Morgunblaðið - 30.06.1987, Qupperneq 33
Hvað segja þau um stöðuna í stjórnarmyndunarviðræðunum?
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚNÍ 1987
Samstarf við Sjálfstæð-
isf lokkinn erfitt og
sameining óhugsandi
- segir Albert Guðmundsson þingflokksformaður Borgaraflokksins
Morgunblaðið/RAX
Jón Baldvin Hannibalsson formaður Alþýðuflokksins gengur úr
stjórnarráðshúsinu siðdegis í gær, eftir fund með forseta Islands,
þar sem hann skilaði umboði til stjórnarmyndunar sem hann hafði
haft í tæpar fjórar vikur. Hópur fréttamanna stendur á tröppum
stjómarráðsins og fylgist með formanni Alþýðuflokksins.
ALBERT Guðmundsson þingflokksformaður Borgaraflokksins og
Þorsteinn Pálsson formaður Sjálfstæðisflokksins áttu stuttan fund i
gær. Að sögn Alberts ræddu þeir ekki möguleika á stjórnarsamstarfi
flokkanna tveggja, heldur fjölluðu um persónulegri mál sem snertu
klofning Sjálfstæðisflokksins i vor. Steingrímur Hermannsson formað-
ur Framsóknarflokksins ræddi síðan við Albert í sima um stöðu
stjórnarmyndunarviðræðnanna. Albert segist ekki sjá önnur stjóraar-
mynstur með þátttöku Borgaraflokksins en í samstarfi við núverandi
stjóraarflokka. Það strandi hins vegar á andstöðu forystu Sjálfstæðis-
flokksins við þessa hugmynd.
„Steingrimi er ljóst, eins og Þor-
Fjögurra flokka sljórn
ekki vænlegur kostur
- segir KrLstín Halldórsdóttír þingmaður Samtaka um kvennalista
KVENNALISTAKONUR era tilbúnar til að taka þátt í stjóraarmyndun-
arviðræðum fyrirvaralaust, að sögn Kristínar Halldórsdóttur þing-
manns. Hún telur vonlítið að reyna myndun fjögurra flokka vinstri-
stjóraar, ekki síst vegna vandamála þeirra sem Alþýðubandalagið á
við að etja innbyrðis. Þau skilyrði sem sett voru fyrir rikisstjórnar-
þátttöku samtakanna í viðræðum þeirra við Alþýðuflokk og Sjálfstæð-
isflokk yrðu enn í fullu gildi en hugsanlega með öðrum formerkjum
í ljósi upplýsinga sem komið hefðu fram að undanförnu.
síðan í maí, við höfum aflað okkur
gleggri upplýsinga og ég held að það
sé ekki lengur neitt mál að leysa
þann vanda sem komu upp í stjómar-
myndarviðræðum okkar við Alþýðu-
flokk og Sjálfstæðisflokk."
steini að eftir að Borgaraflokkurinn
sneri sér úr stjómarandstöðu yfir í
það að bjóða upp á stjómarsamstarf
er mögulegt að mynda á örfáum
klukkustundum ríkisstjóm úr núver-
andi mynstri með þátttöku Borgara-
flokksins. Við búum ekki yfir andúð
í garð sjálfstæðismanna. Það virðast
þeir hins vegar gera í okkar garð.
Hefur ekki einn ráðherra þeirra látið
hafa það eftir sér að ekki verði talað
við okkur í 500 ár? Borgaraflokks-
menn eru opnir og fara ekki eftir
því hvaða flokksskírteini menn bera
þegar þeir meta málefnin," sagði
Albert.
Albert kvað þá Þorstein hafa átt
gott samstarf áður en til stofnunar
Borgaraflokksins hefði komið. „Ég
er tilbúinn að taka það upp að nýju
þrátt fyrir allt sem á hefiir gengið.
Það er möguleiki á því að við getuip
átt einhvers konar samstarf þótt þáð
yrði erfitt en til sameiningar Borg-
arafiokksins og Sjálfstæðisflokksins
mun aldrei koma nokkru sinni. Það
em ekki bara sjálfstæðisfiokksmenn
i Borgaraflokknum, heldur fólk úr
öllum áttum sem treystir mér og
forystumönnum flokksins. Það er
óhugsandi að við ætlumst til að þetta
fólk gangi í Sjálfstæðisflokkinn."
Aðspurður sagðist hann ekki
myndu leggja það til að Borgara-
flokkurinn styddi minnihlutastjóm
sem mynduð yrði með þátttöku nú-
verandi stjómarflokka. Yrði gengið
til stjómarmyndunar við þessa flokka
myndi eitt skilyrða borgaraflokks-
manna verða að hann fengi ráð-
herrastól.
„Ef við tökum þátt í stjómarmynd-
unarviðræðum með þessum tveimur
flokkum yrði það jafti mikið skilyrði
að ég yrði ráðherra eins og að við
skiptum okkur ekki af útnefningu
ráðherra þeirra. Það er nóg að sjálf-
stæðismenn hafi eyðilagt fyrir mér
minn ráðherradóm í núverandi stjóm
þótt þeir fari ekki að stjóma í mínum
flokki," sagði Albert.
„Mér er nær að halda að sá
„rífandi gangur" sem Alþýðuflokks-
formaðurinn sagði vera í viðræðun-
um hafi fremur verið gauragangur
eða jafnvel draugagangur," sagði
Kristfn þegar blaðamaður innti hana
álits á stöðunni í gærkvöldi. „Það
má vel vera að þessi myndun takist
undir forystu einhvers annars en
Jóns Baldvins og ef það reynist hægt
þá verður svo að vera."
