Morgunblaðið - 01.07.1987, Qupperneq 48
48
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. JÚLÍ 1987
Ragnheiður Arnardóttir, Steindór Hjörleifsson og Aðalsteinn Bergdal í hlutverkum sínum i Land
míns föður eftir Kjartan Ragnarsson.
Land míns föður
vel tekið í Svíþjóð
„Sérstaklega vel heppnaður
gestaleikur.“„Afbragðs-
frammistaða leikenda frá
upphafi til enda.“„Það er langt
síðan ég hef skemmt mér jafn-
vel í leikhúsi.“
Þetta eru nokkur af ummæl-
um leikgagnrýnenda sænsku
blaðanna um sýningu Leikfél-
ags Reykjavíkur á söngleiknum
Land míns föður, sem sýndur
var á norrænni leiklistarhátið
i Gautaborg á dögunum. Hátið
þessi var haldin á vegum Borg-
arleikhússins i Gautaborg og
er þetta í þriðja sinn, sem slík
hátið er haldin. í ár var áhersla
lögð á norræna leiklist og var
boðið til sýningarinnar flokk-
um frá öllum Norðurlöndunum.
Flestar voru sýningamar frá
Sviþjóð, þ. á. m. hin fræga
sýning Ingmar Bergmans á
Fröken Júlíu, Det Norske Tea-
tret í Osló sýndi Hamlet i
leikstjóm þekktasta leikstjóra
Norðmanna, Stein Winge, frá
Danmörku kom sýningin Fal-
elser og Spegelser og Borgar-
leikhúsið í Helsinki sýndi
Tartuffe i leikstjóra Kalle
Holmberg.
Bengt Göranson, menntamála-
ráðherra Svía, setti hátíðina en
sfðan flutti Stefán Baldursson
leikhússtjóri ávarp. Hátíðin þótti
takast mjög vel enda allt úrvals-
sýningar, sem þar voru í boði.
Land míns föður var sýnt tvisvar
og voru viðtökur afbragðsgóðar
bæði kvöldin. Ætlaði fagnaðarlát-
um áhorfenda seint að linna.
Borist hafa dómar nokkurra
sænskra blaða og fer útdráttur
úr þeim hér á eftir. Þess má geta
að þessi leikfor Leikfélagsins
með„ Landið" er fjölmennasta
leikför, sem fslenskur leikflokkur
hefur farið í til útlanda, þátttak-
endur voru 43. Norræna Ieiklistar-
nefndin veitti styrk til leiklistarhá-
tíðarinnar en auk þess styrktu
fjölmörg íslensk fyrirtæki Leik-
félagið til ferðarinnar, þ. á. m.
Morgunblaðið (sjá meðfylgjandi
leikskrá).
Umsagnir
í Arbetet segir Anne Járborg
m.a.: „fslensku gestimir á leiklist-
arhátíðinni náðu virkilega góðum
tökum á áhorfendum. Áhorfendur
féllu í stafí. Þetta er hlýlegt og
skemmtilegt leikrit, sem Kjartan
Ragnarsson hefur samið. Fjöldi
söngva gefur sýningunni aukið líf
og lit. Tónlistarlegur hápunktur
sýningarinnar er söngurinn um líf
sjómannsins, hlaðið hættum."
Síðan koma hugieiðingar gagn-
rýnanda um málið, fslenskuna, og
kemst hún að þeirri niðurstöðu
að áhorfandinn skilji leikritið en
ekki textann. „Gffurlega fallegt
var atriðið, þar sem þjóðin safn-
ast saman kringum bamavagn og
syngur titillag sýningarinnar,
Land míns föður. Þetta var há-
stemmt atriði, fullt af trú á
framtíðina." Anne Járborg lýkur
umsögn sinni á þessum orðum:
„Land míns föður er ástrík og
gamansöm lýsing höfundar, sem
virkilega býr yfír mikilli og Qöl-
breytilegri frásagnargleði. Sér-
staklega vel heppnaður
gestaleikur!"
