Morgunblaðið - 21.03.1987, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. MARZ 1987
45
Skátar stofna
skógræktarfélag
eftirHrefnu Tynes
„Hefur þú komið austur að Úlfljótsvatni
er sólin roðar tind,
áin niðar, lækur hjalar blítt
við fagra skógarlind..
Úlfljótsvatn hefur löngum heillað
margt ungmennið, og skátar elska
þann stað. En ef manni þykir vænt
um eitthvað þá er beint framhald af
þeirri væntumþykju — að hlúa að
því. Eg átti einu sinni mörg spor og
handtök á Úlfljótsvatni, aðrir tóku
við, og af ýmsum ástæðum tognaði
á tauginni. Það þarf ekki meira en
að láta hugann reika andartak, þá
rifjast upp allar sólskinsstundirnar í
sambandi við Skátaskólann á Úlf-
ljótsvatni, og þá er farið að hugsa:
Get ég nokkuð gert? Nú er stórt og
mikið verkefni framundan, þar verða
margir að taka höndum saman. Um
leið vinnum við bæði Úlfljótsvatni
og landinu okkar íslandi þarft verk
og mikilvægt.
Þriðjudaginn 24. mars verður
stofnað Skógræktarfélag Úlfljóts-
vatns, og verður stofnfundurinn
haldinn í ráðstefnusal Hótels Loft-
leiða og hefst kl. 20.30. Ég efast
ekki um, að margir verða fúsir til
að taka þátt í því heillandi starfi,
að klæða skógi okkar ástkæra Úlf-
ljótsvatn. En eins og alltaf, þá er
ejcki nóg að láta hugann reika, og
sjá í anda gróðurinn dafna, ylja sér
við minningamar og segja við sjálfan
sig: ,já, það voru margar góðar
stundir þar“ — og láta svo þar við
sitja. Við hvetjum því alla skáta og
velunnara skátahreyfingarinnar til
að sameinst um þetta starf og mæta
á stofnfundinn á þriðjudaginn.
Ég treysti fullkomlega þessu unga
fólki á öllum aldri, sem nú hefst
handa, myndar hóp með ákveðnu
takmarki og stendur fyrir og mun
vinna að þessum óskadraumi að
græða upp landið. Margir halda að
skátastarf sé aðeins fyrir ung börn,
sem ætíð séu í foringjahraki, allt
verði því laust í reipunum, og ekkert
miði áfram. Þetta er mesti misskiln-
ingur. Að vísu höfum við ekki
launaða foringja, en muna skyldu
menn að allt gott sáðkom, sem fellur
í ungan sálarakur vex upp á sínum
tíma, það er aldrei sáð til einskis,
sá sem okkur er meiri sér um það.
Satt er það, að það er ekki mikið
auglýsingakerfi í kringum skáta-
starfið, boðunarkerfíð er ennþá
notað, hitt er einfaldlega of kostnað-
arsamt. Margir hópar gamalla skáta
eru að störfum og láta gott af sér
leiða, hver á sínu sviði. Má þar nefna
hjálparsveitirnar, félög eldri skáta,
St. Georgs gildin, og óteljandi hópa,
sem hafa haldið saman frá barns-
aldri. Skátar verða að læra að bjarga
sér við ýmsar aðstæður, vegvísirinn
er skátaheitið og skátalögin, ef því
er hafnað, er maður ekki skáti.
Og nú er hópur skáta að hleypa
af stokkunum miklu þjóðþrifastarfí
í samvinnu við íslenskan jarðveg,
íslenska mold, íslenskar aðstæður —
harðar eða mjúkar, það skiptir ekki
máli. Óskadraumurinn gamli er á
leið með að rætast, það er búið að
sjá fyrir því, að blessaðar vinkonum-
ar ferfættu komist ekki í nýgræðing-
inn.
Ég minnist þess sl. sumar, þegar
stór hópur skáta hittist á Ulfljóts-
vatni og gróðursetti „Helgalund",
hve allir voru ánægðir og hamingju-
samir. Minnumst þess, að hvort sem
við gróðursetjum í íslenskar bams-
sálir eða íslenska mold kemur
árangurinn í ljós, þó síðar verði.