Hún sagði að eftir kosningar hefði
verið lýst yfir áhuga Samtaka um
kvennalista á þátttöku f fjögurra
flokka stjóm, en hann hefði nokkuð
dvínað að undanfömu. Ástæðan væri
ekki síst slæmt „heilsufar" hinna
félagshyggjuflokkanna. Sér virtist
að Alþýðubandalagsmönnum hefði
orðið lítið ágengt við að „hreinsa til
á flokksheimilinu" eins og hún orð-
aði það, þótt þeir létu annað í veðri
vaka. Þá væru þeir ekki þeir einu
sem ættu í innanflokksátökum, eins
og kreppan í stjómarmyndun sýndi
glöggt.
Um samstarfs við aðra flokka en
þessa þijá sagði Kristfn að sér hefði
ekki komið á óvart að slitnað hefði
upp úr viðræðum Kvennalista og
Sjálfstæðisflokks. Þá væri ólíklegt
að Borgaraflokkurinn hefði áhuga á
þvf að starfa með samtökunum þar
sem Albert Guðmundsson hefði lýst
því yfir að „konumar væru of dýrar.“
í gær var óformlegur fundur með
ffamsóknarmönnum og kvennalista-
konum, þar sem staða stjómarmynd-
unar var rædd. Hún sagðist ekki
leggja djúpa merkingu í slíkar við-
ræður. „Líklegasta skýringin á
þessum þreifingum framsóknar-
manna er sennilega sú að þeir
hyggist beita hinni alkunnu tækni
að stíga í vænginn við aðrar meyjar
til þess að auka afbrýðissemi hinnar
heittelskuðu," sagði Kristín.
„Að sjálfsögðu höfum við enn
áhuga á því að marka spor með því
að taka þátt í myndun ríkisstjómar.
Við höfum verið taldar standa fast
á okkar en höfum einfaldlega verið
að fylgja eftir okkar málum og vera
kann að við áttum okkur betur á því
næst hverju hægt er að koma til leið-
ar. Aðstseður hafa um margt breyst
MERKI UM GÓÐAN ÚTBÚNAÐ
JAMES-SCOTT
NEOPRENE VÖÐLUR
Fást í nœstu sportvöruverslun.
Einkaumboð
I. Guðmundsson & Co hf
Símar: 91-11999 - 24020
Mikflvægft fyrir Alþýðu-
bandalagið að reyna
fjögurra flokka stjóm
— segir Svavar Gestsson formaður Alþýðubandalagsins
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ stæði betur að vígi sem þátttakandi i fjög-
urra flokka vinstri stjórn en í stjóraarandstöðu, að mati Svavars
Gestssonar formanns. „Það væri tvimælalaust mjög mikilvægt fyrir
Alþýðubandalagið i núverandi stöðu að taka þátt í ríkisstjóra félags-
hyggjuflokkanna, sem gæti skilað þjóðinni áleiðs til jöfnuðar í félags-
málum og efnahagsmálum. Við myndum reyna til þrautar að ná þessu
marki og það er að minu mati hægt á skömmum tíma,“ sagði Svavar.
í samtali við Morgunblaðið í gær- tekið óeðlilega langan tíma. Flokk-
kvöldi sagði Svavar að staða stjóm-
armyndunarviðræðnanna væri óljós
þar sem menn greindi á um hversu
langt þær væru komnar. Jón Baldvin
Hannibalsson héldi því fram að öllum
undirbúningi væri lokið. Þorsteinn
Pálsson tæki undir þetta, en
Steingrímur Hermansson segði að
ekki væri búið að ganga frá öllum
málum. Hver lýsti veruleikanum rétt
kæmi í ljós á næstu dögum. „Það
er hinsvegar deginum ljósara að
stjómarmyndunarviðræðumar hafa
amir hafa ekki axlað þá ábyrgð sem
þeir bera til að tryggja þjóðinni
stjóm. Sé það ekki mögulegt eiga
þeir að hætta þessum leik nú þegar."
Svavar sagðist hafa rætt við
Steingrím, Jón Baldvin og fulltrúa
Kvennalista simleiðis í gær. Hefði
hann aðeins verið að kanna stöðu
mála, eins og óhjákvæmlegt væri í
ljósi þess að Alþýðubandalagið kynni
að verða kallað til viðræðna á næstu
dögum.
„Við teljum að það eigi að rejma
að mynda félagshyggjustjóm og við
myndum að sjálfsögðu taka þátt í
henni," sagði Svavar. Hann kvaðst
aðspurður ekki útiloka hugmynd
Guðrúnar Helgadóttur um stuðning
Alþýðubandalagsins við minnihluta-
stóm Framsóknar og Alþýðuflokks.
Fyrst yrði að reyna myndun meiri-
hlutastjómar til þrautar. „Þingræðið
verður að ráða við þetta verkefni.
Utanþingsstjóm yrði í mínum huga
mikið áfall fyrir þingið. Þrátt fyrir
að boðað yrði til kosinga í haust
verðum við að gera okkur grein fyr-
ir því að þá þarf að mynda stjóm til
að sitja fram yfir þær. Jafnvel þótt
núverandi stjóm yrði framlengd væri
það ekki lengur starfsstjóm, heldur
meirihlutastjóm með stuðning Stef-
áns Valgeirssonar," sagði Svavar.