Morgunblaðið - 15.09.1987, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 15.09.1987, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. SEPTEMBER 1987 Fj ölskyldumót afkomenda Krisijönu Guðmunds- dóttur og Kristjáns Einarssonar frá Hjöllum í Skötufirði eftirBaldur Bjarnason Dagana 24.-26. júlí 1987 var haldið í Ögri fjölskyldumót afkom- enda Kristjönu Guðmundsdóttur og Kristjáns Einarssonar frá Hjöllum í Skötufirði. Kristjana var fædd í Amardal 12. september 1890. Foreldrar hennar voru Guðmundur Helgi Kristjánsson, sjómaður, og Guð- mundína Magnúsdóttir. Kristján fæddist 25. ágúst 1887. Foreldrar hans voru þau Jónína Jónsdóttir, vinnukona á Strandselj- um, ættuð frá Ósi í Steingrímsfírði, pg Einar Bjamason, snikkari frá ísafirði. Einar þessi var yfirsmiður hins mikla húss, sem byggt var í Ögri um 1880 og hefir verið talið eitt veglegasta hús, sem byggt hef- ur verið í sveit á íslandi. Lítið er vitað um uppvaxtarár Kristjönu og Kristjáns. Kristjana mun hafa alist upp í foreldrahúsum í Amardal. Kristján ólst upp hjá móðursystur sinni, Hallberu, og manni hennar, Páli Helga Jónssyni á Kirkjubóli í Skutulsfírði. Ekki var meiningin að rekja til hlítar lífshlaup þessara merku hjóna, en aðeins stiklað á því helsta. Á Borðeyri, þann 5. október 1912, eru þau Kristján og Kristjana gefín saman í borgaralegt hjóna- band af sýslumanninum í Stranda- sýslu. Þau Kristján og Kristjana höfðu þá hafíð búskap í Stóruhlíð, sem er fremsti bær í Víðidal í Húna- vatnssýslu. í Stóruhlíð fæðist þeim Vogar. VÉLARLOK af gömlum bU hefur fengið nýtt hlutverk, þar sem það er stór þáttur í tómstundaiðju unglinga. Hefur vélarlokið um nokkurt skeið verið notað sem nokkurs konar sjóskiði, þar sem menn eru dregnir á lokinu út um sjó. Fréttaritari Morgunblaðsins fylgdist nýlega með þeim Andrési Skúla Péturssyni og Páli Antons- syni þar sem þeir vom dregnir um á vélarlokinu við höfnina í Vogum. fyrsta bamið, Aðalheiður, þann 25. júU 1913. Árið 1915 bregða þau búi í Stómhlíð og halda vestur að Djúpi. Þau em eitt ár í Hnífsdal og á Naustum, þar sem Kristján stundar sjó. Á Naustum fæðist þeim dreng- ur sem deyr samdægurs. Árið 1916 hefja þau búskap í Efstadal í Ögursveit, sem er fremsti bær í Laugardal. Efstidalur mun vera talinn sá bær, sem hæst liggur allra bæja á Vestfjörðum, í 172 metra hæð yfír sjó og um 10 km frá sjó. í Efstadal fæðast tvö börn þeirra, Guðmundur og Sigríður. Ekki lét Kristján það á sig fá þótt búskaparskilyrði væm erfíð í Efstadal, vetrarríki mikið og erfítt um alla aðdrætti. Hann tekur þó þann kostinn að breyta til. Árið 1920 festir hann kaup á jörðinni Hjallar í Skötufírði, í sama hreppi. Á Hjöllum bætast 4 synir við bamahópinn, Bjöm Eysteinn, Ari Magnús, Halldór og Aðalsteinn. Bærinn Hjallar stendur, eins og nafnið bendir til, í miðri brattri fjallshlíð. Er þar afar bratt og grýtt niður að sækja að sjónum, og áreið- anlega ein brattasta og erfiðasta sjávargata sem þekkist á öllu landinu. Upp þessa snarbröttu hlíð varð að bera allt sem til heimilisins þurfti frá sjónum á bakinu. Nærri má geta að það hefur reynt á þrek og þrautseigju þeirra sem þama áttu heima, að búa við þessi erfiðu skilyrði. Þó varð sú raunin á, að þama var búið til ársins 1979, Það var Bjarki Viðarsson sem dró þá á bátnum „Vin“. Þeir Andrés Skúli og Páll sögðu í samtali við Morgunblaðið að þessi leikur væri mjög skemmtilegur og hann væri auðveldari en að vera á venjulegum sjóskíðum. Þeir félagar fóm alls konar sveigjur og beygjur við höfnina og sýndu listir sínar. Til þess að vélarlokið sökkvi ekki þegar stöðvað er hefur belgur verið festur við það. en vegur var að vísu kominn nokkr- um áram áður. Aldrei hafa Hjallar verið taldir mikil jörð, og búskaparskilyrði þar mjög takmörkuð, en víðsýnt var frá Hjöllum, og var haft eftir Kristjáni að fyrir það mætti gefa þúsund krónum meira fyrir jörðina. Á Hjöllum