Morgunblaðið - 02.07.1987, Síða 42
Votheysturnar úr
glerhúðuðum stál-
plötum að rísa víða
NÝSTÁRLEGIR votheysturnar eru nú að rísa víða í Eyjafirði. í fyrra
fékk Sigurgeir Pálsson, bóndi í Sigtúni í Ongulsstaðahreppi, sér
slíkan turn og sagði hann í samtali við Morgunblaðið að reynslan
væri góð eftir árið. Nú hafa fimm bændur í viðbót í Eyjafirði reist
slíka turna hjá sér.
*' Þeir eru á Ytra-Laugalandi og
Rifkelsstað í Öngulsstaðahreppi,
Espihól í Hrafnagilshreppi og
Grænuhlíð og Æsustöðum í Saur-
bæjarhreppi. Sigurgeir sagðist
hálfþurrka heyið í um það bil einn
dag áður en hann setti það í tum-
inn. Aðferðin væri lík hefðbundinni
votheysþurrkun nema hvað heyið
væri þurrkað örlítið meira. Tum-
amir em úr glerhúðuðum stálplöt-
um og er það búnaðardeild
Sambandsins sem flytur tumana
inn frá Bretlandi. Sigurgeir sagði
að tumarnir væm mun heppilegri
hvað allt viðhald varðaði og ekki
þyrfti til dæmis að mála þá og
skrapa líkt og steynsteyptu tum-
ana. Tuminn hjá Sigurgeiri rúmar
60 kýrfóður og er stærstur þeirra
sem hér í Eyjafirðinum em. Fyrstu
tumamir vom reistir í Borgarfírði
og sunnan við Akranes árið 1979.
Að sögn Sigurgeirs éta kýmar
meira af þessu heyi þegar það er
hálfþurrkað heldur en þegar það
er tekið beint af túnum eftir slátt.
Einii hinna nýju votheystuma í Eyjafirði, að Ytra-Laugalandi
Eyrarlandsstofa er nú í Lystigarðinum á Akureyri
Eyrarlandsstofa varðveitt
í Lystigarði Akureyringa
Mun vera eitt af tíu elstu húsum Akureyrarbæjar
EYRARLANDSSTOFA hefur
verið flutt úr stað um 50 metra,
frá lóð Fjórðungssjúkrahúss Ak-
ureyrar þar sem húsið var notað
sem skrifstofuhúsnæði FSA, í
Lystigarðinn á Akureyri þar sem
húsið verður varðveitt og nýtt
sem vinnuaðstaða fyrir starfs-
fólk garðsins. Haldinn var sl.
þriðjudag vígsluathöfn í Lysti-
garðinum af því tilefni þar sem
bæjarstjórinn, Sigfús Jónsson,
flutti ávarp, auk Ágústar Berg
húsameistara og Þorsteins Gunn-
arssonar arkitekts og leikara.
Húsið er einlyft timburhús með
háu kvistlausu risi. Húsið byggði
Magnús Thorarensen, sonur Stef-
áns Þórarinssonar amtmanns á
Möðmvöllum í Hörgárdal og Ragn-
heiðar Vigfúsdóttur Schevings, sem
íbúðarhús fyrir sig og Ijolskyldu
sína, en Magnús var kvæntur Geir-
þrúði Thorarensen, fæddri Thyrres-
tmp.
Nokkur óvissa hefur ríkt um
byggingarár, en leidd hafa verið
að því rök að húsið hljóti að vera
byggt fyrir 1846. Elsta hús á Akur-
eyri er sem kunnugt er Laxdalshús,
byggt 1795. Næst elsta húsið mun
vera Gamli spítali byggður 1836.
Auk þeirra standa enn fímm hús í
innbænum og fjömnni, sem byggð
vom á ámnum 1840 til 1845. Eyr-
arlandsstofa er því vafalaust eitt
af tíu elstu húsum á Akureyri.
Smiður hússins mun hafa verið
Magnús Elíasson.
Klippt af
60 bílum
LÖGREGLAN hefur nú klippt
númerin af 50 til 60 bílum sem
ekki hafa verið skoðaðir.
Unnur Elva Amardóttir lögreglu-
þjónn sagði í samtali við Morgun-
blaðið að það væri venjan að
lögreglan á Akureyri klippti númer
af óskoðuðum bifreiðum. Þessar
aðgerðir nú væm vægar ef miðað
væri við undanfarin ár.
