Morgunblaðið - 15.09.1987, Síða 32

Morgunblaðið - 15.09.1987, Síða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. SEPTEMBER 1987 Danmörk: ítalir stöðva danskan fisk Kaupmannahöfn, frá Nils Jðrgen Bruun, fréttaritara Mortfimblaðsins Fisksendingar Dana til Ítalíu hafa frá 4. september verið stöðvaðar á ítölsku landamærunum . Heilbrigðisyfirvöld á Ítalíu segja að í fiskin- um sé sníkillinn nematod, það er að segja ormur. Vestur-þýsk yfírvöld gerðu slíkt hið sama fyrir nokkrum mánuðum er þau stöðvuðu erlendar físksend- ingar á landamærum landsins, þar á meðal danskan fisk. Vestur-þýskir sérfræðingar sögðu þá að um óþarf- lega harkalegar aðgerðir væri að ræða. En fisksala Dana beið mikinn hnekk og hefur markaðurinn ekki enn jafnað sig. Lars Gammelgárd, sjávarútvegs- ráðherra Dana, sagði í útvarpsviðtali að ormurinn í fískinum væri fullkom- lega eðlilegt fyrirbrigði - líkt og ormar í jarðarbeijum og hindberjum. Ormur finnst stöku sinnum í innyfl- um fisksins en ekki í holdinu sem flutt er út, sagði Gammelgárd enn- fremur. Hann hyggst leggja málið fyrir framkvæmdanefnd Evrópu- bandalagsins og kvarta yfir því að ítalir hafi lagt ólögleg viðskiptahöft á fískinnflutning frá Danmörku. Tígrar myrða tugi manna á Sri Lanka Colombo, Reuter. TÍGRARNIR, skæruliðahreyfing tamila á Sri Lanka, tóku að minnsta kosti 66 manns af lífi í aðgerðum gegn öðrum fylkingum NATO-herlið á æfingum í Danmörku Kaupmannahöfn, Reuter. TÍU þúsund manna lið frá niu NATO-löndum hófu æfingar á Sjálandi í Danmörku í gær, að sögn talsmanns NATO. Hersveitir frá Danmörku, Kanada, Lúxemborg, Ítalíu, Belgíu, Bretlandi, Bandaríkjunum, Vestur- Þýskalandi og Hollandi taka þátt í æfingunum. „Markmiðið er að sýna að löndin eru tilbúin til að styðja hvort annað" að sögn talsmanns NATO. Æfíngarnar eru hluti stærri sameiginlegrar æfíngadagskrár NATO-ríkja og munu standa fram á fostudag. tamíla í héraðinu Batticaloa. Tígramir hafa lýst andstöðu sinni við friðarsamkomulagið, sem fulltrú- ar tamíla og stjómvalda undirrituðu 29. júlí sl. Þeir veittu fyrrum félög- um sínum fyrirsát og felldu tugi þeirra, réðust síðan á ýms þorp og myrtu fólk, sem shafðist við í skrif- stofum aðskilnaðarhreyfingarinnar. „Þetta er fjöldamorð. Þeir réðust á óvopnað fólk,“ sagði Joseph Kings- ley Swamipillai, biskup kaþólskra í Batticaloa. Að hans sögn voru flest- ir hinna myrtu óbreyttir borgarar sem tengdust ekki hemaðaraðgerð- um tamíla. „Þetta er slátmn, ekkert nema slátrun," sagði Nimal de Silva, lögreglustjóri í Batticaloa. Tígramir héldu aðgerðum sínum áfram í gær og numdu tugi manna á brott. Tugir fyrrum skæmliða tamíla gáfu sig fram við indverskar friðargæzlusveitir um helgina og báðu um vemd vegna aðgerða tígranna. Talið er að yfirstandandi valdabarátta í Batticaloa geti haft afdrifaríkar afleiðingar í för með sér og að framtíð friðarsamkomulagsins sé í húfi. Reuter Tók banka og tvo gísla París, frá Bernharði Valssyni, fréttarit VOPNaÐUR maður náði síðdegis i gær bankaútibúi á sitt vald og tók tvo starfsmenn þess i gíslingu. Alsírbúinn, sem kveðst heita Messad Sid Ahmed, krafðist einn- ar milljónar franka lausnargjalds i Morgunblaðsins. fyrir gíslana, eða tæplega 6 millj- óna íslenzkra króna, og að hann fengi að fara óáreittur úr landi. Umsátursástand ríkir við bank- ann, sem er í eigu Credit Lyonna- is, og standa tugir vopnaðir lögreglumenn þar á verði, flestir þeirra óeinkennisklæddar og sér- þjálfaðar skyttur. Lögreglan bjóst í gærkvöldi við löngu umsátri og komu sérstakar skyttur frönsku lögreglunnar á vettvang. Um klukkan 20 að íslenzkum tíma krafðist Alsírbú- inn matar og vindlinga. Færeyjar: Paul Watson hyggst leggja í víking á ný Fra'Snorra Halldórssyni, fréttaritara Morgunblaðsins í Færeyjum. PAUL Watson ætlar greinilega ekki að láta deigan síga þó hann hafi verið eltur út fyrir 200 míina lögsögu Færeyja síðast þegar hann sigldi þangað, sumarið 1986. Watson eldar grátt silfur við Færeyinga vegna marsvína- veiða þeirra og hyggst fara aftur til eyjanna að ári og þá tvíefld- ur. Paul Watson er forsprakki samtakanna Sea