Morgunblaðið - 24.10.1987, Side 2

Morgunblaðið - 24.10.1987, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 1987 Morgunblaðið/Þorkell Meðal viðstaddra við upphaf nittóruverndarþings í gær voru Vigdís Finnbogadóttir, forseti ís- lnnHa, og Birgir ísleifur Gunnarsson, menntamálaráðherra. Sjét þau á myndinni ásamt Elínu Pálmadóttur, varaformanni Náttóruverndarráðs. Ferðamannaaðstaða verður bætt við Gullfoss VIÐ setningu 6. Náttúruvemd- arþings ígær kom fram i ávarpi Birgis Isleifs Gunnarssonar menntamálaráðherra að hann hefur skipað Eyþór Einarsson og Elínu Pálmadóttur til að gegna áfram störfum formanns og varaf ormanns Náttóru- verndarráðs til ársins 1990. Framkvæmdastjóri Náttúru- verndarráðs sagði meðal annars í ræðu sinni á þinginu að á næsta ári yrði hafist handa við að bæta ferðamannaað- stöðu við Gullfoss. Meðal viðstaddra við setningu þingsins, sem stendur til sunnu- dags, var forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir, auk menntamála- ráðherra. Menntamálaráðherra ávarpaði þingið og skýrði frá skip- un formanns og varaformanns náttúruvemdarráðs. Þá gerði menntamálaráðherra grein fyrir skipun nefndar til að marka nýja framtíðarstefnu í umhverfísmál- um og skal hún skila nýju frumvarpi að Náttúruvemdarlög- um fyrir áramót. Þá varpaði Birgir ísleifur fram þeirri spum- ingu, þingfulltrúum til umhugsun- ar, hvort rétt væri að krefja ferðamenn um gjald fyrir að skoða og ganga um ýmsa eftirsótta og viðkvæma ferðamannastaði. Nefndi ráðherra í því sambandi Dimmuborgir. Eyþór Einarsson formaður Náttúruvemdarráðs sagði í ræðu sinni að íslendingar væm eftirbát- ar nágrannaþjóða í alþjóðlegu náttúruvemdarsamstarfi. Til marks um það sagði Eyþór að auk Islendinga hefðu Möltumenn, ein- ir Evrópubúa, enn ekki undirritað og fullgilt Bemarsamþykktina um vemdun villtra lífvera og lífsvæða og væri það okkur mjög til vansa, að mati Náttúmvemdarráðs. Þá kom fram í máli Gísla Gísla- sonar fi-amkvæmdastjóra Nátt- úmvemdarráðs að næsta ár verði hafíst handa við úrbætur á ferða- mannaaðstöðu á Gullfosssvæðinu. Náttúmvemdarráð hefur í sam- vinnu við heimamenn unnið að skipulagi á svæðinu og er gert ráð fyrir að þjónusta við ferðamenn verði á efri palli svæðisins, það er skammt ofan friðlandsmark- anna en þaðan liggi göngustígur niður að fossinum. Einnig er gert ráð fyrir að Kjalvegur verði færð- ur þannig að hann liggi aðeins að litlum hluta um friðlandið. * Islenskur tón- listardagur í dag Haldinn til að vekja áhuga almenn- ings á íslenskri tónlist ÍSLENSKUR tónlistardagur er haldhm í dag til að vekja áhuga almennings á islenskri tónlist og stuðla að útbreiðslu hennar. Til- gangur hans er einnig að auka atvinnutækifæri fyrir tónlistar- menn og stuðla að samheldni tónlistarmanna á ólikum SVÍðum. Að íslenskum tónlistardegi standa standa Félag tónskálda og textahöfunda, Tónskáldafé- lag íslands, Félag íslenskra hljóðfæraleikara, Félag íslenskra tónlistarmanna, STEF, Félagsheimili tónlistarmanna og Sinfóníuhljómsveit íslands. Hátíðahöld dagsins fara fram víðs vegar í Reykjavík og hefjast þau með tónleikum Sinfóníuhljóm- sveitar íslands sem verða í Kringl- unni frá kl. 12.30 til 13.30. Lúðrasveitin Svanur heldur tónleika í Kaupstað í Mjódd kl. 13.00 og kl. Landbúnaðar- nefnd klofnaði Landbúnaðarnefnd neðri deildar Alþingis klofnaði í af- stöðunni til frumvarps Matthías- ar Bjarnasonar og fleiri um heimild fyrir Sláturfélag Arn- fírðinga að slátra í sláturhúsi sínu á Bíldudal í haust. Meirihluti nefndarinnar mælir með því að frumvarpið verði fellt en minnihlutinn mælir með því að það veiði samþykkt. Meirihlutann skipa Ami Gunnarsson, Alþýðu- flokki, Ragnar Amalds, Alþýðu- bandalagi, Alexander Stefánsson, Framsóknarflokki og Páll Péturs- son, Framsóknarflokki. í minnihlut- anum eru Pálmi Jónsson og Eggert Haukdal, Sjálfstæðisflokki, og Ingi Bjöm Albertsson, Borgaraflokki. 