Morgunblaðið - 21.07.1987, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRDQJUDAGUR 21. JÚLÍ 1987
29
Morgunblaðið/Kr. Ben.
Stórt hal á síðu Aðalbjargar. Verið að hífa fyrsta pokann innfyrir.
i háseti í kolaaðgerðinni. Á bakvið
iveinn að gera að ýsu.
honum að húkka í pokagjörðina.
Alir unnu þeir saman eins og vel
smurð vél.
Um leið og pokinn var hífður
fram með var ljóst að eitthvað hafði
gefíð sig. Belgurinn flaut fram með
fullur af kola en þyngslin voru
gífurleg þó gefíð væri eftir á blökk-
inni tókst ekki að forða því að
belgurinn sprakk. Gamið, þar sem
það var tvöfalt, dróst til svo meters
löng rifa opnaðist og flæddi kolinn
út. _
Áhöfninni tókst með æsingi og
hrópum að ná upp og innfyrir þeim
hiuta belgsins sem rifnaði en samt
misstu þeir um sex tonn af kola.
Eftir var í pokanum og belgnum
um eitt tonn.
„Þetta er agalegt," sagði Stefán.
„Maður fær bingó einu sinni á ári
og það fer svona."
Þegar átti að kasta aftur var
Aðalbjörg II að hífa rétt hjá okkur
800 kfló af kola. Við urðum að bíða
til að geta kastað því þrengslin
voru of mikil.
Eftir stutt tog komu góðar lóðn-
ingar lflct og í halinu á undan.
„Ég á ekki eitt einasta orð,“ sagði
Stefán. „Þetta hef ég aldrei séð
tvisvar í röð.“ Hann var of undr-
andi og upptekinn við að fylgjast
með dýptarmælinum að hann
gleymdi astikinu og engu mátti
muna að hann drægi ekki nótina
utan um einn klettinn. Hann lagði
hart í stjóm með tilheyrandi orð-
bragði yfír aðgæsluleysinu þegar
hann áttaði sig á hvað var að gerast.
Lóðningamar héldu áfram allan
tímann.
„Strákar, við verðum að hífa.
Ég er í sjálfheldu," kallaði hann
út um brúargluggann.
Þegar nótin var komin upp var
ljóst að þetta hal var engu síðra
en halið á undan, nema nú flaut
belgurinn upp fullur af físki.
„Ég trúi þessu ekki,“ sagði Stef-
án. „Maður lemst á þessu allan
veturinn í vitlausum veðrum til að
ná þessum kvikindum og fær sama
sem ekkert. Nú má maður ekki
veiða þau og þá er allt fullt af þeim.
Bókstaflega flæðir yfír mann án
þess að maður reyni nokkuð til.“
Hann ýtti húfunni fram og klóraði
sér í hnakkanum.
„Ég á eftir 150 tonn af þorski
og sjáðu allan þennan þorsk“ sagði
hann og benti út þar sem strákam-
ir voru í óða önn að blóðga þorskinn
úr fyrstu þrem pokunum svo hífa
mætti meira í móttökuna.
„Hann verður gerður upptækur
ef mér tekst ekki að fá svo mikinn
kola að þessi fískur verði innan við
15%. Ég hef alltaf sagt að það er
ekkert réttlæti í því að þessi 15%
séu reiknuð út á tveggja vikna
fresti. Stundum er allt fullt af físki
sama hvar maður reynir að fá kola
en svo sjáum við ekki físk svo vikum
skiptir.
Nær væri að láta 15% regluna
gilda yfir allt úthaldið sér í lagi á
meðan maður á hellings kvóta.
Hugsast getur að þá mætti eyða
þessari tortiyggni í okkar garð,"
sagði Stefán og svaraði kalli í tal-
stöðina.
Guðbjartur var að hífa inn eitt
tonn rétt hjá okkur. Hann sagðist
hafa farið í okkar far og var hissa
þegar Stefán sagði honum frá öllum
þorskinum því varla sást fískur í
þessu tonni sem hann var að hífa.
Þetta hal reiknaðist skipsveijum
að væri rúm fjögur tonn þar af
væri þorskur og ýsa um þrjú tonn.
Nú færði Stefán sig á aðra bleyðu
í þeirri von að losna úr fískinum
til að freista þess að fá meira af
kola og hugsanlega smálúðu fyrir
tilraunaeldið hjá Islandslaxi hf.
