Morgunblaðið - 21.03.1987, Side 31

Morgunblaðið - 21.03.1987, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. MARZ 1987 31 Rannsóknir í Finnlandi og Bandaríkjunum: Ekkert samband milli kaffi- drykkju o g hjartasjúkdóma New York. AP. RANNSÓKNIR í Finnlandi og Bandaríkjunum sýna, að kaffi- drykkja stuðlar ekki að hjarta- sjúkdómum, hjartaáföllum eða hjartaslögum, að þvi er visinda- menn sögðu á ráðstefnu Bandarísku hjartaverndarsam- takanna á fimmtudag. Niðurstöður þessar ríða alger- lega í bág við rannsókn, sem vísindamenn frá Johns Hopkins- háskólanum í Baltimore kynntu í nóvember 1985. Samkvæmt nið- urstöðum þeirra Hopkms-manna var kaffídrykkjumönnum, sem drukku fímm eða fleiri kaffíbolla á dag, þrisvar sinnum hættara við að verða hjartasjúkdómum að bráð. Ástæða misræmisins virðist vera sú, að margir kaffísvelgjanna í Hopkins-rannsókninni voru einn- ig reykingamenn — og það voru reykingamar, sem juku á hjarta- sjúkdómahættuna, sagði dr. Peter W. F. Wilson, oddviti bandarísku vísindamannanna. Einnig er hugsanlegt, að miklir kaffí- drykkjumenn neyti fíturíkara fæðis en fólk gerir að meðaltali, sagði hann. „Það kann sem sé að vera, að það sé ekki kaffíbollinn í annarri hendinni, heldur sígarettan í hinni, ellegar þá sætabrauðið, sem er sökudólgurinn," sagði Wilson. Peter W. F. Wilson, forstöðu- maður rannsóknastofu Framing- ham-hjartaspítalans í Framing- ham í Massachusetts, sagði á ráðstefnunni f Charleston í Suð- ur-Karólínu á fimmtudag, að hann hefði rannsakað kaffineyslu 3937 einstaklinga á árunum 1956-66, auk 2277 einstaklinga á árunum 1972-82. Flestir þátttakendanna dmkku tvo eða þrjá kaffíbolla á dag, sagði Wilson, en aðeins 10% þeirra sex bolla eða fleiri, öfugt við það sem gerðist í Hopkins-rannsókninni. Fylgst var með kólesterólstigi blóðsins, svo og hjarta- og æða- sjúkdómum hjá báðum hópunum. „Við vomm á höttunum eftir upplýsingum um hjartasjúkdóma, hjartaáföll, bráðkveddu og hjarta- slög, og það var sama, hvar borið var niður, við fundum engin tengsl á milli þessara fyrirbæra og kaffi- drykkju," sagði Wilson í fréttatil- kynningu, sem Bandarísku hjarta- vemdarsamtökin gáfu út. Vísindamennimir komust að raun um, að kaffineysla leiddi til umtalsverðrar lækkunar meðal- kólesterólstigsins hjá körlum, en til óvemlegrar meðalhækkunar hjá konum. „Við staðreyndum, að því meira sem karlamir dmkku af kaffí, því lægra reyndist meðalkólesteról- stigið,“ sagði Wilson. „Þessu reyndist þveröfugt farið hjá kon- unum; því meira sem þær dmkku af kaffí, því hærra reyndist meðal- kólesterólstigið." Jukka Salonen og starfsbræður hans í Finnlandi rannsökuðu 8385 karla og 9003 konur, allt mikla kaffisvelgi sem dmkku fímm og hálfan bolla á dag að meðaltali. Samkvæmt því, sem fram kom hjá Finnunum á fimmtudag, fundu þeir engin merki þess, að þessum einstaklingum hætti- fremur til að fá hjartasjúkdóma en almennt gerist. Hins vegar komust þeir að raun um, að kaffí- svelgir neyta fíturíkara fæðis en fólk almennt. Hríðar- bylur í Bretlandi London. Reuter. HRÍÐARBYLUR skall á Suðvestur-England og Wales í gærmorgun og olli miklum umferðartruflun- um. Um 30 sm jafnfallinn snjór var á sumum vegum, þar á meðal nokkrum hraðbrautum, fyrir dagrenningu, en engar fregnir höfðu borist af um- ferðaróhöppum. Einna verst var ástandið í Bristol og Salisbury. Bylurinn tók yfir svæðið frá Wight-eyju til vesturhluta Wales. Einnig snjóaði á nokkrum stöðum í Norður-írlandi. Hiti var í kringum frostmark. V estur-Þýskaland: Fleiri kálfar fæðast and- vana Hamborg. Reuter. ÞRISVAR sinnum fleiri kálfar hafa fæðst andvana undanfarna mánuði á þeim svæðum í Vestur-Þýska- landi, sem verst urðu úti af völdum geislavirks úr- fellis frá kjarnorkuverinu í Chernobyl, en var á jafn- löngum tima áður en slysið átti sér stað. í tímaritinu Stern, sem gef- ið er út í Hamborg, er vitnað í nýlega skýrslu umhverfis- vemdarsamtaka, þar sem fram kemur, að fyrmefnd aukning hefur einkum orðið í Miesbach-héraði í Bæjara- landi. Af 1286 kálfum, sem fædd- ust þar frá nóvember 1986 til janúar á þessu ári á 122 sveitabæjum, vom 118 and- vana eða drápust innan tveggja daga frá burði. VJterkurog kJ hagkvæmur auglýsingamiðill! SUWUR. HKDL ROCUR. UHUI6L ÞJÓÐARÍÞRÓTT ÍSLENDINGA? Er Gróa á Leiti ástmögur íslensku þjóðarinnar? Fáum við ánægju af því að níða skóinn hvert af öðru? Spyrjum Trausta Jónsson veðurfræðing sem ku vera margsinnis látinn úr allskonar kvillum, alltfráfótameini til krabbameins. Spyrjum Pálma Gunnarsson sem á að hafa framið hroðalegt sjálfsmorð nýlega. Spyrjum Rut Reginalds sem samkvæmt kjaftasögunni er eyðnisjúklingur. Eða Magnús Leópoldsson og félaga sem almannarógur dæmdi sem kaldrifjaða morðingja. Hvaða áhrif hefur slúðrið á þau? Bíða þau óbætanlegttjón? Hvernig verða svona sögur til? Sjáið umfjöllun um gróusögur, rógburð og níð í þættinum ELDLÍNAN, mánudaginn 23. mars n.k. kl. 20:20. Talar út um hlutina. „ELDLÍNAN" N.K. MÁNUDAG KL 20:20

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.