Morgunblaðið - 21.07.1987, Page 55

Morgunblaðið - 21.07.1987, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 1987 55 „Gerir menn að betri flugmönnum“ — segir Friðrik Sigfusson mótsstjóri um Islandsmótið í vélflugi „íslandsmótið í vélflugi er enginn leikaraskapur ef einhver skyidi vaða í þeirri villu, því hér er keppt eftir mjög ströngum reglum", sagði Frið- rik Sigfússon, einkaflugmaður og mótsstjóri á íslandsmótinu í vél- flugi, í samtali við Morgunblaðið. „Keppendur sjá svart á hvítu hvaða ósiði þeir eru búnir að venja sig á í flugmennskunni og hvar þeir verða að glugga betur í fræðin til að venja sig af ósiðum þessum og auka þekk- inguna á þeim sviðum sem þeir telja þörf á. Svona krefjandi mót gerir alla sem þátt í þeim taka tvímæla- laust að betri flugmönnum, að ekki sé nú talað um ánægjuna sem fylg- ir þátttökunni", bætti hann við. Friðrik sagði gleði, jákvætt hug- arfar og gott veður hafa einkennt mótshaldið á Helluflugvelli. íslands- mótið í vélflugi er hápunktur sumardagskrár Flugmálafélags ís- lands en félagið hefur í sumar gengist fyrir flugkeppnum í sam- vinnu við hina ýmsu flugklúbba landsins. Friðrik sagði þær keppnir aðeins „generalprufur" fyrir ís- landsmótið, en þær munu hafa tekist vel og fjöldi þátttakenda á bilinu 20—30 í flestum keppnanna. Norðurlandamótið ’88 á Islandi Sá íslendingur sem einna mesta reynslu hefur af dómarastörfum á flugkeppnum vélflugmanna er án efa Selfyssingurinn Mogens Taaga- ard sem var yfirdómari á Hellu. Hann er jafnframt Norðurlanda- dómari í vélflugi. Mogens var spurður að því hvort hann sæi fram- för á milli ára? „Já, þegar á heildina er litið hefur flugmönnum farið fram og voru þeir almennt séð með færri refsistig nú en á íslandsmót- inu í fyrra. Að vísu er dálítið erfítt að sýna þetta upp á stig því keppnis- reglunum hefur verið breytt", sagði hann. „Annars var ég yfírdómari á Norðurlandamótinu sem haldið var fyrir skömmu í Finnlandi og miðað við meðalárangur þar, má segja að menn geti bara vel unað við úrslitin héma á Hellu", sagði Mogens. Þá sagði Mogens Taagaard, að fyrir- hugað væri að halda næsta Norður- landamót í vélflugi hér á landi í júní á næsta ári, nánar tiltekið á Suðurlandi og þá kemur Helluflug- völlur helst til greina í því sambandi. Morgvnblaðið/Ólafur Bragaaon íslandsmótið í vélflugi var frábærlega skipulagt og ekki spillti gott veður keppnisskapinu. Mótsstjómin talið frá vinstri: Guðmundur Ásgeirsson, Haraldur Karlsson, yfirdómarinn Mogens Taagaard, Ásgeir Guðmundsson og Friðrik Sigfússon mótsstjóri. mig svona niður úr öllu valdi. Svo ef ég ber saman þessi tvö lönd, þá finnst mér miklu auðveldara £ið rata á íslandi. Nú er bara að ein- beita sér enn betur að flugleiðsög- unni.“ Miðað við siðasta íslandsmeist- aramót og Norðurlandameistara- mótið, hvernig meturðu árangur þinn núna? „Reglunum hefur verið breytt frá sfðasta íslandsmeistaramóti svo erfítt er að gera nákvæman saman- burð, en í fljótu bragði, tel ég mig hafa bætt mig lítið eitt enda f meiri æfíngu, svona nýkominn af Norður- landameistaramóti. Hins vegar stóð ég mig miklu betur núna en á Norð- urlandameistaramótinu. Þar var ég með minnstu reynsluna og hafði t.d. aldrei keppt erlendis. Þá var landslagið í Finnlandi ekkert svipað þvf sem er hér heima og mér fannst mjög erfítt að rata þar. Sem dæmi um reynslu manna á Norðurlanda- meistaramótinu, get ég nefnt að sá sem sigraði er flugstjóri hjá SAS og var að taka þátt f tuttugasta skipti, þar af hefur hann orðið Norð- urlandameistari nokkrum sinnum." Er Piper PA-28 Warrior II góð keppnisflugvél? „Hún er mjög góð og lætur að stjóm eins og hugur manns. Hún hefur mikið hraðasvið og er lítið eitt hraðfleygari en vél frá Cessna í sama stærðarflokki, Cessna 172 Skyhawk. Einnig hefur það mikið að segja í lendingarkeppninni, að vængbörðin (flapsar) em hreyfð með handafli og hreyfast því um leið og maður hreyfír handfangið. Að mínu mati em þetta mikilvægir kostir sem góð keppnisflugvél þarf að vera búin.