Morgunblaðið - 21.07.1987, Síða 1

Morgunblaðið - 21.07.1987, Síða 1
72 SIÐUR B STOFNAÐ 1913 162. tbl. 75. árg. ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 1987 Prentsmiðja Morgnnblaðsins Úrslit portágölsku kosninganna: „Stuðningur við stöðugleikann“ — sagði Cavaco Silva efitir yfirburðasigur Lissabon, Reuter. Sósíaldemó- kratar, undir forystu Anibal Cavaco Silva, forsætisráð- herra, unnu glæsilegan sig- ur og náðu hreinum meiri- hluta í þing- kosningunum í ■ Portúgal á sunnudaginn. Flokkurinn, sem er hægra megin við miðju, þrátt fyrir nafiiið, leggur mikla áherslu á markaðskerfi og einka- framtak. Eitt helsta stefinumál hans er sala rikisfyrirtækja. í gildandi stjómarskrá Portúgals eru ákvæði sem banna að fyrir- tæki, sem eitt sinn hefiir verið þjóðnýtt, verði aftur selt einka- aðilum. Þetta er í fyrsta skipti sem flokk- ur nær hreinum meirihluta í portú- galska þinginu eftir að lýðræði komst á með byltingunni 1974 og hafa alls setið 16 ríkisstjómir á þessu tímabili. Cavaco Silva var óþekktur pró- fessor í hagfræði er hann tók við formennsku í flokki sínum fyrir þrem ámm. Hann varð forsætisráð- herra fyrir hálfu öðm ári og hefur stjóm hans tekist að minnka verð- bólgu og auka hagvöxt. Á frétta- mannafundi í gærkvöldi sagði forsætisráðherrann að mikilvæg- asta málið á næstunni yrði endur- skoðun stjómarskrárinnar. Stjómarskrárbreytingar þarfnast tveggja þriðju hluta atkvæða á þingi til að öðlast gildi. Aðspurður kvaðst Silva vænta þess að stjómar- andstaðan yrði „raunsæ". Svíþjóð: Smjörlík- isflóttí Stokkhólmi, Reuter. SÆNSKA lögreglan upplýsti f gær að leitað væri fanga sem á sunnudaginn hefði tekist að þröngva sér út um klefaglugga sem aðeins er 36 sinnum 15 sm. Maðurinn var allsnakinn og smurður smjörlíki. Verðir f fangelsinu, sem er skammt sunnan Stokkhólms, vom furðu lostnir vegna flótta mannsins, sem er um tvítugt og sat inni vegna ftkniefnabrots. Hann hljóp út um fangelsishliðið sem hafði verið opnað til að hleypa bíl í gegn og fyrir framan nefið á vörðunum hvarf hann síðan inn í nærliggjandi skóg. „Þetta er ótrúlegt. Ég gerði tilraun og mér tókst ekki einu sinni að troða höfðinu í gegn,“ sagði fangelsisvörður f samtali við dagblað. Helstu niðurstöðutölur kosning- anna urðu sem hér segir, en taka skal fram að ekki vom komnar nið- urstöður frá Portúgölum búsettum erlendis, er kjósa §óra þingmenn: Sósíaldemókratar hlutu 50,2% atkvæða og 146 þingsæti, jafnaðar- menn (Sósíalistaflokkurinn) hlutu 22,3% og 59 þingsæti, Sameinaða lýðræðissambandið (kommmúnist- ar) fengu 12,2% og 30 þingsæti. Kristilegir demókratar og flokkur Eanesar, fyrrverandi forseta, biðu afhroð og fengu aðeins fáein þing- sæti hver. Sjá síðu 26: „Hreinn meiri- hluti . . .“ * ^ Iran—Irak: Borg undir vatni Á myndinni sést borgin Sondrio á Norður-Ítalíu, en gífurleg flóð undanfama daga hafa fært borgina að mestu f kaf. Fleiri borgir og þorp í landshlutanum hafa orðið fyrir skakkaföllum af völdum flóðanna og talið er að 15 manns hafi týnt lffí. Sjá einnig síðu 26. Öryggisráðið krefst tafarlauss vopnahlés Óvissa ríkir um viðbrögð írana SÞ, Reuter. ÖRYGGISRÁÐ Sameinuðu þjóð- anna samþykkti í gær samhljóða að kreQast þess að íranir og ír- akar semdu þegar i stað um vopnahlé og drægju heri sína