Morgunblaðið - 21.03.1987, Page 46
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. MARZ 1987
+
Bróðir okkar og mágur,
JÓN ODDSSON,
Brautarholti 22,
lést í Borgarspítalanum 14. mars.
Jaröarförin hefur farið fram í kyrrþey.
Þökkum auðsýnda samúð.
Magnús S. Oddsson,
Ásta S. Oddsdóttir, Hans Blomsterberg,
Sigrfður O. Oddsdóttir, Gunnar Ásmundsson.
Móðir okkar,
ANNA ÓLAFSDÓTTIR
frá Gunnhildargerði
Hátúni 10,
lést í Borgarspítalanum 20. mars.
Börn hinnar látnu.
+
Eiginkona mín og móöir,
HILDUR ÞURÍÐUR BÓASDÓTTIR,
andaðist að morgni 20. mars.
Hlööver Kristinsson,
Hermann Hlööversson.
+
Unnusti minn og faðir okkar,
ÓSKAR KRISTINN ÓSKARSSON,
frá Firði,
Efstahrauni 20, Grindavfk,
veröur jarðsunginn frá Grindavíkurkirkju laugardaginn 21. mars
kl. 14.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaöir, en þeim sem vildu
minnast hans er bent á líknarfélög.
Sjöfn Ágúctsdóttir og synir.
+
Innilegar þakkir sendum viö ölium þeim sem sýndu okkur samúð
og vináttu við andlát og útför
STEFNIS RUNÓLFSSONAR,
Þangbakka10.
Regfna Stefnisdóttur,
Þóra Stefnisdóttir,
Hrönn Stefnisdóttir,
Anna Nfna Stefnisdóttir,
Fanný Stefnisdóttir,
Hugrún Stefnisdóttir,
Auður Berglind Stefnisdóttir,
Runólfur Stefnisson,
Valur Jóhann Stefnisson,
Elfas V. Ágústsson,
Howard Thornton,
Böðvar Björgvinsson,
Hilmar Eggertsson,
Sigurður Elfnbergsson,
Þórður V. Njálsson,
Marta Grettisdóttir
og barnabörn.
+
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkar samúð
við andlát og útför
ÞÓRÐAR PÉTURSSONAR,
Blikabraut S,
Keflavfk.
Inga Kristjánsdóttir,
Birgitta Þórðarson,
Pótur Þórðarson,
Elfn Þórðardóttir,
Kristján Þórðarson, Guðbjörg Samúelsdóttir,
Sigurjón Þórðarson, Guðfinna Arngrfmsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Einar Kr. ísfeld
— Kveðjuorð
Fæddur 25. júlí 1946
Dáinn 12. mars 1987
Konan mín, + INGIBJÖRG JÓNSDÓTTIR,
Hlíðarhvammi 7,
Kópavogl,
lést í Landakotsspítala 8. þ.m. Bálför hefur farið fram að ósk
hinnar látnu. Jón Vilhjólmsson.
„Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.“
(V. Briem)
Með þessu versi vil ég kveðja
góðan dreng, vin og fyrrverandi
mág. Manni verður orða vant er svo
ungur maður er hrifínn burt í blóma
lífsins frá unnustu og bömum.
Hvers vegna Einar? Við vissum að
hann hafði lengi átt við alvarlegan
sjúkdóm að stríða. En lífskraftur
og lífsvilji einkenndi svo hans per-
sónuleika að maður hafði það á
tilfínningunni að hann gæti sigrað
allt. Einar vinur okkar var glað-
sinna maður og hjálpsamur. Ekki
bar skugga á vináttu okkar þótt
hann og systir mín, Hrafnhildur,
slitu samvistir. I 7 ára hjónabandi
eignuðust þau tvö böm: Kristján
Hauk, 5 ára, og Ólöfu Sigríði, 10
ára. Einar reyndist bömum sínum
ætíð ástríkur faðir sem og foreldr-
um mínum sem besti sonur.