“ Hefurðu æft flug mikið i sum- ar? „Fyrir þetta mót æfði ég mig ekkert sérstaklega en það er ekkert vafamál, að það hjálpaði mér núna að ég fór nokkrar æfíngaferðir fyr- ir Norðurlandameistaramótið og svo var það auðvitað mikil reynsla að taka þátt í því móti. Annars er það f sjálfu sér aukaatriði að vinna í vélflugmóti. Aðalatriðið er að vera með og vera í skemmtilegum félags- skap einkaflugmanna". Hvað tekur nú við þjá þér í fluginu? „Halda áfram að leika mér,“ sagði Orri Eirfksson, tvöfaldur ís- landsmeistari f vélflugi, að lokum. Mynd af Snekkjunni sem byggð er við sérstakar aðstæður því götumegin er húsið ein hæð, en eins og sést á myndinni er húsið á þremur hæðum. <*»l' Fáskrúðsfl örður: Nýtt hótel opnað Fáskrúðsfirði. NÝTT HÓTEL á Fáskrúðsfirði var formlega tekið í notkun fyrir skömmu. Hótelið er viðbygging við veitingahúsið Snekkjuna. 1 viðbyggingunni er er vistlegur veitingasalur og gistirými. Stækkun þessi bætir verulega úr brýnni þörf á gistingu á Fáskrúðs- fírði. Í hótelinu eru sjö tveggja manna herbergi þar sem hægt er að vera með smærri samkomur. í húsinu er bar og dansaðstaða og hefur staður- inn fengið vínveitingaleyfí. Eigendur Snekkjunnar eru Ámý Amþórsdóttir og Ingi Helgason og hafa þau að mestu leyti hannað hú- sið sjálf en aðalverktaki við upp- byggingu þess var Þorsteinn Bjaraason húsasmiður á Fáskrúðs- firði. Innréttingar annaðist Sævar Sigurðsson húsasmiður hér á staðn- um. Þess má geta að mest öll vinna við smíði hússins var í höndum iðnað- armanna á Fáskrúðsfírði. Áformað er að hafa veitingasalinn opinn fyrir almenning á föstudags-, laugardags- og sunnudagskvöldum fyrst um sinn. Einnig er hægt að halda eirikasam- kvæmi eftir því sem til fellur. Fyrst um sinn mun Ámi ísleifsson píanó- leikari spila fyrir gesti hótelsins framangreind kvöld. Albert Eigendur Snekkjunar þau Árný og Ingi. Morgunblaðið/Albert Kemp Morgunblaðið/J6n Sig. Leikskólabömin sem eru fyrir hádegi voru búin að borða pylsurnar sinar þegar fréttaritara bar að garði, en það mátti sjá á böraunum hvað hafði verið með pylsunum. Blönduós: Grillveisla í leikskólanum Blönduósi. LEIKSKÓLABÖRN og starfefólk á leikskólanum á Blönduósi gerðu sér dagamun og héldu grillveislu í tilefrii af þvi að þau eru að fara i mánaðar sumarfri. Veðrið var upp á sitt besta þennan síðasta dag fyrir sum- arfrí, 18 til 20 stiga hiti og að sjálfsögðu vom allir í sólskins- skapi. Það var ýmislegt sem bömin ætluðu að gera í sumarfrf- inu: einn ætlaði til Hauganess annar til Sauðárkróks og sá þriðji ætlaði mun lengra eða alla leið til útlanda. Flest bömin hittast aftur 10. ágúst, en þá byijar leik- skólinn aftur eftir sumarfrí. Elstu leikskólabömin ljúka á þessum tímamótum leikskólagöngu, en eða alvömskólinn eins og bömin með haustinu tekur alvaran við orða það. — Jón Sig. Þessi hópur baraa er í leikskólanum eftir hádegi. Þau grilluðu eftir hádegi og fengu blöðrar á eftir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.