Morgunblaðið - 21.03.1987, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 21.03.1987, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. MARZ 1987 29 Reuter EDDIE MURPHY FYRIRRÉTT Gamanleikaranum Eddie Murphy (t.v.) hefur verið stefnt fyrir rétt og' hann krafinn um 30 milljónir dollara (um 1,2 milljarðar ísl.kr.) í skaðabætur af umboðsmanni, sem segir að Murphy hafi brotíð samning. Í gær bar starfsbróðir Murphys, Joe Pescopo vitni í málinu og sjást þeir hér koma út úr réttar- sal. Fyrir miðri mynd er óþekktí lögfræðingurinn. King Broder kveðst hafa gert samn- ing við Eddie Murphy árið 1980 um að gerast umboðsmaður hans. Murphy var þá nítján ára. Broder hélt því fram í réttí í síðustu viku að hann ætti rétt á 25 prósentum af þeim 120 miUjónum dollara (um 48 millj- arðar ísl.kr.), sem Murphy vann sér inn frá 1980 til 1986. Murp- hy brást við af sinni alkunnu gamansemi og skellihló. Lög- fræðingur hans segir að Broder hafi ekkert gert fyrir skjól- stæðing sinn og samningurinn hafi hvort eð er verið ógildur þvi að Broder hafi ekki haft leyfi til að starfa sem umboðs- maður. Hláturtaugar Murphys tóku fyrst við sér þegar Broder fullyrti að hann hefði samið fyrstu texta gamanleikarans og tók leikarinn þá andköf af hlátri. Þegar út fyrir réttarsal- inn var komið sagði Murphy að Broder væri „einn af þessum kvikmyndagæjum, sem er með stóran vindil og segir: Ég ætla að gera þig að stjörnu, laxi“. Nú er að sjá hvort Murphy verður jafn brosmildur þegar kviðdómurinn kveður upp úr- skurð sinn. Frönsk og þýsk hryðjuverkasamtök; Staðfesting á nánu samstarfi milli ríkja - segir lögreglan í Wiesbaden Wiesbaden, Reuter. VOPN, númeraplötur af bið- reiðum og skjöl, sem fundust eftir að fjórir hryðjuverkamenn úr frönsku samtökunum Action Directe voru handteknir, sanna að náin tengsl eru við vestur- þýska hryðjuverkamenn, að þvi er vestur-þýska rannsóknarlög- reglan (BKA) sagði í dag. Sagði að sannanir væru fyrir því að mennimir fjórir hefðu hefðu dvalið í Vestur-Þýskalandi og gætu hafa tekið þátt í árásum hryðjuverkasamtakanna Rauða herdeildin. Þá hefði þremur skammbyssum, sem franska lög- reglan fann, verið stolið úr skot- færaverslun í Vestur-Þýskalandi í nóvember 1984. Einnig hefðu vestur-þýsk skilríki verið fyllt út eins og Rauða herdeildin hefði verið að verki. Þar á meðal voru skilríki úr bíl, sem talið er að hafi verið notaður í sprengjutilræði á bandaríska her- flugvellinum í Frankfurt í ágúst 1985. Tveir menn létu lífiðj í til- ræðinu. Rannsóknarlögreglan sagði að þegar væri vitað að Georges Cipr- iani, forystumaður Action Directe, hefði búið og starfað í Vestur- Þýskalandi frá 1972 til 1983 og almenningur var beðinn um að veita upplýsingar um athafnir hans og samstarfsmannanna þriggja, sem handteknir voru í Frakklandi, Nathalie Menigon, Jean Marc Rouillan og. Joelle Aubron. Talin voru upp dulnefni, sem þau gætu hafa notað. Einnig var fólk beðið um að greina lög- reglu frá bifreiðum, sem virtust hafa verið yfirgefnar, vegna þess HASSNEYSLA færist stöð- ugt i vöxt í Grænlandi. Sam- kvæmt upplýsingum græn- lensku lögreglunnar, voru tvöfalt fleiri hasssalar hand- teknir á árinu 1986 en árið þar á undan, og frá áramótum hefur lögreglan leyst upp nokkra söluhringi, sem gerðu tilraun til að smygla hassi inn i landið. Á fyrstu þremur mánuðum þessa árs hefur lögreglan lagt hald á 13,5 kíló af hassi og kom mest af því í leitimar við húsrann- sókn, sem gerð var í íbúðum í fjölbýlishúsi í Nuuk (Godtháb). að hryðjuverkamenn gætu hafa notað þær. Heinrich Boge, yfírmaður BKA, sagði í viðtali við dagblaðið Neue Osnabriicker Zeitung, að hand- takan í Frakklandi og niðurstöður rannsókna styrktu grunsemdir um að til væri „vestur-evrópskur skæruliðaflokkur", sem teygði anga sína út fyrir landamæri ein- stakra ríkja. Markaðsverð á hassi er mjög hátt í Grænlandi og í einstökum tilfell- um fjórum sinnum hærra en í Danmörku. Lögreglan telur, að fyrir 13,5 kflóin hefðu söluaðilam- ir fengið fjórar milljónir danskra Króna (um 22 millj. ísl. kr.). r INNLENT Hassneysla fer í vöxt í Grænlandi Kaupmannahöfn. Frá Nils Jörffen Bruun, fréttaritara Margunblaðsins. BORÐIÐ FRANSKT, LEIKIÐ GOLF EINS OG BRETARNIR OG SYNDIÐ AÐ HÆTTI MIÐJARÐARHAFSBÚA Þó svo Jersey-eyja sé bresk er frönsk matar- gerðarlist í heiðri höfð, enda hafa frönsk áhrif verið þar ríkjandi um margra ára skeið. Marineraður kræklingur og frönsk vín eiga ^0^ eins mikið heima hér og enskir gras- og golf- vellir. Verði er mjög svo stillt í hóf og er ástæðan lágir tollar og enginn söluskattur. Golfstraumurinn gerir það að verkum að andrúmsloftið minnir á Miðjarðarhafið. 2000 sólskinsstundir í meðalári gera það að verkum að hægt er að stunda brimbrettasigl- ingar, sólböð, hjóla- og reiðtúra í rólegu um- hverfi, gjörólíkt yfirfullum ferðamannastöð- um. Það tekur ekki langan tíma að komast til þessarar sumarleyfisparadísar. Hægt er að velja um beint flug frá London og öðrum borgum, og bílferju frá Bretlandi og St. Malo. Biðjið um upplýsingar um sumarleyfisparadís- ina Jersey hjá Ferða- skrifstofu Kjartans Helgasonar eða sendið úrklippuna til: States of Jersey Tourism, Dept. CXl, St. Helier, Jersey, Channel Is- lands, G.B. Jersey sumarleyfisparadís í Ermasundi Vinsamlegast sendið mér ítarlegri upplýsingar um HOLIDA YSINJERSEY. Nafn: Heimilisfang:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.