Morgunblaðið - 21.03.1987, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 21.03.1987, Blaðsíða 13
13 + urinn stefnir að því að ryðja manninum úr vegi. Hann forðast ekki einu sinni ofbeldi. Hver er þá Sebastian? Hann er nokkuð hulin og yfímáttúruleg sögupersóna, sem gegnir hlutverki sem einhvers konar alter ego stráksins. Strákurinn sækist eftir honum og Sebastian leysir loksins vandamál stráksins á jákvæðan hátt að því er virðist. En lesandinn getur ekki verið viss um það, hvort lausnin er raunveruleg eða hvort hún er bara ímynd sem draumórar stráksins hafa kallað fram. Höfundur er finnskur sendikenn- ari við Háskóla íslands. onen. Ég hef alls ekkert stækkað síðustu þijú árin. — Víst stækkarðu. Ekki láta þetta slá þig út af laginu Antti. Þú ert eitthvað svo niðurdreginn þessa dagana. Ef þú stækkar ekki nú, stækkar þú næsta ár. Er það þetta sem veldur þér áhyggjum? Ég kinkaði kolli. Kennarinn brosti, honum létti og lagaði hár- hnútinn sinn. — Veistu, að þegar ég var jafn- gömul þér þorði ég ekki í skólann út af því að ég var smámælt. 0g nú er ég orðin kennari! Ég er alveg hætt að hugsa um þetta enda tekur enginn eftir þessu. Eg ræskti mig. Þessu var ég ósammála. — Þessar áhyggjur þínar munu sýnast smávægilegar þegar hinar raunverulegu koma, en þeim hefur þú sem betur fer ekki ennþá kynnst. Farðu þá snöggvast út og hlauptu nokkra hringí í kringum skólann, þá gleymir þú áhyggjum þínum og verður rjóður í kinnum. Flýttu þér, bjallan hringir eftir fimm mínútur. (Þýtt af Ásthildi Magnúsdóttur, Eddu Pétursdóttur og Jakob Steensig.) Stykkishólmur: Mænt eftir batnandi vegnm Stykkishólmi. BÍLSTJÓRARNIR hér eru að tala um erfiða vegi. Fyrir ofan Hólminn er braut sem nýlega er búið að opna, milli efri sneiðar og Grundarfjarðar, svo liggur brautin okkar upp í fjall frá Gríshóli og út móana og kemur í samband við fjallið og Grundar- fjörð. Þessa braut þarf enn að malbera vel því þegar búið er að aka hana um skeið virðist slit- lagið vera orðið erfitt og eins og einn bílstjórinn sagði: „Við ökum bara á hraungijótinu.“ Vonandi kemst þetta í lag því þessi braut verður framtíðarbraut þegar vegagerðin tekur til starfa í vor, en það mætti nú bera betur ofaní og þó okkur hér lengi eftir betri vegum mjakast þetta og hverj- um áfanga er fagnað. Vertíðin er í gangi og flestir ef ekki allir bátar á netum. Fiskurinn er saltaður enda var hér erlent skip að losa salt í vikunni. - Árni MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. MARZ 1987 Nýtt útiit: Endurhönnuö yfirbygging, nýtískuleg og stíl- hrein meö mjúkar útlínur, sem lækka vind- stuðul bílsins aö mun. Rúmbetrí — þægiiegrí: Endurbætt sæti, aukiö farangursrými, minni gólfhæö, stærri dyr, meira svigrúm fyrir farþega, meira útsýni. Betrí búnaöur: Tæknilegar endurbætur á vélbúnaöi og aflrás, íburöarmikil innrétting og klæöningar, ríkulegur, staðlaöur búnaöur. Verð frá kr. 558.000. Sterkari — öruggarí: Framhluti bílsins er sérstaklega hannaöur og styrktur með tilliti til öryggis farþega og ökumanns. Rammgerö yfirbygging og Y-laga buröargrind mynda eina sterka heild, sem þolir vel þaö álag sem mikill hlassþungi og slæmir vegir skaþa. HEKLAHF Laugavegi 170-172 Simi 695500 VILTU LAGA LlNURNAR? +
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.