Morgunblaðið - 21.07.1987, Blaðsíða 1
72 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
162. tbl. 75. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 1987
Prentsmiðja Morgnnblaðsins
Úrslit portágölsku kosninganna:
„Stuðningur við
stöðugleikann“
— sagði Cavaco Silva efitir yfirburðasigur
Lissabon, Reuter.
Sósíaldemó-
kratar, undir
forystu Anibal
Cavaco Silva,
forsætisráð-
herra, unnu
glæsilegan sig-
ur og náðu
hreinum meiri-
hluta í þing-
kosningunum í ■
Portúgal á
sunnudaginn. Flokkurinn, sem
er hægra megin við miðju, þrátt
fyrir nafiiið, leggur mikla
áherslu á markaðskerfi og einka-
framtak. Eitt helsta stefinumál
hans er sala rikisfyrirtækja. í
gildandi stjómarskrá Portúgals
eru ákvæði sem banna að fyrir-
tæki, sem eitt sinn hefiir verið
þjóðnýtt, verði aftur selt einka-
aðilum.
Þetta er í fyrsta skipti sem flokk-
ur nær hreinum meirihluta í portú-
galska þinginu eftir að lýðræði
komst á með byltingunni 1974 og
hafa alls setið 16 ríkisstjómir á
þessu tímabili.
Cavaco Silva var óþekktur pró-
fessor í hagfræði er hann tók við
formennsku í flokki sínum fyrir
þrem ámm. Hann varð forsætisráð-
herra fyrir hálfu öðm ári og hefur
stjóm hans tekist að minnka verð-
bólgu og auka hagvöxt. Á frétta-
mannafundi í gærkvöldi sagði
forsætisráðherrann að mikilvæg-
asta málið á næstunni yrði endur-
skoðun stjómarskrárinnar.
Stjómarskrárbreytingar þarfnast
tveggja þriðju hluta atkvæða á
þingi til að öðlast gildi. Aðspurður
kvaðst Silva vænta þess að stjómar-
andstaðan yrði „raunsæ".
Svíþjóð:
Smjörlík-
isflóttí
Stokkhólmi, Reuter.
SÆNSKA lögreglan upplýsti f
gær að leitað væri fanga sem
á sunnudaginn hefði tekist að
þröngva sér út um klefaglugga
sem aðeins er 36 sinnum 15 sm.
Maðurinn var allsnakinn og
smurður smjörlíki.
Verðir f fangelsinu, sem er
skammt sunnan Stokkhólms,
vom furðu lostnir vegna flótta
mannsins, sem er um tvítugt og
sat inni vegna ftkniefnabrots.
Hann hljóp út um fangelsishliðið
sem hafði verið opnað til að
hleypa bíl í gegn og fyrir framan
nefið á vörðunum hvarf hann
síðan inn í nærliggjandi skóg.
„Þetta er ótrúlegt. Ég gerði
tilraun og mér tókst ekki einu
sinni að troða höfðinu í gegn,“
sagði fangelsisvörður f samtali
við dagblað.
Helstu niðurstöðutölur kosning-
anna urðu sem hér segir, en taka
skal fram að ekki vom komnar nið-
urstöður frá Portúgölum búsettum
erlendis, er kjósa §óra þingmenn:
Sósíaldemókratar hlutu 50,2%
atkvæða og 146 þingsæti, jafnaðar-
menn (Sósíalistaflokkurinn) hlutu
22,3% og 59 þingsæti, Sameinaða
lýðræðissambandið (kommmúnist-
ar) fengu 12,2% og 30 þingsæti.
Kristilegir demókratar og flokkur
Eanesar, fyrrverandi forseta, biðu
afhroð og fengu aðeins fáein þing-
sæti hver.
Sjá síðu 26: „Hreinn meiri-
hluti . . .“
* ^
Iran—Irak:
Borg undir vatni
Á myndinni sést borgin Sondrio á Norður-Ítalíu, en gífurleg flóð undanfama daga hafa fært borgina að
mestu f kaf. Fleiri borgir og þorp í landshlutanum hafa orðið fyrir skakkaföllum af völdum flóðanna og talið
er að 15 manns hafi týnt lffí.
Sjá einnig síðu 26.
Öryggisráðið krefst
tafarlauss vopnahlés
Óvissa ríkir um
viðbrögð írana
SÞ, Reuter.
ÖRYGGISRÁÐ Sameinuðu þjóð-
anna samþykkti í gær samhljóða
að kreQast þess að íranir og ír-
akar semdu þegar i stað um
vopnahlé og drægju heri sína inn
fyrir alþjóðlega viðurkennd
landamæri ríkjanna tveggja.