Höfundur er fyrrverandi kven-
skátaforingi Islands.
Frá gróðursetningu Helgalundar á Úlfljótsvatni 1986.
Fríkirkjan í Reykjavík:
Söngfélag Þorláks
hafnar í heimsókn
BARNAGUÐSÞJÓNUSTA verður
sunnudaginn 22. mars í Fríkirkj-
unni í Reykjavík og hefst kl. 11.00.
Guðspjallið verður útlistað í mynd-
um, barnasálmar sungnir og
framhaldssagan Dísa frænka, eftir
Stefán Jónsson verður lesin. Af-
mælisbörn eru sérstaklega boðin
velkomin
Sama dag kl. 14.00 verður almenn
guðsþjónusta ! kirkjunni. Sr. Tómas
Guðmundsson sóknarprestur í Hvera-
gerði, prédikar, en safnaðarprestur
þjónar fyrir altari. Forspil og eftir-
spil em eftir Björgvin Guðmundsson.
í guðsþjónustunni verður flutt stól-
versið „Sælir eru þeir sem heyra
Guðsorð" eftir Björgvin Guðmunds-
son. Söngfélag Þorlákshafnar annast
sálmasönginn undir stjórn Ara Agn-
arssonar organista í Þorlákshöfn.
Fimmtudaginn 26. mars verður
föstumessa í Fríkirkjunni kl. 20.30.
Sungið verður úr Passíusálmum sr.
Hallgríms Péturssonar og Litanía sr.
Bjama Þorsteinssonar í Siglufirði
flutt af presti og kirkjukór undir
stjóm organistans Pavel Smíd. Sig-
Sr. Tómas Guðmundsson
rún Hjálmtýsdóttir sópransöngkona
syngur stólvers.
Bænastundir era í Fríkirkjunni
þriðjudaga, miðvikudaga, fimmtu-
daga og föstudaga kl. 18.00 og
standa í stundarfjórðung.
(Frá Fríkirkjunni)
ItjCUU/ CK
Æú RAUFARHÖFN
O^SIGLUFJ ÖRÐUR
fe'K'* ÓLAFSFJÖRÐUR
ÍZ. DALVÍK ÞÓRSHÖFN* $
■' , HÚSAVtK*í ^y^ i Z
SKAGASTRÖi
• HÓLMAVÍK
HVAMMSTANGI • !• ÞLÖNDUÓS
»'*... •: 'íu/f.r* &AUÐÁRKRÓKUS^|j| U
BOLUNGARVÍKe
ÍSAFJÖRÐUR
AKUREYRI
VOPNAFJÖRÐUR©
g«BfLDUDALÚR
R» L**feájgf «<v v
• patreksfjörður
•BÚÐARDALUR
• SEYÐISFJÖRÐUR
NESKAUPSTAÐUR
• ESKIFJÖRÐUR
EGILSSTAÐIR®
rHiiNOAfiF IÖRDT |R • STYKKISHÓLMUR
^A^^ÓLAFSVÍK* • BORGARNES
HELLISSANDUBéV-.-" " iVÍBff
'■ ":. f y AKRANES^
SELTJARNARNESX
ú.%' '"if KÓPAVOGUR^
• ■■:-^GARÐUWfi X
KEFLAVfMPT
NJARÐVÍK* * v°v
SANDGERÐI®
NN ; . sV' VV
: ' í, grindavík- W)R
Getspa
REYÐARFJÖRÐURf:
FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR* ^ -
DJÚPIVOGUR ®
®|(IRKJUBÆJARKLAUSTÚR
^NÍÖSFELLS^VÉÍlfe^' •
rREYKJAVfK
• GARÐABÆR
rHAFNARFJÖRHUR
® HVERAGERÐI
< , i V: • HELLA
i - • tlKLLA ; \ íj, '-v.
ITSELFOSS •HVOLSVÖLLUR
LOTTO
UM LAND ALLT
VESTMANNAEYJAR
• SÖLUSTAÐIR:
i KYRSTI VINNINGUR
W (EINN EÐA FLEIRI).