f GT skrifar Kristjan Saag
(Göteborgstidningen) m.a.:
„Land míns föður er afskaplega
vel leikið verk, sem höfundur leik-
stýrir sjálfur. Allir leikaramir
leika afbragðs vel frá upphafí til
enda, þar á meðal tvö böm og
hljómsveitin er felld á fullkominn
hátt inn í þetta allt og nær þvf
meira að segja að skipta um bún-
inga nokkmm sinnum í sýning-
unni. Búningafjöldinn hlýtur að
hafa fyllt heila Flugleiðavél, en
hins vegar er leikmyndinni stillt
f hóf og hún notuð á þann hátt,
að á betra verður ekki kosið —
það er svo sjálfur leikurinn sem
gefur þessu öllu þann sprengi-
kraft, sem fyllir leiksviðið hveija
stund. Leikmunir og lýsing gefa
þessu aukið gildi án þess að vera
uppáþrengjandi.
Þetta er sú tegund leikhúss,
þar sem öllum meðulum er beitt
(totalteater) innan mjög svo hefð-
bundins ramma og ef manni er
ekki þeim mun meira f mun að
fá vandamálin rakin og rædd, er
hægt að skemmta sér konung-
lega f tæpar þijár klukkustund-
ir án þess að kunna orð i
fslensku. Hápunktar verksins eru
nokkur söng- og dansatriði, þar
sem gert er góðlátlegt grín að
íslenskri samheldni, drukkinn
predikari, tveir lögregluþjónar og
fyrrverandi starfsbróðir þeirra
syngja sönginn um að allir gangi
f sama takti. Hinar sfgildu mann-
gerðir þessa atriðis gefa þvf styrk.
Höfundurinn sjálfur hefur kosið
að draga úr beittustu ádeilupunkt-
um verksins, en hann ku vera
afkastamikill höfundur: ég yrði
fyrstur manna til að fara og sjá-
eitthvert hinna verka hans ef
Leikfélag Reykjavíkur kemur aft-
ur með gestaleik."
Göteborgsposten: Bo Ludvigs-
son segir m.a. undir fyrirsögninni
„Leikandi og geðfellt". „Leikfélag
Reykjavíkur bauð upp á leikandi
og skemmtilega sýningu." Hann
fer lofsorðum um tónlist Atla
Heimis, sem hann segir fyrir
löngu orðinn vel þekktan, ekki
^ Skickliga
islánningar
samma tak
Ktíl
O0T»»O»0»-FO«TII»
Lekfullt och sympatiskt
zU-r—i -srartí*^'*” OJ*
\ * * sttjKsSfi’
bara á Norðurlöndum, heldur
einnig utan þeirra. Skopstælingar
hans á strfðsáratónlist séu sérlega
vel gerðar. „Manni fínnst maður
kannast við mátulega mörg stef
og hljómföll til þess að þetta
hljómaði allt kunnuglega og hug-
hreystandi um leið og það var þó
nýtt og hans eigin tónlist. Það var
þvf erfítt að stilla sig um að sveifl-
ast með f hinum hröðu og tilkom-
umiklu söngatriðum, sem
hljóðfæraleikaramir skiluðu með
krafti og sóma. Land míns föður
ber keim af alþýðugamanleikjum
og er byggt upp eins og hefð-
bundinn söngleikur, þar sem
söng- og dansatriðin eru hápunkt-
ar í söngþræðinum, sem að sjálf-
sögðu notar ástarsögu sem hinn
rauða þráð." Þrátt fyrir tungu-
málaþröskuldinn segir gagnrýn-
andinn áhorfandann skilja vel
hvað um sé að ræða. Söngleikur-
inn þekkir engin tungumálahöft
og f samtölunum heyrast af og
til setningar „sem eru eins og
tærasta sænska".
