Morgunblaðið - 03.07.1987, Side 37

Morgunblaðið - 03.07.1987, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. JÚLÍ 1987 37 Minning: Agnar Ivars Fæddur 14. febrúar 1917 Dáinn 26. júní 1987 í dag verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík tengdafað- ir minn, Agnar ívars. Hann andaðist í Landakotsspítala 26. júní sl. eftir stutta sjúkdómslegu. Agnar var sonur hjónanna Jóns ívars, sem var aðalgjaldkeri hjá Búnaðarbanka íslands, og Rósu ívars. Þau eignuðust tvö böm auk Agnars, Edgar og Önnu Steinunni en þau létust bæði á unga aldri. Agnar var tvígiftur. Fyrri konu sína, Guðrúnu Helgadóttur ívars, missti hann unga að árum. Þeim varð ekki bama auðið. Með seinni konu sinni, Svövu Felixdóttur, eignaðist hann tvö böm; Jón ívars f. 27. maí 1954, kvæntan undirritaðri og eiga þau einn son, Ara, og Guðrúnu ívars f. 21. desember 1955, gifta Zop- haní- asi Sigurðssyni og eiga þau eina dóttur, Svövu. Agnar og Svava slitu síðar sam- vistum en góður vinskapur hélst með þeim fram á síðasta dag og var Svava honum mikil stoð og stytta í veikindum hans þessar síðustu vikur. Eftir að Jón faðir hans dó hélt Agnar heimili með móður sinni, Rósu, á Hávallagötu 11 í Reykjavík. Rósa dó fyrir einu og hálfu ári, þá orðin 93 ára gömul. Agnar var lærður húsgagna- bólstrari og starfaði við það lengst af. Agnar hélt mikið upp á bömin sín og hélt góðu sambandi við þau og fjölskyldur þeirra. Þeir Nonni, eins og maðurinn minn er oftast kallaður, fóm oft saman á völlinn eða í bíó og oft kom tengdapabbi heim til okkar eða Guðrúnar, dóttur sinnar. Eins vor- um við tíðir gestir á Hávallagötunni. Bamabömin vom hænd að afa sínum enda gaf hann sér alltaf tíma til að spjalla við þau um lífið og tilvemna. Ég minnist þess að Agnar hélt upp á sjötugsafmæli sitt í febrúar sl. ásamt okkur bömum hans og tengdabömum. Það var alltaf stutt í húmorinn hjá Agnari og við áttum þama saman reglulega skemmtilegt kvöld. Ekki gmnaði okkur að þetta yrði síðasti afmælisfagnaður Agn- ars. Það skipast fljótt veður í lofti. Agnar var blíðlyndur maður og átti stórt og gjaldmilt hjarta. Hann var alltaf tilbúinn að hjálpa hvort heldur það var að passa afabömin sín eða aðstoða á einhvem annan hátt. Núna getum við ekki lengur „skroppið vestureftir" eins og við sögðum svo oft. Þeim kafla í lífi okkar er lokið en minningamar frá Hávallagötunni lifa með okkur. Ég vil að lokum þakka tengda- föður mínum, Agnari ívars, sam- fylgdina og hans hlýhug til mín og minna. Blessuð sé minning hans. Guðlaug Björgvinsdóttir Þau urðu ekki mörg árin sem við áttum með honum Agnari afa, en þó geyma þau margar góðar minn- ingar. Heimilið á Hávallagötunni var einn af föstum punktum tilvemnnar og þangað var gott að koma. f öllum ys og þys nútímans var gott að eiga athvarf hjá afa. Sitja í eldhúsinu og spjalla saman yfir mjólkurglasi eða spila lúdó inni í stofu. Og alltaf var nú afi besta dag- mamman. Þegar pabbi og mamma þurftu eitthvað að stússast var vin- sælt að skjóta okkur inn hjá afa á meðan. Þá var stundum farið í labbitúr niður í bæ að skoða fólkið og oft lá svo leiðin niður að tjöm að gefa bra-bra. Og mikið þótti okkur krökkunum gaman þegar við feng- um að taka strætó aftur heim með afa. Afa þótti mjög gaman að ferðast um landið okkar og fómm við marg- ar ferðir saman. Síðasta ferðin okkar var farin í sumarbústað á Kirkjubæjarklaustri aðeins mánuði áður en afi dó. Þessa ferð höfðum við ráðgert með löng- um fyrirvara, löngu áður en veikindi afa komu í ljós. En afí var ákveðinn í því að fara þessa ferð þótt hann