Morgunblaðið - 14.07.1987, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JUU 1987
Hjónin Guðrún Jónsdóttir og Hákon Bjarnason við stein-
varðann sem reistur var Hákoni til heiðurs við gróður-
reitinn nýja á Mógilsá.
Morgunblaðið/KGA
Hákon Bjarnason fyrrum skógræktar-
stjóri gróðursetur fyrstu öspina af
eitthundrað í nýjum reit við Mógilsá í
Kollafirði sem kenndur er við hann í til-
efni af áttræðisafmæli hans og braut-
ryðjandastarfi í trjárækt.
Trjálundur til heið-
urs Hákoni Bjarnasyni
TIL HEIÐURS Hákoni Bjarna-
syni fyrrum skógræktarstjóra
á áttræðisafmæli hans í gær
voru gróðursettar eitthundrað
Alaskaaspir í reit við rann-
sóknastöð Skógræktar ríkisins
á Mógilsá í Kollafirði. Jafn-
framt hafði verið reistur
steinvarði við lundinn Hákoni
til heiðurs. Skógrækt ríkisins
og Skógræktarfélag íslands
stóðu að þessum táknræna virð-
ingarvotti við Hákon, sem
fyrstur manna lét flytja Alaska-
ösp til íslands.
Sigurður Blöndai skógræktar-
stjóri hélt stutta tölu við stein-
varðann við upphaf athafnarinnar
í hinum nýja Hákonarlundi. Þakk-
aði hann meðal annars Hákoni
fyrir brautryðjandastarf hans um
árin og sagði hann hafa fóstrað
bæði Skógrækt ríkisins og Skóg-
ræktarfélag íslands þegar þau
voru að komast á legg. Hákon
gróðursetti síðan fyrstu öspina af
þeim eitthundrað sem áætlað er
að gróðursetja í lundinum. Að því
loknu bauð skógræktarstjóri
mönnum að fá sér skóflu og gróð-
ursetja eins mikið og þeir gætu.
Voru um fimmtíu manns við at-
höfnina og gróðursetti hver sem
betur gat. Viðstaddir voru Hákon
og fjölskylda hans, Sigurður
Blöndal skógræktarstjóri, Hulda
Valtýsdóttir formaður Skógrækt-
arfélags íslands ásamt stjóm
félagsins og starfsfólk á rann-
sóknastöðinni á Mógilsá.
Gróðursett af kappi. Á myndinni eru meðal annarra Þorsteinn Tómasson forstöðumaður Rannsókna-
stofnunar landbúnaðarins, fyrir miðju, og Guðrún Jónsdóttir eiginkona afmælisbarnsins.
1 -*■ íffyf) ''■Sfí
:
1 j | ' wBMí
■1
wsVm&M, l
Forseti íslands
heimsækir Mön
FORSETI íslands, frú Vigdís
Finnbogadóttir, fór fyrir
skömmu í opinbera heimsókn
til eyjarinnar Manar. Dvaldi
hún þar í þrjá daga.
Landstjóri eyjarinnar, Law-
rence New, og fleiri fyrirmenn
tóku á móti forsetanum á Ron-
aldsway-flugvelli sunnudaginn
5. júlí. Eftir móttökuathöfn á
flugvellinum var haldið til höfuð-
staðar eyjarinnar, Douglas. Um
kvöldið var fosetanum boðið til
veislu í embættisbústað stjórnar-
innar, þar sem Margrét, Breta-
prinsessa, var meðal gesta.
Mánudaginn 6. júlí var frú
Vigdís, heiðursgestur við hátíð-
Forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, kemur til Tynwald hátíð-
arinnar, þar sem New, landstjóri, (í miðju) o.fl. bjóða hana velkomna.
Ör fjölgun tófu í Gullbringusýslu:
70 refir felldir i vor
Vogum.
TÓFU fjölgar ört i Gullbringu-
sýslu að sögn refaskyttu sem
fréttaritari Morgunblaðsins hef-
ur rætt við. Refaskytturnar hafa
fellt um 70 tófur i vor, og virð-
ast tófurnar vera um allt.
Einar Þórðarson refaskytta í
Vatnsleysustrandarhreppi segir til
dæmis að tófurnar séu við bæjar-
dymar hjá sér á Vatnsleysu. Tófúr
hafa verið felldar við Innri-Njarð-
vík, úti á Reykjanesi og víðar. Þá
hafa tófur sést víða, t.d. innan
Varnarliðsstöðvarinnar á Keflavík-
urflugvelli.
Einar Þórðarson og Lárus Krist-
mundsson refaskyttur í Vatnsleysu-
strandarhreppi hafa fellt 22 tófur
í vor, sem er mesti fjöldi að minnsta
kosti um langt skeið. Á síðasta ári
felldu þeir 16 tófur alls. í vor fundu
þeir tvöfalt greni í Hvassahrauni,
það er að þar voru tvær læður í
greninu. Á Vatnsleysuströnd hafa
dauð lömb fundist við tófugreni.
ísólfur Guðmundsson, bóndi í
ísólfsskála, refaskytta í Grindavík-
urlandi, hefur fellt 17 tófur í vor.
Hann skaut 3 tófuyrðlinga í einu
skoti við tófugreni á Vatnsheiði.
í landi Hafnaríjarðar, Garðabæj-
ar og Kópavogs að hluta hafa verið
felldar 10 tófur úr 2 grenjum í vor
að sögn Sigurðar Erlendssonar
refaskyttu. Hermann Ólafsson og
Sveinbjörn Guðmundsson refa-
skyttur í Hafnahreppi hafa fellt
samtals 20 tófur í vor, þar af em
3 tófur er vom felldar í Njarðvíkur-
landi.
Samtals hafa því 6 tófur verið
felldar í ár, sem er svipaður fyöldi
og á síðastliðnu ári. Að sögn Páls
Hersteinssonar veiðistjóra vom
felldar samtals 38 tófur í Gull-
bringusýslu árið 1985 og 31 árið
1984. Samkvæmt upplýsingum frá
veiðistjóra var veiðin frá árinu 1975
eftirfarandi: Árið 1975 vom felldar
8 tófur í sýslunni, en árið 1976
vom þær 5, árið 1977 var engin
tófa veidd, en þær urðu samtals 7
árið 1978, 1979 var engin tófa
felld, en árið 1980 vom þær 2, árin
1981 og 1982 vom engar tófur
veiddar í sýslunni en árið eftir hófst
fjölgun, þá vom veiddar 11 tófur,
árið eftir 31.
EG