Við sem eftir stöndum eigum
okkur minningu um mann sem var
sem betur fer ekki gallalaus né
skoðanalaus, enda aldrei leiðinleg-
ur. Minningin um hann mun gleðja
hugann þótt hann sé horfínn sjónum
vomm. Við kveðjum hann með
þakklæti.
Megi Guð styrkja unnustu hans,
böm og foreldra. Vottum við þeim
okkar dýpstu samúð.
Lilla og Ómar.
Kveðja frá knatt-
spyrnudeild KR
Þann 12. mars sl. lést í Landspít-
alanum í Reykjavík langt fyrir aldur
fram Einar Ísfeld Kristjánsson, að-
eins liðlega fertugur að aldri. Það
mun hafa verið fyrir rúmu ári að í
ljós kom að Einar gekk ekki heill
til skógar og á rúmu ári lagði
krabbameinið, sá skæði vágestur,
hann að velli.
Einar sleit bamsskónum í Vest-
urbænum og gekk ungur í KR og
lék knattspymu með öllum yngri
flokkum KR og einnig í meistara-
flokki. Á þeim ámm átti knatt-
spyman hug hans allan og hann
reyndist hinn ágætasti félagi og
traustur liðsmaður í hveijum leik.
Hann var afreksmaður í íþrótt sinni
og vann marga titla á ferlinum en
hæst bar þó þegar hann ásamt fé-
lögum sínum í KR hrósaði sigri í
íslandsmóti fyrstu deildar, þá að-
eins 19 ára gamall, árið 1965 og
ári seinna eða 1966 var hann í
meistaraflokksliði félagsins sem
sigraði í bikarkeppni KSÍ það ár.
Næstu ár var Einar síðan leikmaður
í meistara- og fyrstaflokki KR þar
til að hann hætti knattspymuiðkun
u.þ.b. 25 ára gamall, sem var alltof
fljótt að flestra mati. Ekki hætti
Einar þá alveg að iðka íþróttir held-
ur tók hann þá til við „trirnm" og
var með dugmeiri skokkumm hér
á höfuðborgarsvæðinu meðan heils-
an leyfði slíkt. Einar var ekki aðeins
góður knattspymumaður, eins og
áður hefur verið minnst á, heldur
var hann einnig góður félagi, glett-
inn og skemmtilegur og hrókur alls
fagnaðar á góðri stund. Og þannig
munum við gömlu félagamir úr KR
geyma í huga okkar minninguna
um Einar og þökkum jafnframt
fyrir þær mörgu ánægjulegu sam-
vemstundir er við áttum saman.
Það er því með söknuði og harmi
sem Einar er kvaddur en sárastur
hlýtur harmur hans nánustu að
vera og em þeim hér með sendar
innilegar samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning Einars ísfeld
Kristjánssonar.
GP
Það er okkur eftirlifandi óskiljan-
legt að hinn ljúfí drengur, Einar
ísfeld, sé ekki lengur meðal vor.
Trúi ég því að þeim er kallaðir
em svo skyndilega sé ætlað annað
og stærra hlutverk, en við búum
yfir hér á jörð. Einari kynntist ég
1975 er hann tengdist fjölskyldu
minni. Þá eignaðist ég góðan vin
og traustan. Einar var hrókur alls
fagnaðar, skemmtilegur og ræðinn,
enda greindur mjög og virtur. Það
var gott ið leita til Einars. Mér
þykir verst að geta ekki endurgold-
ið honum þá aðstoð sem hann veitti
mér í mínum erfíðleikum. Mér em
þau orð minnisstæð sem hann sagði
við mig fyrir nokkmm vikum um
ferðina erlendis sem við ætluðum
að fara, að við yrðum sennilega að
bíða eitthvað með það og leit svo á
mig og fór að tala um daginn og
veginn eins og honum var tamt.