inn fyrir alþjóðlega viðurkennd landamæri ríkjanna tveggja. Samkvæmt reglum SÞ eru öil aðildarriki skuldbundin til að hlíta samþykktinni og Öryggis- ráðið hótaði „frekari aðgerðum" ef ríkin sinntu ekki kröfiinni. Alls eiga 15 ríki fulltrúa í Örygg- isráðinu. Þetta er í fyrsta sinn síðan Persaflóastríðið hófst fyrir sjö árum að ráðið beitir skipunarvaldi sínu gagnvart styijaldaraðilunum og hefur reyndar sjaldan til þess kom- ið f sögu samtakanna, enda geta stórveldin stöðvað slíkar aðgerðir hvert fyrir sig með því að beita neitunarvaldi. Eftir hina sögulegu atkvæða- greiðslu kvaddi Peres _de Cuellar, aðalritari SÞ, fulltrúa írana og ír- aka á sinn fund til viðræðna, en hann hefur um langt skeið reynt að miðla málum í deilu ríkjanna. Fulltrúi íraka var viðstaddur at- kvæðagreiðshma í Öryggisráðinu en íranir hafa hins vegar lengi snið- gengið fundi ráðsins í mótmæla- skyni við afstöðu SÞ til styrialdar- innar sem írakar hófu gegn Irönum á sínum tíma. Ýmsir stjómarerindrekar óttuð- ust að samþykktin myndi engu breyta, ekki síst vegna þess_ að ummæli sumra ráðamanna f íran Reuter Shultz, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, ávarpar fimd Öryggis- ráðsins i gær. Lengst t.v. sést fulltrúi íraka, Daha Kittani. hafa bent til þess að þeir myndu hafa hana að engu. Shultz, utanrík- isráðherra Bandaríkjanna, sagði í gær að stjóm hans væri staðráðin í að láta samþykkt Öryggisráðsins ekki verða pappírsplagg eitt. Bandaríkjamenn hafa lagt til að hunsi stríðsaðilar samþykktina verði öll vopnasala til þeirra bönnuð. Deila írana og Frakka er enn óleyst en Frakkar slitu stjómmála- sambandi við írani á föstudaginn er íranir neituðu að framselja meintan hiyðjuverkamann, sem fengið hefur húsaskjól í sendiráði þeirra í París, að sögn franskra yfírvalda. íranir halda 26 frönskum sendiráðsmönnum í gíslingu í Te- heran og franskir lögreglumenn sitja um íranska sendiráðið í París. I gær sagði útvarpið í Teheran þó að ríkið myndi bregðast við með jákvæðum hætti ef Frakkar létu af umsátri um írönsku sendimenn- ina. Yfirvöld í Teheran hafa einnig gefið sendimönnum Evrópubanda- lagsríkja leyfí til að veita frönsku sendimönnunum neyðarhjálp. Sjá síðu 24 „Vill beita refsiað- gerðum . . .“ Blökkumenn í Suður-Afríku: Vilja fá páfann í heimsókn Jóhannesarborg, Reuter. Útbreiddasta dagblað blökku- manna i Suður-Afríku, The Sowetaa, skoraði í gær á Jóhann- es Pál páfa að endurskoða þá ákvörðun sina að heimsækja ekki landið í ferð sinni til Afríku á næsta ári. Blaðið er gefið út í Soweto, út- borg Jóhannesarborgar. í leiðara þess sagði að heimsókn páfa myndi beina athygli heimsins að vanda- málum landsins. Dagblöð hafa vitnað í embættismenn Páfagarðs sem sögðu að páfinn ætlaði að snið- ganga Suður-Afríku vegna ofsókna stjómvalda Iandsins á hendur blökkumönnum og vildi hann ekki ferðast um með „ruddalegu lög- regluliði" Bothas forseta. „Ef páfinn kæmi hingað í píla- grímsferð til að sýna andstyggð Páfagarðs á kúgun fátækra myndi alþýðan slá um hann skjaldborg," sagði blaðið. Önnur dagblöð töldu einnig að ákvörðun páfa væru mistök. Eitt þeirrá sagði að kaþólikkar í landinu — en 80% þeirra eru svartir — yrðu í rauninni vanræktir vegna synda

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.