Morgunblaðið - 01.07.1987, Blaðsíða 60
ra v«<-< iffn, , ít.-iOAHt
60 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. JÚLÍ 1987
Einn norsku keppendanna einbeittur á svip í boccia-keppninni.
Mia Kamarainen frá Finnlandi keppir í boltakastinu.
Anne Virtanen frá Finnlandi í boltakasti.
Baldvin Snœr Sigurðsson kemur
f mark í 400 m hlaupinu á 1.16,90
mínútum.
Vel heppnað
mót fatlaðra
UM helgina fór fram hór á landi
norrœnt íþróttamót fatlaðra
barna og unglinga á aldrinum
12-16 ára. Að sögn Markúsar Ein-
arssonar, framkvæmdastjóra
fþróttasambands fatlaðra, tókst
mótið mjög vel — enda keppend-
ur sérlega heppnir með veður
sem var dásamlegt alla helgina.
Keppt var í einum flokki í bocc-
ia, tveimur flokkum í borðtennis,
tuttugu og tveimur greinum
“5 frjálsra íþrótta og þrjátíu sund-
é'
greinum. Alls voru 78 keppendur
á mótinu, frá Noregi, Danmörku,
Svíþjóð, Finnlandi og íslandi.
Góður árangur náðist í mörgum
greinum og voru íslensku kepp-
endurnir mjög víða í baráttunni um
verðlaunasætin. Alls unnu þeir til
17 gullverðlauna, 6 í frjálsum
íþróttum, 10 í sundi og 1 í boccia,
aukk fjölda silfur- og bronsverð-
launa.
Hér á síðunni eru nokkrar mynd-
ir sem teknar voru í blíðviðrinu um
helgina.
Lagt af stað í 100 m hjóiastólaakstri,
t, •
Lagt af stað í 100 m hlaupi. Frá vinstri: Baidur Snær Sigurðsson, Gunnar V. Gunnarsson, Jóel Einarsson
og Rune Johansen. ^
Arttu Siivonen frá Finnlandi f kúluvarpskeppninni.