Morgunblaðið - 24.10.1987, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 1987
ÍSLENSKUR
TÓNLISTAR-
DAGUR
Hjá ýmsum þjóðum, ekki síst þeim smærri, hefur tíðkast
unanfarin ár í sívaxandi mæli að efna til tónlistardags, þar
sem áhersla er lögð á tónlist og tónlistarmenn viðkomandi
lands. Tilefni slíkra daga er að vekja athygli á því fjölþætta
tónlistarlífí, sem fyrir er í landinu, tónlistarlífí sem á við sífellt
harðnandi samkeppni að stríða frá öflugum, alþjóðlegum miðl-
um. Slíkt þekkjum við mætavel hér á landi. íslenskt tónlistarlíf
hefur eflst jafnt og þétt á undanfömum árum, og samkeppnin
utan frá sömuleiðis. Það er því meir en tímabært að eftia til
íslensks tónlistardags, þar sem fólk frá öllum og ólíkustu svið-
um tónlistar tekur höndum saman og kynnir störf sín. Fyrsti
vetrardagur varð fyrir valinu.
íslenskir tónlistarmenn
munu á þessum degi flytja
tónlist sína á markaðstorgum,
innan dyra eða utan, eftir því
sem veður leyfír, þeir munu
hafa opin hús, opna félags-
heimili tónlistarmanna að
Vitastíg 3 og enda daginn með
Tónlistarveislu ársins að Hótel
Sögu.
Stefnt er að því, að Islensk-
ur tónlistardagur verði árviss
viðburður, svo að fólki gefíst
kostur á að áttta sig á, hve
íslenskt tónlistarlíf er öflugt
og fjölskrúðugt, jafnvel þótt
stiklað sé á stóm í þetta sinn.
Dagurinn á að bera vott um
þá víðtæku samstöðu, sem
myndast hefur með íslenskum
tónlistarmönnum, að standa
vörð um lifandi tónlist í
landinu. Við vonum, að fólk
samfagni okkur á þessum
fyrsta íslenska tónlistardegi,
og að hann megi ætíð verða
tilhlökkunarefni.
Halldór Haraldsson,
formaður Tónlistar-
bandalags íslands.
Þorkell Sigurbjörnsson,
formaður Tónskáldafé-
lags íslands.
Magnús Eiríksson, form-
aður Félags tónskálda og
textahöfunda.
Tónlistarmenn leggja síðustu hönd á búnað félagsheimilisins
Morgunblaðiö/Börkur
Félagsheimili tónlistarmanna opnað
FÉLAGSHEIMILI tónlistar-
manna að Vitastig 3 í Reykjavík
verður formlega opnað í dag á
íslenska tónlistardeginum. Hús-
næðið er 240 fermetrar að stærð
og er hugmyndin að þar verði
miðstöð samskipta og upplýs-
ingastreymis milli tónlistar-
manna.
Husnæðinu er skipt niður með
færanlegum skilrúmum. Með því
móti fæst aðstaða fyrir margs kon-
ar starfsemi. Til dæmis verður
aðstaða til hljóðritunar í hljóðveri,
fundahalda, tónleikahalds og tón-
listarkennslu, t.d. námskeiðahalds.
Þá verður veitingaaðstaða og að-
staða til skemmtanahalds. í félags-
heimilinu verða einnig skrifstofur
fyrir hin ýmsu félög og samtök tón-
listarmanna auk æfingaraðstöðu
fyrir einleikara, kóra og flokka
hljóðfæraleikara.
Til þess að fjármagna kaup á
Félagsheimilinu hafa m.a. verið
gefin út 500 hlutabréf sem seld
hafa verið á 10.000 krónur hvert.
= = L „Tónlistarveisla ársins“ » þekkt-
ij zzz Maitírafl
•j * 0
HUGBUNAÐUR
KYIMIMIIXIG
í versluninni Tölvuvörum, Skeifunni 17, iaugar-
daginn 24. októbernk. kl. 10-16.
Fyririestrar um 00 HUGBÚNAÐ verða
kl. 10, 12og 14.
00 HUGBÚNAÐUR býðurm.a. lausnirá:
* FJÁRHAGSBÖKHALDI
* VIÐSKIPTAMANNABÓKHALDI
* BIRGÐABÓKHALDI
* LAUNABÖKHALDI
* VERKBÓKHALDI
HUGBÚNAÐUR FYRIR ÞÁ, SEM
HUGSA FRAM í TÍMANN
TOLVll
VPRUR
HUGBUNAÐUR
SKRIFSTOFUTÆKI
SKEIFAN 17 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI 91-687175
mönnum lands-
ins skemmta
„Tónlistarveisla ársins“ verður haldin í tilefni dagsins í
Súlnasal Hótel Sögn í kvöld. Hefst hún með kvöldverði kl.
19, en að loknuborðhaldi kl. 21.30 hefst tónlistardagskrá
þar sem margir af þekktustu tónlistarmönnum landsins
koma fram. „Veislan" er opin almenningi og rennur allur
ágóði hennar til hins nýja Félagsheimilis tónlistarmanna.
Þeir Kolbeinn Bjamason
flautuleikari og Páll Eyjólfsson
gítarleikari leika ljúfa tónlist með-
an á borðhaldinu stendur. Af
öðrum skemmtiatriðum má nefna
sönghópinn Madrigalana, en hann
skipa Hildigunnur Halldórsdóttir,
Marta Guðrún Halldórsdóttir,
Martial Nardeau og Sverrir Guð-
mundsson. Þau flytja nokkur lög
frá 15. og 16. öld. Halldór Har-
aldsson píanóleikari og Guðný
Guðmundsdóttir fíðluleikari leika
nokkur lög, Valgeir Guðjónsson
stuðmaður kemur fram auk Krist-
ins Sigmundssonar, óperusöngv-
ara og Jónasar Ingimundarsonar
undirleikara hans og Bergþóru
Ámadóttur vísnasöngkonu sem
nýtur aðstoðar hljómsveitar Grét-
ars Örvarssonar og söngkonunnar
Önnu Pálínu Amadóttur. Þá
koma 10 félagar úr Félagi harm-
onikuunnenda fram og flytja lög
eftir Sigfús Halldórsson og Njáll
Sigurðsson fræðslustjóri kveður
rímur. Ellen Kristjánsdóttir söng-
kona og Eyþór Gunnarsson úr
Mezzoforte flytja m.a. lagið Án
þín eftir Jón Múla og Jónas Áma-
syni. Lagið syngja Ellen og Bjami
Arason söngvari. Bjami frum-
flytur einnig lag Þorkels Sigur-
bjömssonar Þú ert draumur við
ljóð Halldórs Laxness. Að lokum
syngur hann hressilegt Presley
lag.
Veislustjóm annast Ríó Tríó
sem tekur nokkur lög í lokin.
Hlutafé í Félagsheimili tónlist-
armanna verður safnað í veislunni
og á miðnætti verður dregið úr
númeruðum hlutaij árloforðum
sem safnast um kvöldið.
Hljómsveit Grétars Örarssonar
leikur fyrir dansi og eftir mið-
nætti verður Bjami Arason
rokksöngvari í hlutverki Elvis
Presley á sýningu sem verið hefur
að undanfömu á Hótel Sögu. Á
Mímisbar leikur Tríó Áma Sche-
ving, en veislunni lýkur klukkan
3.