Þá sá ég að hann vissi að hverju
stefndi þótt hann léti ekki á því
bera, enda var styrkur hans mikill
í þeirri hörðu baráttu sem hann
átti í. Einnig veit ég að hann fékk
góðan styrk frá unnustu sinni,
Irisi. Já, Einar var einstakur maður
og margs er að minnast. Nú þegar
leiðir skilja, í bili að minnsta kosti,
er mér efst í huga þakklæti. Með
þessum fátæklegu orðum kveð ég
góðan vin. Bömum, írisi, foreldmm,
Hrafnhildi, systkinum og öðmm
vandamönnum votta ég mína
dýpstu samúð. Bið ég algóðan Guð
að blessa ykkur og styrkja.
Guðjón Ómar Hauksson
Rey ðarfj örður:
Allt upp í þriggja daga vatnsleysi
Reyðafirdi.
TOGARINN Snæfugl SU 20 kom
nýlega inn með 84 tonn af þorski
eftir 7 daga veiðiferð. Það er
alltaf mikill áhugi hjá Reyðfirð-
ingum að togarinn veiði vel og
komi heim með gott hráefni. Ef
mikill afli berst á land missir það
fólk sem býr upp á Heiðarvegi
og Hæðargarði allt neysluvatn
meðan verið er að vinna að aflan-
um, vegna mikils vatnsrennslis
hjá fiskvinnsluhúsunum.
íbúar á Heiðarvegi og Hæðar-
garði hafa búið við þetta ástand í
mörg ár. Það má teljast furðulegt
að ekki skuli vera búið að virkja
nýja holu eða kaupa sterkari vatns-
dælu, nóg er af vatninu. Mikið er
byggt í Hæðargerði, mest er það
ungt fólk með lítil böm. Kemur því
tveggja til þriggja daga vatnsleysi
sér mjög illa.
Ungmennafélagið Valur hélt ný-
lega upp á 50 ára afmæli sitt með
skemmtun í Félagslundi. Góð þátt-
taka var og margt til skemmtunar.
Meðal annars fóru þeir á kostum
með gamansöng bræðumir Helgi
Seljan og Þorlákur Friðriksson.
Leikfélag Reyðarfjarðar fór með
glefsur úr tveim leikritum sem það
hafði sett upp. Bryndís Steinþórs-
dóttir las upp gamansögur. Þá voru
veitt viðurkenningarskjöl fyrir
dyggan stuðning við félagið á liðn-
um árum. Þeir sem hlutu skjölin
vom Marinó Sigurbjömsson full-
trúi, Sigmar Ólasson, Hraðhreinsun
Reyðarfjarðar, og kaupfélagið á
staðnum.
Skemmtunin fór vel fram og var
ekki annað að sjá en fólk væri al-
mennt ánægt þegar upp var staðið.
Leikfélag Fáskrúðsfjarðar sýndi
gamanleikritið Allir í verkfall eftir
Duncan Greenwood í félagsheimil-
inu eitt laugardagskvöldið, Reyð-
fírðingum til mikillar skemmtunar.
Leikendur voru allir sem einn frá-
bærir. Það vom ánægðir leikhús-
gestir sem fóm heim að lokinni
sýningu.
- Gréta
Viðtalstími borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
■
■
■
■
■
■
■
■
r
■
a
a
a
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins
verða til viðtals í Valhöll Háaleitis-
braut 1, á laugardögum frá kl. 10-12.
Er þar tekið á móti hvers kyns fyrir-
spurnum og ábendingum og er öllum
borgarbúum boðið að notfæra sér
viðtalstíma þessa.
Laugardaginn 21. mars verða til viðtals Hilmar Guðlaugsson formaður bygg-
inganefndar Reykjavíkur og í stjórn Verkamannabústaða, Sólveig Pétursdóttir
formaður barnaverndarnefndar.
■
a
■
■
■
■
■
■
■
a
■
■
■
■
■
a
a
... -Æ
J-’ÍBSUrJti^ tí
*.,J ■