Morgunblaðið - 15.09.1987, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. SEPTEMBER 1987
47
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Fiskvinnsla
Óskum að ráða fólk til fiskvinnslustarfa.
Upplýsingar hjá verkstjóra í síma 96-61710.
Fiskvinnslustöð KEA, Hrísey.
Skóladagheimilið
Völvukot
vantar fóstrur og/eða fólk með sambærilega
menntun og ófaglært fólk.
■í boði eru heilsdags- og hlutastörf. Þetta er
kjörið tækifæri fyrir ykkur að takast á við
nýtt og skemmtilegt verkefni í notalegu
umhverfi.
Völvukot tók til starfa sumarið ’79 og í dag
eru börnin 16.
Komið eða hringið í síma 77270 og fáið nán-
ari upplýsingar.
Starfsfólk.
Fiskeldi
Ungur maður með menntun og víðtæka
reynslu í fiskeldi óskar eftir atvinnu.
Tilboð óskast send á augld. Morgunblaðsins
merkt: „Fiskeldi — 3621“.
Hafnarfjörður
Verkafólk óskast nú þegar til starfa í niður-
suðuverksmiðju okkar á Vesturgötu 15,
Hafnarfirði. í boði eru heilsdags- eða hálfs-
dagsstörf fyrir og eftir hádegi. Athugið,
dagvinnu lýkur kl. 16.10. Mikil vinna framund-
an. Rútuferðir í og úr vinnu, einnig úr
Garðabæ, Kópavogi og Breiðholti.
Lítið við eða hafið samband við verkstjóra í
síma 51882 og 51300.
NORÐURSTJARNAN HF
Vesturgötu 15.
Hatnarfirði.
Ritari — Afleysing
Viljum ráða ritara í véladeild til afleysinga
í 5-6 mánuði.
Vélritunar- og sæmileg enskukunnátta
nauðsynleg.
Nákvæmni, samviskusemi og stundvísi áskilin.
Upplýsingar gefur Sævar Guðlaugsson fram-
kvæmdastjóri.
HEKLAHF
Laugavegi 170-172. Sími 695500.
Verslunarstarf
Fyrirtæki okkar vill ráða starfsmann til
afgreiðslustarfa í heimilistækjadeild sem
fyrst. Starfið felur í sér kynningu og af-
greiðslu heimilistækja og tölvuútskrift reikn-
inga í því sambandi.
Við leitum að röskum og glaðlyndum starfs-
krafti sem hefur ánægju af því að veita
þjónustu og sinna viðskiptavinum.
Þeir sem áhuga hafa á þessu starfi, eru vin-
samlegast beðnir að senda okkur eigin-
handarumsókn með upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf, ásamt meðmælum
ef fyrir hendi eru, fyrir 22. september nk. í
pósthólf 519, 121 Reykjavík.
—SMFTH& ------------------------
NORLAND
Pósthólf 519,121 ReyKjavlk • Nóalúni 4 • Slml 28300
Aukavinna
Starfskraftur óskast til afgreiðslustarfa í
aukavinnu í söluskála í Reykjavík. Aðallega
kvöld- og helgarvinna.
Upplýsingar í síma 83436.
Stýrimaður
Stýrimann vantar á 190 tonna rækjubát.
Upplýsingar í síma 43220 og hjá LÍU í síma
29500.
Hafnarhvoli v/ Trygqvagötu.
Hjúkrunarfræðingar
Hjúkrunarforstjóri og hjúkrunarfræðingur
óskast á vistheimili aldraðra, Stokkseyri.
Húsnæði fyrir hendi.
Upplýsingar í síma 99-3310.
Afgreiðslustarf
Starfskraftur óskast til afgreiðslustarfa í
söluskála í Reykjavík. Vaktavinna.
Upplýsingar í síma 83436.
Bifreiðastjórar
Viljum ráða nú þegar bifreiðastjóra til akst-
urs strætisvagna og á vakt.
Upplýsingar eru gefnar í sírpum 20720 og
13792.
Landleiðirhf.,
Skógarhlíð 10.
Dagheimilið
Hagaborg
Fornhaga 8,
óskar eftir starfsfólki nú þegar.
Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma
10268.
Starfsfólk í
fataverksmiðju
Óskum að ráða starfsfólk í pressun og á
saumastofu.
Upplýsingar hjá verkstjóra í síma 18840.
FATAVERKSMIÐJAN
Snorrabraut 56- ReykjavíkiÍ
Lagtækur aðili
Þjónustufyrirtæki í Múlahverfi vill ráða lag-
tækan aðila til framtíðarstarfa.
Aldur 23-25 ára. Viðkomandi verður þjálfaður
upp í starfi. Vinnutími kl. 8.00-16.00.
Laun 50 þúsund á mánuði.
Umsónir sendist auglýsingadeild Mbl. mekt:
„Framtíðarstarf — 6105“ fyrir fimmtudags-
kvöld.
Óskum að ráða
nokkra verkamenn. Mikil vinna.
Upplýsingar í síma 84911.
Véltækni hf.
Stýrimaður
Stýrimann vantar á 180 tonna bát sem er
gerður út frá Grindavík.
Upplýsingar í síma 92-68216 og kvöld- og
helgarsíma 92-68139.
Hóp hf.
Ritari
Utanríkisráðuneytið óskar að ráða ritara til
starfa í utanríkisþjónustunni.
Krafist er góðrar tungumálakunnáttu og
góðrar vélritunarkunnáttu.
Eftir þjálfun í utanríkisráðuneytinu má gera
ráð fyrir að ritarinn verði sendur til starfa í
sendiráðum íslands erlendis.
Eiginhandarumsókn með upplýsingum um
aldur, menntun og fyrri störf, sendist utan-
ríkisráðuneytinu, Hverfisgötu 115, 105
Reykjavík fyrir 17. september nk.
Un tanríkisráðuneytið.
Afgreiðsla/
frftt húsnæði
Laust er til umsóknar afgreiðslustarf í sölu-
skála í Reykjavík. Vaktavinna, 8.00-16.00 og
16.00-24 til skiptis daglega. Tveir frídagar í
viku. Starfinu fylgir frítt herbergi með að-
gangi að .eldhúsi, baði og stofu.
Upplýsingar um aldur og fyrri störf sendist
auglýsingadeild Mbl. fyrir 20/9 '87, merktar:
„M - 5365“.
Bóka- og ritfanga-
verslun _
Óskum að ráða starfskraft til afgreiðslu-
starfa frá 9.00-18.00.
Upplýsingar í versluninni í dag og á morgun
milli kl. 16.00 og 18.00.
Síðumúla 35 — Sími 36811
Yfirverkstjóri
Óskum að ráða yfirverkstjóra í véladeild okk-
ar. Menntun og reynsla í vélvirkjun eða
sambærilegu áskilin. Gott húsnæði til staðar.
Umsóknir er tilgreini menntun, aldur og fyrri
störf sendist Vélsmiðju Hornafjarðar, 780
Höfn, sem fyrst.
Barngóð
manneskja
óskast til að koma heim og gæta eins árs
gamals barns milli ca kl. 13-17 á virkum
dögum. Engin heimilisstörf. Góð laun.
Upplýsingar í síma 618854.
Plastsmíði
Okkur vantar röska, laghenta starfsmenn til
plastsmíða strax.