Morgunblaðið - 30.06.1987, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚNÍ 1987
35
Málefni Frosta hf. á Súðavík:
Lögbanni synjað en hrepps-
nefndin fer í ógíldingarmál
— Hálfdán Kristjánsson segist fara í stjórn Frosta í júlí
fsafirði.
Lögbannsbeiðni Súðavikur-
hrepps við því, að Tog hf.
hagnýti sér rétt sinn í hlutafjár-
eign Frosta hf. var synjað í
fógetarétti N- ísafiarðarsýslu
föstudaginn 19. júní. I áliti dóm-
arans, Lárusar Bjarnasonar
aðalfulltrúa, segir að aðilar máls-
ins séu sammála um að lögform-
lega hafi verið staðið rétt að
sölu hlutabréfa Frosta hf. til
Togs hf. 1. maí 1987.
Hins vegar hyggist Súðavíkur-
hreppur neita allra ráða til að fá
sölunni rift. Telur meirihluti hrepps-
nefndar, að salan á hlutafénu hafi
verið ólögmæt og sé því ógildanleg
og muni krefjast ógildingar í al-
mennu dómsmáli, þar sem jafn-
framt verði krafist staðfestingar á
lögbanni.
í áliti dómarans segir að þar’sem
að gerðarbeiðandi hefur ekki reynt
að fá ógilta með dómi sölu hluta-
bréfanna og þar sem aílsendis er
óvíst hver úrslit slíks dómsmáls
yrðu þykir ekki ástæða til að leggja
lögbann við hagnýtingu og ráðstöf-
un þeirra réttinda sem hlutafjáreign
Togs hf. í Hraðfrystihúsinu Frosta
hf. veita. Súðarvíkurhreppi er gert
að greiða Togi hf. 30 þúsund krón-
ur í málskostnað.
Hálfdán Kristjánsson núverandi
oddviti Súðavíkurhrepps lagði í
framhaldi af þessu fram í aukadóm-
þingi Norður-ísafjarðarsýslu þ. 25.
júní stefnu á hendur Auðuni Karls-
syni stjómarformanni Frosta hf. og
Jóhanni Símonarsyni stjómarform-
anni Togs hf. Þar krefst hann þess
að ákvörðun stjómar Frosta hf. um
sölu á 41,42% hlutafjár félagsins
til Togs hf. verði dæmd ógild.
Gert er ráð fyrir að vitnaleiðslur
hefjist í september. Morgunblaðið
Innbrot í
apótek
BROTIST var inn í apótekið í
Mjóddinni um helgina og þaðan
stolið lyfjum.
Ekki höfðu þjófamir á brott með
sér mikið magn lyíja, en aðallega
voru tekin örvandi og róandi lyf,
til dæmis valíum. Rannsóknarlög-
regla ríkisins rannsakar málið.
snéri sér til deiluaðila til að afla
nánari upplýsinga um gang mála.
Skiptir mestu máli að
drífa áfram reksturinn
Ingimar Halldórsson fram-
kvæmdastjóri Frosta hf. og einn
af eigendum Togs hf. sagðist fagna
niðurstöðu dómara í lögbannsmál-
inu. Hann sagði að ekki væri ástæða
til að velta vöngum frekar vegna
þessa máls í bili. Að sjálfsögðu
mundu menn hlíta niðurstöðum
dómstóla þegar þar að kæmi, þótt
hann teldi sig ekki hafa neitt að
óttast. Nú skipti mestu að drífa
áfram rekstur Frosta hf. En það
er að sjálfsögðu meginmál íbúanna
í Súðavík að vel takist til við rekst-
urinn. Hann sagði að mikil vinna
væri hjá fyrirtækinu. Sex bátar og
togarar eru í útgerð og mikill afli
berst að bæði af bolfiski og rækju.
Unnið er 9 tíma á dag sex daga
vikunnar og eru nú um 90 manns
starfandi í fiskvinnslunni.
Töluvert hefur þurft að fá af
aðkomufólki. Auk íslendinga eru
níu erlendar stúlkur, flestar frá
Suður-Afríku og Bretlandi.
Góð stýring er á hráefninu, fyrst
er valið heppilegt hráefni fyrir hús-
ið, en síðan fer afgangurinn í gáma.
Starfsfólkið virðist vera ánægt og
ekki að sjá það harmi þær breyting-
ar sem orðið hafa á eignarhaldinu
í fyrirtækinu.
Rökstuðningur úti í
himinblámanum
Hálfdán Kristjánsson oddviti
Súðavíkurhrepps sagði að dómurinn
í lögbannsmálinu segði meira um
dómarann enn dóminn. Sér virtist
að rökstuðningur hans væri ein-
hversstaðar langt úti í himinblám-
anum. Dómarinn segði að fyrst
þyrfti að fara í ógildingarmál og
síðan í lögbannsmál. Lögbann væri
neyðarréttaraðgerð sem ætluð væri
til að stöðva ólöglegt athæfi á með-
an fengin væri niðurstaða dómstóla,
því hefði þeim þótt eðlilegt að byija
á lögbannsmálinu en fara síðan í
ógildingarmálið.
Hann sagðist vænta endanlegrar
niðurstöðu úr dómsmálinu innan
tveggja ára, þangað til myndi hann
halda áfram að vinna að því að
tryggja hagsmuni hreppsfélagsins.
UNG kona missti stjórn á bifreið
sinni á Elliðavogi á sunnudag.
Bifreiðin þeyttist út af veginum
og stöðvaðist loks á grasöldum
fyrir ofan veginn. Konan slasað-
ist nokkuð.
