sáu ekki út. Ekki er samt vitað til að slys hafi orðið á fólki.
Færð var farin að spillast víða
á sunnan- og vestanverðu landinu
í gærkvöldi. Lögreglan í Keflavík
sagði í gærkvöldi að við lægi að
ófært væri á götum bæjarins og
nokkrir smávægilegir árekstrar
hefðu orðið. Sömu sögu var að
segja í Hafnarfirði og á Akranesi.
Á Hvolsvelli höfðu engin óhöpp
orðið í gær og engir höfðu lent í
vandræðum að minnsta kosti þar
til hætt var að moka götur klukk-
an 20. í Vestmannaeyjum hafði
lítið hreyft vind en þar var orðinn
talsverður snjór að sögn lögreglu
sem taldi að lítið mætti útaf bera.
Indriði og Ingvar
Gíslason ráðnir
ritsljórar Tímans
Indriði G. Þorsteinsson og Ingvar Gíslason hafa verið ráðn-
ir ritstjórar við dagblaðið Tímann. Auk þeirra verður Níels
Ámi Lund áfram ritstjóri blaðsins.
Indriði G. Þorsteinsson, rithöf-
undur, var áður ritstjóri Tímans
um árabil, en Ingvar Gíslason
hefur verið alþingismaður um ára-
bii og menntamálaráðherra eitt
kjörtímabil. Þeir he§a báðir störf
á mánudag.
í samtali við Morgunblaðið
sagði Indriði G. Þorsteinsson að
frá því hefði verið gengið að hann
yrði ábyrgðarmaður blaðsins þann
tíma sem hann starfaði þar, en
hinsvegar ætlaði hann aðeins að
sitja í ritstjórastólnum fram að
næstu áramótum. Um aðra verka-
skiptingu milli ritstjóranna
þriggja sagðist Indriði ekki vita.
Indriði sagði að hann kæmi inn
á blaðið rétt fyrir kosningar og
fram að þeim tíma yrði lítið hægt
að gera annað en prenta kosn-
ingamál. Blaðið hefði einnig
takmörkuð Qárráð og því ekki
hægt áð gera miklar rósir. Menn
myndu þó reyiiá að vera frískir
og gera ýmsa hluti sem gætu
verið til bóta. Indriði sagði að við-
horfin nú væra allt önnur en þegar
hann hætti á Tímanum árið 1972.
Þá hefði aðalslagurinn um frétt-
imar verið við Morgunblaðið en
nú væru sjónvarpsstöðvar og út-
varpsbylgjur með veðurfréttir á
klukkutíma fresti. Fjölmiðlamir
væru orðnir allt of margir í ekki
stærra samfélagi. „Ég hef þó hug-
myndir um hvemig hægt er að
komast svolítið framhjá þessari
ógurlegu fréttamiðlun og held að
við á Tímanum þurfum ekki að
fara í þessa „veðurfrétta-
mennsku" sem er á öllum þessum
§ölmiðlum,“ sagði Indriði G. Þor-
steinsson.
Albert Guðmundsson iðnaðarráðherra:
„Þorsteinn hefur ekkert
vald til að setja mig af“
- Kemur heim í dag og segist ekki vita til þess
að fundur hans og Þorsteins hafi verið ákveðinn
ALBERT Guðmundsson íðnað-
arráðherra segir sína afstöðu
varðandi afsögn með öllu
óbreytta. „Ég hef að sjálfsögðu
ekki einu sinni leitt hugann að
möguleikanum á afsögn," sagði
Albert þegar Morgunblaðið
hafði samband við hann
símieiðis til Kaupmannahafnar
undir kvöld í gær. Albert er
væntanlegur til landsins
síðdegis í dag og segist hann
ekki vita til þess að fundur
hans og Þorsteins hafi verið
ákveðinn við heimkomuna,
enda hafi þeir ekki talað saman
frá þvi hann fór til Kaup-
mannahafnar á miðvikudags-
kvöld.
Albert var spurður hvað hann
myndi gera, ef hann yrði knúinn
til þess að segja af sér ráðherra-
dómi: „Hver ætti að knýja mig
til þess?“ spurði Albert og bætti
við: „Ég hef enga trú á að Þor-
steinn reyni að knýja mig til
afsagnar, enda hefur hann ekkert
vald til þess að setja mig af.“
Albert var spurður hvort hann
færi í sérframboð ef hann yrði
knúinn til afsagnar og út af fram-
boðslista Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík: „Ég hef bara ekki
nokkra trú á að slíkt sé inni í
myndinni. Þetta kemur mér mjög
á óvart og ég fæ ekki séð að nokk-
ur ástæða sé til þess að spyrja
svona. Ég hef ekki haft nokkra
ástæðu til þess að. hugleiða neitt
slíkt og það hefur sjálfsagt ekki
farið framhjá nokkram manni að
ég er í framboði fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn og í fyrsta sæti á listan-
um í Reykjavík, bæði vegna þess
að ég er sjálfstæðismaður og fólk-
ið hefur kosið mig. Ég veit ekki
til þess að ég hafi brotið flokks-
lega af mér, eða brotið af mér
yfirleitt," sagði Albert. „Á ég að
trúa því að Helgarpósturinn
stjómi Þorsteini?" spurði iðnaðar-
ráðherra og bætti við: „Mín
afstaða er með öllu óbreytt. Ég
hef bara verið að vinna mína vinnu
sem ráðherra hér úti og ekkert
hefur komið upp á, sem breytir
því.“
Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins:
„Hef auðvítað ráðfært
mig við ýmsa aðila“
ÞORSTEINN Pálsson, formað-
ur Sjálfstæðisflokksins, sagði f
samtali við Morgunblaðið f gær
að hann hefði engu við það að
bæta, sem kom fram á fundi
hans með fréttamönnum f
fyrradag um málefni Alberts
Guðmundssonar. Morgunblaðið
sneri sér til Þorsteins og spurði
hann álits á þeim ummælum
Alberts Guðmundssonar á
Bylgjunni f gær, að Þorsteinn
væri hvorki andlegur leiðtogi
hans né faðir, og hann þyrfti
ekki að snúa sér til hans með
sín persónulegu mál.
„Ég hef engu við það að bæta,
sem kom fram á fundinum með
fréttamönnum. Ég mun bíða með
frekari yfirlýsingar þar til ég hef
rætt við Albert Guðmundsson,"
sagði Þorsteinn.
Þorsteinn var spurður hvort
hann hefði átt fundi ráðamönnum
í Sjálfstæðisflokknum vegna
þessa máls: „Ég hef auðvitað
rætt við ýmsa aðila um þetta mál
og ráðfært mig við þá,“ sagði
Þorsteinn, og bætti við: „Það
væri auðvitað óeðlilegt að ég ráð-
færði mig ekki við flölda manna
í máli eins og þessu."