Morgunblaðið - 21.07.1987, Side 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 1987
4
Fjórtán fórust í
flóðunum á Italiu
Sex manns saknað - Mikið tjón á
húsum og mannvirkjum
Bátur öslar i gegnum vatnselginn að bfl, sem marir svo til í
kafi. Mikill Qöldi bíla og annarra farartækja stórskemmdist í
þessum vatnavöxtum, sem eirðu hvorki fólki, mannvirkjum né
farartækjum.
Morbegno, ítaliu, Heuter.
VITAÐ var um 14 manns í
gær, sem farizt höfðu i fióðun-
um á Norður-Ítalíu að tmdan-
förnu og sex manns var saknað
til viðbótar. Tjón á húsum og
öðrum mannvirkjum er gífur-
legt. Mest varð tjónið í þorpinu
Tarlano nærri svissnesku
landamærunum, þar sem heil
íbúðarblokk sópaðist burt i aur-
skriðu og skall á hóteli, sem
eyðilagðist að mestu leyti.
„Ég sá svart aurflóðið skella á
hótelinu og heyrði böm æpa á
hjálp," var var haft eftir Gino
Reato, 58 ára gömlum manni, en
kona hans fórst fórst í hótelinu,
þar sem þau bjuggu. Þegar hann
rankaði við sér, var hún horfín.
Sjáifur fótbrotnaði hann. „Hér
hefur það gerzt, sem enginn gerði
ráð fyiir að gæti gerzt."
Það er ekki bara á þessum slóð-
um, sem stórslys hafa orðið í
kjölfar mikillar úrkomu. Ekki er
nema vika síðan 22 menn fórust
Það kom fyrir lítið, þó að
þessir tveir menn reyndu f
skyndi að koma upp eins kon-
ar flóðgarði til þess að hindra
vatnið í að flæða inn í hús
þeirra. Hér sjást þeir horfa í
vonleysi á vatnselginn, sem
átti enn eftir að vaxa, er þessi
mynd var tekinn.
í frönsku Ölpunum, er flóðbylgja
féll þar á tjaldstæði.
....**•* '
Sala breskra flugvalla:
Eftirspurnin tífalt
meiri en framboðið
St. Andrewa. Frá Guðmundi Heiðarí Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðains.
FYRIR nokkru síðan voru boðin
út hlutabréf f flugvöllum á Bret-
landi. Gífurlegur Qöldi umsókna
barst um tífalt fleiri bréf en f
boði voru. Tilkynnt var nú um
helgina, að einungis þeir, sem
sóttu um 1000 bréf eða feerri,
fengju hlutabréf.
260.000.000 hlutabréfa á 245
pence hvert voru boðin út á almenn-
um markaði. Útboðið annaðist
fyrirtækið, sem á og rekur breska
flugvelli. Eftirspumin var mjög
mikil. 2,47 milljónir umsókna bár-
ust, þar sem beðið var um 2135
milljónir hlutabréfa eða næstum
tífalt fleiri bréf en í boði voru.
2.150.000 umsóknir voru um færri
hlutabréf en 1000.
Paul Shannon samgöngumála-
ráðherra tilkynnti um helgina, að
einungis þeir, sem sótt höfðu um
færri hlutabréf en 1000, fengju
bréf, og þeir, sem sótt hefðu um
lágmarksfjölda, sem var 150 hluta-
bréf, fengju 100 bréf. Ýmsar
fjármálastofnanir, sem sótt höfðu
um þúsundir hlutabréfa, fengu ekk-
ert. Búast má við, að þær sækist
eftir bréfum, þegar farið verður að
selja þau á almennum markaði. Nú
þegar hefur verð bréfanna hækkað
um 45 pence og líklegt að þau
hækki enn frekar á næstunni.
125.000.000 bréf voru ekki boðin
á -föstu verði, heldur seld hæst-
bjóðanda. Umsóknir bárust um
flmm sinnum fleiri bréf en í boði
voru. Búist er við, að meðalverð á
þeim bréfum verði um 280 pence.
Tilkynnt verður um úthlutun þeirra
bréfa á morgun, miðvikudag.
Mjög vandlega er farið yfír allar
umsóknir til að reyna að koma í
veg fyrir svindl, en hver ein§takling-
ur má aðeins senda inn eina
umsókn. Nú þegar hefur verið kom-
ið upp um einn svindlhring í þessu
útboði. Ifyrrum þingmaður íhalds-
flokksins var staðinn að því að
senda inn margar umsóknir í hluta-
bréf breska símans, þegar hann var
boðinn út. Varð hann að hætta við
framboð í kosningunum í síðasta
mánuði af þeim sökum.
Þingkosningar í Portúgal:
Hreinn meirihluti
Sósíaldemókrata
Lissabon. Reuter.
MIKIL gleði greip um sig meðal
stuðningsmanna Sósíaldemó-
krataflokksins í Portúgal, þegar
atkvæðatölur úr þingkosningun-
um á sunnudag fóru að berast
og I ljós kom að flokkurinn hafði
fengið hreinan meirihluta á
þingi. Þyrptust þeir út á götur,
hrópuðu, dönsuðu og veifiiðu
flokksfánum.
Anibal Cavaco Silva, forsætisráð-
herra og leiðtogi Sósíaldemókrata-
flokksins, sagði í gær er ljóst var
að flokkur hans myndi fá a.m.k.
145 þingsæti af 250, að portúgalska
þjóðin hefði gefið til kynna að hún
vildi stöðugleika í stjómmálum.
