Morgunblaðið - 15.09.1987, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. SEPTEMBER 1987
21
Sambandið og ríkið
ÍLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1987
FARANLEGUR
SAMANBURÐUR'
Hver er tílgangurinn?
eftirHermann
Sveinbjömsson
1 Morgunblaðinu þann 27. ágúst
sl. var grein á viðskiplaslðu með
yfirskriftinni: SÍS — Sambandið og
kaupfélögin með hœrri tekjur 1986
en rfkissjóður. í greininni sjálfri
segir síðan að á stðasta ári hafi
tekjur Sambandsins numið 15,5
I milljöðrum króna, velta Kaupfélags
Eyfirðinga að meðtöldum sam-
starfsfyrirtœkjum hafi numið 6,2
milljörðum, velta annarra kaup-
i félaga 16,2 miHjarðar, velta Olíufé-
lagsins hf., sem sé að meirihluta (
' eigu Sambandsins, hafi numið 8,6
miljjörðum. Heildarvelta Sam-
bandsins, kaupfélaganna, Oltufé-
1 fegsins og nokkurra samstarfsfyrir-
tækja SÍS hafi verið 43,4 mil\jarðar
króna. Til samanburðar hafi heild-
artekjur ríkissjóðs numið 38,2
\ milljörðum króna.
I Stórisannleikur?
1 framhaldi af þessari grein hefur
| Morgunblaðið notað þessar tölur
I sem einhvem stórasannleik um of-
[ urveldi SlS, eins og það er kallað
Ld. ( leiðara laugardaginn 6. sept-
ember. Þá hefur forsætisráðherra
Þorsteinn forsœtís-
ráðherra sumra?
Það eru alvarieg tíðindi þegar
Þorsteinn Pálsson, lýðræðislega
kjörinn og valinn til þess að vera
æðsti embætlismaður þjóðarinnar,
að undanskildum forseta lslanda,
hafnar forsjárhlutverki stnu yfir
stórum hluta íslensku þjóðarinnar,
hafnar 46 þúsund íslendingum og
Qölskyldum þeirra. Það er ekki
hægt að skilja orð Þorsteins á ann-
an veg en þann, að hann vilji ekki
vera forsætisráðherra samvinnu-
manna. Þá er eiginlega ekki nema
tvennt til, að Þorsteinn geri sam-
vinnumenn útiæga úr íslenska
rflrinu eða hann er ófær til að vera .
forsætisráðherra heillar þjóðar, þar
sem hann virðist ekki sætta sig við
áð einhveijir þegnanna hafi aðrar
hugsjónir en hann sjálfur.
Samanburður sá, er nefndur var
hér að ofan, er mjög villandi, svo
ekki sé nú meira sagt. í fyrsta lagi
er velta Qölmargra sjálfstæðra fyr-
irtækja lögð saman og fengin út
ein tala. Með sambærilegum hætti
er réttlætanlegt að leggja saman
veltutölur allra fyrirtækja innan
Verelunarráðs íslands, sem eru
samtök einkafyrirtækja og einnig
' mætti með sama hætti leggja sam-
an heildartekjur rflrisins og heildar-
veltu allrm þeirra fyrirtækja og
^^fnæj^^mjjflris^jóðu^^hlut^^
f
Hermann Sveinbjðmsson
nÞað eru alvarleg tíðindi
þegar Þorsteinn Pálsson,
lýðrœðislega kjörinn og
valinn tíl þess að vera
æðstí embættiamaður
þjóðarinnar, að undan-
skildum forseta íslands,
hafnar forsjárhlutverki
sínu yfir stórum hluta
íslensku þjóðarinnar,
hafnar 46 þúsund íslend-
inf-------
eftir Óla Björn
Kárason
Samvinnuhreyfíngin á íslandi
hefur um langt árabil verið umdeild
og venð uppspretta pólitískra
átaka. Á síðustu árum hefur þó
mátt merkja breytingar á þessu og
með réttu má halda því fram að
ráðning Guðjóns B. Ólafssonar sem
forstjóra hafi markað þar tímamót.
