Morgunblaðið - 15.09.1987, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. SEPTEMBER 1987
Morgunblaðið/Einar Falur
■HK' : r
s 1 .. ' v ..
I lok samkomunnar hylltu gestir J6n Þórarinsson. Á myndinni má sjá Stein Stefánsson, fyrrum
skólastjóra á Seydisfirði, óska Jóni til hamingju
Sinfóníuhljómsveitin með hátíðar-
samkomu til heiðurs Jóni Þórarinssyni
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ís-
lands hélt á sunnudaginn
hátíðarsamkomu í Þjóðleik-
húsinu til heiðurs Jóni Þórar-
inssyni sjötugum. Jón var einn
af frumkvöðlum hljómsveitar-
innar þegar hún var stofnuð
1950.
Á hátíðarsamkomunni flutti
Ólöf Kolbrún Harðardóttir lög
Jóns við ljóð Steins Steinarrs,
þjóðvísuna „Fuglinn í fjörunni“,
og ljóð Halldórs Laxness „Vöggu-
ljóð á hörpu". Þá söng Kristinn
Sigmundsson við undirleik sin-
foníuhljómsveitarinnar „Of love
and death". Karlakórinn Fóst-
bræður söng syrpu af lögum Ama
Thorsteinssonar í útsetningu
Jóns. Athöfninni lauk með flutn-
ingi Karlakórs Reykjavíkur og
Sinfoníuhljómsveitarinnar á
„Minni Ingólfs".
Ávörp fluttu Ólafur B. Thors,
stjómarformaður Sinfoníuhljóm-
sveitarinnar, Birgir ísleifur
Gunnarsson, menntamálaráð-
herra, og Helgi Sæmundsson,
ritstjóri.
Blll og hjólhýsi fuku
Borg í Miklaholtshreppi.
Undanfarandi daga hefur verið
heldur kaldara veður og mikill
stormur. Þó hefur ekki komið
frostnótt.
{ gær voru Lionsmenn úr Grund-
arfírði að aka bifreiðum fyrir
kvikmyndamenn sem dvalið hafa
hér við gerð myndarinnar Nonni og
Manni. Bílunum átti að aka á Akra-
nes en svo óheppilega vildi til að
rétt hjá bænum Stóruþúfu skall á
hörð vindhviða. Bifreið sem var þar
á ferð frá kvikmyndamönnum með
hjólhýsi aftan í fékk svo snarpa
vindhviðu að hjólhýsið kastaðist út
af veginum og bifreiðin hafnaði á
toppnum.
I bifreiðinni voru tveir menn.
Þeir sluppu að mestu ómeiddir.
Hjólhýsið er ekki mikið skemmt,
en bíllinn er töluvert skemmdur.
Páll
Borgaraflokkunnn:
Stórveldin undirriti
friðar- og afvopnunar-
samning á
ÞINGFLOKKUR Borgaraflokks-
ins hefur sent ályktun til ríkis-
stjórnar íslands með óskum um
að hún geri þegar í stað ráðstaf-
anir tíl að koma því á framfæri
við æðstu ráðamenn Banda-
ríkjanna og Sovétríkjanna, að
væntanleg undirritun friðar- og
afvopnunarsamninga eigi sér
stað á íslandi.
í frétt frá þingflokki Borgara-
flokksins segir að leiðtogafundir
hafí tvisvar áður verið haldnir á
íslandi. Hefur tekist vel til um alla
framkvæmd þeirra. Því er eðlilegt,
að ríkisstjómin bjóði þessum aðilum
fundaraðstöðu hér á landi, enda
býður lega landsins upp á margfalt
meira öryggi fyrir þátttakendur en
flestir aðrir fundarstaðir, sem til
greina koma.
Islandi
Ályktun þingflokksins er svo-
hljóðandi:
„Fundur utanríkisráðherra
Bandaríkjanna og Sovétríkjanna er
fyrirhugaður í Washington DC í
næstu viku. Þar mun umræðuefni
verða undirbúningur að leiðtoga-
fundi stórveldanna, en það mun
talið líklegt, að leiðtogamir hittist
innan tíðar til að undirrita afvopn-
unarsamninga.
Því leggur Borgaraflokkurinn til
við ríkisstjóm íslands, að hún geri
nú þegar allt sem í hennar valdi
stendur til þess að sá sögulegi at-
burður megi eiga sér stað á íslandi.
Sé vilji fyrir hendi, þarf að koma
þessum boðum á framfæri við
sendimenn viðkomandi ríkja þegar
í stað.“
Aftanákeyrslur eru algengar. Oft verða þær á þennan hátt: Ökumað-
ur A stöðvar fyrir aftan ökumann B í afrennslisbraut og lítur eftir
umferð um aðalbrautina. Honum finnst sem B sé ekið af stað, lítur
aftur eftir umferðinni og ekur sjálfur af stað. Þá veit hann ekki
fyrri til en bifreið hans lendir aftan á B, sem hefur verið stöðvuð
aftur.
Svona verða
árekstrarnir
Ógætilega beygt. Ökumaður A
ekur til norðurs og ætlar að
beygja til vinstri á gatnamótun-
um. Hann lítur eftir umferð til
suðurs, verður engrar var og
beygir því. Þá sér hann allt í
einu bifreið B koma á móti, en
það er um seinan.
Aðalbrautarréttur ekki virtur.
