Morgunblaðið - 02.07.1987, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 1987
21
Þing norrænna
brunavarða:
Vítur sam-
þykktar á
slökkviliðs-
stjórann í
Reykjavík
Á ÞINGI norrænna brunavarða,
sem haldið var Osló í Noregi
fyrir skömmu, var samþykkt
ályktun, þar sem Rúnar Bjarna-
son slökkviliðsstjóri í Reykjavík,
er harðlega gagnrýndur fyrir að
hafa fengið lögreglu til að hindra
að brunaverðir færu á fund um
kjaramál.
Ármann Pétursson formaður
Brunavarðafélags Íslands staðfesti
að þingið hefði samþykkt vítur á
Rúnar Bjamason vegna þess at-
burðar er lögreglumenn vom
fengnir til þess, að undirlagi
slökkviliðsstjóra, að gæta þess að
brunaverðir á vakt fæm ekki á fund
um kjaramál í apríl í vor. Ármann
sagði að ályktunin hefði verið send
slökkviliðsstjóra persónulega og því
vildi hann ekki gefa upp efni henn-
ar nánar. Hann sagði að ályktanir
af þessu tagi væm ekki samþykktar
nema um alvarleg mál væri að
ræða. Síðasta ályktun þings norr-
ænna bmnavarða árið 1986 hefði
til dæmis verið vegna kjamorku-
slyssins í Chemobyl. Ármann sagði
það enda óþekkt í siðmenntuðum
ríkjum nú á dögum að menn sýndu
sömu viðbrögð og slökkviliðsstjóri
hefði gert í þetta skipti.
Rúnar Bjarnason, slökkviliðs-
stjóri, sagði í samtali við blaðið að
hann vildi ekki láta hafa neitt eftir
sér um þetta mál.
V^terkurog
k-J hagkvæmur
auglýsingamiðill!
Viö höfum opnaö nýja fullkomna Olís-smurstöö
að Fosshálsi l.Þar fæst smurþjónusta fyrir allar
stærðir og gerðir bíla, frá stærstu vörubílum
til minnstu fólksbfla. Fljót og örugg þjónusta!
BILABORG HF.
FOSSHÁLSI 1, S.68 12 99.
Meö ánægju kunngerum við viðskiptavinum okkarað við
opnum nýja, stærri og betri Habitat verslun á morgun.
hab itat
Verslun - póstverslun, Laugavegi 13, sími 625870