Morgunblaðið - 03.07.1987, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 03.07.1987, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. JÚLÍ 1987 21 Finnur Magnússon, sænsk- menntaður þjóðháttafræðingur, fjallaði um „vinnugleði" íslendinga — það var kominn tími til, við ætt- um Evrópumetið í lengd vinnuviku. Finnur athugar hvað mótaði af- stöðu íslenskra verkamanna til vinnunnar, með því að kanna að- stæður verkamanna á Eyrarbakka og Stokkseyri á árunum 1880 til 1940. Finnur telur að hugmyndir um vinnuna tengist hugmyndum manna um sjálfsvirðingu. Kirsten Harstrup, danskur mannfræðingur, notar fomsögum- ar til að kanna heimsmynd íslend- inga. Kirsten varð tíðrætt um rannsóknir íslendinga á eigin þjóð, og þá staðreynd að mannfræðingar hafa á undanfömum tíu ámm lagt æ meiri áherslu á rannsóknir á eig- in samfélögum. Kirsten telur Is- lendinga hafa mjög ákveðnar hugmyndir um skilin milli sjónar- homs þess manns, sem „stendur fyrir utan“ og þess sem er innan- garðs. Flestir íslensku mannfræð- inganna starfa heima og flestir námsmenn gera rannsóknir á ís- landi. Sumir útlendu fræðimann- anna virtust hafa áhyggjur af þessari þróun og bentu á að glöggt er gests augað. En rannsóknir Gísla Pálssonar á sambúð manns og sjávar og Ingu Dóm Bjömsdóttur á íslenskum kon- um sem giftust erlendum hermönn- um í síðari heimsstyijöldinni benda til hins gagnstæða. Þeim hefur tek- ist vel að nýta sér þá kosti sem felast í því að vera innfæddur og tilheyra samfélaginu, en geta jafn- framt „greint skóginn fyrir tiján- um“. Islenskir mannfræðingar dvelja ámm saman við nám í útlönd- um, kynnast þar annarri menningu og læra að horfa á samfélag sitt „utanfrá". Undir lok ráðstefnunnar dró Halldór Stefánsson, sem starfar í Japan, saman efni umræðnanna. Hafi tilgangur ráðstefnunnar verið að komast að heildamiðurstöðu og finna eitthvað sem kalla mætti íslenska mannfræði, mistókst það ætlunarverk. Mikið var rætt um framtíð mann- fræðinnar og hvernig mætti gera hana „sýnilegri". Haraldur Ólafs- son, sem rannsakar nú hugmynda- heim veiðimannsins, með því að líta á refi og refaskyttur, benti nemend- um á að þeir þyrftu ekki að kvíða framtíðinni — þeir gætu að minnsta kosti alltaf farið á þing ef ekki annað. Fáar fræðigreinar geta stát- að sig af sv -> stóru hlutfalli fyrrver- andi þingmanna í sínum röðum og vaknar sú spuming hvort val Har- aldar og annarra á rannsóknarefni, endurspegli reynsluna af þing- setunni? Gísli Pálsson og Paui Durren- berger hlutu lof fyrir vel skipulagða ráðstefnu og kvöddust menn kátir og samrýndir, þrátt fyrir að ekkert samkomulag hefði orðið um „mann- fræði íslands". Texti: Ragnhildur Vig- fúsdóttir/JÁS Fjölskyldu- hátíð á Kumbara- vogi STJÓRN Kumbaravogsheimilis- ins, þar sem nú eru rúmlega 60 vistmenn, efnir til fjölskylduhá- tíðar á sunnudaginn kemur, 5. júlf. Hefst hátíðin kl. 14.30 með móttöku og verður þá flutt hug- vekja sem sr. Úlfar Guðmundsson, prestur heimilisins, flytur. Kaffi- veitingar verða og fjöldasöngur. Læknir heimilisins, Magnús Sig- urðsson, flytur hugleiðingu. Rætt verður um þann möguleika að stofna vina- og aðstandendafélag Kumbaravogsheimilisins. Munu þau Erla Friðriksdóttir hjúkmna- rforstjóri og Kristján Friðbertsson, forstöðumaður heimilisins, hafa framsögu um það mál. Stjórn Kumbaravogsheimilisins væntir þess að aðstandendur vist- manna og velunnarar heimilisins komi því við að koma á þessa fjöl- skylduhátíð og taka þátt í dagskrá hennar. Vestfirskir fisk- kaupendur: Leita upp- lýsinga um fiskverð „VIÐ erum ekki tilbúnir til þess að trúa því að við séum með lægsta fiskverðið, en þessa stundina erum við að verða okk- ur úti um upplýsingar um fiskverð annarsstaðar," sagði Konráð Jakobsson, formaður Félagfs fiskvinnslustöðva á Vest- fjörðum, í samtali við Morgun- blaðið. Sjómenn á norðanverðum Vest- fjörðum hafa hótað að hætta að sigla á mánudaginn ef ekki semst um hærra fiskverð við fiskkau- pendur en þeir ákváðu einhliða fyrir skömmu. „Þegar upplýsing- arnar liggja fyrir ákveðum við hvað við gerum en við erum ekk- ert órólegir fyrr en þetta kemur til framkvæmda," sagði Konráð. Jocelyn Brown 1 Evropu BANDARÍSKA söngkonan Joce- lyn Brown er nú stödd á íslandi og mun koma fram á veitmga húsinu Evrópu við Borgartún. Hún mun skemmta bæði föstu- dags- og laugardagskvöld, 3. og 4. júlí. I fréttatilkynningu frá veitinga- húsinu Evrópu segir að Jocelyn Brown hafi hafið feril sinn sem söngkona aðeins fjögurra ára göm- ul er hún gekk til liðs við gospel- söngflokk ömmu sinnar. Seinna sneri hún sér að popptónlistinni og hefur sungið bakraddir hjá ýmsum frægum tónlistamönnum. Jocelyn hóf sólóferil sinn árið 1984 er hún gerði frægt lagið „Somebody Elseá Guy“ og segir í fréttatilkynningunni að í dag sé hún mjög eftirsótt söngkona í Banda- ríkjunum. Söngskemmtanir Jocelyn Brown í Evrópu um helgina munu hefjast Bandaríska söngkonan Jocelyn Brown. á miðnætti föstudagskvöld og um kl.1.30 á laugardagsnóttina. Philips sjónvöcp 20” með þráðlausn fjarstýringu skráning á skjá á öllum stillingum, Litir: Svart og grátt. VERÐ AÐEINS KR. 20” án fjarstýringar Frábserlega hagkvæm kaup í urvalstæki. Mvnd og tóngæði í sérflokki. 8 stoöva nflnni. Stafræn (digital) skranmg a s ) öllum stillingum, ofl. ofl. Litir: Hnota og grátt. VERÐ AÐEINS KR. 16” ferðasjónvarp an fjarstýringar -^^Tí^stööva minni. Stunga i m ^hæeymyart6Unnbyggtloftnet,ofl.ofl. = Litir: svart og gratt. VERÐ aðeins kr. líaM^staNnn ofl. Litur: svart og grátt. VERÐ AÐEINS KR MEÐ SPENNUBREYTIAÐEINSKR. 31.980." HeimilistæW hf 1 ■■■íTaFNARSTWET. 3-SIM.: 69 15 2! SÆTÚNI 8-SÍMI: 69 tfð í SOMMtífUfit

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.