Morgunblaðið - 15.09.1987, Síða 61
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. SEPTEMBER 1987
61
Minning:
Felix Pétursson
Fæddur 7. febrúar 1900
Dáinn 3. september 1987
Hann afi minn er dáinn. Hlekkur
úr kynslóð sem lifað hefur tímana
tvenna, tíma sem við, unga kynslóð-
in, höfum aðeins komist í snertingu
við gegnum frásagnir gamla fólks-
ins. Unga fólkið þekkir aðeins nýju
tímana, tíma hraða og streitu, en
ekki gömlu tímana, tímana sem afi
þekkti best.
Hann var bókari að atvinnu.
Starfaði hjá sama fyrirtækinu,
Hamri, mestan hluta af sínum
starfsferli, í um 40 ár. Hann var
bókari í húð og hár. Ég hef alla tíð
séð hann fyrir mér sem samvisku-
saman bókara, klæddan á bókara-
hátt, sem ermabönd, ermahlífar og
bókarader. Hann gekk til vinnu á
morgnana, fékk rakstur á rakara-
stofu, sat og færði tölur inn í stóru
bókhaldsbækumar og gekk heim
til ömmu og sonanna að kvöldi dags.
Einhvem veginn fínnst mér að þetta
hljóti að hafa verið þannig.
Við frændsystkinin vorum tíðir
gestir hjá afa og ömmu í litlu íbúð-
inni á Bræðraborgarstíg 4. Hjá
þeim var allt svo öðmvísi en við
áttum að venjast. Lengi vel áttu
þau engan ísskáp en geymdu allar
kælivömr í lítilli geymslu undir úti-
dyratröppunum. Þetta fannst okkur
skrýtið því ekki þekktum við annað
Kveðjuorð:
Páll Hafstað
Laugardaginn 5. september sl.
lést í Reykjavík Páll Hafstað, fyrr-
verandi skrifstofustjóri. Rúmlega
þrítugur að aldri hóf hann störf sem
fulltrúi raforkumálastjóra og síðar
orkumálastjóra og gegndi því starfí
í þijátíu og tvö ár. Frá árinu 1981
og til þess er hann lét af störfum
fyrir um tveimur ámm var hann
skrifstofustjóri á Orkustofnun.
Hann var einnig ritari Raforkusjóðs
og síðan Orkusjóðs allt fram á þetta
ár. Páll var því gjörkunnugur flest-
um sviðum orkumála hér á landi á
síðustu áratugum. í starfi sínu
kynntist hann fjölda manna um land
allt og var því margfróður um menn
og málefni.
Við starfsfélagar hans á Orku-
stofnun minnumst hans ekki síst
\
fyrir margar fróðlegar og skemmti-
legar frásagnir hans af liðnum
atburðum og litríku fólki. Páll hafði
sérstakt lag á því að draga fram
sérkenni manna og óvenjulegar og
oft á tíðum skoplegar hliðar mála.
Hann lagði einnig drjúgan skerf til
umræðu á stofnuninni um landsins
gagn og nauðsynjar.
Páll Hafstað var mjög félags-
lyndur og gerði sér far um að blanda
geði við starfsfélaga sína, jafnt eldri
sem yngri, hann sótti jafnan sam-
komur starfsmannafélagsins og var
löngum hrókur alls fagnaðar við
slík tækifæri. Fyrir þetta erum við
honum þakklát og minnumst góðs
félaga og vinar.
Starfsmannafélagið vottar eigin-
konu hans og öðrum aðstandendum
Birting afmælis- og
minningargreina,
Morgnnblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til
birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit-
stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á
skrifstofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með
góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.
í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki
eru tekin til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfilegt er
að birta ljóð eftir þekkt skáld, 1—3 erindi og skal þá höfund-
ar getið. Sama gildir ef sálmur er birtur. Meginregla er sú,
að minningargreinar birtist undir fullu nafni höfundar.
Við birtingu afmælisgreiná gildir sú regla, að aðeins eru
birtar greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar
eru birtar afmælisfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er
50 ára eða eldra.
Mikil áhersla er á það lögð að handrit séu vel frá gengin,
vélrituð og með góðu línubili.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúö og vinarhug við andlát og
útför bróður okkar og mágs,
SIGHVATAR GÍSLASONAR,
Vlk-Mýrdal.
Sérstakar þakkir til starfsfóklks elli- og hjúkrunarheimilisins Ljós-
heima, Selfossi fyrir góða umönnun og hlýhug.
Jóna E. Gfsladóttir,
Margrót Gfsladóttir,
Guðmundur Kr. Gfslason,
Hallgrímur Gfslason,
Þórarinn Gfslason,
Guörún Gfsladóttir,
Jóhanna Guömundsdóttlr,
Ragnheiður Samsonardóttir,
Sofffa Magnúsdóttlr.