Fiskiríið var þokkalegt það sem
eftir var dagsins, þó smálúðan léti
ekki sjá sig. Þegar lagt var af stað
í land var áætlaður afli fjórtán tonn,
þar af var koli átta tonn, þorskur
um fimm tonn og ýsa, lúða og
steinbítur um eitt tonn.
Þegar ég gekk upp bryggju eftir
velheppnaðan róður með sex ýsur
í poka sem gjöf frá athafnasamri
áhöfn fékk ég homauga frá eftir-
litsmanni sjávarútvegsráðuneytis-
ins.
Erlendir ferðamenn flykktust
niður á bryggjuna og tóku myndir
í gríð og erg af lönduninni í fal-
legri kvöldsólinni og þóttust hafa
himinn höndum tekið yfír myndefn-
inu.
— Kr. Ben.
Bretland:
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir ANDRÉS MAGNÚSSON
Meiðyrðamál Jeffrey
Archer vekur athygli
Reuter
Moniea Coglan á leið í réttarsal-
AÐ UNDANFÖRNU hafa staðið yfir réttarhöld í meiðyrðamáli,
sem breski rithöfundurinn Jeffrey Archer höfðaði gegn síðdegis-
blaðinu The St&r, fyrir að hafa staðhæft að hann hafi átt meira
en lítið vingott við vændiskonu nokkra. Mál þetta kom upp í fyrra
og þurfti Archer að segja af sér varaformennsku íhaldsmálsins
vegna þess, en hann segir að vinni hann málið muni það verða
til þess að hann eigi greiða götu inn í pólítíkina að nýju. Gárun-
garair segja reyndar að málið sé allt þess eðiis að það myndi
sóma sér prýðilega í einhverri skáldsögu Archer og víst er um
það, réttarhöldin eru þrungin spennu, kynlífsfrásögnum og pólítík
- öUu þvi sem síðdegisblöðunum finnst hvað bestur frétta-
efiiiviður.
alfarið þá og síðar að hafa nokkru
sinni hitt gleðikonuna, en í frétt \ wkti \ Æ'mgSí!,
The Star um málið var hins vegar Jji
fullyrt að svo væri og því stefndi
Greinin, sem fjaðrafokinu olli,
birtist { nóvember síðastliðnum I
og bar fyrirsögnina „Vændiskon-
an Monica segir frá Archer —
manninum sem hún þekkti". Á
eftir fóru svo magnaðar lýsingar
á meintum kynnum hennar og
Archer.
Archer, sem er höfundur skáld-
sagna svo sem „The Prodigal
Daughter", „Kane and Abel“ og
„First Among Equals", segir að
hann hafí aldrei hitt konuna —
hvað þá átt í bólforum með henni.
Monica Coghlan þykist hins vegar
viss í sinni sök og segist ekki
hafa átt í neinum vandræðum
með að sjá andlitið á honum —
hún hafi verið í afbragðsstöðu til
þess.
Mál þetta hefur að sjálfsögðu
saltað pólítískan feril Archer
rækilega, en í einni vinsælustu
skáldsögu hans skrifaði hann
söguhetjuna einmitt út úr sams
konar klúðri. Þar er það ímyndað-
ur þingmaður Verkamannaflokks-
ins, Raymond Gould, sem verður
forsætisráðherra eftir að hafa lent
í hneykslismáli þar sem skyndi-
kona nokkur hótaði að leysa frá
skjóðunni.
Archer þótti á sínum tíma einn
efnilegasti stjómmálamaður
íhaldsflokksins — ungur, myndar-
legur, kom vel fyrir sig orði og
var þegar orðinn vinsæll vegna
bóka sinna. Mál þetta hefur hins
vegar kastað verulegri rýrð á
hann.
Archer, sem er 46 ára gamall
segir að hann hafí „í asnaskap"
komið 2.000 pundum til Coghlan
fyrir milligöngu vinar síns. Fyrir
aurana átti frökenin að fara úr
landi til þess að komist yrði frá
hneyksli. Artcher játar að hann
hafi gerst sekur um alvarlegt
dómgreindarleysi þegar hann
ákvað að kaupa sér frið með fram-
angreindum hætti. Hann fullyrðir
hins vegar að um annað sé hann
ekki sekur. Gagnrýnendur hans
segja að litlu sem engu máli skipti
hvemig málaferlin fari, því að
Archer hafí sýnt að hann láti
kúga sig. Við slíkum stýrimönnum
megi þjóðarskútan ekki.