Viðhorf einkaframtaksins til Sam-
bandsins og samvinnuhreyfíngar-
innar hefur verið að breytast. Dæmi
um þetta er hugsanleg samvinna
Álafoss og iðnaðardeildar Sam-
bandsins og samvinna Sölumið-
stöðvar hraðfrystihúsanna,
Sölusamtaka íslenskra fískfram-
leiðenda og sjávarafurðadeildar
Sambandsins. Annað dæmi er þegar
einkarekstursmenn og fyrirtæki í
eigu samvinnuhreyfíngarinnar tóku
höndum saman um að koma Amar-
flugi á réttan kjöl.
Þessi viðhorfsbreyting sam-
vinnu- og einkarekstursmanna
hefur verið hljóðlát og hafa fáir
gert sér grein fyrir henni. Forráða-
menn Sambandsins hafa með
margvíslegum hætti reynt að breyta
ímynd SÍS og fyrirtækja þess. Sér-
nöfn á verslanir, líkt og Mikligarður
og Kaupstaður, eru góð dæmi um
þetta.
Tilboð Sambandsins og dóttur-
fyrirtækja þess í Útvegsbankann
vakti að vonum mikla athygli. Ekki
vegna þess að tilboð hefði loks kom-
ið í bankann heldur fyrst og fremst
Vegna þess að Sambandið stóð þar
að baki. Athygli vegna þess að
Útvegsbankinn er annar aðalvið-
skiptabanki sjávarútvegsins, en
hlutur SÍS í útgerð og fiskvinnslu
hefur á undanfömum árum aukist
verulega, enda er það stefna for-
ráðamanna þess.
Hvers vegna?
Morgunblaðið hefur líkt og aðrir
fjölmiðlar fjallað um tilboð Sam-
bandsins og síðar þeirra 33 ein-
staklinga og fyrirtækja í
Útvegsbankann. Ein af fjölmörgum
greinum og fréttum sem á undan-
fömum vikum hefur birst hér í
blaðinu er grein er undirritaður
skrifaði í viðskiptablaðið fímmtu-
daginn 27. ágúst. Þar var gerð
tilraun til þess að átta sig á um-
fangi SÍS og samvinnuhreyfingar-
innar. Ég komst að þeirri niðurstöðu
að tekjur Sambandsins, kaupfélag-
anna og nokkurra dótturfyrirtækja
þeirra (sem samvinnumenn nefna
yfírleitt samstarfsfyrirtæki) hafí
verið a.m.k. 43.400 milljónir króna
á síðasta ári. Líklegast hafa tekjur
samvinnuhreyfingarinnar á liðnu
ári verið nær 50.000 milljónum
króna. Þegar um svo háar tölur er
að ræða eiga margir erfítt með að
skilja hvað þær þýða. Af þeim sök-
um er eðlilegt að setja þær í
samhengi við annað. Þess vegna
benti ég á að tekjur ríkisins hefðu
á liðnu ári verið lægri en tekjur
SÍS, kaupfélaganna og nokkurra
dótturfyrirtækj a.
Þessi stutta grein virðist hafa
vakið nokkra athygli og samvinnu-
menn hafa af einhveijum sökum
tekið henni illa. Hermann Svein-
bjömsson, blaðafulltrúi Sambands-
ins, og Jón Kristjánsson,
þingmaður, rita báðir í Morgun-
blaðið síðastliðinn fimmtudag og
er tilefni skrifa þeirra umrædd grein
um umsvif Sambandsins. Ekki hirði
ég um að svara dylgjum blaðafull-
trúans í minn garð, en að tilgangur-
inn hafí verið að gera samvinnu-
hreyfínguna tortryggilega, eins og
blaðafulltrúinn segir, er út í hött.