UÓSASTILLINGA-
VERKSTÆÐI
OSRAM
bílperur
WAGNER
Ijósa samlokur
Eigum fyririiggjandi
Ijósastillingatæki
Sundaborg13, sfmi 688588
VJterkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiöill!
Blómastofa
Friðfinits
Suðuilandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opið öll kvöld
til kl. 22,- eínnig um helgar.
Skreytingar við öll tilefni.
Gjafavörur.
ii:ijl'Il'»iim
BSB
Legsteinar
MARGAR GERÐIR
Mmorex/Gmít
Steinefnaverksmiðjan
Helluhrauni 14, sími 54034,
222 Hafnarfjörður
hefðu ekkert við slíkan óþarfa að
gera.
Hann afi minn var því maður af
gamla skólanum. Hann fór sér
hægt í öllu sem hann tók sér fyrir
hendur og hraða og streitu nútíma-
mannsns var ekki að sjá á honum.
Hversu mikill sem hamagangurinn
í okkur bamabömunum var þá lét
hann það ekki angra sig heldur stóð
aðeins álengdar og fylgdist með.
Alltaf hafði hann tíma fyrir okkur.
Hann kenndi okkur að spila, tefla
og ýmsa leiki og lék mikið við okk-
ur. Það var alltaf skemmtilegast
að vinna afa í einhveiju spili, að
vinna einhvem fullorðinn. Og ekki
má gleyma sælgætisskálinni. Það
var alltaf hátfðleg athöfn að fá
heimalagaðar karamellur og annað
sælgæti úr skálinni. Það var öðm-
vísi en við áttum að venjast.
Afi og amma höfðu kálgarð rétt
við flugvöllinn. Á sumrin var alltaf
þeyst í garðinn til að reyta arfa,
vökva eða hlúa að jurtunum á ann-
an hátt. Garðurinn var gríðarlega
stór svo það þurfti að veija miklum
tíma til þess að sinna garðrækt-
inni. Þetta gerðu þau samviskulega,
enda höfðu þau mikla ánægju af
útiverunni og vinnunni við mat-
jurtaframleiðsluna. Enda var
framleiðslan mikil. Heimilum son-
anna þriggja ásamt þeirra eigin var
séð fyrir nægum kartöflum, rófum
og öðrum matjurtum vetrarlangt.
Fyrir öllu þurfti að hugsa.
Afí hafði mjög ákveðnar lífsskoð-
anir. Hann gerði okkur öllum grein
fyrir því hvað væri rétt og rangt,
svart og hvítt, satt og logið. Oll
fengum við að heyra hans lífsskoð-
anir, ef ekki frá honum sjálfum,
þá frá sonum hans, sem allir mótuð-
ust á einhvern hátt af hugsanahætti
þessara gömlu tíma. Ég held að öll
höfum við, bamabömin, einnig
mótast af skoðunum hans, hvort
sem við höfum tekið eftir þvi eður
ei. Og ég held að það hafí hjálpað
til við að þroska okkur sem persón-
ur í hinu hraða þjóðfélagi nútímans.
En nú er afi farinn yfir móðuna
miklu. Megi hann hvfla þar í friði
með ömmu sér við hlið.
Guðmundur Örn
en að allir ættu ísskáp. Er spurt
. var hvort þau ætluðu ekki að kaupa
einn slíkan var því svarað að þau
dýpstu samúð við fráfall Páls Haf-
stað.
Starfsmannaf élag
Orkustofnunar.
t
Þökkum hjartanlega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og
útför fööur okkar, stjúpfööur og tengdafööur,
VALDIMARS GUÐMUNDSSONAR
fyrrum bónda
frá Kflhrauni á SkelAum.
Árni Valdimarsson, Nfna Björk Knútsdóttir,
Erlendur Valdimarsson,
Þorsteinn Alfreösson, Guörún Sturlaugsdóttir.
+
Þökkum innilega samúð, vinarhug og hjálpsemi viö andlát og
útför dóttur minnar og frænku,
GUÐRÚNAR ELÍSABETAR ÁGÚSTSDÓTTUR,
Aðalstræti 25,
fsafiröi.
Fyrir hönd aðstandenda,
Ágúst Pótursson, Petrína Georgsdóttir.
+
Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og
útför sonar okkar og bróöur,
JÓHANNS ELÍASAR ÓLAFSSONAR,
Háaleitisbraut 52.
Jóhanna Eyþórsdóttlr, Ólafur Eliasson,
Valgeröur Ólafsdóttir, Ingibjörg Ólafsdóttir.
*■