Ökumaður A dregur úr hraða
þegar hann nálgast gatnamót-
in, verður ekki var við umferð
um aðalbraut og ekur áfram.
Þá lendir hann í árekstri við
B, sem er ekið eftir aðalbraut-
inni.
Bátur í
erfiðleik-
umáGríms-
eyjarsundi
Tilkynningaskyldunni
barst kall frá 2,6 tonna báti
á föstudagskvöldið sem ósk-
aði eftir aðstoð.
Báturinn var staddur á
Grímseyjarsundi, á leið frá
Grímsey inn í Eyjafjörð. Mikið
hvassviðri var á þessum slóðum
og átti báturinn í erfiðleikum.
Mánafoss var næsta skip og kom
bátnum til aðstoðar og fylgdi
honum inn í Eyjafjörð. Engin bil-
un varð í bátnum heldur var það
veðrið sem olli erfiðleikunum.
Að sögn Hálfdáns Henrýssonar
hjá Tilkynningaskyldunni hafa
menn áhyggjur af auknum ferð-
um smábáta, sem oft eiga í
erfiðleikum ef veður versnar.
Atvinnuleysisdögum á öllu
landinu fækkaði um tæp 20% í
ágústmánuði miðað við mánuð-
inn á undan. í ágúst voru
tæplega 7.400 atvinnuleysis-
dagar eða 1.800 færri en í júlí.
I frétt frá félagsmálaráðuneyt-
inu segir að fjöldi skráðra atvinnu-
leysisdaga svari til að 340 manns
hafí að meðaltali verið á atvinnu-
leysisskrá í mánuðinum, en það
jafngildir 0,3% af áætluðum
mannafla á vinnumarkaði í mán-
EINS og bent hefur verið á í
Morgunblaðinu undanfarið er
fjöldi árekstra í Reykjavík oft
uðinum samkvæmt spá Þjóðhags-
stofnunar. Ágústmánuður fylgir
því sömu þróun og mánuðimir á
undan, það er að skráðum atvinnu-
Ieysisdögum hefur fækkað á
landinu í heild miðað við síðastlið-
ið ár.
Fyrstu átta mánuði þessa árs
voru skráðir samtals 124.000 at-
vinnuleysisdagar á öllu landinu en
á sama tímabili í fyrra 168.000.
Fækkar þeim milli ára um 44.000
daga eða 26%. Að meðaltali voru
fleiri tugir á dag. Á síðasta ári
voru 6128 umferðaróhöpp til-
kynnt til lögreglu í borginni. í
714 á atvinnuleysisskrá á tímabil-
inu janúar til ágúst í ár en 970
síðastliðið ár. Hlutfall atvinnu-
lausra af mannafla hefur lækkað
úr 0,8% í 0,6% miili ára eða um
0,2%.
Samkvæmt reynslu undanfar-
inna ára má gera ráð fyrir að skráð
atvinnuleysi í ágústmánuði sé sem
næst 55% af ársmeðaltali. Því má
gera ráð fyrir að meðaltal skráðs
atvinnuleysis á yfirstandandi ári
verði um 0,5% af mannafla, en svo
þeirri tölu eru ekki talin þau til-
vik þegar ekið er á kyrrstæða
bifreið og síðan á brott og alltaf
er eiithvað um að minniháttar
óhöpp séu ekki tilkynnt.
Þtjár algengustu tegundir um-
ferðaróhappa eru aftanákeyrslur,
lítið atvinnuleysi hefur ekki mælst
hér á landi síðan árið 1981.
Tvær skýringar eru á þeirri
staðreynd að atvinnuleysi mælist
þegar fyrirtæki búa við manneklu.
Hér er um stað- og tímabundið
atvinnuleysi að ræða á ýmsum
stöðum utan höfuðborgarsvæðis-
ins og að á þéttbýlisstöðum kemur
jafnan nokkuð af fólki til skráning-
ar sem ekki getur tekið hvaða störf
sem er af ýmsum ástæðum.
sem verða vegna þess að of stutt
bil er milli ökutækja, aðalbrautar-
réttur er ekki virtur, eða ökumenn
gæta ekki að sér í beygjum. „Helsta
ástæða þessara óhappa er sofanda-
háttur ökumanna," sagði Ómar
Smári Ármannsson, aðalvarðstjóri.
„Það er einnig algengt að ökumenn
sýna aðgæsluleysi, virða ekki
hraðatakmarkanir, aka of hratt
miðað við aðstæður og sýna öðrum
vegfarendum tillitsleysi. Þegar öku-
maðurinn fer af stað á ökutæki sínu
geriri hann sjaldnast ráð fyrir að
hann geti lent í umferðaróhappi á
leiðinni. Líkumar eru þó umtals-
verðar, því í fyrra vom 6128
umferðaróhöpp tilkynnt til lögreglu.
í þeim óhöppum slösuðust 242 veg-
farendur, sem er 242 of mikið.“
Ómar Smári sagði að oft kenndu
ökumenn ytri aðstæðum um það
hvemig fór, þegar óhapp verður.
„Slíkar skýringar eru léttvægar og
ökumenn verða að líta í eigin barm.
Við kennum ekki skónum okkar um
það ef við göngum á vegg. Það
sama á við í umferðinni. Bifreiðam-
ar valda ekki slysunum, heldur þeir
sem aka þeim."
Félagsmálaráðuneytið:
Atvinnuleysisdögiim fækkar um 20%