Samvinnuhreyfíngin verður tor-
tryggileg þegar talsmenn hennar
bregðast við skrifum um umsvif
hennar með sama hætti og blaða-
fulltrúinn. Mér er það óskiljanlegt
hvers vegna samvinnumenn taka
umfjöllun um stærð Sambandsins
jafn illa og raun ber vitni. Þeir
máttu búast við því þegar tilboð í
Útvegsbankann var lagt fram að
augu fjölmiðla beindust í auknum
mæli, eftir nokkurt hlé, að SÍS og
kaupfélögunum.
Um ofurveldi Sambandsins og
kaupfélaganna verður ekki fjölyrt.
Úr heimabyggð minni, Skagafírði,
er hægt að benda á nokkur dæmi
og frá Akureyri einnig. Blaðafull-
trúinn, sem eitt sinn bjó norðan
heiða, ætti kannski að rifja upp
hvaða breytingar urðu á högum
Akureyringa þegar Hagkaup opn-
aði þar stórmarkað í samkeppni við
KEA.
Þingmaðurinn og SIS
Líkt og aðrir þingmenn Fram-
sóknarflokksins telur Jón Kristjáns-
son sig vera sérstakan málsvara
samvinnuhreyfíngarinnar. Grein
hans ber yfirskriftina: „Umræður á
röngum forsendum eru mark-
lausar". Og þar hittir þingmaðurinn
sjálfan sig fyrir. Þingmaðurinn býr
sér til forsendur og setur fram stað-
hæfíngar er hann hirðir ekki um
að rökstyðja. „Hins vegar hagræðir
Morgunblaðið dálítið sannleikanum
í sinni umfjöllun til þess að ná
þeirri niðurstöðu sem þeir tekja
henta sínum málstað." Þingmaður-
inn verður að nefna skýr dæmi
máli sínu til sönnunar. Þó það kunni
að vera háttur félaga hans í Fram-
sóknarflokknum að stunda vinnu-
brögð sem hann sakar Morgun-
blaðið um eru þau ekki stunduð.
Þingmaðurinn segir: „Sambandið
hefur þá sérstöðu meðal íslenskra
stórfyrirtækja að vera stjómað af
aðalfundi, þar sem sitja fulltrúar
sem eru kosnir samkvæmt reglum
fulltrúalýðræðisins, en ekki með til-
liti til þess hve mikið íjármagn
liggur að baki atkvæði þeirra. Þessi
fundur kýs stjóm Sambandsins og
felur henni mikla ábyrgð. Að kalla
fyrirtæki með slíkan bakgrunn auð-
hring er auðvitað fjarstæða."
Nú má deila um réttmæti þess
að áhrif á stjóm fyrirtækja sé ekki
miðuð við fjármagn en eins og þing-
maðurinn bendir réttilega á eiga
kaupfélögin sína fulltrúa á aðal-
fundi Sambandsins. Fulltrúatalan
ræðst af fjölda félagsmanna og
heildarviðskiptum viðkomandi
kaupfélags við Sambandið. Öll
kaupfélögin eiga fé í.stofnsjóði SÍS
en sjóðseign hefur engin áhrif á
fulltrúaijöldann. KRON átti 19 full-
trúa á síðasta aðalfundi Sambands-
ins og að baki þeim standa 14.174
félagsmenn eða 746 fyrir hvem
fulltrúa. Fámennasta kaupfélagið
með 33 félagsmenn hafði einn aðal-
fundarfulltrúa. KEA var rpeð 20
fulltrúa, einum fleiri en KRON,
þrátt fyrir að félagsmenn þess séu
nær helmingi færri. Að baki hverj-
um fulltrúa KEA á aðalfundi SIS
voru 385 félagsmenn. Allt tal um
jafnræði félagsmanna í samvinnu-
hreyfingunni á ekki við nein rök
að styðjast eins og þessar tölur
bera með sér.
Höfundur er blaðamaður á Morg■
unblaðinu.
Leðurfatnaður frá SERGE MIKO í París.
<
n
i
Opið alla laugardaga 10:00 — 14:00. Greiðslukort — afborganir.
EGGERT
fetískeri
Efsl á Skóhivördustígnum, sími 11121.