verða Kristján og Kristjana fyrir þeirri miklu sorg, að elsta bam þeirra, Aðalheiður, veikist af lungnabólgu og deyr, þá 14 ára gömul. Var það mikill miss- ir því að segja mátti, að hún hafí verið stoð og stytta heimilisins, sem annaðist yngri systkini sín af ein- stakri umhyggju og hlýju, meðan foreldramir sinntu búskapnum. Sumarið 1927 ræðst Kristján í byggingu íbúðar- og peningshúsa á jörðinni, þrátt fyrir erfiðar aðstæð- ur, því bjartsýnin var óbilandi. En þegar húsin höfðu risið af gmnni, kom kallið mikla. Kristján veiktist af hastarlegri lungnabólgu, sem dró hann til dauða eftir skamma legu, þann 26. júní 1927. Stóð þá ekkjan ein uppi með stóra bamahópinn sinn, öll á unga aldri, og vissulega var þá ungu konunni mikill vandi búinn. Kom þá glögglega í ljós hveijum mannkostum og kjarki hún bjó yfir. Kristjana tók þann kostinn, sem margri ekkjunni hefur reynst erfíð- ur, að leysa upp heimilið, og koma bömunum fyrir á heimilum við Djúp, þar sem hún taldi að vel yrði fyrir þeim séð. Sjálf útvegaði hún sér vinnu, fyrst hér vestra, og síðan í Reykjavík. Alltaf fylgdist hún vel með böm- um sínum á uppvaxtaráram þeirra, þroska þeirra og framgangi. Kristjana var mikil myndar- og atorkukona, sem af öllum sem henni kynntust, var virt og vel metin. Hún andaðist 3. janúar 1983, 92 ára gömul. Kristján Einarsson á Hjöllum var mikill dugnaðar- og myndarmaður, þótt hann færi ekki alltaf troðnar slóðir. Hann var félagshyggjumað- ur, sem studdi öll góð málefni, þar sem hann kom því við. Hann var mjög virkur og áhugasamur félagi í UMF Framsókn í sveitinni. Átti hann dijúgan þátt í byggingu sam- komuhúss þess, er ungmennafélag- ið byggði og enn stendur fyrir sínu. Húsið var byggt að mestu í sjálf- boðavinnu, og fyrir fíjáls framlög. Kristján lét þar ekki sinn hlut eftir iiggja. Það var mikið áfall fyrir samsveitunga Kristjáns að horfa á bak honum á besta aldri. Eins og fyrr er frá greint, komu afkomendur Kristjáns og Kristjönu sem fylla brátt 8. tuginn, saman í Ögri, til að minnast þess að rétt mánuði seinna væm liðin 100 ár frá fæðingu Kristjáns. Einn sonur þeirra hjóna, Ari Magnús, er raunar alinn upp í Ögri. í tilefni þessa atburðar færðu afkomendumir samkomuhúsinu veglega peningagjöf, kr. 30.000, sem nota skal til endurbóta og fegr- unar á húsinu. Ennfremur höfðu þeir látið gera minningarskjöld til minningar um Kristján og Krist- jönu, sem ætlað er að varðveitast í samkomuhúsinu. Félagar í UMF Framsókn, sem og allir íbúar Ögurhrepps, færa ættingjum Kristjáns og Kristjönu alúðarþakkir fyrir þessar rausnar- legu gjafír og þann hlýhug sem þeir sýna til þessarar sveitar og íbúa hennar. Við þökkum ykkur fyrir komuna í sveitina í sumar og óskum þessu myndarlega og drengilega fólki alls góðs í framtíðinni. Höfundur er bóndi i Vigw. Vogum: Nýstárleg sjóskíði - EG Morgunblaðið/Eyjólfur Guðmundason Vélarlokið hefur fengið nýtt hlutverk sem sjóskiði. Það er Bjarki Viðarsson sem dregur skiðamanninn á bátnum „Vin“. Á innfelldu myndinni sést vélarlokið betur og við lokið er festur belgur svo það sökkvi ekki þegar stöðvað er. 45 —*— HREINLÆTISTÆKI Á ÓTRÚLEGA GÓÐU VERÐI | Salerni frá kr. 12.600 - Baðker frá I kr. 10.600 - Sturtubotnar frá kr. 4.200 cr Fjölmargar tegundir sturtuklefa og verð við allra hæfi VERSLIÐ ÞAR SEM ÚRVALIÐ ER Y VATNSVIRKINN/ f Ármúli 21 - Sími 685966 Lynghálsi 3 - Simi 673415 Einnig festingar fyrir sprinkler loftstokka og fleira. Hringió og fáiö MUPRO bæklinginn LEITIÐ UPPLÝSINGA. VATNSVIRKINNJ ARMÚLI 21 - PÓSTHÓLF 8620 - 128 REYKJAVlK SlMI: VERSLUN: 686455, SKRIFSTOFA: 685966 LYNGHÁLS 3, SÍMI 673415 TOT7XTr Haustverðin komin! Tjaldvagnar og fylgihlutir á haustverði. Hagstæð verð og greiðslu- kjör. tigenaur eldri vagna! Bjóðum nýja fjaðraundir- vagna undir eldri gerðir. Vetrargeymsla Höfum einnig geymslu á vögnum í vetur.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.