Gagnrýnandinn talar síðan um
form sýningarinnar, sem sé röð
gamansamra, sjálfstæðra atriða
og slíkt form gerir miklar kröfur,
kreljist fjölhæfra leikara og hug-
myndaríkrar leiksfjómar. Og
segir Leikfélag Reykjavíkur sann-
arlega búa yfír þessum kröftum.
„Leikstjórahugmyndimar em
þaulhugsaðar og sjálfum sér sam-
kvæmar í útfærslu, ekki síst er
þar gnótt smáatriða, sem bera
vott um ríka kímnigáfu. í sýning-
unni eru ennfremur sviðs- og
atriðabreytingar, sem jaðra við
hreina snilld." Hann telur dansana
skemmtilega samstfga þessari
kfmni sýningarinnar og fer lofs-
orðum um búningana. Hann
hrósar leik leikaranna enn og aft-
ur og dáist að fjölhæfni þeirra f
söng og dansi. „Eftir 200 sýning-
ar vekur það aðdáun manns
hversu vel þetta er gert.“
Umsögn Bo Ludvigsson lýkur
á þessum orðum: „í stuttu máli
sagt: Verkið sjálft er ekki ýkja
merkilegt en flutningur þess þeim
mun betri. Það að ekki skuli grip-
ið til strútsíjaðra og dinglum-
dangls, eins og gjaman er gert f
söngleikjum, eykur bara áhrifa-
mátt sýningarinnar. Það kann að
vera að þjóðfélagslýsingin í verk-
inu sé veik og yfírborðsleg en það
er annað mál. Þetta er söngleik-
ur. Og söngleikir em víst bara til
ánægjuauka. Það er langt sfðan
ég hef skemmt mér jafn vel f
leikhúsi.“
Þess má að lokum geta að sýn-
ingamar í Gautaborg vom allra
síðustu sýningar á „Landinu".
Það hefur verið sýnt 208 sinn-
um, eða oftar en nokkurt annað
fslenskt verk fajá Leikfélagi
Reykjavíkur. Áhorfendur urðu
alls 43.437.
(Fréttatílkynning)
Borgarfjörður:
Áreksturvið
Varmaland
Hvanneyri.
VIÐ afleggjarann að Varmal-
andi f Borgarfirði rákust í
síðustu viku tvær bifreiðir sam-
an með þeim afleiðingtun að
ðnnur verður að teljast ónýt og
hin er mikið skemmd. Slys urðu
ekki alvarleg á farþegum bif-
reiðanna. Aflfðandi s-beygja er
þar á veginum, afleggjarar til
norðurs og suðurs og skil á
bundnu slitlagi og malarvegi.
Morgunblaðið/Diðrik Jóhannsson
Önnur bifreiðin var mikið skemmd og hin talin ónýt
Þingvellir:
Ekið á jeppa og á brott
UNG hjón urðu heldur leið þeg-
ar þau komust að þvf að ekið
hafði verið á Suzuki-jeppann
þeirra á ÞingvðUum um helg-
ina, en sá sem það gerði hvarf
á brott.
Jeppinn var í Bolabás og ber
hann skráningamúmerið R-50859
og er af árgerð 1983. Aðfaranótt
sunnudagsins var ekið harkalega
á jeppann, með þeim afleiðingum
að önnur hurðin gekk inn í sæti
og dyraumbúnaður og þak
skemmdist. Við jeppann voru för
eftir grófmunstraða hjólbarða og
svört málning eða gúmmí fannst
á jeppanum. Þá hefur þokuljós
með gulu gleri og svartri plasthlíf
losnað af biffeiðinni sem var ekið
á jeppann.
Lögreglan á Selfossi óskar eftir
að hafa tal af ökumanni hvítrar
Range Rover-bifreiðar, sem var á
Þingvöllum frá kl. 3-4 aðfaranótt
sunnudagsins. Þá eru þéir sem
eitthvað þekkja til málsins beðnir
um að gefa sig fram. i