Morgunblaðið - 21.07.1987, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 1987
55
„Gerir menn að
betri flugmönnum“
— segir Friðrik Sigfusson mótsstjóri
um Islandsmótið í vélflugi
„íslandsmótið í vélflugi er enginn
leikaraskapur ef einhver skyidi vaða
í þeirri villu, því hér er keppt eftir
mjög ströngum reglum", sagði Frið-
rik Sigfússon, einkaflugmaður og
mótsstjóri á íslandsmótinu í vél-
flugi, í samtali við Morgunblaðið.
„Keppendur sjá svart á hvítu hvaða
ósiði þeir eru búnir að venja sig á
í flugmennskunni og hvar þeir verða
að glugga betur í fræðin til að venja
sig af ósiðum þessum og auka þekk-
inguna á þeim sviðum sem þeir telja
þörf á. Svona krefjandi mót gerir
alla sem þátt í þeim taka tvímæla-
laust að betri flugmönnum, að ekki
sé nú talað um ánægjuna sem fylg-
ir þátttökunni", bætti hann við.
Friðrik sagði gleði, jákvætt hug-
arfar og gott veður hafa einkennt
mótshaldið á Helluflugvelli. íslands-
mótið í vélflugi er hápunktur
sumardagskrár Flugmálafélags ís-
lands en félagið hefur í sumar
gengist fyrir flugkeppnum í sam-
vinnu við hina ýmsu flugklúbba
landsins. Friðrik sagði þær keppnir
aðeins „generalprufur" fyrir ís-
landsmótið, en þær munu hafa
tekist vel og fjöldi þátttakenda á
bilinu 20—30 í flestum keppnanna.
Norðurlandamótið ’88 á
Islandi
Sá íslendingur sem einna mesta
reynslu hefur af dómarastörfum á
flugkeppnum vélflugmanna er án
efa Selfyssingurinn Mogens Taaga-
ard sem var yfirdómari á Hellu.
Hann er jafnframt Norðurlanda-
dómari í vélflugi. Mogens var
spurður að því hvort hann sæi fram-
för á milli ára? „Já, þegar á heildina
er litið hefur flugmönnum farið
fram og voru þeir almennt séð með
færri refsistig nú en á íslandsmót-
inu í fyrra. Að vísu er dálítið erfítt
að sýna þetta upp á stig því keppnis-
reglunum hefur verið breytt", sagði
hann. „Annars var ég yfírdómari á
Norðurlandamótinu sem haldið var
fyrir skömmu í Finnlandi og miðað
við meðalárangur þar, má segja að
menn geti bara vel unað við úrslitin
héma á Hellu", sagði Mogens. Þá
sagði Mogens Taagaard, að fyrir-
hugað væri að halda næsta Norður-
landamót í vélflugi hér á landi í
júní á næsta ári, nánar tiltekið á
Suðurlandi og þá kemur Helluflug-
völlur helst til greina í því sambandi.
Morgvnblaðið/Ólafur Bragaaon
íslandsmótið í vélflugi var frábærlega skipulagt og ekki spillti gott
veður keppnisskapinu. Mótsstjómin talið frá vinstri: Guðmundur
Ásgeirsson, Haraldur Karlsson, yfirdómarinn Mogens Taagaard,
Ásgeir Guðmundsson og Friðrik Sigfússon mótsstjóri.
mig svona niður úr öllu valdi. Svo
ef ég ber saman þessi tvö lönd, þá
finnst mér miklu auðveldara £ið
rata á íslandi. Nú er bara að ein-
beita sér enn betur að flugleiðsög-
unni.“
Miðað við siðasta íslandsmeist-
aramót og Norðurlandameistara-
mótið, hvernig meturðu árangur
þinn núna?
„Reglunum hefur verið breytt frá
sfðasta íslandsmeistaramóti svo
erfítt er að gera nákvæman saman-
burð, en í fljótu bragði, tel ég mig
hafa bætt mig lítið eitt enda f meiri
æfíngu, svona nýkominn af Norður-
landameistaramóti. Hins vegar stóð
ég mig miklu betur núna en á Norð-
urlandameistaramótinu. Þar var ég
með minnstu reynsluna og hafði
t.d. aldrei keppt erlendis. Þá var
landslagið í Finnlandi ekkert svipað
þvf sem er hér heima og mér fannst
mjög erfítt að rata þar. Sem dæmi
um reynslu manna á Norðurlanda-
meistaramótinu, get ég nefnt að sá
sem sigraði er flugstjóri hjá SAS
og var að taka þátt f tuttugasta
skipti, þar af hefur hann orðið Norð-
urlandameistari nokkrum sinnum."