Vegna málaferlanna nú hafa
í kverkunum hvað eftir annað.
Almennar athugasemdir hennar
um starf sitt hafa þó ekki þótt'
síðri en frásagnir hennar af meint-
um rekkjubrögðum þeirra Archer.
Coghlan er 36 ára gömul og hefur
stundað iðn sína í 19 ár.
„Ég hef ánægju af starfí mínu.
Komi mennimir vel fram við mig,
kem ég svo sannarlega vel fram
við þá.“ Þá var hún spurð hvort
flestir viðskiptavina hennar væru
í raun ekki að fara á bak við kon-
ur sínar. „Jú,“ hún taldi svo vera,
en bætti við að hún teldi ekki að
ást þeirra í garð eiginkvennanna
þyrfti að vera minni fyrir vikið.
Einhveiju sinni við réttarhöldin
kallaði hún með ekkasogum yfír
þveran salinn til Archer: „Af
hveiju ertu að gera mér þetta?
Af hveiju ertu að gera konunni
þinni þetta?" Archer og kona
hans, Mary, sýndu þessi hins veg-
ar engin viðbrögð. Mary, sem er
prófessor, hefur staðið sem klett-
ur við hlið manns sfns á meðan
öllu þessu hefur dunið. og hafa '
sumir borið hana saman við Betsy
North, eiginkonu Olivers North,
ofursta.
Gula pressan er ekki eini aðil-
inn, sem hagnast á málaferlunum.
Það gerir Archer með óbeinum
hætti einnig. Að undanfömu hafa
bækur hans selst mun betur og
Mary og Jeflrey Archer.
síðdegispressan og önnur sorprit
ekki fjallað um annað undanfama
daga. Viðtöl við Coghlan og lýs-
ingar hennar í réttarsalnum hafa
þakið margar sfður dag eftir dag
og hvergi af dregið. í einu blað-
anna hafa jafnvel birst framhalds-
greinar um ævi Coghlan og Daily
Express seildist svo lágt að fóma
hálfsfðu á besta stað undir það
sem ritstjóramir kölluðu
„Lífsspeki vændiskonunnar
lífsreyndu."
Bretar hafa fylgst grannt með
framþróun málsins, enda annálað-
ir áhugamenn um kynferðis-
hneyksli. Þeir eru þ.ó ekki einir
um það, því erlendir ferðamenn
hafa einnig sýnt málinu áhuga.
„Þetta er eitthvað annað en
Lundúnakastali og Buckingham-
höll,“ sagði bandarísk kona fyrir
utan réttarsalinn fyrir skömmu.
„Ég hef lesið allar bækumar hans
með áfergju svo ég bara varð að
sjá hann nú þegar tækifæri
gafst.“
Vændiskonan Monica Coghlan
hefur borið vitni með grátstafínn
eru hafðar áberandi í gluggum
bókaverslana. Þá er ráðgert að
leikrit hans, „Beyond All Rea-
sonable Doubt“, verði sýnt í
borginni Bath í næsta mánuði og
hafa tvöfalt fleiri miðar en venju-
lega selst nú þegar.
Málaferlin geta dregist nokkuð
enn, en talið er að dæmt verði
Archer í hag. Vitnisburður vænd-
iskonunnar þykir ekki sérlega
ábyggilegur, hins vegar hefur
Archer vitni sem bera að hann
hafí verið víðs fjarri vettvangi
kvöldið góða, aðfaranótt 9. sept-
ember, þegar hann á að hafa
stofnað til meintrar vináttu við
vændiskonuna. Auk þess hefur
Coghlan játað að hafa þegið 6.000
sterlingspund frá News of The
World, sem þykir ekki treysta trú-
verðugleika hennar. Hins vegar
telja sumir að Lloyd Tumer,
ábyrgðarmaður The Star, kunni
enn að vera með eitthvað I poka-
hominu og ekki hitni í kolunum
fyrr en hann tefli því fram.
Heimildir: The Independent, Reuter
t og The Observer. . .... J