væri orðinn mikið veikur og mjög af honum dregið. Hann hefur sjálf- sagt vitað að þetta yrði síðasta ferðin okkar saman. Veiðistöngin var að sjálfsögðu tekin með og einn daginn þegar pabbar okkar höfðu staðið við vatn- ið fram á kvöld án þess að verða varir kom afí niður að vatni og náði tveimur fallegum fískum á tæpum hálftima við mikla hrifningu viðstaddra. Að vísu urðu pabbar okkar hálf kindarlegir. Já, við áttum margar góðar stundir með honum afa og þær stundir eru okkur dýrmætar. Við kveðjum afa okkar með sökn- uði og huggum okkur við að nú finnur hann ekki lengur til. Við þökkum honum allt sem hann var okkur þessi ár og geymum minning- una um góðan afa. Svava og Ari Dr. Guðmundur Ingi Þorbergs- son Doktorí eðlisfræði HINN 19. maí sl. iauk Guðmund- ur Ingi Þorbergsson doktors- prófi í eðlisfræði frá Rutgers- háskóla í New Jersey, Bandaríkjunum. Doktorsritgerð hans fjallaði um vandamál á sviði þéttefnisfræðinnar (condensed matter physics). Guðmundur er fæddur í Reykjavík 11. febrúar 1959, sonur hjónanna Þorbergs Guðlaugssonar veggfóðr- arameistara og Olafar Guðmunds- dóttur húsmóður, Frakkastíg 5. Hann lauk stúdentsprófi frá Mennta- skólanum í Reykjavík 1979 og BS-prófi í eðlisfræði frá Háskóla ís- lands árið 1982. Haustið 1982 hóf hann doktorsnám við Rutgers- háskóla. Guðmundur fer í haust til starfa við eðlisfræðistofnun Norðurlanda, NORDITA, í Kaupmannahöfn. smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar UTIVISTARFERÐIR Laugardagur 4. júlí kl.8.00. Hekla. Gengið úr Skjólkvium. 7-8 klst. ganga. Verð 1.100,- kr. Sunnudagur 5. júlí Kl. 8.00 Þórsmörk — Goöaland. Stansað 3-4 kls. í Mörkinni. Verð 1.000,- kr. Kl. 13.00 Húshólml — Gamla Kríauvlk. Létt ganga. Minjar fornrar byggðar í ögmunda- hrauni skoðaöar. Verö 600.- kr. Brottför frá BS(. bensínsölu. Miðvikudagsferð (Þórsmörk kl. 8.00. Fyrir sumardvalargesti. Helgarferðir ( Þórsmörk um hverja helgi. Frábser gistiaö- staða í Útivistarskálunum Básum. Kjölur — Skagl — Sprengisand- ur 5 dagar 8.-12. júlí. Siglt í Drangey. Fjölbreytt ferð. Góð gisting. Landmannalaugar — Þórsmörk S dagar, 8.-12. júli. Gönguferð. Gist í skálum. Uppl. og farm. á skrifst. Grófinni 1, símar: 14606 og 23732. Sjáumst! Útivist, ferðafélag. 1927 60 ára 1987 FERÐAFÉLAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU3 SÍMAR11798 og 19533. Helgarferðir 3.-5. júlf: 1) Hagavatn — Jarlhettur Gist í tjöldum og húsi. Göngu- ferð í Jarlhettudal og víðar. Fararstjóri: Tryggvi Halldórsson. 2) Hagavatn — Hlöðuvellir — Geysir/gönguferð Gengið frá Hagavatni um Hlöðu- velli að Geysi. Gist I húsum. Fararstjóri: Jón Viðar Sigurðsson. 3) Þórsmörk - Gist ( Skag- fjörðsskála/Langadal Fararstjóri: Leifur Þorsteinsson. Nýjung fyrir gesti F.l. í Þórs- mörit. „RATLEIKUR-. Ratleikur er skemmtileg daegra- dvöl fyrir fólk á öllum aldri. Upplýsingar hjá húsvörðum Skag- fjörðsskála og fararstjórum F.l. Sumarleyfisferðir Ferðafélagsins: 2. -10. júl( (9 dagarj: AÐALVÍK Gist i tjöldum á Látrum í Aðalvik. Daglegar gönguferðir frá tjald- stað. Fararstjóri: Gísli Hjartarson. 3. -8. júlf (6 dagarj: Landmanna- laugar — Þórsmörk. 7.-12. júl( (6 dagarj: Sunnan- verðir Austfirðir — Djúpivogur. Gist í svefnpokaplássi. Ekið á tveimur dögum austur, dvalið tvo daga á Djúpavogi og farnar dagsferðir þaðan. Fararstjóri: Sigurður Kristinsson. 10.-15. júlf (8 dagarj: Land- mannalaugar — Þórsmörk. Fararstjóri: Amar Jónsson. Ath.: Takmarkaður fjöldi í „Lauga- vegsferöimar”. Farmiöasala og upplýsingar á skrifstofu F.l. Nœsta miðvikudagsferð til Þórs- meritur verður kl. 08.00, 8. júlf. Ferðafélag fslands. 