Samkvæmt reglum SÞ eru öil
aðildarriki skuldbundin til að
hlíta samþykktinni og Öryggis-
ráðið hótaði „frekari aðgerðum"
ef ríkin sinntu ekki kröfiinni.
Alls eiga 15 ríki fulltrúa í Örygg-
isráðinu. Þetta er í fyrsta sinn síðan
Persaflóastríðið hófst fyrir sjö árum
að ráðið beitir skipunarvaldi sínu
gagnvart styijaldaraðilunum og
hefur reyndar sjaldan til þess kom-
ið f sögu samtakanna, enda geta
stórveldin stöðvað slíkar aðgerðir
hvert fyrir sig með því að beita
neitunarvaldi.
Eftir hina sögulegu atkvæða-
greiðslu kvaddi Peres _de Cuellar,
aðalritari SÞ, fulltrúa írana og ír-
aka á sinn fund til viðræðna, en
hann hefur um langt skeið reynt
að miðla málum í deilu ríkjanna.
Fulltrúi íraka var viðstaddur at-
kvæðagreiðshma í Öryggisráðinu
en íranir hafa hins vegar lengi snið-
gengið fundi ráðsins í mótmæla-
skyni við afstöðu SÞ til styrialdar-
innar sem írakar hófu gegn Irönum
á sínum tíma.
Ýmsir stjómarerindrekar óttuð-
ust að samþykktin myndi engu
breyta, ekki síst vegna þess_ að
ummæli sumra ráðamanna f íran
Reuter
Shultz, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, ávarpar fimd Öryggis-
ráðsins i gær. Lengst t.v. sést fulltrúi íraka, Daha Kittani.
hafa bent til þess að þeir myndu
hafa hana að engu. Shultz, utanrík-
isráðherra Bandaríkjanna, sagði í
gær að stjóm hans væri staðráðin
í að láta samþykkt Öryggisráðsins
ekki verða pappírsplagg eitt.
Bandaríkjamenn hafa lagt til að
hunsi stríðsaðilar samþykktina
verði öll vopnasala til þeirra bönnuð.
Deila írana og Frakka er enn
óleyst en Frakkar slitu stjómmála-
sambandi við írani á föstudaginn
er íranir neituðu að framselja
meintan hiyðjuverkamann, sem
fengið hefur húsaskjól í sendiráði
þeirra í París, að sögn franskra
yfírvalda. íranir halda 26 frönskum
sendiráðsmönnum í gíslingu í Te-
heran og franskir lögreglumenn
sitja um íranska sendiráðið í París.
I gær sagði útvarpið í Teheran þó
að ríkið myndi bregðast við með
jákvæðum hætti ef Frakkar létu
af umsátri um írönsku sendimenn-
ina. Yfirvöld í Teheran hafa einnig
gefið sendimönnum Evrópubanda-
lagsríkja leyfí til að veita frönsku
sendimönnunum neyðarhjálp.
Sjá síðu 24 „Vill beita refsiað-
gerðum . . .“
Blökkumenn í Suður-Afríku:
Vilja fá páfann í heimsókn
Jóhannesarborg, Reuter.
Útbreiddasta dagblað blökku-
manna i Suður-Afríku, The
Sowetaa, skoraði í gær á Jóhann-
es Pál páfa að endurskoða þá
ákvörðun sina að heimsækja ekki
landið í ferð sinni til Afríku á
næsta ári.
Blaðið er gefið út í Soweto, út-
borg Jóhannesarborgar. í leiðara
þess sagði að heimsókn páfa myndi
beina athygli heimsins að vanda-
málum landsins. Dagblöð hafa
vitnað í embættismenn Páfagarðs
sem sögðu að páfinn ætlaði að snið-
ganga Suður-Afríku vegna ofsókna
stjómvalda Iandsins á hendur
blökkumönnum og vildi hann ekki
ferðast um með „ruddalegu lög-
regluliði" Bothas forseta.
„Ef páfinn kæmi hingað í píla-
grímsferð til að sýna andstyggð
Páfagarðs á kúgun fátækra myndi
alþýðan slá um hann skjaldborg,"
sagði blaðið.
Önnur dagblöð töldu einnig að
ákvörðun páfa væru mistök. Eitt
þeirrá sagði að kaþólikkar í landinu
— en 80% þeirra eru svartir — yrðu
í rauninni vanræktir vegna synda