Morgunblaðið - 30.06.1987, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚNÍ 1987
25
Stærðfræðin hefur verið tóm-
stundagaman samhliða náminu
- segir Finnur Lárusson tvítugur dúx úr raunvísindadeild
FINNUR Lárusson, tvítugur
Reykvikingur, útskrifaðist um
helgina úr stærðfræðiskor
raunvísindadeildar Háskóla ís-
lands með einkunnina 9,44, en
það er hæsta einkunn sem gefin
hefur verið i verkfræði- og raun-
vísindadeildum háskólans.
Finnur útskrifaðist árið 1984 úr
Menntaskólanum við Hamrahlíð
og var þvi aðeins sautján ára
þegar hann hóf háskólanám.
Hann hyggst nú í haust hefja
nám við Chicago-háskóla en þar
hefur hann fengið góðan náms-
styrk. Foreldrar Finns eru þau
Lárus Valdimarsson og María
Kristjánsdóttir.
„Ég var ákveðinn í því að fara í
stærðfræðinám þegar er ég byijaði
í menntaskóla," sagði Finnur í sam-
tali við Morgunblaðið. „Stærðfræð-
in var jafnframt tómstundagaman
og samhliða skólanáminu hafði ég
gaman af að lesa stærðfræði í
frístundum.
Ég fer núna í september út til
Chicago í háskólanám en þar hef
ég fengið styrk til þess að vera í
ijögur ár, en það er sá tími sem
gert er ráð fyrir að taki að ljúka
doktorsritgerð. Það er þó enn óráð-
ið á hvaða sviði ég kem til með að
sérhæfa mig og ég þarf raunar
ekki að ákveða það fyrr en að loknu
fyrsta ári sem er almennt nám.
Maður verður bara að sjá til hvem-
ig áhuginn þróast og athuga hvað
er á seiði þama úti, sjá á hvaða
sviðum er mest að gerast.
Chicago-háskólinn er mjög virtur
skóli og maður hefur séð það á
prenti að stærðfræðideildin þar sé
meðal þeirra fímm bestu í Banda-
ríkjunum. Ég hafði sótt um í
nokkrum skólum, þar sem ég vissi
ekki alveg hvar ég stæði og vildi
hafa vaðið fyrir neðan mig. Mér
bámst nokkur góð tilboð og af þeim
leist mér best á þau frá Harvard-
háskólanum í Boston og Chicago-
háskólanum. Það var mjög erfitt
að gera þama upp á milli og hefði
ég getað unað ánægður við þau
bæði. En maður varð að hafna öðm
þeirra og þegar á allt var litið taldi
ég mér vera betur borgið í Chicago.
Styrkurinn sem ég fékk er heilsárs-
styrkur til fjögurra ára og nær
hann bæði til skólagjalda og uppi-
halds.
Atvinnumöguleikar em kannski
ekki mjög glæsilegir hér heima eins
og stendur fyrir mann með hreina
stærðfræðimenntun en það þýðir
auðvitað ekki að skipuleggja lífið á
enda útfrá þeim aðstæðum sem
ríkja í dag. Maður veit ekki hvemig
þær koma til með að þróast. Vel
kemur til greina að vera nokkur ár
í Bandaríkjunum eftir að náminu
lýkur þangað til eitthvað heppilegt
starf býðst hér heima.
Mig langar að lokum að þakka
kennumm mínum fyrr og síðar fyr-
ir handleiðsluna og einkum og sér
í lagi dr. Reyni Axelssyni, sem ég
hef lært hvað mest af,“ sagði Finn-
ur.
Prófessor Sveinbjörn Bjömsson.deildarforseti raunvísindadeildar,
afhendir Finni Lámssyni prófskirteini hans. Finnur, sem er einung-
is tvítugur að aldri, varð dúx úr deildinni með einkunnina 9,44.
Mistök við birtingn ljóða leiðrétt
Vegna mistaka sem áttu sér stað birta þijú ljóða hans, úr nýút-
í viðtali við Þorstein frá Hamri, kominn ljóðabók, Urðargaldur,
í Morgunblaðinu síðastliðinn aftur.
sunnudag, þykir ástæða til að
Vegir og stígar
Á sléttunni
em allar brautir eins,
alþekktar — réttar.
En í klúngmm og myrkviði
fínna allir einstigi
hver við sitt hæfi...
Jafnvel í gmn mínum.
Þar hefur fundizt
fom þjóðleið,
- grafgata,
gegnum efa og spum
til vatns.
Fyrnd
Hmndar borgir
og brotin skip
kalla menn ýmsar sinna kæmstu stunda.
Og eins þótt endmm og sinnum
teygi sig tumar í heiðið
og þjóti í þöndum seglum
laðar þá gagnsæ hönd
á rúst og reka.
Gler
...og merkilegt er það að þegar mynd brotnar
kemur allur heimurinn og horfir á brotin nánar og
leingur en nokkur sála sá sér fært sakir annríkis þá
ótal myndsnauðu daga sem þau ein vom heild — og
mynd; heil mynd...
Einnig slæddust nokkrar prent-
villur inn í viðtalið. Þar sem Þor-
steinn segir, „Að kalla hlutina
annað en þeir heita, tjá ókveðinn
sannleikann,," á réttilega að standa
„ákveðinn sannleika." í viðtalinu
er einnig haft eftir Þorsteini, „Ég
held að öll þessi tvíræðni í mönnum
sé hátíð hjá einræðinu," en þar á
að standa, „Ég held að öll þessi
tvíræðni í mönnum sé hátíð hjá ein-
æðinu.“
Er Þorsteinn vinsamlegast beð-
inn velvirðingar á þessum leiðinlegu
villum.
FYRIR FRAMTÍÐINA
AFMÆLIS
TILBOD3
Hér er enn eitt afmælistilboð KRON
í tilefni 50 ára starfsemi félagsins.
Afmælistilboð 3,
- hagstætt tilboð á ýmsum vörum.
Hreinn og klár sparnaður fyrir heimilin,
það hafa margir reynt.
MSkakómjólk kr. 18,- Buglessnakk kr.79,-
Stabburret marmelaði 400gr. kr. 85,'
Camelia dömubindi venjuleg kr. 45,
Hunangsmelónurpr. kg. kr. 76,
Vatnsmelónur pr.kg.kr.39,-
Spartekex170 gr. kr.25,-
Egils safil.ltr. kr.79,-
Egils safi 2 Itr. kr. 139,-
Hits uppþvottalögur 11tr. kr. 62,'
Hits hreingerningarlögur 11tr. kr. 62,-
Wella flex hárnæring 200 gr. kr. 115,- Egils grape 1V2 Itr. kr. 74,-
Wella flex hárlakk 200 gr. kr. 124,- Homeblestkex200gr. kr. 39,-
Plastprentnestispokarnr. 1 kr. 29,- Flexsjampó200ml. kr.82,-
Plastprent nestispokar nr.2 kr. 36,- Flex hárnæring 200 ml. kr. 93,-
Plastprent nestispokar nr. 3 kr. 41,- Ali lifrarkæfa pr. kg. kr. 339,-
Plastprent heimilispokar nr. 15. kr. 55,- Ali skinka pr. kg. kr. 939,-
Kauptu inn hjá KRON, það er hagstætt.
KKM
v/Norðurfell v/Stakkahlíð Stórmarkaður,
v/Tunguveg v/Dunhaga Skemmuvegi
v/Langholtsveg v/Furugrund, Kóp. Kaupstaður í Mjódd.