Morgunblaðið - 15.09.1987, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. SEPTEMBER 1987
LÍFRÆN TILBRIGÐI
Myndlist
Bragi Ásgeirsson
Það hefur frekar lítið farið fyrir
málaranum Vilhjálmi Bergssyni í
íslenzkri myndiist síðari ára.
Ástæðan er einfaldlega sú, að hann
hefur verið búsettur í Þýskalandi,
nánar tiltekið Dusseldorf, hinni
miklu listaborg, sem er í næsta
nágrenni Kölnaúr, þa sem öll frægu
galleríin eru, 'sem fjarstýrt hafa
listaheiminum 1 á undanfömum
árum.
Þetta svæði í Þýskalandi ásamt
Berlín telst um þessar myndir mið-
punktur evrópskrar myndlistar,
þannig að bæði Amsterdam og
París hafa horfíð í skuggann um
stund.
Fyrrum var Vilhjálmur Bergsson
mjög virkur í íslenzku myndlist-
arlífí og jafnt f félagsmálum sem á
sýningarvettvangi og væri það enn-
þá, ef örlögin hefðu ekki gripið í
taumana.
Ekki mun hann þó alfarið hafa
yfirgefið landið til að fínna list sinni
farveg í stærra samhengi, heldur
giftist hann einfaldlega þýskri konu
búsettri í Dusseldorf og með sinn
starfsvettvang þar. Það lá beinast
fyrir hjá listamanninum að flytjast
til listaborgarinnar miklu til að
njóta sín í nýju umhverfi og þróa
list sína hægt og bítandi, svo sem
hann hafði lengi gert.
Vilhjálmur var orðinn of þroskað-
ur og mótaður listamaður til að
láta nýjar hræringar gleypa sig,
þótt hann lenti einmitt og óforvar-
andis á miðjum orustuvellinum.
Frekar væri, að hann hugsaði sér
að gleypa þessar hræringar með tíð
og tíma — hann hafði þegar kastað
sínum teningi og vænti þess að hitta
á fullt hús fyrr eða síðar.
Hér er komið dæmið um mann,
er flytur út íslenzkt hugvit í mynd-
list, sem var löngu orðið tímabært.
Að þessu leyti er Vilhjálmur
skemmtilega ólíkur þeim mörgu, er
halda utan og koma gjörbreyttir
heim með stóra sannleik og nafla
heimsins í farteskinu, boðandi nýja
trú af sannfæringarhita rétttrúar-
mannsins.
Vilhjálmur Bergsson er í heim-
sókn í gamla landinu þessa dagana
og í tilefni þess hefur hann opnað
myndverkasýningu í kjallarasölum
Norræna hússins, sýnir þar teikn-
ingar, vatnslita- og olíumyndir,
mikið til nýja framleiðslu.
Beri maður elstu myndirnar á
sýningunni saman við þær nýjustu,
má sjá umtalsverðan þroska og
einkum í þá átt, að yfirbragð mynd-
anna er orðið slípaðra, dularfyllra
og norrænna. Þetta er greinilegt,
ef bomar eru saman hinar tvær
myndir frá árinu 1984, sem nefnast
báðar „Draumsýn" nr. 5 og 6 á
skrá svo og myndimar „Takmörkuð
tengsl" (20) frá 1986 og „Dimmblá
veröld" (22) frá þessu ári.
Síðasttalda myndin er mjög nor-
ræn og minnir um sumt á hinn
„Tilbrigði um tvo liti“
Myndllst
Bragi Ásgeirsson
Fyrir rúmum tveim árum hélt
Eydís Lúðvígsdóttir sýningu á
verkum úr postulínsleir á Kjarvals-
stöðum, sem góða athygli vakti.
Nú er hún komin aftur með sýn-
ingu á sama bletti Kjarvalsstaða,
og nefnir hana „Tilbrigði um tvo
liti“.
A fyrri sýningunni lagði Eydís
höfuðáhersluna á efnið, leirinn
sjálfan, hvað mætti ná úr honum í
rúmtaki og áferð og hvemig hann
er í eðli sínu.
Uppistaðan í vinnubrögðum
Eydísar eru tveir litir, sem fást úr
kopar- og koboltoxíðum og gefa
ótal litbrigði og þótti henni rétt að
gefa þeirri hlið meiri gaum að þessu
sinni en vinna leirinn sjálfan á ein-
faldan hátt.
Hér er skynsamlega að verki
staðið og það er rétt og fallega
hugsað að kynna þessar tilraunir
og miðla öðmm fenginni reynslu.
Mér þykir Eydísi hafa tekist mjög
vel hvað áferð snertir og einkum
er ég hrifínn af svarta litnum, sem
er mattur og djúpur. Hins vegar
finnst mér hlutlæg útfærsla skreyti-
forma ekki alltaf falla nægilega vel
að ftjálslega útfærðu formi leir-
munanna og veggmyndanna.
Frekar virka truflandi á augað og
raska fegurð rúmtaksformsins.
Það er einmitt þegar henni tekst
best að samræma þetta í eina heild,
að hún nær hrifmestum árangri svo
sem í myndverkunum nr. (8) „Jök-
ullinn", „Skál á fæti“ (30) og „Skál
á fæti“ (34). Liturinn og sjálf lát-
laus fegurð áferðarinnar ásamt
fagurlega mótuðum hlutunum
standa fullkomlega fyrir sínu en það
er hins vegar hlutlæga formið, sem
vill raska heildinni og væri betur
komið á hreinan tvívíðan flöt...
ágæta norska málara Harald So-
hlberg (1869—1935) en einnig
Munch, og þó á gjörólíku myndsviði.