Næsta ríkisstjóm verður sú 17. frá
því 1974. Cavaco Silva, sem er
hagfræðidoktor frá breskum há-
skóla, sagði að hann myndi áfram
beita sér fyrir efnahagslegum fram-
förum. Sósíaldemókratar myndu
reyna að fá aðra flokka til að styðja
N ámaverkameim
fara í verkfall
Bretland:
St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttantara Morgnnbladsins.
ELLEFU kolanámur í Suður-
Jórvíkurskiri stöðvuðust í
gærmorgun vegna verkfalls
knlanámamanna. Breska kola-
námafyrirtækið ákvað að víkja
fimm verkamönnum úr vinnu i
Frickley. Stjóm félags náma-
verkamanna í Suður-Jórvík-
urskíri hvatti félagsmenn sína til
að fara ekki i verkfall.
Upphaf þessara átaka er að rekja
til þess, að ríkisfyrirtækið British
Coal, sem rekur nánast allar kola-
námur í landinu, ákvað að setja
nýjar starfsreglur án samráðs við
námaverkamenn, að þeirra eigin
sögn. Verkamennimir segjast illa
sætta sig við þessar nýju reglur og
búið var að ákveða, að almenn at-
kvæðagreiðsla yrði um land allt um
það, hvort grípa ætti til yfírvinnu-
banns til að mótmæla ákvörðun
breska kolanámafyrirtækisins. Þeg-
ar fímm mönnum var vikið frá
störfum í Frickley fyrir helgina
vegna brots á þessum nýju reglum,
ákváðu samstarfsmenn þeirra að
fara í verkfall. Um helgina ákvað
stjóm félags námaverkamanna í
Suður-Jórvíkurskíri að hvetja fé-
lagsmenn til að fara ekki í verkfall,
vegna þess að almenn atkvæða-
greiðsla um þetta efni væri á næstu
grösum. í fyrsta skipti í sögunni
neituðu námaverkamenn í Frickley
að fara að tilmælum stéttarfélags
síns. Allir aðrir námaverkamenn í
Suður-Jórvíkurskíri ákváðu hins
vegar að hlíta tilmælunum. Náma-
verkamenn í Frickley fóm víða um
Suður-Jórvíkurskiri og hvöttu aðra
námaverkamenn til að fara að dæmi
sínu. í gær var ekki unnið í ellefu
námum ( héraðinu, en sex vom í
fullum gangi.
Stjóm breska kolanámafélagsins
sagðist harma ákvörðun náma-
verkamanna í Frickley og varaði
við, að menn mættu ekki til starfa,
því að þá ættu þeir á hættu að
missa vinnuna. Hver, sem ekki
mætti til vinnu í gær, væri að ijúfa
samning við breska kolanámafyrir-
tækið, sagði talsmaður þess.
Þessi átök koma í kjölfar þess,
að ársfundur Sambands breskra
kolanámamanna neitaði að sam-
þykkja sex daga vinnuviku við nýjar
námur - sem breska kolanámafyrir-
tækið segir, að sé nauðsynlegt, til
að þær verði hagkvæmar í rekstri.
Sex daga vinnuvika hefur ekki í för
með sér lengingu vinnutímans, því
að hver verkamaður fengi frí Qórðu
hveija viku.
Arthur Scargill, leiðtogi náma-
manna, beitti sér harkalega gegn
þessari tillögu kolanámafyrirtækis-
ins. Stjóm fyrirtækisins sagðist
mundu semja við önnur verkalýðs-
félög, ef námamenn gengju ekki
að þessu samkomulagi. Almenn at-
kvæðagreiðsla á að fara fram um
þessa tillögu nú á næstunni, jafn-
framt atkvæðagreiðslu um yflr-
vinnubann vegna nýju starfsregln-
anna.
Stuðningsmenn Sósíaldemókrata fagna unnum sigri.
Reuter
Þlurti í þyrlu
Nice, Reuter.
í GÆR flúði franskur sakamað-
ur, sem afþlánaði eins árs
fangelsisdóm fyrir rán, úr tugt-
húsinu með nokkuð óvenjulegum
hætti.
Félagi mannsins utan veggja rændi
þyrlu á flugvellinum i Nice og
neyddi flugmanninn til að fljúga
lágt yflr fangelsisgarðinn. Þar
stökk fanginn upp í þyrluna, sem
síðan lenti á knattspymuvelli í borg-
inni. Er síðast fréttist, tvimenntu
félagamir á vélhjóli á banakeyrslu
undan lögreglunni.
í fyrra tókst eiginkonu glæpa-
mannsins Michel Vaujour að frelsa
hann úr fangelsi í þyrlu, sem hún
hafði æft sig i niu mánuði að fljúga.
Franskir tugthúslimir ásamt vinum
og ættingjum virðast standa James
Bond og félögum á sporði hvað
varðar frumlegar flóttaaðferðir.
veigamiklar breytingar á portúg-
ölsku stjómarskránni sem hann
sagði að stæði í vegi fyrir fram-
þróun. Eftir byltingu hersins 1974
var mikill flöldi fyrirtækja þjóðnýtt-
ur og réttur verkalýðsins til þess
að eiga fyrirtækin bundinn í stjóm-
arskránna.
Síðdegis í gær leit út fyrir að
Sósíalistaflokkurinn héldi sínum 57
þingsætum, en að Lýðræðislegi
endumýjunarflokkurinn, flokkur
Eanesar fyrrum forseta, tapaði
35-40 þingsætum af þeim 47 er
hann áður hafði. Kómmúnistar und-
ir stjóm Alvaro Cunhal, tapa
nokkrum þingsætum og Kristilegir
demókratar, er Adriano Moreira,
er í forsvari fyrir virðast aðeins
munu halda 4 þingsætum af 22 er
þeir höfðu.