1927 60 ára 1987 FERÐAFÉLAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU3 SÍMAR11798 og 19533. Dagsferðir Ferðafélagsins: Laugardagur 4. júlí: 1. Kl. 09 - Bláfell (1160 m). Gengið frá Bláfellshálsi. 2. Kl. 09 — Gengið með Hvitá oA Áhóta 3. Kl. 09 - Hvitárnes. Ekið að sæluhúsi Ff í Hvítárnesi. Verð i allar ferðirnar er kr. 1.200. Sunnudagur 5. júlf: 1. Kl. 08. Þórsmörk — dags- ferð. Verð kr. 1.000. Dvalargestir ættu aö huga aö þessari ferð. Kl. 10. Bliqöll - Heiðin Há - Hliðarvatn. Gengið frá þjónustumiðstöðinni í Bláfjöllum um Heiðina Há að Hlíðarvatni. Verð kr. 600. 3. Kl. 13. Herdísarvfk - Hlíðar- vatn. Gengið um i fjörunni v/Herdisarvik og að Hliðarvatni. Verö kr. 600. Brottför í allar ferðirnar er frá Umferðarmiöstöðinni, austan- megin. Farmiðar við bfl. Fritt fyrir böm í fylgd fullorðinna. Ferðafélag fslands. raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar IIFIMDALl.UR Þingvallaferð Heimdallur mun halda til Þingvalla í sina árlegu tjaldútilegu helgina 11.-12. júli nk. Farið verður i langferðabll frá Valhöll kl. 10.00 á laug- ardagsmorguninn, en einnig er mönnum frjálst að koma á einkabilum. Meðal fyrirhugaöra dagskrárliða eru: • Fræðsluferð á Lögberg • Grillveisla og kvöldvaka með söng og glensi á laugardagskvöldinu. • Hinn frægi útilegumorgunveröur kókópöffs og mjólk, framreiddur I hjólbörum á sunnudagsmorgun. • Knattspyrnuleikur I stórþýfi Skráning og nánari upplýsingar eru I slma 82900. Áhugasamir eru vinsamlegast beðnir að skrá sig fyrir 10. Júl(. Þeir, sem hyggjast koma á einkabllum, eru einnig beðnir að tilkynna þátttöku, svo aö nóg kókópöffs verði til handa öllum. Rútugjald verður ákveðið síðar, en þvi verður mjög I hóf stillt. Sumarferð Varðar 4. júlf Hringferð um Snæfellsnes Sumarferö Landsmálafélagsins Varðar verður farin laugardaginn 4. júlí nk. Lagt verður af staö frá sjálfstæðishúsinu Valhöll kl. 8.00. Áætlaöur komutími er kl. 20.00. Að þessu sinni verður ekið um Snæfellsnes. Fyrsti áfangastaður verður við Langá. Þar mun Jónas Bjarnason formaöur Varðar ávarpa þátttakendur. Siðan verður ekið sem leiö liggur að Búðum og þar snæddur hádegisverður. Að Búðum mun Þorsteinn Pálsson formað- ur Sjálfstæðisflokksins flytja ávarp. Aö loknum hádegisveröi verður ekiö yfir Fróðárheiði og til austurs I Grundarfjörð og i Berserkja- hraun þar sem drukkið verður siödegiskaffi. Sigríöur Þóröardóttir oddviti I Grundarfiröi mun þar taka á móti feröalöngum og flytja ávarp. Aö því búnu verður ekið yfir Kerlingarskarð og sem leið liggur til Reykjavíkur. AöaKararstjóri verður Höskuldur Jónsson forseti Ferðafélags fslands. Þátttakendur hafi allar veitingar meöferðis. Miöaverð er aöeins kr. 1150 fyrir fulloröna, kr. 550 fyrir böm á aldrinum 5-12 ára, frítt er fyrir böm yngri en 5 ára. Miðasala fer fram I sjálfstæðishúsinu Valhöll frá kl. 8-18 daglega. Allar upplýsingar og miðapantanir I síma 82900 á sama tíma. Sti'óm Varðar. Kynnist Vestfjörðum Ferðaskrifstofa Vestfjarða býður 5 daga ferð 9. júlí. Fuglabjörg og blómaskrúð Hornbjarg og Hornvík Sigling með djúpbátnum Fagranesi kl. 8.00 að morgni til Hornvíkur og tjaldað þar. Gengið verður á hin hrikalegu fuglabjörg, Hælavíkurbjarg og Hornbjarg og um vel grón- ar víkur þar sem sauðkind hefur ekki sést í fjóra áratugi en rebbi bíður við næsta leiti. Nánari upplýsingar og farpantanir hjá ferða- skrifstofum. Ferðaskrifstofa Vestfjarða, ísatirði, símar 94-3457 og 94-3557. Feröanefnd Haimdallar. I

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.