Morgunblaðið - 15.09.1987, Síða 14

Morgunblaðið - 15.09.1987, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. SEPTEMBER 1987 Morgunblaðið/Ámi Helgason María Bœringsdóttir og Auður Júlíusdóttir. Stykkishólmur: Hólmgarður mikill sælureitur Stykkishóimi. Skrúðg'arðurinn Hólmgarður í Stykkishólmsbæ verður fegurri og trjáríkari með hverju ári sem líður. Fyrir 6 árum var hann stækkaður meira en um helming og um leið gerð grasflöt um hann miðjan þar sem sumarhátíðir gætu verið haldnar og útivistir á góðviðrisdögum fyrir bæjarbúa. Það var á árunum milli 1930 og 1940 að Kvenfélagið Hringurinn valdi blett í útjaðri bæjarins í þeim tilgangi að koma þar upp almenn- ingsgarði, með tijárunnum og blómum. Tijárækt hafði verið reynd lengi í Stykkishólmi, en lítinn árangur borið og var það landlægt álit um 1940 að skógrækt væri til lítils f Hólminum því ef trén næðu Hús kvenfélagsins setur mikinn svip á skrúðgarðinn Hólmgarð. GOEDAR RtEGijlR AF RYÐFRIU STAU! Eftir ánægjulegt samstarf undanfarin ár hefur Sindra Stál nú gerst umboðsaðili Damstahl A/S, stærsta lagerfyrirtækis fyrir ryðfrítt stál á Norður- löndum. Þessi nána samvinna tryggir viðskiptavin- um okkar enn betri og markvissari þjónustu. DAMSTAHL Ryðfrítt stál er okkar mál! SINPRAÆkSTALHF BORGARTÚNI31, SÍMAR 27222 & 21684 mannhæð færu þau að fölna og bæru ekki sitt barr eftir það. Þeir garðar sem þá voru við hús staðfestu þetta. Innan Kvenfélags- ins voru deildar meiningar um þetta framtak félagsins og því ekki um mikið framtak frá ári til árs. Skóg- ræktarfélag Stykkishólms var stofnað 1947 og það kom einnig lífi í starfsemi kvenfélagsins og þessi garður þeirra var því stækkaður smám saman og nú hin seinustu ár hefir garðurinn notið þess að mikil áhugakona um skóg- og blómarækt, frú Auður Júlíusdóttir, hefir valist til að hlynna og hlúa að gróðri í Hólmgarði og verður ekki annað sagt en þar sé rétt kona á réttum stað og árangur af elju hennar hefir ekki látið á sér standa og þeir sem fylgst hafa með þróun þessara mála hér, ljúka einu orði um að hér hafí bölsýni verið snúið í bjartsýni. Fréttaritari brá sér í að skoða garðinn og ræða við Auði litla stund nú í haust og var mjög ánægjulegt að litast þama um. Auður sagði að Kvenfélagið Hringurinn í Reykjavík hefði gefið 80 greniplöntur sem hefðu komið vel til og ættu eftir að gera mikið gagn. Síðan hefðu konumar fengið um 70 plöntur og þetta hefði allt verið gróðursett. Svo hefði verið gengið á eldri gróður að gresja og hreinsa til og hefði hjálpað henni í þessu í sumar 12 ára drengur, Hafþór Kristjánsson, og hefði hann með sérstökum áhuga og dugnaði unnið þama mikið verk og til fyrirmyndar. Einnig hefðu fleiri komið þar að á meðan gróður var í frllum uppgangi. Þá hefði forseti íslands gróðursett þrjár tijá- plöntur og ekki var annað séð en þær hefðu fallið í góðan jarðveg og hefðu vel tekið við sér. Nú hefði garðurinn einnig verið hellulagður og skjól sett og eins væm bekkir í garðinum fyrir fólk að hvfla sig. Auður sagði að margar tegundir væru í garðinum og vonandi ætti fjölbreytnin eftir að aukast. Hús Kvenfélagsins setur líka sinn svip á umhverfíð og hefir þegar komið að góðum notum og sannað ágæti sitt. — Árni

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.