Er Piper PA-28 Warrior II góð
keppnisflugvél?
„Hún er mjög góð og lætur að
stjóm eins og hugur manns. Hún
hefur mikið hraðasvið og er lítið
eitt hraðfleygari en vél frá Cessna
í sama stærðarflokki, Cessna 172
Skyhawk. Einnig hefur það mikið
að segja í lendingarkeppninni, að
vængbörðin (flapsar) em hreyfð
með handafli og hreyfast því um
leið og maður hreyfír handfangið.
Að mínu mati em þetta mikilvægir
kostir sem góð keppnisflugvél þarf
að vera búin.“
Hefurðu æft flug mikið i sum-
ar?
„Fyrir þetta mót æfði ég mig
ekkert sérstaklega en það er ekkert
vafamál, að það hjálpaði mér núna
að ég fór nokkrar æfíngaferðir fyr-
ir Norðurlandameistaramótið og
svo var það auðvitað mikil reynsla
að taka þátt í því móti. Annars er
það f sjálfu sér aukaatriði að vinna
í vélflugmóti. Aðalatriðið er að vera
með og vera í skemmtilegum félags-
skap einkaflugmanna".
Hvað tekur nú við þjá þér í
fluginu?
„Halda áfram að leika mér,“
sagði Orri Eirfksson, tvöfaldur ís-
landsmeistari f vélflugi, að lokum.
Mynd af Snekkjunni sem byggð er við sérstakar aðstæður því götumegin er húsið ein hæð, en eins og sést
á myndinni er húsið á þremur hæðum. <*»l'
Fáskrúðsfl örður:
Nýtt hótel opnað
Fáskrúðsfirði.
NÝTT HÓTEL á Fáskrúðsfirði
var formlega tekið í notkun fyrir
skömmu. Hótelið er viðbygging
við veitingahúsið Snekkjuna. 1
viðbyggingunni er er vistlegur
veitingasalur og gistirými.
Stækkun þessi bætir verulega úr
brýnni þörf á gistingu á Fáskrúðs-
fírði. Í hótelinu eru sjö tveggja manna
herbergi þar sem hægt er að vera
með smærri samkomur. í húsinu er
bar og dansaðstaða og hefur staður-
inn fengið vínveitingaleyfí.
Eigendur Snekkjunnar eru Ámý
Amþórsdóttir og Ingi Helgason og
hafa þau að mestu leyti hannað hú-
sið sjálf en aðalverktaki við upp-
byggingu þess var Þorsteinn
Bjaraason húsasmiður á Fáskrúðs-
firði. Innréttingar annaðist Sævar
Sigurðsson húsasmiður hér á staðn-
um. Þess má geta að mest öll vinna
við smíði hússins var í höndum iðnað-
armanna á Fáskrúðsfírði. Áformað
er að hafa veitingasalinn opinn fyrir
almenning á föstudags-, laugardags-
og sunnudagskvöldum fyrst um sinn.
Einnig er hægt að halda eirikasam-
kvæmi eftir því sem til fellur. Fyrst
um sinn mun Ámi ísleifsson píanó-
leikari spila fyrir gesti hótelsins
framangreind kvöld. Albert
Eigendur Snekkjunar þau Árný og Ingi.
Morgunblaðið/Albert Kemp
Morgunblaðið/J6n Sig.
Leikskólabömin sem eru fyrir hádegi voru búin að borða pylsurnar sinar þegar fréttaritara bar
að garði, en það mátti sjá á böraunum hvað hafði verið með pylsunum.
Blönduós:
Grillveisla í leikskólanum
Blönduósi.
LEIKSKÓLABÖRN og starfefólk
á leikskólanum á Blönduósi
gerðu sér dagamun og héldu
grillveislu í tilefrii af þvi að þau
eru að fara i mánaðar sumarfri.
Veðrið var upp á sitt besta
þennan síðasta dag fyrir sum-
arfrí, 18 til 20 stiga hiti og að
sjálfsögðu vom allir í sólskins-
skapi. Það var ýmislegt sem
bömin ætluðu að gera í sumarfrf-
inu: einn ætlaði til Hauganess
annar til Sauðárkróks og sá þriðji
ætlaði mun lengra eða alla leið
til útlanda. Flest bömin hittast
aftur 10. ágúst, en þá byijar leik-
skólinn aftur eftir sumarfrí. Elstu
leikskólabömin ljúka á þessum
tímamótum leikskólagöngu, en eða alvömskólinn eins og bömin
með haustinu tekur alvaran við orða það. — Jón Sig.
Þessi hópur baraa er í leikskólanum eftir hádegi. Þau grilluðu
eftir hádegi og fengu blöðrar á eftir.