Óhappið varð um kl. 17 á sunnu-
dag. Konan ók Datsun-bifreið suður
eftir Elliðavogi, á vinstri akrein. Á
Hann sagði að samkvæmt sam-
þykktum Frosta hf. yrði aðalfundur
félagsins haldinn í júlí. Þá myndi
hann fara í stjórn félagsins sam-
kvæmt ákærum í samþykktum og
samkvæmt hlutafjáreign hreppsins
og í samræmi við samþykkt hrepps-
nefndar, þar sem honum var falið
að fara með öll völd hreppsins í
Frosta hf. á meðan Tog hf. er skrif-
að fyrir hlutabréfum í félaginu.
Hann sagði að ýmsar gróusögur
væru á lofti um starfsaðferðir Togs-
manna í Frosta. Eftir að hann tæki
sæti í stjóminni ætti hann þess
kost að komast til botns í öllum
þeim málum og kæmi þá væntan-
lega í ljós hvort allt væri rétt sem
þar hefði verið aðhafst í hlutabréfa-
sölunni.
Góöur starfsandi
í vinnusölum Frosta hf. gekk þó
lífið sinn vanagang. Allir voru að
keppast við að gera verðmæta út-
flutningsvöru úr hráefninu úr okkar
stærstu auðlind, hafinu. Verið var
L <•,' <<v
* • i
isí
Morgunbtaðið/Úlfar Ágústsson
Mjög mikil vinna er við vinnslu á bolfiski og rækju og urðu for-
ráðamenn Frosta að fá erlent vinnuafl til að létta á heimamönnum.
Þessar tvær stúlkur eru erlendar og hafa verið við störf síðan um
miðjan júní.
að flaka og pakka grálúðu og var
ekki að sjá að þama ríkti nein
„apartheit“-stefna. Heimamenn
leiðbeindu aðkomnum löndum og
erlendu stúlkunum svo vinnan gekk
hratt og vel.
í tækjaklefanum var Kristinn
Kristinsson að vinna við pökkun á
öskjum. Hann sagðist hafa flutt til
Súðavíkur í desember til að vinna
hjá Frosta hf. Hann sagði að mjög
gott væri að vinna þama, góður
starfsandi og góður aðbúnaður.
Aðspurður um átök manna um
eignarréttinn sagði hann að fólkið
í frystihúsinu talaði lítið um þau
mál, helst væri að fólk gerði grín
að þessum köllum. Hann sagðist
kunna vel að meta framkvæmda-
stjórann. Hann væri alltaf á ferðinni
niðri hjá fólkinu og fylgdist vel með
og ef einhver vandamál kæmu upp
sagðist Kristinn geta leitað beint
til framkvæmdastjórans sem alltaf
leysti fljótt og vel úr öllum vanda-
málum.
Frosti hf. ásamt dótturfyrirtæki
sínu Álftfirðingi hf., er lang stærsti
atvinnurekandinn í Súðavík' og
greiða þessi tvö fyrirtæki um V5
af öllu aðstöðugjaldi til hreppsins.
Auk þeirra eru 9 önnur atvinnufyr-
irtæki og stofnanir starfandi í
Súðavík og er útibú Kaupfélags
ísfirðinga stærst þeirra.
- Úlf ar
Morgunblaðið/Sverrir
Ung kona missti stjórn á bifreið sinni á Elliðavogi og þeyttist bifreið-
in upp á grasöldur fyrir ofan veginn.
Þeyttist upp á grasöldur
þeirri sömu akgrein var kyrrstæður
Volvo, en það virðist hafa truflað
konuna í akstrinum. Hún sveigði
bifreið sinni snögglega til hægri,
en missti þá stjóm á henni og ók
út af veginum. Bifreiðin þeyttist
upp halla og stöðvaðist loks harka-
lega á grasöldum. Konan var flutt
á slysadeild, en ekki er talið að hún
hafí slasast alvarlega.
GARDENA
GERIR GARÐINN FRÆGAN.
MURRAY.
Hörkugóð Amerísk
sláttuvél sem slær flötina jafnt og fallega.
3ja hestafla fjórgengis/bensínvél, 51 cm sláttu-
radius, þægileg og vel staðsett bensíngjöf,
Verð aðeins krónur: 16.500.- stgr.
Husqvarna handsláttu-
vélin er tilvalin lausn þar
sem ekki er hægt að
koma við vélsláttuvél og
einnig á minni flatir.
Husqvarna handsláttu-
vélin er mest selda
handsláttuvélin á
norðurlöndum. Verð
aðeins krónur: 6.400.- stgr
v*- <s>
Uðarar í miklu urvali
sem henta allsstaðar.
Verð frá krónum
235.- til 1.375.
Rafmagnsklippur frá GARDENA.
Ómissandi í garðvinnuni og auðveldar
snyrtingu á erfiðustu grastoppunum.
Verð frá kr.: 4.628.-
\ t ’s r
."•íftS**
r og sterkar
ÓTRÚLEGT
ÚRVAL AF
GARDENA
GARÐÁHÖLDUM.
Slöngur, slöngutengi, slöng-
ustútar, þvottakústar fyrir
stéttina, slönguhengi, úðun-
arstútar, vökvunarkerfi,
vatnsdælur, tréklippur omfl.
Öflugai
hekk-klippur frá BOSCH.
Léttar og meðfærilegar.
Verð frá krónum: 9.500.-
QK
Gunnar Ásgeirsson hf,
Suðurlandsbraut 16 91 -691600
1 $