Morgunblaðið - 21.07.1987, Síða 50
50
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 1987
Pabbi. — Gvöð, farðu ekki
svona ... við giftum okkur
leynilega í gær...!
Þú hefðir átt að gera eins
og ég, fá þér kreditkort...
Bæta þarf hag lántaka
Velvakandi góður
Um leið og ég sendi fjármála-
ráðherranum okkar, herra Jóni
Baldvini Hannibalssyni, bestu vel-
famaðaróskir, langar mig að
minnast orða hans í Morgunblað-
inu í vor þar sem hann gat þess
að bæta þyrfti það tjón sem þeir
sem tóku lán á tímabilinu frá ár-
inu 1984 og fram á þennan dag
urðu fyrir.
Ef svo fer sem horfír, að verka-
„Light Nights“ er
góð landkynning
Við höfum nú dvalið um hríð á
íslandi og langar til að skrifa og
segja frá því hve mjög við höfum
notið dvalarinnar.
Eitt af því sem við vorum einna
hrifnust af var sýningin „Light
Nights" sem Kristín G. Magnús
stjómaði í Tjamarbíói í Reykjavík.
Þessar spennublöndnu svipmyndir
frá liðinni tíð voru mjög áhrifa-
miklar og skemmtilegar og vom
góð kynning á sögu og menningu
Islendinga.
Ferðabæklingamir sem við
fengum í Reykjavík voru nytsamir
en við undruðumst að sjá að
„Light Nights" var sleppt í grein
Sveins Einarssonar um leiklist á
íslandi í bæklingnum Around
Reykjavík. í greininni kom hvergi
fram að í Reykjavík væri að fínna
leikhús fyrir þá sem em ensku-
mælandi. Sem betur fer getur
ritstjóri Around Reykjavík „Light
Nights" annars staðar í bæklingn-
um og í upptalningu á því sem
er boðið upp á ákveðna daga. Við
mælum mjög með þessari sýningu
við aðra ferðamenn og þá Islend-
inga sem hafa ekki enn séð
sýninguna í ár.
Miriam Rabkin
Manvel B. Storer
fólk í landi þurfí að hlaupa úr einu
starfínu í annað á sama sólar-
hringnum til að eiga fyrir vöxtum
og verðbótum, enda þessi mál með
einhverri svívirðilegustu eigna-
upptöku sem átt hefur sér stað á
íslandi.
Ég tala hér út frá öllum þeim
dæmum sem ég þekki, bæði frá
þeim þögja hópi sem hefur hringt
til mín út af skrifum mínum í
Velvakanda, og ekki síður út frá
þeirri reynslu minni að hafa
síðustu ár unnið með konum í hin-
um og þessum stöðluðu láglauna-
störfum í þjóðfélaginu þar sém
kaupið hefur að mestu leyti staðið
í stað síðastliðin þijú eða fjögur ár.
Guðrún Jacobsen
Kann ein-
hver það
semá
vantar?
Guðrún H. Kristjánsdóttir
hafði samband við Velvakanda
og hafði rekist á Kobbavísur í
nokkurra ára gömlu Morgun-
blaði. í blaðinu höfðu verið
birt 9 erindi en eina hendingu
hafði vantað í fimmta erindið.
Erindið var á þessa leið í blað-
inu:
í bónorðsför svo fór af stað
fljótar hljóp en tófa
heilsar fyrst en hátt svo bað:
Ef einhver kann það sem á
vantar er hann beðinn að hafa
samband við Velvakanda.
Yíkveiji skrifar
Fáar þjóðir, sem við þekkj-
um til eru jafn miskunnar-
lausar við sjálfar sig, þegar
þær gera upp reikninga við
eigin mistök og Bandaríkja-
menn. Þetta sást glöggt í
Watergate-málinu svonefnda,
sem leiddi til afsagnar Nixons,
þáverandi forseta og kemur
einnig fram í þeim yfirheyrsl-
um, sem nú standa yfir í
bandaríska þinginu um sam-
skipti Bandaríkjamanna við
íran og skæruliða í Nicaragúa.
Dæmi um þetta uppgjör við
sjálfa sig er einnig að finna í
kvikmyndinni Platoon, sem nú
er sýnd í Háskólabíói.
Vafalaust gefur þessi mynd
nokkuð raunsæja lýsingu á
því, sem gerðist í Víetnam.
Þegar aðild Bandaríkjamanna
að því stríði hófst trúðu menn
því um Vesturlönd, að þar
væri um að ræða framhald á
heilagri baráttu fijálsra þjóða
heims gegn kommúnismanum.
Þegar Víkveiji var á ferð í
Bandaríkjunum fyrir 20 árum,
og kom víða við, kom honum
mest á óvart, hve mikil and-
staða var meðal almennings
gegn þessu stríði. Hún átti
síðan eftir að magnast. Ein
söguhetjan í Platoon segir -
og þá er komið árið 1968: „Ég
trúði á þetta stríð 1965, en ég
geri það ekki lengur. Við töp-
um þessu stríði.“ Þessi eina
setning lýsir afstöðu margra
til Víetnamstríðsins, eins og
hún var í upphafí og eins og
hún þróaðist með árunum.
Á þeim tímum bjartsýni og
mikilla hugsjóna, þegar John
F. Kennedy, stóð á ráðhústorg-
inu í Vestur-Berlín og flutti
hina frægu ræðu sína: „ Sér-
hver fijáls maður er Berlínar-
búi — ég er Berlínarbúi", hefðu
fáir trúað því, að þau glæpa-
verk yrðu framin í nafni
frelsisins, sem Platoon sýnir
okkur, að voru framin af
bandarískum hermönnum,
þegar þeir fóru um sveitaþorp
í Víetnam..
Það er svo önnur saga, hvort
myndir á borð við Platoon duga
til þess að beina nýjum kyn-
slóðum inn á skynsamlegri
brautir. Er ekki rejmslan allt
önnur?
xxx
Eins og sjá má í hinu nýja
fýlgiblaði Morgunblaðsins
á fímmtudögum, Á dagskrá,
er fjöldi veitingahúsa á höfuð-
borgarsvæðinu orðinn ótrúlega
mikill. Stöðugt bætast við nýir
veitingastaðir og nú fyrir heíg-
ina var opnaður matsalur í
hinu nýja hóteli, Holiday Inn.
Það er skemmst frá því að
segja, að þetta hótel er glæsi-
legt að sjá, þegar inn er komið
og veitingasalurinn og þjón-
usta þar í samræmi við það.
Víkveija sýnist, að þama sé
kominn nýr matsalur, sem
muni keppa við beztu veitinga-
hús borgarinnar, bæði í
gæðum og verði.