Þessi sýning staðfestir með mikl-
um ágætum, hve fágaður málari
Vilhjálmur er og að hann heldur
ótrauður áfram að slípa sitt mynd-
mál með kjörorðið „Festine lente"
að leiðarljósi — flýttu þér hægt.
Vilhjálmur Bergss^n er einn okkar
ágætu sendifulltrúa íslenzkrar
myndlistarmenningar á erlendri
grundu — einn þeirra, sem hefur
kjark til að standa við sannfæringu
sína og uppsker eftir því — hverfur
því ekki í fjöldann ...
SúpermanlV:
LEITIN AÐ FRIÐI
Vegfarendur fá að finna fyrir ofurkrafti Kjarnorkumannsins,
andstæðings Súpermans, í nýjustu myndinni um stálmennið fljúg-
andi.
Kvlkmyndir
Arnaldur Indriðason
Superman IV (Superman IV:
The Quest for Peace). Sýnd í
Háskólabiói: Stjörnugjöf: ★ .
Bandarisk. Leikstjóri: Sidney
J. Furie. Handrit: Lawrence
Konner og Mark Rosenthal eft-
ir sögú þeirra og Christopher
Reeves. Framleiðendur: Yoram
Globus og Menahem Golan.
Kvikmyndataka: Ernst Day.
Tónlist: John Williams. Helstu
hlutverk: Christopher Reeve,
Gene Hackman, Jon Cryer, Sam
Wanamaker, Mariel Heming-
way og Margot Kidder.
Superman IV: Leitin að friði,
fjórða Súpermanmyndin sem sýnd
er í Háskólabíói, gæti byijað þar
sem leiðtogafundurinn i Höfða
endaði. Samningaviðræður um
fækkun kjamorkuvopna hafa far-
ið út um þúfur og lítill drengur
sendir Súperman beiðni um að
hann fari nú að skipta sér af
málum og tryggja heimsfriðinn.
Sem hann gerir en á sinn persónu-
lega, háfleyga hátt.
Tvær síðustu Súpermanmynd-
imar hafa lagt hrapallega áherslu
á raunsæi og keppst við að gera
Súperman að einum af okkur. Þær
streða við að koma honum (og
ímyndunarafli okkar) niður á jörð-
ina í stað þess að halda honum
(og okkur) á lofti í Metrópólís
teiknihetjunnar. Richard Lester
sem leikstýrði númer tvö og þijú
sagði: „Mér fannst við ættum að
vera jarðbundnari í þetta skiptið,"
þegar hann talaði um þriðju
myndina og byggði hana í kring-
um Richard Pryor (sic).
í númer fjögur, sem kanadíski
leikstjórinn Sidney J. Furie leik-
stýrir, er skrefið stigið enn lengra
og Súperman tekur að sér að losa
heiminn við kjamorkuvopn og
heldur hjartnæma ræðu hjá Sam-
einuðu þjóðunum í tengslum við
hið friðelskandi framtak sitt.
Meira að segja Súperman
sleppur ekki við kaldan raun-
vemleikann og þá er nú fátt eftir
til að halda uppi fjörinu í Ævintýr-
alandi. Það var allt svo miklu
einfaldara þegar hann var bara
ímyndun í ímynduðum heimi að
beijast við ímyndaðar hættur.
Núna er grautfúll raunveruleikinn
tekinn við og núna er Súperman
svona James Bond á furðufata-
balli.
Reeve, sem keppir við Sean
Connery um titilinn „Sá sem oft-
ast hefur sagt aldrei skal ég leika
hann aftur“, mun hafa heimtað
raunvemleikann í myndina og
framleiðendumir Golan og Glo-
bus, sem gátu ekki hugsað sér
að fínna nýjan Súperman, kink-
uðu kolli við öllu sem hann sagði,
meira að segja þegar hann bað
um að fá að leika í annarri mynd
á þeirra vegum. Svo Reeve klæd-
dist skikkjunni aftur en er þreytu-
legur eins og gamanið sé löngu
búið. Gene Hackman er ennþá
glæpakóngurinn Lex Luthor sem
skapar Kjamorkumanninn til höf-
uðs Súperman; Margot Kidder er
ennþá kærasta Súpermans á hinni
Daglegu plánetu; Mariel Heming-
way er kærasta Clark Kents sem
geftir tækifæri til kómískra
bragða af hálfu Súpermans og Jon
Cryer er frændi Hackmans en
kemst lítið að. Tónlistin er eftir
John Williams sem fyrr og er
hækkað í henni þegar eitthvað á
að snerta mann djúpt.
Öllu þessu stjómar Furie stund-
um heldur kauðalega og ómark-
visst. Eftir að hafa bjargað
neðanjarðarlest frá slysi verður
Súperman, sjálfsagt í auglýsinga-
skyni, að tilkynna öllum (syijuleg
andlit á brautarstöðinni) að jám-
brautimar séu þrátt fyrir allt
öraggasti fararmátinn;
einhvemtí-
mann er sýnt aftan á hann þegar
hann hendir sér fram af svölunum
sínum og flýgur með Louis Lane
og það er eins og hann hafí grip-
ið með sér óhreina tauið en ekki
kærastuna sína. Tæknibrellumar
era á sínum stað en það er eins
og þær séu ekki eins vandaðar og
í fyrri myndunum. Og þá má
nefna lapþunnan söguþráð og
ósamstæða frásögn myndinni til
lýta. Það hefur enginn vitað hvort
hún ætti að vera aðeins fyrir
krakka eða fullorðna líka, en hún
hefði gjama mátt heita: Súper-
man IV: Leitin að friði fyrir
Súperman fimm.