Morgunblaðið/Svavar B. Magnússon
Ólafur Bekkur frá Ólafsfirði í skipasmíðastöð í Póllandi
Heldur að rofa til í
byg’gingariðnaðinum
- segir Jón Geir Ágústsson, byggingar-
fulltrúi Akureyrarbæjar
„Mér sýnist heldur vera að rofa
til í byggingariðnaðinum nú á
þessu ári miðað við undanfarin
tvö til þijú ár,“ sagði Jón Geir
Ágústsson, byggingafulltrúi Ak-
ureyrarbæjar í samtali við
Morgunblaðið, er hann var innt-
ur eftir því hvort byggingum
færi fjölgandi í kjölfar þennslu
i atvinnulífinu á svæðinu sem
borið hefur á að undanförnu.
Jón Geir sagði að útlitið væri
mun betra hvað nýbyggingar snerti
en undanfarin tvö til þijú ár. Útlit
væri fyrir að meira yrði byggt á
þessu ári, en þá þegar byggð vom
að meðaltali 24 til 25 íbúðir á ári.
„Við viljum gjaman að fólkið sjálft
byggi hús sín enda nóg af lóðum til
í bænum. Hinsvegar em þær bygg-
ingar sem nú er verið að reisa að
mestum hluta til á vegum bygging-
arverktaka, bæði fjölbýlis- og
raðhús. Nokkuð ber á því að fólk
vilji ekki lóðirnar út í Glerárhverfi
þar sem jarðvegsdýpi er þar nokkuð
mikið og því nokkuð kostnaðarsam-
ara að byggja þar en annars
staðar.“
Jón Geir sagði að þessi fjölgun
bygginga væri þó lítil miðað við þær
framkvæmdir sem fram fóm í bæn-
um fyrir 1980 þegar byggðar vom
allt yfir 200 íbúðir á ári. Mikill
skortur er nú á leiguhúsnæði á
Akureyri og ekki er ráðgert áð
byggja leiguíbúðir að sinni á vegum
bæjarins. Jón Geir sagði að það
væri staðreynd að verð á notuðum
íbúðum hefði hækkað á örfáum vik-
um nú í sumar og væri mismunur-
inn á þeim og nýjum íbúðum ekki
orðinn ýkja mikill.
Gert við 6 japanska
togara í Póllandi
TOGARARNIR Ólafur Bekk-
ur frá Ólafsfirði og Vest-
mannaey VE eru nú í Póllandi
í allsherjarviðgerð, sem taka
mun allt að 8 mánuði og kosta
100-110 milljónir króna fyrir
hvorn togara. Þeir voru báðir
keyptir frá Japan, en gerður
hefur verið samningur við
Pólveija um viðgerð á 6 jap-
önskum togurum á þessu ári,
og er sá fyrsti, Hoffell frá
Fáskrúðsfirði, þegar kominn
til landsins eftir að hafa verið
úti í 8 mánuði.
Þorsteinn Ásgeirsson, fram-
kvæmdastjóri Útgerðarfélags
Ólafsfirðinga, sagði í samtali við
Morgunblaðið að ákveðið hefði
verið að gera þennan samning
við Pólverja þegar í ljós kom
hversu sérstaklega lágt verðið
væri fyrir viðgerðirnar, en óhætt
væri að segja að það þyrfti að
endumýja alla togarana að veru-
legu leyti. Hann nefndi að meðal
annars yrðu þeir allir lengdir um
6,6 metra og sett á þá perust-
efni. Skipt yrði um skrúfu, vél
og gír, auk þess sem skipt yrði
um nær alla klæðningu og stýris-
hús á þeim öllum nema Hoffell-
inu.
Alls hafa tíu togarar verið
keyptir frá Japan. Einn þeirra,
Drangey SK, var sendur til
Þýskalands í fyrra til viðgerðar,
en þeir togarar sem fara til við-
gerðar í Póllandi auk þeirra sem
eru þar nú og Hoffellsins eru;
Brettingur frá Vopnafirði, Ljósa-
fell frá _ Fáskrúðsfirði og Páll
Pálsson ÍS frá Hnífsdal.