Shepard, sem m.a. sökktu tveimur hvalveiði- skipum Hvals h/f sl. vetur. Atli Dam, lögmaður Færeyinga fékk nýlega bréf frá Watson, þar sem hann tilkynnti um þær fyrirætl- anir sínar að sigla á færeysk mið næsta sumar og ætlar hann að vera með tvö skip frekar en eitt. Síðast hafði hann aðeins yfir skipinu Sea Shepard að ráða, en nú hefur hann fengið annað skip og stærra í flotann og heitir það „Divine Wind“. Heitið er ensk þýð- ing á japanska orðinu „Kamikaze" — hinn guðdómlegi stormsveipur — en það var haft um sjálfsmorðsárás- ir japanskra flugmanna í Seinni heimsstyijöld. Hið nýja skip er tæp- lega 70 m langt og nær 20 sjómílna hraða. Bretland: Frjálslynda greinir á um samein- ingu við Jafnaðarmannaflokkinn St. Andrews, frá Guðmundi Heiðarí Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. ÁRSÞING Ftjálslyndaflokksins hófst á sunnudaginn. Ágreining- ur er nokkur með þingfulltrúum um sameininguna við Jafnaðar- mannaflokkinn. Fylgissmenn David Owen hafa hótað að bjóða fram gegn þeim þingmönnum Fijálslyndaflokksins, sem minnst- an hafa meirihluta. Nú í upphafi þingflokks Fijáls- lyndaflokksins virðast þær raddir vera sterkari innan hans en talið hefur verið, sem mæla gegn sam- einingu við jafnaðarmenn. Árs- þing flokksins hafa stundum verið óútreiknanleg, eins og til dæmis í fyrra þegar felld var tillaga um að Bretar hefðu eigin kjamorku- vopn gegn yfírlýstum vilja forystu flokksins. Þetta þing gæti reynst hið síðasta í langri sögu flokks- ins, því verði sameiningin sam- þykkt með yfírgnæfandi meirihluta mun forystan vilja ljúka samningaviðræðum sem fyrst þannig að hinn nýi flokkur geti boðið fram í sveitarstjóma- kosningum næsta vor. Atkvæða- greiðsla verður um tillögu til sameiningar á fimmtudag. Ef 85% þingfulltrúa styðja hana hyggst flokksforystan ekki láta fara fram almenna atkvæðagreiðslu flokks- manna um að sameiningarviðræð- ur geti hafizt. Talið er að á miklu velti hvem- ig almennum félagsmönnum verður gert kleyft að hafa áhrif á uppbyggingu hins nýja flokks, hver niðurstaðan verður í at- kvæðagreiðslunni á fímmtudag. Andstaðan við sameininguna er ekki útbreidd og foringjar flokks- ins fara mjög varlega og vilja engu spá. Sumir þingmenn og almennir flokksmenn Fijálslyndaflokksins hafa eindregið þá skoðun að hinn nýi flokkur eigi að bjóða fram gegn stuðningsmönnum Owen fyrrum leiðtoga Jafnaðarmanna- flokksins. Stuðningsmenn Owen hafa nú hótað að bjóða fram gegn þeim þingmönnum fijálslyndra, sem tæpast standa. Tíu þingmenn þeirra voru með undir 5.000 sæta meirihluta í kosningunum í júní sl. Ef flokkur Owen léti verða af hótun sinni gæti það haft mjög afdrifaríkar afleiðingar fyrir þing- menn frjálslyndra og leitt til þess að margir þeirra misstu sæti sín. Paddy Ashdown, sem margir telja framtíðar leiðtogaefni Fijáls- lyndaflokksins, hefur hafnað þeirri ósk Roy Jenkins að ekki verði boðið fram gegn Owen og núverandi stuðningsmönnum hans. Owen hyggst ekki egna frjálslynda og hefur neitað að koma fram í sjónvarpi meðan á ársþinginu stendur. í bréfi sínu til lögmannsins sagði Watson m.a. að hann hafi ekki kom- ist til Færeyja í ár vegna anna á Kyrrahafi. Það þýði hins vegar ekki að hann hyggist láta af aðgerðum sínum í færeyskri iandhelgi. „Þvert á móti eru Færeyjar enn mjög ofar- lega á blaði hjá okkur," segir Watson. í þessum mánuði ætla Watson og kumpánar hans að hefja herferð gegn færeyskum og dönskum sjávarafurðum á Englandi. Telja hvalfriðunarmenn að undirtektir við herferðina verði góðar eftir sýningu sjónvarpsmyndarinnar „Black Har- vest“ (Svört uppskera) í bresku sjónvarpi og munu bráðlega birtast auglýsingar frá þeim í breskum blöðum og tímaritum. Þá vona þeir að myndin verði bráðlega sýnd í Kanada og Bandaríkjunum. í bréfinu til Atla Dam er Watson hinn brattasti og dregur í efa að Færeyingar geti stöðvað Divine Wind líkt og þeir gerðu við Sea Shepard á sínum tíma. Hvaða móttökur Watson fær næsta sumar er enn óvíst, en miðað við viðbrögð Færeyinga verða þær varla vinalegar. „Þú skalt eiga mig á fæti!"

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.