14.00 verður Félagsheimili tónlist- armanna að Vitastíg 3 formlega opnað. Söngnemar koma fram í opnu húsi hjá íslensku Ópemnni frá kl. 15.00 til 18.00, Lúðrasveit Reykjavíkur heldur tónleika á Lækj- artorgi kl. 14.00, Söngskólinn í Reykjavík og Tónmenntaskólinn í Reykjavik verða með opið hús frá kl. 14.00 til 17.00. Þá verða rokk- tónleikar í Tónabæ frá kl. 15.00 til 23.30. í kvöld fer fram „Tónlistarveisla ársins 1987“ á Hótel Sögu með blandaðri tónlist og kvöldverði. í tilefni dagsins munu íslensku út- varpsstöðvamar leika nánast eingöngu íslenska tónlist og íslensk- ar hljómplötur verða seldar á afsláttarverði. Sjá nánar blaðsíðu 16. Verð skilur á milli í samn- ingnm við Sovétmenn SAMNINGAR um sölu á saltsfld tíl Sovétríkjanna hafa enn ekki tekizt. Helztí Þrándur f Gðtu samninga er krafa Sovétmanna iitti læklmn á verði frá síðasta ári. Á síðasta ári voru seldar plotBunÞIáhiþ í dag 200.000 tunnur til Sovétríkjanna, en 78.000 tunnur til annarra landa Að ósk Sovétmanna er samn- ingaumleitunum haldið áfram með telexskeytum og jafnframt er unnið að því að koma á fundi samningsað- ila, Síldarútvegsnefndar og Prodin- torg, matvælainnkaupastofnunar Sovétríkjanna. Samgöngur við Moskvu ganga hins vegar illa nú vegna þoku og hefur ekki verið flog- ið þangað dögum saman og tugir þúsunda fólks bíður fars. Þar að auki er byltingarafmælið 7. nóvem- ber næstkomandi og fundarhöld um saltsíldarsölur í Moskvu tæpast á dagskrá bá. Samið hefur verið um sölu á 50.000 tunnum af hausskorinni og slógdreginni síld til Svíþjóðar og Finnlands og 9.000 af síldarflökum. Það samsvarar um 83.000 tunnum af heilsaltaðri sfld. Söltun upp f þá samninga hefur verið úthlutað í samræmi við reglur, sem félög sfldarsaltenda hafa komið sér sam- an um. Samkvæmt þeirn er ákveð- inn heildarkvóti á hvert plan og dagskammtur er 300 tunnur. Sölt- un er mislangt komin eftir stöðum, en líklegt er að langt verði komið með að salta upp f gerða samninga f næstu viku. A fimmtudag hafði verið saltað í 38.500 tunnur af hausskorinni og slógdreginni sfld og 1.100 af flökum, eða 61% af samningnum. Á sfðasta ári tókust samningar við Sovétmenn í byijun nóvember. Barði Guðmundsson Lést í bíl- slysi í Svíþjóð ÍSLENZKUR maður, Barði Guðmundsson, lést í fyrrinótt eftir bflslys í Sviþjóð að- faranótt síðastliðins miðviku- dags. Barði var 36 ára að aldri og hafði starfað i Nor- egi í röskan áratug. Tildrög slyssins eru óljós, en Barði var á leið frá Gautaborg til Osló og var einn í bílnum. Slysið varð skammt frá Uddevalla. Jóhann á sigurbraut Fri Leifi Jóateinuyni, fréttarítara Morgunhlartaina á InvestJbankamótinu i Belgrad. Jóhann Hjartarson sigraði júgóslavneska stórmeistarann Bozidar Ivanovic i æsispennandi skák i fímmtu umferð mótsins í gærkvöldi. Jóhann er þvi i efsta sætí á mótínu með fjóra vinn- inga, en Viktor Korchnoi er nú kominn upp i annað sætíð með þijá og hálfan vinning. Timman og Salov hafa þijá vinninga. Skák þeirra Jóhanns og Ivanovic var gífurlega spennandi og lenti Jóhann tvfvegis í miklu tímahraki, fyrst við 40 leikja tímamörkin og síðan í öðru ennþá verra við 60 leikja mörkin. Framan af skákinni stóð Ivanovic betur, en er hann hugðist notfæra sér fyrra tímahrak Jóhanns missti hann stöðuyfirburði sína. Eftir að Jóhann hafði náð tfmamörkunum fór hann að reyna að tefla til vinnings, en það ekki betur en svo að staða hans var á tímabili töpuð. Þar sem Jóhann var líka búinn með tímann virtust úrslit- in ráðin, en þá lagði hann gildru sem Ivanovic féll í. Júgóslavanum brá svo mikið er hann sá mistök sín að áhorfendur sáu greinilega að hann tók kipp f sætinu. Júgóslavneskir blaðamenn og áhorfendur voru að vonum von- sviknir yfír óförum síns manns, en margir urðu þó til að óska Jóhanni til hamiiigju, enda er hann langvin- sælastur útlendu keppendanna hér f Belgrad. Önnur úrslit í fimmtu umferð urðu þau að Korchnoi vann Maij- anovic og Short vann Popovic. Jafntefli gerðu Timman og Gligoric, Ljubojevic og Beljavsky, Salov og Nikolic. í gær vann Korchnoi frest- aða skák gegn Beljavsky í aðeins 28 leikjum og Salov vann biðskák sína við Ivanovic. Jóhanns bíður mjög erfítt verk- efni í dag, þá hefur hann svart gegn Alexander Beljavsky, núver- andi skákmeistara Sovétrfkjanna. Mánafoss kyrrsettur MÁNAFOSS, leiguskip Eim skipafélagsins, var kyrreett Rotterdam í gær. Leigusamning verður sagt upp og eftír helg tekur uppboðsréttur við skipinu. Áhöfii skipsins, 11 manns, kemu heim eftir helgi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.