Morgunblaðið - 01.07.1987, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. JÚLÍ 1987
Lundúnum, Reuter.
Bandaríkjadalur styrktist lítil-
lega á gjaldeyrismörkuðum i
Evrópu i gær þar eð japanskir
fjárfestendur seldu mikið af jap-
önskum hlutabréfum sínum.
Í gær var gengið á hádegi þann-
ig að sterlingspund kostaði 1.6090
Bandaríkjadali en einn dalur kost-
aði:
1.3328 kanadíska dali,
1.8295 vestur-þýsk mörk,
2.0595 hollensk gyllini,
1.5200 svissneska franka,
37.94 belgíska franka,
6.1050 franska franka,
1326 ítalskar lírur,
147.00 japönsk jen,
6.3875 sænskar krónur,
6.7075 norskar krónur og
6.9425 danskar krónur.
Gullúnsan kostaði 446.60 dali.
Reuter
Dýr myndi Van Gogh allur
Vincent Van Gogh dó bæði snauður og bilaður á geði, en ef til vill væri Iéttari á honum
brúnin ef hann lifði í dag. Á málverkauppboði í Lundúnum í gær var málverk eftir
hann slegið á ríflega 20 milljónir Bandaríkjadala, en það jafngildir um 940 milljónum
islenskra króna. Málverkið heitir Brúin í Trinquetaille. Fyrir skömmu var annað mál-
verk Van Goghs, Sólblómin, selt á enn hærra verði — tæplega 25 milljónir Bandaríkjadala
og er því óhætt að segja a Van Gogh vermi eftstu sæti listavinsældalistans.
Finnland:
Tengdasonur for-
setans handtek-
inn fyrir fjársvik
Frá Lars Lundsten, fréttaritara Morgunblaðsins í Helsinki.
FINNSK dagblöð og sér í lagi síðdegisblöðin, hafa síðustu
daga fjallað um gjaldþrotamálsem tengist tengdasyni Mauno
Koivisto Finnlandsforseta. Tengdasonurinn er ungur athafna-
maður, Jari Komulainen að nafni, og hefur hann verið
handtekinn ásamt nokkrum félögum sinum vegna meints fjár-
svikamáls.
Þeir handteknu eru þrír félag-
ar sem eru þekktir sem „Uppsala-
hagfræðingarnir“ vegna þess að
allir luku þeir hagfræðiprófi frá
Uppsölum í Svíþjóð, en í
Finnalndi þykja það ekki merki-
legir pappírar.
Fyrir nokkrum árum stofnuðu
Uppsalahagfræðingamir þrír
eignarhaldsfélagið Tristan, sem
keypti allt að 26 fyrirtæki í
kröggum. Hugmyndin var að
reisa fyrirtækin við og njóta svo
ávaxtanna.
Hins vegar reyndist erfitt að
ná saman áhættufé sem gjald-
þrotafyrirtækin vantaði. Félag-
amir dóu þó ekki ráðalausir. Þeir
höfðu tekið eftir því að sögunar-
myllur áttu miklar afgangsbirgð-
ir af viðarflögum og afréðu því
að stofna verksmiðju og fram-
leiða brenniköggla úr þeim. Af
því að hráefnið fékkst nánast
ókeypis voru Uppsalahagfræð-
ingamir bjartsýnir og fluttu inn
vélbúnað í verksmiðjuna, Energ-
iahake Oy (Orkuflís hf.).
Milljónahugmyndin rann hins
vegar út í sandinn vegna margs-
konar tækniörðugleika og
Energiahake var lýst gjaldþrota.
Þegar eignarhaldsfyrirtækið
Tristan fékk ekki neinar tekjur
af brennikögglaframleiðslunni
byijaði öll samsteypan að gliðna
í sundur. Til þess að koma í veg
fyrir allsherjar gjaldþrot létu fél-
agamir þrír m.a. hjá líða að
greiða opinber gjöld og er helsti
skuldunautur gjaldþrotabúsins
því skattheimtan.
Þegar í maí 1984 reyndi
tengdasonur forsetans að koma
sér undan ábyrgð á Tristan og
brennikögglaverksmiðjunni En-
ergiahake og seldi m.a. hlutabréf
sín í samsteypunni. Ákæmvaldið
fullyrðir hins vegar að Komulain-
en hafi ekki þvegið hendur sínar
þar með. Rannsóknarlögreglan
hefur vísbendingar um falsað
bókhald í einu fyrirtæki sam-
steypunnar og voru allir félag-
amir þrír handteknir. Eiginkona
Komulainens, Assi forsetadóttir,
virðist samt ekki vera flækt í
málið.
Það virðist ekki líklegt á þessu
stigi málsins að réttarhöld yfir
Uppsalahagfræðingunum hafi
áhrif á forsetakosningarnar sem
fara fram eftir rúmlega hálft ár.
Hvorki keppinautar forsetans né
blaðamenn hafa hingað til þorað
að minnast á þann möguleika að
forsetinn vissi eitthvað um við-
skipti Tristan-samsteypunnar.
Kosið í Æðsta ráðinu; Gorbachev gefur Gromyko góð ráð.
Reuter
North af-
hendir gögn
varðandi
íransmálið
Washington, Reuter.
OLIVER North, ofursti, af-
henti í gær rannsóknarnefnd-
um þingsins ýmis gögn
varðandi Iransmálið til þess að
undirbúa vitnisburð sinn á lok-
uðum fundi með nefndunum i
dag. Talsmaður nefndar full-
trúadeildarinnar sagði að
North yrði tryggð sakarupp-
gjöf að nokkru leyti fyrir fram
áður en hann afhenti gögnin
en meðal þeirra eru persónu-
legar dagbækur ofurstans.
Þetta verður fyrsta yfirheyrslan
yfír North um málið en hann er
talinn lykilmaður í vopnasölu-
hneykslinu. Hann hefur neitað að
bera vitni og borið fyrir sig stjórnar-
skrárlegan rétt sinn. Á þriðjudaginn
hefjast opinberar vitnaleiðslur yfir
North og verður þeim sjónvarpað.
Reagan forseti hefur staðfast-
lega neitað að hann hafi vitað um
jrfirfærslur hagnaðar af írans-
vopnasölunni til kontra-skæruliða í
Nicaragua en North er talinn hafa
stjórnað þeim aðgerðum.
Æðsta ráð Sovétríkjanna:
Mestu efnahagsbreyt-
ingar í 70 ár samþykktar
Einkaframtakinu gert hærra undir höfði
Moskvu, Reuter.
ÆÐSTA ráð Sovétríkjanna
samþykkti í gær einróma lög
þess efnis að stórlega sku.i
losað um miðstýringu hag-
kerfisins og segja sérfræðing-
ar í málefnum Sovétríkjanna
að hér ræði um einar mikils-
verðustu breytingar á efna-
hagslífi landsins frá því
snemma á þriðja áratuginum.
Lögin taka gildi í janúar næst-
komandi, en samkvæmt þeim
verður mjög dregið úr völdum
skrifkera ráðuneytanna í
Moskvu, sem til þessa hafa
stjórnað iðnaðarframleiðsl-
unni. Auk þess er stefnt að
því að gera stjórnendur fyrir-
tækja ábyrgari — þeir þurfa
nú að skila hagnaði, að öðrum
kosti verða fyrirtæki þeirra
lýst gjaldþrota. Þá þurfa þeir
--___. - j
r Jl'!
?>
að fylgjast betur með markað-
seftirspurn en áður og geta
ekki treyst á aðstoð ríkisins
þegar í harðbakkann slær.
Starfssvið „Gosplan“, eða
Áætlunamefndar ríkisins, mun
nú breytast á þann veg að stofn-
uninni er ætlað að skipuleggja
efnahagsstefnu landsins þegar til
lengri tíma er litið, en stússa
minna við smáatriði efnahags-
áætlana, eins og hún hefur gert
til þessa. Hingað til hefur aðal-
hlutverk „Gosplan“ verið að
semja hinar svokölluðu Fimm-ára
áætlanir, sem yfirleitt hafa ekki
staðist nema í meðallagi.
Þessi löggjöf skiptir Mikhail
Gorbachev, leiðtoga Sovétríkj-
anna, miklu eigi hann að geta
komið þeim efnahagsúrbótum á,
sem hann hefur boðað. í opin-
berum frásögnum af fundi ráðs-
inbs í gær kom fram að skoðanir
manna hefðu verið skiptar um
ágæti frumvarpsins, en eigi að
síður komst það nú athuga-
semdalaust í gegn.
Þeir hagfræðingar, sem mest
hafa mælt með endurbótum í efn-
hagsmálum hafa líkt frumvarp-
inu við NEP-stefnu Leníns árið
1921, en þá var horfið frá
„stríðkommúnismanum", sem
grunnur var lagður að í stríðinu.
Þegar svo var komið málum að
allt efnahagslíf landsins var í
molum taldi Lenín rétt að leggja
meiri áherslu á einkaframtak í
verslun, iðnaði og landbúnaði.
Að Lenín gengnum sneri Jósef
Stalín blaðinu aftur við og kom
hagstjóm undir einn hatt, þröng-
vaði bændum til samyrkju og
kom á víðtækum áætlunarbú-
skap. Þetta kerfi hefur verið nær
óbreytt fram á þennan dag.
Forseti Sovétríkjanna, Andrei
Gromyko, sagði þingheimi að
hann væri einlægur fylgismaður
Gorbachevs hvað varðaði breyt-
ingar í stjórnarháttum og sagði
hann pukur og leyndarhyggju
einatt hafa tafið framgang sósíal-
ismans. Töldu fréttaskýrendur
það tímannna tákn að í ræðu
sinni fjallaði Gromyko mest um
mengun í ám, unglinga á glap-
stigum og neytendamál.
I gær þótti eftirtektarvert að
Nikolai Ryzhkov, forsætisráð-
herra Sovétríkjanna, gekk svo
langt að segja að efnahagskerfi
landsins væri löngu úr sér gengið
og að þörfin á breytingum væri
í senn augljós og brýn.
Ymsir vestrænir hagfræðingar
sjá þó galla á gjöf Njarðar þar
sem lögin eru. Benda þeir á að
í lögunum sé kveðið á að fyrir-
tæki skuli lýst gjaldþrota beri þau
ekki arð. Hins vegar er kveðið
skýrt á um að atvinnuleysi verði
ekki leyft. Hvemig sovéskir hag-
spekingar leysa vandamál sem
þetta á eftir að koma í ljós.
Gengi gjaldmiðla